Austurland - 19.01.1973, Blaðsíða 1
lUSTURLAND
MALGAGN ALÞÝÐUBANDALAG51WS A AUSTURLAMDI
23. árgangur. >eskaupstað, 19. janúar 1973. 3. tölublað.
Alþýðubandalagið í Neskaupstað:
Gerir samþykktir um efnahagsmál,
hernámsmál og landhelgismál
Sl. laugardag var haldinn fund-
ur í Alþýðubandalaginu f Neis-
kaupstað. Var fundur þessi fjöl-
sóttur. Aðalræðu fundarins
flutti Lúðvík Jósepsson, ráðherra.
Ræddi hann um stjórnmálin og
efnahagsmálin sérstaklega. Svar-
aði hann fjölmöngum fyrirspurn-
um fundarmanna, en umræður á
fundinum urðu allmiklar.
Það kom glögglega í !jós, að
fundarmenn höfðu mikinn áhuga
á, að öll atriði málefnasamnings
rikisstjcrnarinnar næðu fram að
ganga og fram kom fullt traust
til ríkisstjórnarinnar að uppfylla
þau atriði, sem ekki er þegar búið
að uppfylla.
Tvær tillögur voru samþykktar
a fundinum einróma, og eru þær
birtar hér á eftir:
Traust á miðstjórn og ráð-
benra Alþýðubandalagsins.
,,Almennur félagsfundur í Al-
þýðubandalaginu í Neskaupstað
haldinn 13. janúar 1973, lýsir
stuðningi sínum við ákvarðanir
miðstjórnar og ráðherra Alþýðu-
bandalagsins í efnahagsmálum í
desember sl.
Vínningor í Hoppdrstti
Þjóðviljons
Birtir hafa verið vinningar í
Happdrætti Þjóðviljans, en dregið
var í happdrættinu á Þorláks-
messu.
1. vinningur, bifreið, Skoda
sportsmodel kom á nr. 38.730.
2. vinningur, 15 daga ferð fyrir
2 til Kanaríeyja kom á nr. 38.747.
3. vinningur, ferð fyrir 2 til
Kaupmannahafnar með flugvél
Flugjfélags íslands kom á nr.
33.348.
4. vinningur, ferð fyrii tvo til
Kaupmannahafnar með flugvél
Loftleiða kom á nr. 19.126.
5. vinningur, ferð fyrir 2 til
meginlands Evrópu með skipi
Eimskipafélagsins kom á nr.
35.909. (Birt án ábyrgðar).
Telur fundurinn þó, að þær ráð-
stafanir, sem samkomulag náðist
um í ríkisstjórninni, hafi ekki ver-
ið sá bezti kostur, sem völ var á
í þeim efnahagsvanda, sem við
var að etja.
Með tilliti til hinna mörgu þýð-
ingarmiklu mála, sem bíða úr-
lausnar á næstu mánuðum og
misserum, leggur fundurinn
þunga áiherzlu á órofa samstöðu
stjórnarflokikanna um áframhald-
andi framkvæmd stjórnarsátt-
málans”.
Hernámssamningnum verði
sagt upp.
Hveirgi verði hvikað í Iand-
helgismáflinu.
,,Almennur fundur í Alþýðu-
Næstu daga þurfa menn að
standa skil á skattframtölum sín-
um, svo unnt verði að skipta
byrðum þjóðfélagsins réttilega
milli þegnanna í foi-mi tekju- og
eignaskatts, útsvars og aðstöðu-
gjalds.
Erá því í fyrra hefur skatt-
frádráttur hækkað verulega, eða
um 28%. Samtímis hafa bilin milli
skattþrepa lengst.
Persónufrádráttur til skatts
verður nú sem hér segir:
Fyrir einhleyping kr. 185.600
(í fyrra 145 þús.).
Fyrir hjón kr. 281.600 (í fyrra
220 þús.).
Fyrir hvert barn kr. 38.400 (í
fyrra 30 þús).
Engar breytingar hafa orðið á
ákvæðum um útsvör, persónufrá- l
dráttur til útsvars mun hinn sami
og í fyrra.
Skattþrepin breytast sem hér
segir:
Af fyrstu 64 þús. kr. greiðist
25% í tekjuskatt. (1 fyrra var
skattur 25% af fyrstu 50 þús. kr.
tekjum).
Af 64—96 þús. kr. tekjum
greiðast 35% í skatt. (I fyrm af
50—75 þús.).
bandalaginu í Neskaupstað hald-
inn 13. janúar 1973 fagnar því,
að ríkisstjórnin er nú að ihefja
undirbúning að endurskoðun hins
svokallaða varnarsamnings við
Bandaríki Norður-Ameríku.
Leggur fundurinn ríká áherzlu
á, að þeirri endurskoðun ljú'ki siem
fyrst og samningnum verði sagt
upp eins fljótt og unnt er, og
brottflutningur herliðsins af land-
inu hefjist strax og samnings-
ákvæði leyfa.
Þá vill fundurinn skora á ríkis-
stjórnina að hvika hvergi frá
stefnu sinni í landhelgismálinu og
veita óvinaþjóðum okkar í því
máli engar frekari tilslakanir”.
Af 96 þús. kr. rekjum og hærri
er skattur 44%. (1 fyrra af 75
þús. kr. og hærri).
Frádráttur vegna heimilisstofn-
unar hækkar úr 55 þús. kr í
70.400 kr. og sjómannafrádráttur
úr 800 kr. í 1024 kr. og úr 5 þús.
kr. í 6.400 kr.
Loðnan er komin
Fyrstu loðnugöngurnar eru nú á
leið suður með Austfjörðum. Fara
þær miklu hægar yfir en í fyrra
og gæti það bent til þess, að þær
stöldruðu nú eitthvað lengur við
á austursvæðinu en þær gerðu þá.
Fá s'kip eru komin á miðin. Eld-
borg hefur þó verið þar lengi og
gert veiðitilraunir með flotvörpu.
Hefur hún fengið talsvert og einu
sinni fullfermi. Bendir það til þess
að loðnuveiðar í flotvörpu geti
gefið góða raun. Afla Eldborgar
hefur verið landað á Eskifirði.
Þá hefur Guðmundur RE land-
að 60 tonnum á Reyðarfirði. Sá
afli fékkst í hringnót, en enn sem
komið er er loðnan sjaldan veið-
anleg í það veiðarfæri.
Skattafrádráttur hœkkar
Skipin að koma
Bjartur lagði af stað heimleiðis
frá Japan 12. janúar.
Börkur mun halda heimleiðis
fiá Noregi eftir helgina og ætti, ef
allt fer að áæt-lun, að koma seinni
hluta næstu viku.
Víðrsöur i Bandaríkjo-
menn að hefjast
Utanríkisráðherra hefur skýrt
frá því, að dagana 24.—26. janúar
fari fram í Washington viðræður
milli Bandaríkjamanna og Islend-
inga um brottför bandaríska hers-
ins frá íslandi. Auk Einars
Ágústssonar, utanríkisráðherra,
ta'ka þátt í viðræðunum Hans G.
Andersen, sendiherra og Páll Ás-
gieir Tryggvason, deildiarstjóri í
hinni svokölluðu Varnarmáladeild
utanríkisráðuneytisins.
íslenzka ríkisstjórnin hefur það
á stefnuskrá sinni, að iherinn fari
úr landi á kjörtimabilinu. Það
verður því að líta á þessar viðræð-
ur, sem formsatriði til að full-
nægja ákvæðum „varnarsamnings
ins”.
Fyrirtœki á
Fáskrúðsfirði
sameinast
1 Lögbirtingarblaðmu, sem út
kom 3. janúar, er tilkynning um
sameiningu þriggja atvinnufyrir-
tækja á Fáskrúðsfirði. Fyrirtæki
þessi eru Búðafell hf., Hnaðfrysti-
hús Fáskrúðsfjarðar hf., og Fiski-
mjölsverksmiðjan ’hf. — Fór sam-
einingin þannig fram, að Hrað-
frystihús Fáiskrúðsfjarðar yfirtók
eignir og skuldir hinna félaganna.
Jafnfnamt var ákveðið að auka
hlutaféð um 10 millj. kr. og verð-
ur það kr. 10.272.300.00.
Félögin þrjú munu hafa verið
dótturfyrirtæki kaupfélagsins. Því
mun ætlað að gera út Ljósafell,
togara sem er í smíðum í Japan.
Stjórn félagsins skipa:
Jón Erlingur Guðmundsson, for-
maður, Guðlaugur Sigurðsso-n,
Björk, varaformaður, Jónas Jóns-
son, Kolmúla, ritari. Varamaður í
stjórn er Óskar Sigurðsson, Þing-
holti.
Bygginganefnd mennta-
skóla
Skipuð hefur verið bygginga-
nefnd menntaskóla á Austurlandi.
I henni . eiga sæti: Hjörleifur
Guttormsson, kennari í Neskaup-
stað formaður og með honum
Þórður Benediktsson, bankastjóri
og Þorsteinn Sveinsson, ikaupfé-
lagsstjóri, báðir á Egilsstöðum.