Austurland


Austurland - 02.02.1973, Blaðsíða 1

Austurland - 02.02.1973, Blaðsíða 1
MALGAGN ALÞ?flUBAWDALA6SIKS fl AUSTURLANDI 23. árgangur. Neskaupstað, 2. febrúar 1973. 5. tölublað. Fjárihagsáætlanir Neskaupstað- ar eru til fyrri umræðu í bæjar- stjórn í dag. Niðurstöðutölur fjár- hagsáætlunar bæjarsjóðs ,eru 39.8 millj, kr., en voru í fyrra 33.7 millj. kr. — Hækkun er 18.1%. Tekjur. Fjórir eru aðaltekjustofnar fcæjarins. Munar þar eins og jajfn- an áður mest um útsvörin. Eru Strandaði á Hvaibak Á mánudagsmorgun strandaði v/s Reykjanes frá Hafnanfirði á grynningum landmegin við Hval- fcak. Skipið komst út aftur, en sjór k’omst í ’það, þó ekki í véla- hús. Dagf-ari frá Húsavík dró Reykja nesið til Eskifjarðar og var kom- ið þangað 12 klukkustundum eft- i'' að strandið varð. Reykjanes er nú komið til Neskaupstaðar og verður gert við það liér, a. m. k. til bráðabirgða. þau áætluð 24.3 millj kr. á móti 20.0 millj. kr. 1972. Hækka þau iþví um 21.5%. — Gert er ráð fyr- ir því, að meðaltekjur gjaldenda hafi hækkað um 30% milli áranna 1971 og 1972. Aðstöðugjöld eru áætluð 4.8 millj kr. á móti 4.1 millj. í fyrra. Hækkunin er 17.1%. Fasteignaskattur er áætlaður 4.175 þús kr. á móti 3.400 þús. í fyrra (reyndist 3.978 þús.). Hækk un er 22.8% frá áætlun 1972, en 5% frá því, sem þau reyndust. Engin breyting hefur orðið á reglum um fasteignagjöld. Framlög Jöfnunarsjóðs er á- ætlað 5.3 millj. kr., en 5.0 millj. kr. 1972. Gjöld. Rekstrarútgjöld bæjarins eru áætluð kr. 28.109.000- á móti kr. 23.369.000.- í fyrra. Hækka þau um 20.3%. Rekstursafgangur, sem varið verður til fiamkvæmda og niðurgreiðslu á skuldum, er á- ætlaður kr. 11.691.000.- en var í fyrra áætlaður kr. 10.331.000.- Hér verður getið helztu gjalda- liða og innan sviga eru tilsvarandi tölur frá 1972. Allar tölur í þús. kr. Stjórn kaupstaðarins 2.900 (2.435), félagsmál 6.279 (5.800), hreinlætis- og þrifnaðarmál 2.070 (1.730), listir, íþróttir og útivera 1.502 (1.263), vegir og holræsi 5.230 (3.500), vext. 1.400 (1.300). Tveir helztu liðir á útgjalda- bálki eignabreytingaráætlunar eru byggingaframkvæmdir 8.814, þar a,f ríkisframlag 4.157, og nið- urgreiðslur skulda 5.534. ]ón Kjartcinsson sökk Á sunnudagskvöld kl. 21,15 sökk v/s Jcn Kjaitansson frá Eskifirði um hálfa aðra sjómílu út af Vattarnesi. Þá um mioirguninn var skipið statt út af Hvalbak við loðnu- veiðar. Mun þá farmur ’hafa kast- azt til í lest skipsins með þeim afleiðingum, að það lagðist á bak- borða. Reynt var að sigla skipinu til Eskifjarðar og fylgdi Dagfari frá Húsavík því og fleiií bátar. Á tólfta tímanum sneri Jón Kjart- ansson bakborðshliðinni upp í vindinn og lagðist hann þá á sf jórnborðshlið með svipuðum halla. Fór þá á'höfnin yfir í Dag- fara, nema þrír menn. Hallinn ágerðist og klukkan 8 fóru þeir þrír, sem eftir voru um borð í Dagfara, en fimm stundar- fjórðungum síðar sökk Jón Kjart- ansson. Hafalda fór til móts við Jón Kjartansson og hafði brunadælu meðferðis. Átti að freista þess, að dæla sjó úr skipinu, en það þótti ekki fært fyrr en skipið kæmi inn á fjörð, en þangað náði það aldrei. Jón Kjartansson var smíðaður í Englandi árið 1949 og Ihét upphaf lega Jörundur. Hann var 491 lest að stærð. Nýlega hafði verið skipt um vélar í skipinu. Jón Kjartansson var þekkt afla skip. Skipstjóri var Þorsteinn Erlingsson. IVestmarmaeyjasöfnunin Á fundi bæjarstjórnar Neskaupstaðar fyrra föstudag var m. a. samþykkt að kjósa þrjá bæjarfulltrúa í nefnd, auk bæjar- stjóra, sem vera skyldi foi'maður nefndarinnar. Hlutverk hennar er(, að gangast fyrir fjársöfnun meðal almennings og fyr- irtækja í kaupstaðnum til styrktar Vestmannaeyingum. Lagt var fyrir nefndina að fá félagasamtök í bænum til samstarfs og var því samstarfi komið á þegar morguninn aftir. Voru undirtektir félaganna frábærar og fer söfnunin fram á vegum bæjarstjórnar og félaganna. Nefndin hefur gefið út dreifibréf þar sem gerð er grein fyrir tilgangi söfnunarinnar og bæjarbúar hvattir til að leggja fram fé. Aðalsöfnunardagurinn var ákveðinn 3. febrúar, þ. e. á morg- un. Verður þá reynt að heimisækja hvert heimili í bænum kl. 13—17 og eru menn hvattir til að hafa framlög sín handbær, svo starfið gangi sem greiðlegast. Einnig geta menn, t. d. ef söfnunarfólkið fer á mis við þá, lagt framlag sitt á hlaupa- reikning no. 802 í Sparisjóði Norðfjarðai'. Mörg byggðarlög hafa sýnt mikinn rausnarskap við sanir skot handa Vestmannaeyingum. Vonandi gera bæjarbúar hlut Neslkaupstaðar góðan í þessum efnum. Það skal fi-am tekið, að þótt aðalsöfnunardagurinn verði á morgun, verður þó tekið við framlögum áfram. Fyrst um sinn verður starfs- maður Alþýðubandalagsins og Austurlands til viðtals að Mýrar- götu 1. Sími 7338. Þair sem eiga erindi við hann í sambandi við flokksstarfið og biaðið, vinsamlega hafi samband við hann þar. Goö loðnuveiöi Loðnuveiði hefur verið ágæt. við Austurland og munu móttöku- erfið'lei’kar miklir hjá austfirzku bræðslunum flestum því þróar- rými er lítið og afköst takmörkuð. Ríkisverksmiðjan á Seyðisfirði er nú byrjuð að taka á móti loðnu og aukast löndunarmöguleikar mikið við það. Hópjeri Horrsno (élaps Eins og fram kemur í auglýs- ingu hér í blaðinu, er Norræna fé- lagið að undirbúa hópferð til Norðurlanda. Hefur sá undirbún- ingur verið í gangi um nokkurt skeið, og nú er þessi ferð ákveðin 20. júni, frá Reykjavík. Farið verður frá Reykjavik flugleiðis til Stokkhólms. Þar taka félagar úr Norræna félaginu í Eskilstuna við hópnum. Dvalið verður í Eskilstuna og borgin skoðuð ásamt nágrenni. Ennfrem- ur verður sérstök skoðunarferð um Stckkhólm. Síðan verður farið með bíl til Helsingjaborgar og með ferju til Helsingjaeyrar í Danmörku. Þar verður gist, en síðan farið til Kaupmannahafnar og dvaiið þar nokkuð. Þá verður haldið áfram til Esbjerg. Eftir viðdvöl ’þar verð- ur ekið áfram norður Jótland og komið m. a. til Árósa og Álaborg- ar. Frá Fredrikshavn verður far- ið með bílaferju til Larvík í Nor- egi og þaðan með bíl til Osló. Frá Osló verður flogið til Reykjavíkur 29. eða 30. júní, en heimferð er þó ekki bundin við alian hópinn. Hér er um að ræða glæsilega ferð á hagistæðu verði. Enn eru laus sæti og ættu þeir, sem hug ihafa á, ekki að draga lengi að láta skrá sig til fararinn- ar. Tekur sér démsvald Laust fyrir hádegi í dag kvað hinn svokallaði alþjóðadóm- stóll í Haag upp þann úrskurð, að hann hefði úrskurðarvald í : deilu Breta og Vestur-Þjóð- verja við íslendinga um land- helgi. Var úrskurðurinn Ikveð- inn upp með 14 atikvæðum gegn einu. Forsendur fyrir • þessum úr- skurði voru ekki bii-tar með fréttum útvarpsins, en vart þanf að efa, að hann sé fyrst og fremst byggður á óheilla- samningnum frá 1961, þótt ís- lendingar hafi sagt ihonum upp og lýst hann ógildan.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.