Austurland


Austurland - 02.03.1973, Blaðsíða 1

Austurland - 02.03.1973, Blaðsíða 1
MÁLGAGN AlMUBANDALAGSINS A AUSTURLANDI 23. árgangur. Nesikaupstað, 2. marz 1973. 9. tödublað. í gær tók gildi nýt.t og 'hækk- að kaupgjald í landinu. Kaup almennra launþega ‘hækkaði um 12 14% og gildir það kaupgjald til maíloka, en þá verða aftur kauphækkanir með breyttri vísi- töiu. Kauphækkunin nú er óvenju- m.'kil vegna þess, að ekki er að- -i .s um hækkun að ræða vegna >7ísitöluhækkunar, heldur ‘kemur einnig til grunnkaupshækkun, sem er allveruleg. Grunnkaupshækkunin nemur 6% miðað við það grunnkaup, sem sæmið var um í kaupgjalds- samningum verkalýðsfélaganna 4. dss. 1971, og er hækkunin á það grunnkaup nú orðin samtals 14% í lægstu launaflokkunum. Kaupgjaldsvísitalan hækkar nú úr 117 stigum í 124,32 stig og gefur sú hækkún 7,32% launa- hækkun. Kauphækkunin í heild nú 1. marz er Iþví eins og áður sagði msð öðrum 'hætti nú, þar sem nið- urgreiðslur, sem tóku gildi um 'áianiót til að koma í veg fyrir verðhækkanir þá, falla nú niður. Munar þa:r mest.u um niður- greiðslu á mjólk. Ljóst er, að á næstunni verða allmi'klar verðhækkanir, þar á eft- ir að koma fram söluskattshækk- un svo og á'hrif gengisbreytinga. Kaupgjaldsvísitalan fyrir næsta vísitölutímabil verður því sýnilega miklu hærri en nú. Á sama hátt og menn eru á- nægðir misð kauphækkani'r eru menn óánægðir með verðlagshækk anir, en illa ætlar iað ganga að rjúfa þau óhagkvæmu tengsl, sem þarna eru á milli, en í því sam- bandi ber v'Ssulega að hafa í huga að þau tengsl má ekki rjúfa á kostnað launþeganna, önnur lausn þarf til að koma. Það er augljóst, að unnt hefði verið að koma í veg fyrir það verðhækkanaflóð, sem nú dynur yfir, að miklu leyti, ef stefna rík- isstjórnarinnar hefði náð fram að gar.ga. Ef kauphækkunum hefði verið frestað til hausts, hefðu verð'hækkanir e'kki orðið tilfinn- anlegai’, en tryggt hefði jafnframt verið1, að kaupmáttur launanna hefði skki skerzt, en við blasir nú, að svo verði næstu mánuði. Stjórnarandstaðan og Björn Jónsson, forseti Alþýðusambands- ins komu í veg fyrir, að þessi stefna var tekin. Að ráði þessara manna er verðbólguskriðunni nú enn einu sinni hrundið af stað á kostnað allra launþega í landinu. Til slíkra verka virðist forseti Alþýðusambandsins hafa fullt um- boð, og hagsmunir alþýðunnar bögglast e'kki fyrir brjósti stjórn- arandstöðunnar, ef um það ©r að ræða að koma höggi á ríkisstjórn- ina. — B.S. 12 14%, en grunnkaupshækkun- e,r meiri á lægri launin en þau hærri og í því liggur þessi munur. Tóifti árgangur „Weicome to lceland" kominn út Það fer ekki milli mála, að hér er um verulegar kauphækkanir að ræða, en þær hafa í för með sér verðlhækkanir einnig, eíns og í Pottinn er búið. Kemur þar margt tú. Áhrif gengislækkana grípa þar vitanlega ihn í og einnig veldur Þar miiklu, hvernig háttað er út- reikningi kaupgjaldsvísitölunnar, sem allir virðast orðnir sammála um, að sé mjög óheppilegur með tilliti til vixlhækkana á kaupgjaldi °'g verðlagi. Einna mestar eru hækkanir á landbúnaðarafurðum og tilfinnan- iegastar í bili a. m. k. En lang- mestur hluti þeirra hækkana er vegna hækkunar á launalið bænda 1 framleiðsluverði landbúnaðaraf- urðanna. Þá hækkun eiga bændur að fá samkvæmt samningum, og helzt það í hendur við almennar kauphækkanir í landinu. En verð landbúnaðarafurða hækkai' af öðrum orsökium einnig. Hækkun á dreifingarkostnaði og Vinnslu landbúnaðarafurða verður vitanlega vegna hækkaðs Ikaup- Stjalds svo og vegna verðhækkana á erlendum mörkuðum á ýmsum vörum til landbúnaðarins svo sem kjarnfóðri og fleiru. Þá kemur einnig til, að niðurgreiðslur verða Landkynningarrit Flugfélags ís- lands „Welcome to Iceland by iicelandair“ er nú komið út í 12. skipti. Útgáfa þess hófst árið 1982 og 'hófst með ávarpi for- stjóra Flugfélagsins, Arnar Ó. Johnson, en í fyrsta heftinu var meðal annars grein eftir Geir Hallgrímsson, þáverandi borgar- stjóra í Reykjavík. Þar var einnig að finna grein um bókaútgáfu, grein um starfsemi hraðfrystihúsa á Islandi' og margar nytsomlegar upplýsingar voru í þessu fyrsta hefti og 'hefur svo verið alla tíð. „Welcome to Iceland" er prentað á þrem tungumálum döns'ku, þýzku og ensku. Ávörp og greinar eftir mæta menn og konur hafa birtzt í ritinu frá upphafi. Meðal þeirra eru Kristján Eldjám, for- seti Islands, Jóhann Hafstein, fyrrverandi forsætisráðherra, Davíð Ólafsson, fyrrverandi fiski- málastjóri, Lúðvík Jósepsson, sjávarútvegsráðherra, Halldór Pálsson, búnaðarmálastjóri, svo aðeins nokkrir séu nefndir. Auk fræðslu um ferðamál á Is- landi cg starfsemi Flugfélags ís- lands hefur „Welcome to Iceland" flutt fjölda margar greinar um íslenzka atvinnuvegi, sjávarútveg, landbúnað og iðnað. Fjölmargar myndir hafa alla iíð prýtt „Welcome to Iceland“, lit- myndir og svart/lhvítai'. Útgef- andinn Anders Nyborg Ihefur lagt mikla rækt við söfnun efnis og mynda. I 1973 útgáfunni em m. a. greinar eftir hinn fræga leikara og söngvara Bing Crosby, grein ura landhelgismálið eftir Lúðvík Jósepsson, sjávarútvegsráðherra aiuk greinar um ferðamál á Is- landi eftir Þoi'leif Þórðarson, for- stjóra Ferðaskrifstofu ríkisins og grein um ísland og Islendinga í léttum tón eftir danska rithöfund- inn Willy Breinholst. Ennfremur ritar Markús Á. Einarsson, veður- fræðingur um veður á Islandi og þýzkur blaðamaður, sem er í Finn- landi, Reinhold Dey, um íslenzkan iðnað. Þá er stutt grein og myndir frá Grímsey, grein um Flugfélag Islands og að vanda flytur ritið mikið af almennum upplýsingum um land og þjóð. „Welcome to Ice- land ‘ er hundrað síður, prentað á vandaðan myndapappír og gefið út í 30. þús. eintökum. Bjartur kominn Kl. 8.30 d morgun sigldi hinn nýi skuttogari Norðfirðinga, Bjartur NK 121 fyrir Eyrina og inn á Norðfjarðarhöfn í fyrsta. sinn. Er þar með lokið lengstu samfelldu siglingu norðfirzks skips, en heimferð Bjarts frá Japan hófst 12. janúar. Er hann reyndar hér heima á undan áætlun, því að heimsiglingin gökk mjög vel. Bjartur sigldi fánum prýddur inn á höfnina og víða í bænum blakta fánar við hún til að heilsa skipi og skipsihöfn. Bjartur er hið glæsilegasta skip og vel búið og við það eru miklar vonir tengdar. Skipstjóri er Magni Kristjáns- son, 1. stýrimaður Herbert. Benja- mínsson og 1. vélstjóri Sigurður Jónsson, en eigandi Síldarvinnslan hf. Austurlandi mun segja nánar frá Bjarti í næsta blaði og reyna að ná tali af skipstjóranum um heimsiglinguna og dvölina í Jap- an. Óskar blaðið eigendium, skips- höfn svo og öllum Norðfirðingum til hamingju með þetta nýja skip. — B. S. . Nenningorvalia Héraðsbúa Hallormsstað, 1. marz — SB/BS Menningarvaka Héraðsbúa, sem Menningai'samtök Hérað'sbúa standa fyrir árlega, verður að þessu sinni í aprílmánuði1 og spannar yfir tvær helgar. Föstudaginn 6. apríl hefst Kjar- valskynning. Þá flytur Björn Th. Björnsson erindi um listamlanninn og komið verður upp sýningu á verkum Kjarvals og nefnist 'hún Kjai val á Austurlandi. Á laugardaginn verður dagskrá, sem nefnist Kynni mín af Kjarval, þar sem ýmsir menn segja frá. Á sunnudaginn verður enn dagskrá um Kjarval og þá lesið úr ritum hans í bundnu og óbundnu máli. Segja má, að þarna verði lífi og starfi þessa mikla listamanns gerð glæsileg skil. Menningai'samtökin gera þarna stórt menningarlegt átak. Næstu helgi á eftir fer fram seinni hluti menningarvökunnar. Þá sýnir Lei'kfélag Fljótsdalshér- aðs leJkritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson undir leikstjórn Sigur- geirs Hilmars. Tónlistarfélag Fljctsdalsihéraðs sér um dagslkrá eitt kvöld og Egilsstaðahreppur sér um ,hreppakynnmguna þetta ár. Hugsanlegt er, að æskulýðis- vaka skólanna á Héraði verði og tengd menningarvökunni. Þess skal getið, að dagskrár þessar eru öllum opnar. Formaður Menningarsamtaka Héraðsbúa er nú S'kjöldur Eiríks- son, skólastjóri.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.