Austurland


Austurland - 09.03.1973, Blaðsíða 1

Austurland - 09.03.1973, Blaðsíða 1
MÁLGAGN AMUBANDALAGSK A AUSTURLANN 23. árgangur. Neskaupstað, 9. marz 1973. 10. tölublað. Frd liidflU til Neshanpstaðar Viðtal við Magna Kristjánsson, skipstjóra Eins og frá var sagt í síðasta blaði kom ihinn nýi skultogari Síldarvinnslunnar hf. í Neskaup- ^tað, Bjartur NK 121 d fyrsta sinn 11 heimahafnar 2. marz sl. Tíð- indamaður Austurlands hitti skip- stjórann, Magna Kristjánsson, að niáli um borð í skipinu og átti við hann stutt viðtal um skipið og dvöl hans og konu hans og skip- ■ verja í Japan. — Viltu fyist segja frá skipinu, Magni, stærð þess og búnaði? Bjartur er 461 Vá brúttósmál. að stæið, lengd skipsins er 47,1 m, bre.dd 9,52 m og dýpt 5,50 m. Aðalvélin er 2.C00 hestöfl og heit- lr Niigata, eins og borgin, sem skipið er smíðað í. Tvær aukavél- ar eru í skipinu, 300 ha. hvor. Svo eru í skipinu öll fullkomnustu sigl- inga- og fiskileitartæki, þ. á. m. netsjá. Öll tækin eru japönsk, nema talstöðin, sem er dönsk. BJARTUR NK 121 — Er um einhverjar nýjungar nð ræða i útbúnaði skipsins? — Já, t .d. er það nýlunda, að togvindu og tveim hjálparvindum er stjórnað úr brúnni með fjar- stýrisútbúnaði. Er þarna um alls 7 tromlur að ræða og er það einnig nýmæli, að svo margar tromlur skuli vera notaðar, koma þær í stað spilkoppanna, sem algengir eru. Þessi fjarstýring úr brúnni er til geysilegs hagræðis og veitir einnig mjög aukið öryggi, hvað slysahættu snjertir. Þá er nokkur nýlunda í vinnu- aðstöðunni við fis'kaðgerðina, sem öll er auðvitað neð*an þilja. Vinnu- aostaðan er útbúin sérstaklega til að blóðga aflann fyrir aðgerð', og er þa,r farið að ströngustu kröfum um meðferð aflans og hér verður cg um vinnusparnað að ræða. Lest'.n, sem er kælilest, er útbúin að 3/4 með tilliti til þess, að aflinn verði ísaour í kassa. — Vistarverur skipverja ejru vandaðar, sýnist mér. Já, þær eru mjög rúmgóðar og smekklegar. Það eru 8 eins manns 'klefar og 5 2ja manna. — llvað verðið þið margir á? — Við verðum 16. Þetta verður svo til sama skipshöfnin og var á Barða. 1. stýrimaður er Herbert Benjamínsson, 2. stýrimaður Birgir Sigurjónsson, 1. vélstjóri Sigiurður Jónsson og 2. vélstjóri Guðmundur Sigmarsson. 1 Ljósm. Ragnar Sigurðsson. — Jæja, Magni, snúum okkur þá að ferðai’.aginu. Hvenær fóruð þið út í fyrri hópnum? — Við komum til Tokyo, (Borg- in austasta) höfuðborgar Japan, 17. nóvember. Þar er fyrirtækið, sem selur þessi skip til Islands. í boði þess vorum við í 8 daga. og fórum þá vítt um og sáum margt. M. a. vorum við tvo daga í Kyoto (Borgin í austri) og dvöldum einnig í Osaka og Simonoseke, þar sem við skoðuðum veiðafæra- Magni Kríistjánsson, skipstjóri. gerðir og verksmiðjurnar, þar sem tækin í s'kipin eru framleidd. — Er fallegt þarna austur frá? — Já, mér fannst mjög fallegt, en af óspilltri náttúru sást lítið t. d. bar afa.r mikið á rafmagns- línum, sem hvarvetna eru loftlín- ur. Eru þær 11 óprýði í borgunum og ekki síður upp um fjöll, en þau virtust öll þéttriðin af slí'ku línu- neti cg sk:ðabr*aut'um. Loftið á Tckyosvæðhu er mettað af men-g- unirmi, og fólk gengur gjarnan með grímur fyrir vitum sér. Okk- ur fannst mik'ð bera á ólykt, er við kcmum fyrst til Tokyo, en svo vandist þstta. Mannfjöldinn í borgunum er gífurlegur, alls stað- ar icundi mannhac, en umferðin virtist ganga mjög lipurlega, líkt og sjálfvirk vél. — Ilvernig var veðráttan? — Hún var ekki ólík því, sem hér gerist. Hitastig var svipað og hér, 6—8 stig. Það rigndi tölu- vert, eiginlega samfellt í hálfan mánuð, einnig kom öklasnjór. Við vorum á aðaleynni, Honshu, en norðar er kaldara, t. d. á Hokkaido. — Og féll ykkur vel við fó(lkið? — Japanirnir eru framúrskar- andi gestrisnir og viðmótsþýðir og vildu allt fyrir Okkur gera. Maturinn fannst mér mjög góður og fjölbreyttur, en hann er ólíkur því, ssm gerist hjá okkur. — Þið dvölduð llengst af í Niigata, var það ekki? Framh. á 2. síðu. Skógrœktarferð til Noregs Á komandi sumri efnir Skóg- ræktarfélag íslands til Noregs- ferðar. Ferðin verður farin 1. ág. og dvalið í Upplöndum og Heið- mörk til 15. s. m. Farið verður með leiguflugvél, DC 6, sem tek- ur 98 farþega. Sjötíu og fjórir 1 þátttakendur fara á vegum Skóg- ræktarfélags Isl-ands og verða þvi 24 aukapláss til ráðstöfunar. Skógræktarfélagi Neskaupstað ar er heimilt að senda tvo þátt- takendur og er hér með auglýst eftir þeim, ennfremur, ef ein- hv.erjir vildu komast í aukapláss- in. En það skal skýrt fram tekið, að þeir, sem fara á þann hátt verða að ferðast á eigin vegum í Noregi og njóta engra annarra hlunninda en hins lága fargjalds, sem áætlað er um 13 þúsund krón ur báðar ferðir. Þe'r, sem hafa hug á þessnm ferðum eru vinsamlega beðnir að t*ala sem fyrst við undirritaðan. Gunnar Ólafsson, Landhelgisgœzl- an athafnasöm Síðustu daga hefur Landhelgis- gæzlan verið cvenju athafnasöm og klippt vörpuna aftan úr brezk- um togurum frá því á mánudag. Hafa þessir atburðir átt sér stað úti fyrir Norðausturlandi, en þar eru fcrez'ku veiðiþjófarn:r aðgangs harðir sem annars sta&ar. Tcgararnir haf*a brugðið til hins gamla sjóræningjaráðs að : reyna að sigla varðskipin niður, ' en enn hefur þó ekki komið til á- rekstra né slysa. ' Skipstjcrar á togskipum hafa ver- '■ ið mjö'g cánægðir með aðgerða- leys. landhelghgæzlunnar til þessa, en hún virðist nú hafa tek- ið kvartanir þeirira til greina. Það er r.auðsynlegt, að Land- helgisgæzlan sýni veiðiþjófunum alla þá hörku, sem hún er fær um, og helzt þyrfti að færa einhvern þjófanna til hafnar. En með harðari aðgerðum ,er vissulega meiri hætta á, *að til alvarlegra árskstra 'komi og jafnvel, að fiski- skip okkar verði fyrir meiri á- reitni en áður. Minningarathöfn I dag kl. 2 fer fram minningar- athöfn í Norðfjar&arkirkju um Alexander Gjöverá, sem fórst með Sjöstjörnunni frá Keflavík.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.