Austurland - 19.04.1973, Blaðsíða 1
/ÍUSTURLAND
MÁLGAGN ALÞÝÐUBAWDALAGSINS A AUSTUBLAWDI
23. árgangur. Neskaupstað, 19. apríl 1973 17. tölublað.
Gleðilegi sumar
Verh/rœðiskrífstofa 0
Reyðarfirði
Verkfræðistofan Hönnun !hf. í
Reykjavík hefur ákveðið að set.ja
á fót verkifræðistofu á Reyðarfirði
og mun hún ta'ka til starfa innan
skamms. Forstöðumaður hennai'
verður Leifur Benediktsson, verk-
fræðingur.
Hönnun hf. hefur haft með
höndum verkfræðilegan undir-
búning að lagningu olíxunalar á
vegi j þét.tbýllissveitaifél ögum á
Austurlandi. Er verikfræðistofan
á Reyðarfirði sett á stofn eftir til-
mælum forstöðumanna (þessara
sveitarfélaga, sem höfðu farið
þess á leit við fyrirtækið, að það
setti á stiofn útdbú á Austurlandi.
Umhverfismál í Neskaupsiað
^áttúruverndarnefnd Neskaup-
aðar gengst fyrir ráðstefnu um
I Verfismál í kaupstaðnum
^ugardaginn 28. apríl n. k. og
Jfst hún í Egilsbúð kl. 13.30. Til
stefnunnar er boðið bæjar-
ýmsum starfsmönnum og
°tadum bæjarins og stjórnum
°kkurra félaga. Tilgangurinn
*eð ráðstefnunni er að fjalla um
llla ý^su þætti umhverfismála í
kaupstaðnum, bæjarskipulag með
tilliti til umhverfis, þrifnaðar og
umgengni, bæði að því er varðar
þjónustu bæjarfélagsins og skyld-
ur einstaklinga, lóðagerð og trjá-
rækt og margt fleira. I upphafi
ráðstefnunnar verða flutt nokkur
framsöguerindi um einstaka mála-
flokka, og munu þar tala Hjörleif-
ur Guttormsson fyrir hönd fund-
arboðenda, og siðan Jóhannes
r
Stefánsson, forseti bæjarstjórnar,
Óskar Lárusson, heilbrigðisfull-
trúi, Jón Ragnar Höskuldsson,
byggingafulltrúi, Ragnar Sigurðs-
son, hafnarstjóri og fulltrúar frá
Skógræktarfélagi Neskaupstaðar
cg Þjcðhátíðarnefnd 1974. Að því
búnu verða almennar umræður.
Það er von Náttúruverndar-
nefndar Neskaupstaðar, að í fram
haldi af þessari ráðstefnu hefjist
skipulegt á.tak til umhverfigbóta
og fegrunar í kaupstaðnum, þar
sem bæjaryfirvöld og bæjarbúar
almennt leggist á eitt með það í
huga, að kaupstaðurinn taki
stakkaskiptum fyiir þjóðhátíð á
næst,a ári.
í Náittúruverndarnefnd eiga
sæti Björn Björnsson, kaupmað-
ur; Böðvar Bragason, bæjarfógeti,
nefndarfoimaðui'; og Hjörleifur
Guttormsson.