Austurland


Austurland - 27.04.1973, Blaðsíða 1

Austurland - 27.04.1973, Blaðsíða 1
r lUSTURLAND MALBAGN ALÞÝflUBANDAUGSINS A AUSTURLANDI 23. árgangur. Neskaupstað, 27. apríl 1973. 17. tölublað. Fjórðunossjúkrahúsið verður stcekkað Það iþótti ekki í lítið ráðizt þeg- ai- bæjarstjórn Neskaupstaðor á sínum tíma tók ákvörðim um að byggja sjúkralhiús í kaupstaðnum. Því fór fjarri, að iun þá ákvörðun ííkti einhugur. Ágreiningur var um málið bæði innan bæjarstjóm- ar og utan. Sá skoðanamunur skal ek'ki rakisin 'hér, enda éir hiann löngu horfinn og allir á einu máli um, að rétt thafi verið að byggja sjúkrahúsið. Þótt margir hafi í upphafi talið að sjúkrahúsið væri alltof stórt miðað við aðstæður, hafði það ekki starfað lengi þegar raddir fóru að heyrast um að það væri 'Of lítið og að nauðsyn bæri til að stækka það. Og ekki hafði stofn- unin starfað í fullan áratug, þeg- ar 'bæjarstjórn skipaði sérstaka nefnd, heilbrigðismálanefnd, sem hafa skylidi að meginverkefni að vinna að og undirbúa stækkun sjúkrahússins. Nefndin vann mikið staif á næstu árum, lednkum að því að vinna stjórnvöld til fylgis við mál- ið isvo og að skipulagi og upp- diáttum væntanlegrar viðbygging- ar. Nefndin vai’ svo lögð niður eftir bæjarstjómarkosningamar 1970, en stjóm sjúkrahússins fal- ið að taka við störfum hennar að því er stækkun sjúkrahússins við kom. Stjóm sjúkrahússins og fram- kvæmdastjóri hennar gengu vask- lega fram og hafa nú lokið störf- um og skilað til bæjarstjórnar teikningum, áætiunum og greinar- gerð. Og þar með er undirbúnings- starfi að mestu lokið og framundan ©r tími framkvæmdanna. Bygg- ingastjóm hefur verið kosin og ákveðið hefur verið að hefja verk- ið á þessu ári. Þótt full ástæða sé tií, verður undirbúningsstarfið ekki raíkið hér, rúmsins vegna. En þess skal getið, að samtímis því, sem málið var undirbúið aff heimaaðilum, var öll skipan heilbrigðismálanna í endurskoðun á Alþingi og málið mjög umdeilt í einstökum atæið- um. Við undirbúningsstarfið varð þvá stöðugt að hafa mið af þessarí væntanlegu lagasetningu. Ljóst var, að fjárhagslega var næstum ókleift að ráðast í fyrirhugaðar framfcvæmdir, nema lög þessi yrðu sett, það er að segja sá kaffli þeii-ra, sem fjallar um sjúkrahús. Þegar leið að þinglokum, var tal- in hætta á, að framvarpið dagaði uppi. Var af þeim, 'sem um mál þetta ffjölluðu hér heirna, fyigzt í oifvæni með ferð frumvarpsins um þingið. Og mönnum létti fyrir forjósti þegar það náði fram að ganga á næst síðasta staiffsdegi þingsins. Það er til marks um hve vel málið haffði verið undiihúilð og hve rækilega það hafði verið kynnt bæjarstjórn, að tveim dög- um síðar samþykkti hún einróma að ihefjast handa um framfcvæmd- ir í sumar, samþykkti teikningar og fjáimögnunaráætlun. Verður nú að því horfið að lýsa stuttlega 'hinni fyrirhuguðu byggingu. Stærð og lega. Húsið verður reist austan við sjúkrahúsið og tengt því með sér- stakri tengibyggingu. Heildargólf flötur viðbyggingarinnar verður 3.017m:, en íúmmál 9.919mr'. Til samanburðar má geta þess, að samanlagður gólfflötur sjúkra- hússins eins og það er nú er 1.146nr og rúmmál 3.530m'. Fyrirkomulag. Undir hluta hússins verður fcjallari, neffndur neðri fcjallari. Þar verða geymslur, viðgerðar- verkstæði, varaafflstöð, lyftuhús og stigahús. 1 fcjallara, sem byggður verður að nofckru ofan á neðri kjallara, verður endurhæfingastöð. Henni tilheym æfingasalur, sundlaug, starfsiþjálfim, heifoergi sjúfcra- þjálfara, böð og foúningsherbergi. Þar verður einnig þvottahús og ýmislegt annað, sem tilheyrir rekstri stofnunarinnar. Á fyrstu hæð verður heilsu- gæzlustöð fyrir þrjá lækna og að- stoðarfólk þeirra. Einnig verður þar tannlækningastofa og aðstaða fyiir heilsugæzluhjúfcrunarkonu. Þar verður og röntgendeild, rann- sóknarstoifur og skurðsitofur með tilheyrandi fylgiherbergjum. Á annarri faæð verða 13 sjúkra- stofur með 32 sjúkrarámum. Þar er meðtalin fæðingardeild, en sér- herfoergi hennar 5 að tölu, eru þar fyrír utan. Á hæðinni eru einnig ýmis viinnuherbergi hjúkrunar- bvenna og annars starfsfólks. Tengibygging verður gerð milli nýbyggingarinnar og núverandi sjúkrahúss. Þar verða skrifstofur sjúikraihússins og setustofa sjúfc- linga. Hagnýting núverandi sjúkra- húss. Gert er ráð fyrir miklum breyt- ingum á núverandi húsakynnum sjúkralhússins til þess að nýta það sem bezt og fella það sem bezt inn í heildaimyndina. Fyrirhugað- ar breytingar eru í aðalatriðum þessar: Eldhúsið, sem er á fyrstu hæð, verður stækkað mikið. Fær það til vjðbótar allan vesturhluta hæð- arinnar svo og næstu stofu ffyrir austan eldhúsið. Þá verður borð- stofa starfsfólks mikið stækkuð, og á hæðinni verður gerð foorð- Framh. á 2. síðu. Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað. Viðbyggigjn tengist þessu húsi að austan, þ. e. við stafninn til vinstri. — Myndin er tekin 17. júní fyrir nokkrum árum. — Ljósm. gjg. Arnfinnsson. Arsbótíð 4 Alþýðubando- IflflJÍélojo Fyrirhugað er, að haldin verði á Eskifirði laugardaginn 12. maí nk. árshátíð fjögurra Alþýðu- bandalagsfélaga, þ. e. félaganna á Eskifirði, Reyðarfirði, Fljótsdals- héraði og Fáskráðsfirði. Félagið á Eskifirði sér um framkvæmd hátíðarinnar, en skemmtiatriði koma frá hinum fé- lögunum einnig. í ráði er, að slík- ar sameiginlegar árshátíðir þess- ara félaga verði haldnar á stöðun- um til skiptis. Árshátíðin verður nánar auglýst, | síðar, en öllum Aiþýðubandalags- , mönnum og gestum þeirra, hvar ] sem er í kjördæminu, er hún opin. j Ýmis sfcemmtiatriði verða um hönd höfð, kaffiveitingar verða og síðan stiginn dans. Ný flötunöfn Bæjarstjórn hafuir gleifið nöfn allmörgum götum, flestum enn ó- lögðum. Vegurínn frá Bakkalæk að Stóralæfc heitir Bakkavegur. Norð- ur frá honum eiga að koma sex þvergötur og heita þær, talið frá vestri: Nesbakki, GiJsbakki, Mar- bakki, Lyngbakli, Snæbakki og Selbakki. Norður ffrá Starmýri eiga að koma þrjár þvergötur. Nöfn þeirra eru talið frá austri: Valsmýri, Gauksmýrí og Seljamýri. Ve'garspottinn af Haffnarbraut á Melagötu heitir Víkurbrekka. Vegurinn «af Þiljuivöllum á Blómst- urvelli vestan við barnaheimilið heitir Sólvellir. Og loks hefur vegurinn aff Nes- götu á Breiðablik verið nefndur Árbflik. Hverjir œfa skot- fimi ó Sandinum? Fuglavinir og fuglasfcoðarar eru farnir að fylgjast vel með fugla- i lifi nú á vordögum. Einn þeiira hafði samfoand við blaðið á dögun- ■ um og sfcýrði frá þvi, að inni á J sandinum við Norðfjarðarbotn I hefði hann fundið tóm skothylki nú é um páskana og hafði þar greini- ■ hga verið skotmaður nýlega á ferð. I Þarf varía að tafca fram, að , meðferð skotvopna á þessu svæði I er algjörlega bönnuð, hvað þá ef fuglar eru þar skotnir. Lögreglunni er ihér með geirt við- vart, svo að faún geti haft auga með skotmönnum eftirleiðis, en jafnframt er það auðvitað skylda hvers og eins að kæra meðferð skotvopna og fugladráp, ef menn verða þess áskynja á friðhelgu svæði.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.