Austurland


Austurland - 01.05.1973, Blaðsíða 4

Austurland - 01.05.1973, Blaðsíða 4
4 AUSTURLAND Nes'kaupstað, 1. maí 1973. Sigurður Guðmundsson, ritstjóri ÖRFÁ MINNINGARORÐ Fáir Istending'ar gáfu sósíalískri iireyfingu í landinu líf sitt allt að jþví skapi sem Sigurður Guðmunds- son ritstjóri Þjóðviljans gerði. Hann hvarf frá námi í Hafnarhá- skóla, þar sem hann hafði numið jarðfræði 1 ‘þrjú ár, fyrir Iharða áegigjan félaganna heima, til þess að gerast Iblaðamaður við Þjóð- viljann, rétt eftir stofnun ihans og starfaði við þetta blað sem mál- svari alþýðu og þjóðfrelsis í 'bezta skilningi orðanna, þar til kraftar þrutu árið 1972, lengst af sem rit- stjóii. Hæversika og lítillæti gagnvart ’ ...1 Alþýðusamband * Islands óskar íslenzkri alþýðu til heilla ó hótíðis- og baróttu- degi verkalýðsins 1. maí. L _____________________ ________________________J Nýtt liai)|Kli*cx?ttÍHíVi#T alcli oi fílœsilefíi a c»ii n«V! T ÍBÚÐAR VINNINGUR mánaöarlega FERÐALÖG HUSBUNAÐUR Hú» þetta, »3 E»pilundi 3, ttcndur 4 mjög (»llegum »t»8 i CarSahreppi með göðu út*ýni Hú»ið uppfyllir ttrönguitu nútim»krÖfur 5-6 m»nn» fjðltkyidtl Aðalvinnlngur árilni er þette #lnbýii»hú» að Eipilundi 3, Cerðehreppi, með tvöföldum biltkúr, tamtele 195 ferm. að verðmxti a.m.k. 6 millj. króna. 1973 Sala hafin 1974 r öllum, sem minna mátt.u sín, en óbilandi andspyrna gegna rang- sleitni og auðvaldi voru þeir eigin- leikar Sigurðar Guðmundssonar, sem skýrast komu í ljós við slitr- ótt kynni, en ganga líka sem rauð- ur þráður gegnum blaðaskrif hans. Þessum eiginleikum hans kynnt- ist ég sem ungur námsmaður, þeg- ar ég af veikum mætti reyndi að leggja blaði Ihans lið. Sú uppörv- un og leiðsögn, sem hann gaf mér þá bæði í stuttum viðræðum, er ég staldraði við á Skólavörðustíg 19 á ferðum að heiman eða heim og í bréfum yfir Atlanzhafið, var mér cmetanleg að því marki, að ég stend í ævilangri þakkarskuld við hann fyrir. Þetta voru áreiðanlega ríkustu skapgerðareinkenni hans. En ein- mit.t fyrir þá hafði hann sig einatt minna í frammi en títt er um stétt- arbræður hans, blaðameinn, og leiddu einnig til iþess, að hamn kynntist færri en skyldi. Hann vann blaðamannsstarf sitt í kyrrþey, þótt það ihljómi sem öfug,- mæli. Fyrir því hugsaði ég oft sem svo, að hann hefði notið sín betur sem vísinda- eða fræðimaður, svo sem hugur hans stóð til í önd- verðu. Sigurður var fæddur og uppal- inn í Borgarfirði eystra og móðir hans, Friðbjöig, var systir Einars Longs, sem um langt skeið 'leiddi okkur frændur um hér á Hall- ormsstað. Yfirbragð hans var mjög úr Longsættinni, döfckt með hrún augu og svart hár. En þeir þættir í skaphöfn hans, sem ég hef minnzit á hér, voru ekki sterlk- asta einkenni Longanna. En ég man vel, að vegna frændseminnar við Einar Long, fannst mér þessi maður ekki eins ókunnur mér og ella hefði verið, er ég hitti hann fyrst í fylgd með Ármann á Eið- um í Hljómskálagarðinum í Reykjavík einhvem tíma á stríðs- árunum. Á sextugsafmæli hans í Ihaust var honum brugðið í útiiti, en samt hress og gtaður að vanda. Mér kom þó á óvart, er lát hans barst um daginn. Með Sigurði Guðmundssyni hef- ur íslenzk alþýða misst baráttu- mann, sem á lífsferli sínum setti hugsjón ofar eigin hagsmunum og gaf með því lifandi fordæmi um það siðferðisþrek sem reynzt hef- ur alþýðuhreyfingum alira landa á öllum tímum bitrast vopn. Ásdísi Þórhallsdóttur, sem lifir mann sinn, og börnum þeirra votta ég innilega samúð. Sig. Blöndal. Alþýðubandalagsfólk Austurlandi Alþýðubandalagsféiögln á Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskiúðs- firði og Fljótsdalhéraði balda sameiginlega skemmtun og dans- leik í Valhöll, Eskifirði laugai'daginn 12. haí kl. 20.30. Kaffiveitingar. Fjölbreytt skemmtiatriði frá öllum stöðunum — sitt af hverju tagi. Hljómsveitin Völundur leikur fyrir dansi. Aðgöngumiðar verða seldir á stöðunum eftir 1. maí og er verð miðans kr. 500.00. Allt stuðningsfólk Alþýðubandalagsins og gestir þess eru vel- komnir. Vegna undirbúnings er fólk beðið um að kaupa miða í tíma. Alþýðubandalagsfélögin. Hðnnibal vill hstta I fyrradag skýrði Hannibal VaMímarsson frá því á fundi flokksmanna sinna, að hann vildi láta af ráðherradómi og óskaði eftir því, að flokkurinn tilnefndi mann í sæti sitt. Eigi eftirmaður Hannibals að vera þingmaður, er ekki öðrum til að dreifa en Birni Jónssyni og Karvel Pálmasyni. Ólíklegt er, að Björn kaupi ráð- herrastólinn því verði, að afhenda Snorra Jónssyni forsæti Alþýðu- samfoandsins og er þá ekki nema Karvel einn eftir. Ekki er heldur loku fyrir það skotið, að utan- þingsmaður taki við >af Hannibal. Fætstir menn festa trúnað á ba3, að sú ástæða, sem Hannibal 1il- greinir fyrir þessari ákvörðun sinni, sé hin raunverulega aðalá- stæða, Miklu er líklegra, *að hér sé um djúpst.æðan ágreining að ræða, og kemur manni þá foelzt til hugar afstaða Hannibals til Haag. lOO bílar Aörir eftir vali vinnenda fyrir 250 þús.. 300 bús., 350 bús. og 400 |>ús. krónur

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.