Austurland


Austurland - 11.05.1973, Blaðsíða 1

Austurland - 11.05.1973, Blaðsíða 1
ÆJSTURLAND MAlGABN ALÞÝÐUBANDALAGSIWS A AUSTURLANDI 23. árgangur. Neskaupstað, 11. maí 1973. 20. tölublað. Frá Héraðsvöku 1973 Vinnan Þann 1. maí var sjónvarpað þættinum Vinnan, sem er þáttur um verkalýðsmál undir stjórn Baldurs Óskarssonar fræðslu- stjóra ASÍ. 1 þessum þætti voru m. a. viðtöl við verkafólk og nokkra forystumenn verkalýðs- félaga. Vegna hilunar í endur- vai-psstöð sjónivarpsins á Gagn- heiði komst. ekkeit hljóð úr þætt- inum til skila hér á Austurlandi og verður þátt.urinn því endur- sýndur nk. sunnudag kl. 17.00. Tónlist, skóMo, sveitorkynnino og leikur Síðari hluti Héraðsvökunnar var að þessu sinni skipulagður á þann Ihátt, að tilteknum aðiljum á Héraði var falið að annast hverjum sitt, kvöld. Er það í sam- ræmi við þá stefnu að gera Hér- aðsvökuna öðrum þræði að vett- vangi fyrir flutning á ýmislegu efnd, sem hægt er að laða fram á svið frá heimamönnum. En á hinu leytinu hefur þeirri stefnu verið fylgt að fá líka úr öðrum áttum efni bæði fróðleik og skemmtan, sem sé af því tagi, að gagnað geti heimamönnum til viðmiðunar. Tónlistairfélag Fljótsdals- héraðs tók að sér föstudagskvöldið 13. api-íl. Voru þá haldnir nemenda- tónleikar tónlistarsikólans. Hér skulu ekki upp taldir allir þeir yngri og eldri tónlistarmenn, sem fram komu, en allt var það ákaf- lega ánægjulegt;. Þarna var leikið á ýmisleg hljóðfæri og sýnist á- rangur undraverður eftir svo stuttan tíma. Fjölmennur barna- kór söng við undirleik nokkurra blásara. Það var verulega tilkomu mikið atriði. Síðast þetta kvöld lék svo hin unga lúðra-veit á Egilsstöðum. Hana skipa ennþá fólik á ýmsum aldri frá börnum kringum 10 ára upp í fullorðna menn. Leikur lúðrasveitarinnar er alveg ótrú- lega góður eftir svo stuttan tíma. Ekki sizt, er haft er í huga, að sumir krakkarnir byrjuðu að leika í haust leið. Maðuiinn bak við þessa tón- le ka alla og stjómandi kórs og hljómsveitar er Magnús Magnús- son, sikólastjóri tónlistarskólans, en á hann var aðeins minnzt hér i frásögn af fyrri hluta Vökunn- ar. Ég sé ekki annað en Ihann hafi unnið þrekvirki með starfi sínu þessa tvo vetur á Egilsstöð- um. Fyrir plássið er alveg ómet- anlegt að hafa fengið slíkan mann til starfa og er vonandi, að Hér- aðsbúar megi sem lengst njóta starfs'krafta hans. Kvöld skólanna. Að þessu sinni var hin svo- nefnda æskulýðsvaka skólanna, sem haldin hefur verið nokkur undanfaiin ár, felld inn í Héraðs- vöku. Eins og áður hefur verið sagt frá hér í blaðinu, er 'hún byggð á úrvali úr árshátíðardag- skrám skólanna. Að þessu sinni stóðu að henni skólarnir á Eiðum og Egilsstöðum. Sá, er þetta rit- ar, gat því miður e'kki verið í ValaskjáJf þetta kvöld, laugar- daginn 14. apríl. En þar Ihafði verið fjölmenni að vanda og atr riðin ku hafa verið hin skemmti- Jegustu. Kynning Egilsstaðahrepps. Egilsstaðahrieppur hafði á hönd um að þessu isinni hina árlegu hreppakynningu Héraðsvökunnar. Hún var nú helguð sögu þessa yngsta sveitarfélags á Héraði. Var fléttað iim í frásögn myndum úr hreppnum. Þórður Benedikts- son bankastjóri og Vilhjálmur Siguibjörnsson fi'amkvæmda- stjóri fluttu efnið, sem fleiri höfðu lagt, hönd að. Komu þama fram ýmsar merkar upplýsingar, sem betra er að 'hafa en ekki fyrir Héraðsbúa, og sstt fram staði-eyndatal um mannJíf og at- hafnir í hreppnum. Guðmundur Magnússon oddviti flutti inngang, en lúðrasveitin undir stjórn Magnúsar Magnússonar lék syrpu af lcgum. Rétt er, að fram komi, að þessi kynning átiti skv. upphaflegri dagskrá Vökunnar að flytjast síðdegis, en ekki að kvöldi, og -samanstóð því fyrst og fremst af fræðsluefni, en eiginlegt skemmti efni var e'kki haft m,eð, svo sem fremur er venja, ef slík kynning er flutt að kvöldi. Kvikmynd Magnúsar Jóns- sonar. Þar eð ekki varð við komið að halda dansleik þet.ta kvöld (skír- dag), var fengin spáný íslenzk kvikmynd, „240 fiskar fyrir kú”, eftir Magnús Jónsson, núverandi leikhússtjóia á Akureyri. Var hún sýnd á eftir Egilsstaðadag- skránni. Þetta er 10 mínútna heimildar- kvikmynd um fiskveiðar íslend- inga og þýðingu þeirra í þjóðar- bús'kapnum og gerð sem innlegg í baráttu okkar fyrir stærrí land- helgi, greinilega samin fyrir er- lenda áhorfendur. Menntamálaráð veitti í fyrra 500 þús. kr. til kvikmyndagerðar og hlaut Magnús Jónsson þennan stiyrk. Magnús stimdaði á sínum tíma nám í kviikmyndalelkstjóm við kvi'kmyndaháskólann í Moskvu. Hann hefur undanfaiin ár gert sjónvarpsauglýsingamynd ir, en ég held þetta sé fýrsta meiri háttar heimildarmyndin, sem hann gerir. Það er skemmst af að segja, að þessi mynd, sem er í litum, er mjög vel gerð og áreiðanlega kröft.ug rödld í land- helgisbaiáttu okkar. Þessi sýning í Valaskjálf mun vera fyrsta opinbera sýning henn- ar eftir að hún var kynnt boðs- gestum í Reykjavík fyrir skömmu. „Hart í bak.” Síðasti þáttur Vökunnar var svo lelkritið „Hart í bak”, eftir Jökul Jako'bsson, . sem Leikfélag Fijótsdalshéraðs flutti í upp- færslu S gurge'rs Hilmars Fiið- þjófssonar, sem ýmsir minnast hór eystra frá leik hans í Vala- skjálf í ihittiðfyrra, en hann lék þá í leikritinu „Hér ler kominn gestur.” Sigurgeir hefur unnið nokkuð í Þjóðleikhúslnu á undanförnum árum, en þetta er annað leikritið, sem 'hann setur á svið í vetur. Hitt var á Selfossi. Án þess að ætla mér þá dul að fara að s'krifa leikdóm, sé ég ekki betiur en hann hafi með þessari uppfærslu unnið gott verk, að góðs megi vænta af honum í fram tíðinni, ef hann heldur áfram að starfá við leiklhús. Framh. á 2. siðu. Alþýðuibandalagsfélögin á Eski- firði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og FljótisdalShéraði halda sameig- inlega skemmtun í Valhöll á Eskifirði í kvöld kl. 20.30. Þar verða ýmis skemmtiatriði: söngtríó, upplestur og glens frá Eskifirði, tveii' gamanvisna- söngvarar frá Reyðaifirði, gam- aniþáttur frá Fásknúðsfirði og Ár- mann Halldórsson á Eiðum er með frumsamið efni. Helgi Seljan, alþm. flytur ávarp. Kristján Garðarsson á Fáskrúðsfirði stjórnar almiennum söng við und- irlei'k Hlöðvers Smára Haralds- sonar í Neskaupstað. Kaffiveitingar verða og að lok- um dans, þar sem hljómsveitin VöJundur leikur. Kynnir verður Eiríkur Bjarna- soin, Eskifirði. Allt stuðningsfólk Alþýðu- bandalagsins er velkomið á skemmtunina og vill blaðið hvetja Norðfirðinga til að fjölmenna. Aðgöngumiðar fást hjá Áma Þormóðssyni og Birgi Stefánssyni og er mönnum bent á, að vissara er að panta þá í kvöld. Undanfarín ár ihefur verið efnt til orlofsdvalar húsmæðra á Hall- ormsstað. He.fur þeissi starfsemi; nctið vaxandi vinsælda oig þátt- taka aukizt ár frá ári. Það eru orlofsnefndir Sam- bands austifirzkra kvenna og Kvenfélagasambands Austur- Skaftafellssýslu, sem gangast fyr ir þessari starfsemi og í sumar er ætlunin að au'ka hana og orlof verði lengri tíma en áður. Hús- mæður geta nú dvalið á Halloims stað í júní og september. Meira fé er nú varlð til starfseminnar en áður, þar sem stynkir rikisins, sýslna og bæja hafa hækleað með lilkomu nýrra laga um orlof 'hús- mæðra. Hér er um mjög þýðingarmikla og þarfa starfsemi að ræða, og vill blað'ið hvetja toúsmæður til •ið sækja sem fyrst um orlofs- dvöl, þvi að vafalaust verður eft- ilrspurn mikil. Kvenfélögin hvert á sinum stað taka við umsóknum um orlofs- dvölina.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.