Austurland


Austurland - 24.08.1973, Blaðsíða 1

Austurland - 24.08.1973, Blaðsíða 1
lUSTURLAND MÁLBAGW ALÞÝÐUBAMDALAGSINS A AUSTURLANDI 23. árgangur. Neskaupstað, 24. ágúst 1973. 33. tö|[ublað. Fró Göoiíundi Kjördœmisrdðs AB - Sigurður Blöndal kjörinn formaður - Dagana 18. og 19. ágúat hélt Kjördæmisráð Alþýðubandalags- ins í Austui'landskjördæmi aðal- fund sinn í Neskaupstað. Þátttaka í fiundinum var góð og almenn, en tvö félög gátu elkki sent tfulltrúa vegna þess, að vegir urðu ófærir vegna snjóa. Voru það Vopnfirð- ingar og Seyðfirðingar, sem ekki komust af þeim sökum. Práfarandi formaður Kjördæmis ráðsins, Birgir Stefánsson,, Nes- Ikaupstað setti fundinn með ávai*pi og flutti einnig skýrsiu stjórnar- innar. Kom þar fram, að atllmikið Sigurður Blöndal. hefur verið um fundaihöld og einnig nok'kuð um annað samkomu hald á vegum Alþýðubandalagsins viíðs vegar um kjördæmið síðasta starfsár. Þá hefur Kjördæmisráðið ásamt blaðinu Austuriandi ráðið til sín sérstakan starfsmann, sem einnig er starfsmaður Alþýðubandalags- félagsins í Neskaupstað. Birgir Stefánsson var ráðinn til þessa startfs, og hóf hann störf 1. febrú- ar si. Eitt nýtt Alþýðubandalagsfélag var stofnað á árinu, Aiþýðubanda- lagsfélag Djúpavogs, og eru Al- þýðubandalagsfélögin í kjördæm- inu nú 9 að tölu. Fi'amsöguræður voru haldnar um þrjú sérstök mál á fundinum. Lúðvik Jósepsson, ráðherra talaði um stjórnmálaviðihorfið, Helgi Seljan, aliþingismaður um stöðu atvinnuveganna á Austurlandi og Birgir Stefánsson um Alþýðu- bandalagið á Austurlandi. Umræð- ur urðu allmiklar um þessi mál svo og önnur mál fundarins. For- maður Alþýðubandalagsins, Ragn- ar Arnalds, alþingismaður sat fund inn og flutti þar ávarp. Allmarg- ar áiyktanir voru samþykktar á fundinum, m. a. um landhelgismál- ið, herstöðvamáiið, atvinnumál og auk þess um innii félagsm'álefni. Voru umræður allar líflegar og góð þátttaka í þeim. Haldinn var almennur stjórn- málafundur á laugardagskvöld og flutit.u þar ræður: Ragnar Arnalds, Helgi Seljan og Lúðvík Jósepsson. Síðan komu fram fyrirspurnir frá fundarmönnum, Fundarstjórar á aðalfundinum vonu: Kristinn V. Jóhannisson, Neskaupstað og Ásgeir Metú- salemsson. Reyðarfirði, en fundar- ritarar Sigurjón Bjarnason, Egils- stöðum og Eysteinn Guðjómsson, Djúpavogi. Undir fundarlok á sunnudag fór fnarn stjómarkjör fyrir næsta starfsár. St.jórnina slkipa: Sigurður Blöndal, Hallormsstað, formaður og aðrir, sem skipta með sér verk- um: Sigurjón Jónsson, Vopnafirði, Guðmundur Sigurðsson, Seyðis- firði, Guðmundur Bjarnason, Nes- kaupstað, Guðjón Björnsson, Edki- f.'rði, Már Karlsson, Djúpavogi og Þorsteinn Þorsteinsson, Höfn. Varast jórn skipa: Kristinn Kristinsson), Fáskrúðsfirði, Ásgeir Metúsaiemsson, Reyðarfirði og Ágúst Jónsson, Neskaupstað. Endurskoðendur eru Sigfinnur Karlsson, Neskaupstað og Sigur- jón Bjarnasoin, Egilsstöðium og til vara Þorkell Bergsson, Reyðar- firði og Bjarni Þórðarson, Nes- ‘kaiupstað. Alyhtanir oðalfundar Kjö Ályhtun um landhelgis- mtílið Aðalfundur Kjördæmisráðs Al- þýðubandalagsins í Austurlands- kjördæmi haldinn í Neskaupstað 18. og 19. ágúst 1973 iýsir yfir eindregnum s.tuðningi við stefnu ríkisstjórnarinnar í landhelgismáJ- inu. Fundurinn bendir á, að þegar hefur mikilvægum árangii verið náð í baráttunni fyriir 50 mílna fiskveiðilandhelgi og má þar m. a. nef na: 1) Allar þjóðir, sem fiskveiðar stunduðu á Islandsmiðum, nema Bretar og Vestur-Þjóð- verjar, hafa í reynd virt 50 mílna mörkin. Þannig hafa mangir tugir erlendra fiski- skipa horfið af miðunum við landið. 2) Þrjár þjóðir hafa samið við Is- lendinga um landhelgismálið og skuldibundið sig til að veiða samkvæmt íslenzkum lögum og raglum um leið og þær tak- maika veiði sína hér venulega frá því sem verið hetfur. 3) Fiskveiðar Vestur-Þjóðverja og Breta hafa stórlega minnk- að og allt bendir til að þær minnki enn mikið á næstunni. Þannig er nú toiið að afli Vest- ur-Þjóðverja mimi verða aðeins helmingur af þvi sem áður var og Breta einum þriðja minni á fyrsta ái-inu eftir úttfærsluna. 4) Barlátta Islendinga fyrir 50 mílum hetfur hlotið viðurkenn- ingu fflestra þeirra þjóða, «em berjast fyrir stækkaðii fisk- veiðilandhelgi eins og Suður- Ameríkuríkja, Afríkurífcja, Kína og ýmissa opinberra að- ila í Kanada, Noregi, Skotlandi, Færeyjum og mörgum öðrum löndum. Fundurinn mótmælir sérstalklega hernaðarlegri íhlutun Breta í land- helgismálinu og telur að framkoma Dreifing ríhisstofnana Á fundi Kjördæmisráðs Alþýðiu- bandalagsins í Austurlandskjör- dæmi um síðustu helgi, skýrði Lúðvík Jósepsson frá því, að á- kveðið hefði verið að stofnsetja á Höfn í Hornafirði útibú frá Haf- rannsóknarstofnuniimni og í Nes- kaupstað útibú frá Rannsóknar- stofnun fiskiðnaðarins. Þá skýrði Lúðvík frá því, að þingmenn kjördæmisins Ihefðu lagt til að á Eskifirði yrði stofnað úti- bú frá Fi s kv innsl uskó 1 anum, 1. og 2. bekkur. Nýr skólastjóri á Höfn I haust verður tekið í notkun nýtt skóilalhús á Höfn í Hormatfirði, þar sem gagnfræðaskólinn verður til Húsa, og verður hann í vetur rekinn sem sérstakur skóli. Þar verður kennt í fjórum bekkjum, og landsprófsdeild verður stiarfrækt.. Skólastjcri hdfur verið ráðinn að Gagnfræðaskólanum á Höfn Heim- ir Þór Gíslason, fræðslufulltrúi og kenmari í Neskaupstað. Heimir er þaulvanur skólamað- ur, var m. a. mörg ár skólastjóri við heimavistarskólann að Staðar- borg í Breiðdal. Skólastjórí Barnaskólans á Höfn verður Árni Stefánsson, sem verið hefur skólastjóri Barna- og Gagn- fræðaskólans þar um árabil. brezku ríkisstjórnarinnar, sem sent hefur hingað herskip til að aðstoða brezka togara við að brjóta íslenzk lög og m. a. við fiskveiðar á friðlýstum fiskimið- um, sé með þeim hætti, að við hana sé ekki hægt að semja um neinar fiskveiðireglur. Fundurinn vekur athygli á því, að brezku herskipin og dráttar- bátarnir hafa hvað eftir annað reynt að sigla á íslenzk varðsikip og hafa þannig þverbrotið aiþjóða- siiglingareglur og nú síðast; hefur herskipum verið beitt, til þesis að vernda brezkan togara, sem ,stað- in.n var að veiðum á því svœði, sem brezka ríkisstjórnin telur þó í orði að hún viðurlkenni sem ís- lenzkt y 'rráðasvæði. Það er álit fundarins, að eftir það, sem g >rzt hefur í landhelgis- deilunni v ð Breta, sé enginn grundvöilur til frekari samninga- Framh. á 2. sfðu.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.