Austurland


Austurland - 14.09.1973, Blaðsíða 1

Austurland - 14.09.1973, Blaðsíða 1
ÆJSTURLAND MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS Á AUSTURLANDI 23. áxgangur. Neskaupstað, 14. septembeir 1973. 36. tölublað. Slíta stjórnmdldsambandi ef... höfðu veiið á fundi þingmanna og Ríkisstjórnin hefur nú, wniuin seinna, 'ákveðið að beita í laind- helgisdeilunni hvassasta stjórn- miálavopni, sem hún hetfur yfir að i'áða. Hún hefiur tiilkynnt brezku stjónninni að stjómmálasamband landanna verði slitið, ef brezk gæzluskip landhelgisbrjótanna haldi áfram tilraunum til að sigla á íslenzk varðskip. Slit á stjórnmálasambandi við smáþjóð er brezka heimsveidinu varla hættutegt, en komi til stjórn- málasiita vekur það óhemju at- hygli og því meir sem augu heims- ins beinast að landhelgismálinu, þvi beti-a fyiir okkur. Bretar byðu við það siðferðilegan hneklki, etf dvergþjóð eins og Islendingair sæi sig nauðíbeygða til að rjúfa stjóm- málatengslin vegna ofbeldisað- gerða þeirra og ógnana á íslenzJku yfirráðasvæði. Það hefur verið krafa (þjóðar- innar, að aðför Breta yrði svamð með iþví að rjúfa stjórnmálatengsl- in og enginn þarf að efa, að málið hefur o(ft borið á góma í ráikis- stjóminmi. Á mánudag í fyrri viku lagði Lúðvik Jósepsson fram í ríkis- stjórninni itillögu um ákveðnar stjórnmálaaðgerðir vegna dólgs- legrar framkomu Breta á Islands- miðum. I þedm tillögum var gert ráð fyrir þessum aðgerðum: 1. Öll þjónusta við njósnaflug- vélarnar verði stöðvuð. 2. Því verði lýst yifir, að loft- helgi Islands nái út að 12 mllum. 3. Brezku ríkisstjórninni verði tilkynnt að þess sé óskað að hún kalli sendiherra sinn heim og starfsfólk sendiráðsins. 4. Sendiherra Islands hjá NATO verði kallaður heim og öilum störf- um hætit á snærum bandalagsins. 5. Islendingar lýsi yfir því, að þeir telji aðstoðarskip landhelgis- brjótanna jafn sek þeim sjálfum. 6. Landhe 1 gisbrjótum verði ekki veittar neinar undanþágur til að leita vars 1 slæmum veðrum. 7. Þegar í stað verði fengin 2—3 skip í viðbót við iandhelgisflota okikar. Við þessa beinu tállögugerð komst skriður á málið. Á þriðju- dag í þessari viku lagði forsætts- ráðherra fyrir ríkisstjórnina til- lögu um aðgerðir, efnislega sam- hljóða tillögum, sem samþykktar framkvæmdanefndar Fmmsóknar- flokksins. I þeim tillögum er fjall- að um tvö atriði, iþ. e. að stjóm- málasambanidi við Breta verði slitið, ef þeir haldi áfram ásigl- ingum sínum og þess krafizt að Nato fordæmi framferði Breta og að aðild ofckar að bandalaginu yrði tekin til endurskoðunar, yrði það efcki við þedrri kröfu okkar. Ríkisstjómin samþykkti að til- kynna brezku stjórninni, að stjórn málasambandi landanna yrði slit- ið, ef ásiglingum verði fram hald- ið. Má því ganga út frá því sem gefnu, að næst þegar ásigling kann að verða reynd komi þessd ákvörð- un til framkvæmda. Þesis hefur orðið vart, að Bret- arnir hafa breytt framkomu sinni gagnvart vaiðskipunum og hætt ásiglingum. Hvort það er til fram- búðar til að forðast sitjómmála- sliti, eða bara hlé á meðan ráðum er ráðið, skai ekkert um sagt. Slit stjórnmálasamibands er al- varleg ákvörðun. En landhelgis- dedian er líka alvarlegt mál og framkoma Bneta svivirðileg. Það verður því ekfci komizt hjá alvai’- legum ákvörðunum. Það sem gerzt hefur í landhelg- ismálinu síðustu daga er eftirfar- andi: 1. Verði áframihald á ásiglinigum verður stjórnmálasamband rofið. Það er lagt á vald Breta, að velja á miilli áframhaldandi st'jórnmiála- samban.ds og áframhaldandi ögr- ana og ásiglinga. 2. Frá 'hádegi i d*ag er istöðvað allt samfoand íslenzkrar fluigum- ferðaistjórnar við njósnaþoturnar, sem fyigjast með ferðum varðslkip- anna. 3. Dómsmálaráðherra hefiur gef- ið út reglugerð iþess efnis að sjúka menn beri að flytja til lands á þeim skipum sem Iþeir eru Skráðir á. Með þess,u er það lagt á vald skiipstjóra hvort hærra skuli meta mannslíf eða peninga, sem igreiða þyrfti í bætur fyrir landihelgisibrot. 4. Foi'sætisráðherra hefur lýst yffir því, að lanldhelgisbrjótum verði engar iheimildir veittar tdl að leita vars innan ffiskveiðilögsög- unnar. 5. Tvö hvalskip hafa .verið tekin á leigu til gæzlustarfa. Enn er til umræðu í fíklsstjórn- inni hvoi-t loka skuii sendiráði o!k;ka,r hjá Nato og stæikkun lofft- helginnar. Er þess að vænta að hvort tveggja komi til fram- kvæmda innan skamms. Ihaldið okkar íslenzka er samt við sig og hefur allt á homnm sér vegna þessara aðgerða. Fæk'kar daglega þeim landsmönnum, sem taka mark á böisótd þess út af landhelgismáiinu. Gylfi Þ. Gíslason söng enn sama lagið og hann ’hóf að syngja við stjórnarskiptin og hefur síðan ranl að við öli möguleg og ómögiuleg tækifæri — sönginn um að landið sé stjórnlaust og samkolmulag ráðheiTa með eindæmum slæmt. Öðruvísi var iþað á viðreisnafár- unum. Þá var ekki ósamkomulag- inu til að dreifa. Gylfi tók miögl- unarlausti við fyrirskipunum Ihalds ins. En vegna þessa stöðuga sögu- buirðar um ósamkomulag í stjórn,- arráðinu, er rétt að geta ,þess, að allar þær ákvarðanir, sem hér hef- ur verið lýst, voru samþykfctar samhljóða í fíkisstjóminni. Landsbanhinn houpir hús Landsbanki íslands ætlar að stofnsetja útibú í Neskaiupstiað, eins og áður hefur verið s.ag!t frá í blaðinu. Bankinin 'hefur gert til- boð í húsin nr. 18 og 20 við Hafn- arbraut. Ekki er iblaðimu fcunnugt um, ihvort genglð hefuir verið frá kaupum á húsinu nr. 18, en eig- endur hússins nr. 20, sem eru Sigríður Elíasdóttir og Bæjarsjóð- ur Neskaupstaðar, haífa gengið að tilboðum bankans og eignast bánk- inn því örugglega það hús. Ætlun bankans mnn vera sú að ríffa þessi hús og byggja á þesSum lóðum yfiir atarfsemi sína hér. Þangað til það húsnæði verður komið í gagnið, mun bankimn verða með starfsemi sína í leiguhúsnæði. fró oðalfundi Þróttor Aðalffunduir íþfóttaifélagsins Þróttar var haldinn mánudaginn 10. septemiber. Fráfarandi tformað- ur félagsins Sigurður G. Björns- son, flutti skýrslu stjórnar og gjaldkeri gerði igrein fyrir reáikn- ingum félagsins. I stjórn félagsims fyrir næsta ár vom kosnir formaður Björn Magn- ússon, vaiaformaður Eiríkur Þór Magnússoni, gjaldkeri Þórð.ur Þórðarson, ritari Elma Guðmunds- dóttir og meðstijómandi Jóhann Gunnar Eristinsson. Bruni að Hafursá 1 fynradag kviknaði í íbúðar- húisinu á Hafiursá á Völlum. Skemmdir urðu miklar á íhúsinu, en foúslóð mun hafa bjargazt, að mestu. Á Hafursá býr Björn Bjömsson, rafvirkjameistari á- samt konu isinni og 6 dætnum. Frá aðalfundi Kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í Austur- laindskjördæmi, sem haldinn var í Neskaupstað 18. og 19. ágúst sl. Ragnar Arnallds, foimaður Alþýðubandalagsins er í ræðustól og síðan eru talið frá hægri: Kristinn V. Jóhannssön, Neskaup- stað, Ásgeir Metúsalemsson, Reyðarfirði, Birgir Steffánsson, Nes- kaupstað og Eysteinn Guðjónsson, DjúpaVogi. Ljósm. H. G.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.