Austurland


Austurland - 05.10.1973, Blaðsíða 1

Austurland - 05.10.1973, Blaðsíða 1
ÆJSTURLAND MALGAGN alþýðubanðalagsins a austurlandi 23. árgangur. Neskaupstað, 5. október 1973. 39. tölublað. Viljum herinn á broii Fyrirsögn iþessarar greinar er það, sem Einar Águstsson, utan- ríkisráðherra sagði við blaðamenn í aðalstöðivum Sameinuðu þjóð1- anna í New York sl. þriðjudag. Þessi ummæli ráðherrans og fleira sem fram kom á þessum blaða- mannafundi, er í fullu samræmi við yfirlýsta stefnu rikisstjómar- innar og það, sem margoft ihefur verið fjailað um hér í Austurlandi og áhersla hefur verið lögð á. Utanríkisráðherra hefur nú rætt við ráðamenn í Waslhington um endurskoðun ,,varnarsamningsins' ‘ og uppsögn hans. Af þeim viðræð- um koma nánari fréttir, er ráð- herrann kemur heim og hefur gert ríkiisstjórninni grein fyrir þessum viðræðum. Það má geta þess, að Einar Ágústsson hefur með mikilli prýði og festu haldið á málstað Islands á allshierjarþinginu og 'kynnt land- helgismálið vel og rækilega. Er ó- líkt að heyra málflutning þessa utanríkisráðherra á alþjóðavett- vangi en þegar kratarnir Emil Jónsson og Guðmundur í Guð- mundsson skipuðu það emhætti. Nú er tekið eftir því, hvað íslenski utanríkisráðherrann segir, en áð- ur datt ekki nolkkrum manni í hug að ljá því eyra, það var alveg nóg að hlusta á þann bandarís'ka. Eins og bent hefur verið á hér í blaðinu, eru herstöðvamálin að komast á athafnastig, og því er bráðnauðsyniegt, að ailir her- stöðvaandstæðingar, hv\ar í flokki, sem þeir standa, séu vel vakandi og fylgi málinu fast eftir, hvar Lionsmenn gdfn Phctomctcr Á liðnu vori ákvað Lionsklúlbb- ur Norð'fjarðar að gefa Fjórðungs- sjúkrahúsinu tæki, sem nefnist photometer. Þetta tæki er notað af meinatækni tdl blóðrannsókna. Tækið kom í júnímánuði og hefur verið notað á Sjúkrahúsinu síðan. Verð tækisins er um 105 þúsund kr., en þegar eftirgjöf hefur feng- ist á tollum, er verðið um 87 þús. kr. Þá vor.u Sjúkrahúsinu afhentir í sumar 4 garðbekkir, sem ætlaðir eru til hvíldar sjúklingum og gam- almennum, sem á Sjúkráhúsinu og elliheimilinu dveljast, þegar góð eru veður og fólkið getur verið úti við. Klúbbfélagar buðu öllu fólki 65 ára og eldra í skemmtiferð laugar- daginn 28. júlí sl. Var farið á bíl- um Lionsmanna og var þátttaka mjög góð eða milli 65 og 70 manns. Farið var sem leið liggur upp í Hérað, hádegisvei-ður snæddur á hótelinu á Halloimsstað og síðan ekið inn fyrir Löginn. Komið var í kirkjuna á Valþjófsstað, en þar flutti sóknarprestuirinn, séra Bjarni Guðjónsson erindi um stað- inn og sýndi kirkjuna og marga góða gripi, sem hún á, þ. á. m. eftirlíkingu hinnar í'rægu Valþjófs staðarhurðar, sem Halldór Sig- urðsson á Miðhúsum smíðaði og skar út,. Síðan var ekið út Fljó .s- dal og Fell, áð á Rauðalæk og snætt nesti og síðan haldið heiin. Tókst ferð þessi ágætlega, og veð- ur var mjög gott. Lionsklúbbnum hafa borist tvær peningagjafir í sumar í líknarsjóð klúbbsins, frá Árna Haraldss.vnl og Pálínu Hallsdóttur, en hennar gjöf er áheit, og er þetita í annað skipti, sem Ihún afihendir klúbbn- um áheit. Þessu ágæta fólki færir klúbburinn innilegar þakkir. Lionsklúbburinn hefur nú hafiið vetrarstarf sitt. Væntanlega verða ljósaperur seldar í októbermænuði, sennilega einhvern laugardag. Þá ætlar klúbburinn að gefa út vand- að, litprentað jólakort, sem vænt- anlega verður til sölu í nóvember. Andvirði iþess, sem selt verður rennur sem áður til einhverra líkn- ar- eða menningarmála í byggðar- laginu, en enn er ekki ákveðið, hvert. verðui' næsta viðfangsefni klúbbsins í þeim efnum. En 'klúbb- urinn vonast til, að vel verði tekið á móti sölumönnum hans sem allt- af áður, þegar farið verður að selja perur og jólakort og senni- lega jólasælgæti einnlg, þegar kom ið er fram á jólafiöstu. Þá má geta þess, að árshátíð Lionsklúbbsins verður laugardag- inn 27. október. — B. S. sem þess gerist þörf. Það er vitað mál, að meirihluti stjórnarandstöð unnar og margir aðrir eru andvíg- ir því, að herinn fari úr landinu. Hinir munu þó miklu fleiri 1 heild, sem vilja losna við þann ófögnuð. En þau öfl, sem vilja viðhalda hersetunni og eru sokkin í alls konar hermang og spillingu, svíf- ast einskis í áróðri sínum og lába ekki átakalaust rífa sig af spena hins lausmjólka, bandaríska auð- magns. Við þessi öfl þurfa her- stöðvaandstæð.'ngar að takast á af fullum kröftum næstu vikur og mánuði. Alþýðubandalagið og samtök ungra Framsóknaimanna og Jafin- aðarmanna eru nú *að undirbúa fundi um herstöðvamálm víðs veg- ar um land, og verða þeir vafia- laust. að einhverju leyti skipulagð- ir í samráði við Samtök herstöðva- andstæðinga, en í þeim er fóik úr öllum stjórnmá'laflokkum. Sem sterkust og viðtækust. samstaða allra herstöðvaandstæðinga þarf að vera verulega virk. Á þann hátt er best unnt að standa við1 bakið á ríkisstjórninni í þeirri baráttu, sem hún á framundan við Banda- ríkjastjórn og leppa íhennar á ís- landi. íslenska ríkisstjórnin tilkynnti 25. júni sl., að hún vildi taka Iher- stiöðvarsamninginn til enidiurskoð- unar. Það liggur fyrir, að samn- ingurinn verður ekki endurnýjaður og samkvæmt ákvæðum ihans má því segja honum upp 25. desem- bar. Eftir ár þar frá fellur samn- ingui inn úr igildi og verður herinn þá að hypja sig á Ibrott afi landinu. Það er því á jólum 1974, sem samningurinn getur verið úr gildi fallinn, og þá geta íslens'kir her- stöðvaandstæðingar svo sannar- lega haldið gleðileg jól. — B. S. Til flokksmcmna Alþýðubandalagsfólk skal minnt á ráðstefnu um sveitarstjórnar- málefni, sem Kjördæmisráð Al- þýðubandalagsins efnir til i félags- heimilinu Skrúð á Fáskrúðsfirði á morgun. Ráðstefnan hefst kl. 14. Þess er vænst, að sem allra flest- ir sæki þessa ráðstefnu. Einn er sá þáttur í starfsemi Þróttar sem allmikil rækt hefur verið lögð við undanfarin ár, en það er leikfimi fyrir konur og Old boy’s. Þrátt fyj'ir það að lítið er um klúbbastarfsemi í íþrótta- húsinu hefur þessi viðleitní félags- ins til útbreiðslu íþrótta gefist frekar illa. Að vísu hefiur leikfimi fyrir konur verið hafin árlega og oft með góðri þátttöku, en svo hefu.r í'eynslan verið sú, að eftir 2— 3 mánuði eða svo ihafa aðeins 3— 5 konur mæt.t. Síðast þegar aug lýst va,r eítir þátttöku í leikfimi Old boy’s gaf sig einn fram, þá- verandi formaður félagsins. Enn i einu sinni ætlum við að .reyna að hefja þesisa starfsemi, verður mið- að við tímabilið fiá miðjum októ- I ber til áramóta. Þær 'konur sem vilja vera með hafi samband við Elmu í síma 7532 og karlmenn- irnir við Bjöm í síma 7231, sem fyrst. — E. G. Móli Austurlonds Iðnskóli Austurlands tók til starfa 1. okt. sl. Á fyni önn starfa 3. og 4. bekkur skólans, en 1. og 2. bekkur verða starfræktir eftir ái’amót. AIls eru nú í 3. og 4. bekk 25 nemendlur, sem skiptast á 7 iðngreinar. Kennarar við skólann verða alls 6 — þar af 4 stunda- kennarar. Þórður Óli Guðmundsson, tækni fræðingur ræðst nú að skólanum sem fastur kennari og er það að sjálfsögðu mikils virði fyrir skól- ann að fá svo vel menntaðan mann til kennslu í raun- og tækni- greinum. Húsnæðisleysi háir mjög eðli- legri starfsemi skólans, en hann hefur aðsetur í dagfheimili bæjar- ins. Það segir sig sjálft, að slíkt ástand er óviðunandi — jafnt. fyr- ir daglheimilið og skólann. Iðnskóli þarf ekki aðeins kennslustofur fyi’ir bóklegar grein ar, heldui' einnig — og mi'klu frem ur aðstöðu fyrir verklega kennslu í ihinum ýmsu greinum. Sú i-eynsla, sem fengist Ihefur af rekstri verknámsskóla við Iðn- skólann í Reykjavík bendjr ótVí- rætt til þess, að iðnnám eigi að fær ast að mestu inn í skólana. Það má því alls ekki dragast, að komið verði upp sambærilegum deildum við skólana úti á landi, ef klausan í málefnasamningi ríkisstjórnarinnar um jafnréttisað- stöðu nemenda án tillits til búsetu á að vei'ða meira en orðin tóm. Undanfarin 5 ár hefur um fimm sinnum í eira fjáimagni verið var- ið til byggingar menntaskóla en iðnskóia. Slíkt er að sjálfsögðu hróplegt cj ætti nú yfirstjórn menntamál'i og fjárveitingavalds að taka á s'g rögg og snúa þróun- inni við áður en í algjört óefni er komið. — Krjóh.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.