Austurland


Austurland - 12.10.1973, Blaðsíða 1

Austurland - 12.10.1973, Blaðsíða 1
IUSTURLAND MÁLGAGN ALÞÝÖUBANDALAGSINS Á AUSTURLANDI 23. árgangur. Neskaupstað, 12. október 1973. 40. tölublað. Már Karlsson: DJÚPAVOGI, 11. akt. — MK/BS Unga fólkið sest að. Árið 1973 á eftir að verða merk- isár í sögu Djúpavogs. Er óhætt að fuUyrða, að framtíð þessa merka verslunarstaðar sé ráðin. Unga fólkið hér hefur ákveðið að byggja staðinn og gera hann að miklum atlhafna- og framfarabæ. Frá áramótium hafa risið hér af grunni 10 íbúðarhús, sem eru á mismunandi byggingastigi. Byrjað verður á tveim húsum til viðbótar fyrii' áramót. Nú þegar hefur verið sótt um nokkrar lóðir fyrir næsta vor. Hér hefur ekki verið byggt upp með neinu viðlagi, heldur bjarg- fastri trú íbúanna á framtíð byggð arlagsins. Ibúum hér f jölgaði árið 1972 um 30 manns. Nú verður það ihlutverk heima- manna ásamt þingmönnum kjör- dæmisins að fylgja þessari þróun mála fast eftir næstu árin. Hér hefur öflugur samvinnu- rekstur fólks til sjávar og sveita unnið stórafre'k, sem vert er að getfa gaum. Aldrei hefur veríð gefist upp við hin ýmsu vandamál, heldur tekist á við þau. Uppbygg- ingin hefur verið erfið, en hún hef ur tekist vegna samstöðu fólksins. Árangurinn er nú þegar Ijós: glæsilegur bær í mótun, með mikla fi'amtíðarmöguieika. Stækkun skólahúss. Auk nýja frystihússins og haf- skipabryggjunnar eru hér ýmsar framkvæmdir á döfinni. Byrjað er á viðbyggingu við barnaskólann. Verður það veik: unnið í tveim áföngum. I fyrri á- fanga verða byggðar þrjár skóla- stofur og öll vinnuaðstaða skóla- stjóra og kennara að auki. Annar áfangi verður barnabóka- safn ásamt lesstofu. Einnig verður bókasafn hreppsins þar til húsa. Olíumöl á 600 m. Lokið er við að leggja olíumöl á 600 m vegarkafla. Undirbúnings- vinna að því verki var mikil. Telja roargir, að svo'kallaður Aur, sem unninn var í sumar og oliumöl lögð á, beri nú nafn sitt með rentu. Framhald verður á þessum framkvæmdum næst.a sumar. Nýtt félagsheimili. Fyrirhugað er að hefja fram- kvæmdir við byggingu nýs félags- heimilis í haust. Eins og kunnugt er, vantar hér alla aðstöðu fyrir félagsstarfsemi. Lenging flugbrautar. Á Djúpavogi er 600 m löng flug- bra.ut, sem lengja má um 300 m með litlum tilkostnaði. Ákveðið hefur verið að reisa hér radíóvita fyrir flugvélar og skip. Eru tæki væntanleg til landsins um áramótin. 150 inillj. á 9 ínánuðum. I sumar hefur verið unnið við stækkun þróarrýmis síldarverk- smiðjunnar. Getur verksmiðjan nú tekið á móti 4.000 lestum af loðnu. Á siðustu vertíð bárust hingað ÍO.COO lestir. Útflutningsiverðmœiti Búlands- linds hf., það sem af er árinu 1973, er orðið 150 millj. 'kr. Sjlátrað 11.500 fjár. Haustsliátrun hjá sláturlhúsi Kauplélags Berufjarðar gengur mjög vel. 1 fyrra var slátrað 10.000 fjár. Áætlað er, að sú tala verði nú 11.500. Fallþungi dilka mun vera mjög svipaðui' og i 'fyrra. Þá reyndist hann 15,3 kg. Tðnskóli Nesk. Tónskóli Neskaupstaðar var settur 1. október. I skólanum verða í vetur rúmlega 30 nemendur, allir í einkatímum, en námstíminn er 8 mánuðir og skiptist i tvær annir. Kennt vearður á 10 hljóðfæri, en þau eru: píanó, fiðla, víóla, sello, mandolín, gítar, trompet, klarinett og haimonika. Auk þess verður hópkennsla í tónfræði, tónlistar- sögu og tónheyrn. Kennsla í tón- heyin er nýjung í starfsemi skól- ans. Skclastjóri Tónskóians og eini fastráðni kennari ihans er sem fyrr Haraldur Guðmundsson. Þá staifa við skólann tveir stundakennarar í vetur, Hlöðver Smári Haraldsson og Egill Jónsson. — B. S. Til flokksfélaga Flokksfélagar skulu minntir á, að fiokksráðsfundur Alþýðubanda iagsins verður haldinn í Þinghól, Kópavogi dagana 2.—4. nóvemiber nk. Formenn félaga eru Ihvattir til að halda sem fyrst fundi í félög- unum til að kjósa fulltiúa á flokks ráðsfundinn. Kjósa skal einn full- trúa fyrir hverja 24 félagsmenn og I brot úr þeirri tölu, ef það nær 12 eða meira, og jafnmarga varafull- trúa. Aðalfondur AB i Austnr-Shaftafellssýslu Alþýðufoandalagsfélag Austur- Skaftafellssýsilu hélt aðalfund sinn 30. sept. sl. Fráifarandi stjórn skilaði af sér eftir vel unnið starf á liðnu stanfsári. Hafa verið 'haldn ir allmargir fundir, og oft hafa sótt þá ýmsir aðkomumenn svo sem þingmenn Alþýðuibandalagsins í kjördæminu, erindreki Kjördæm- isráðsins og þingmenn og aðrír framámenn floldcsims frá Reykja- vík. Þá 'hafa verið ihaldnair skemmt anir á vegum félagsinis. Sigurður Hannesson, sem verið | hefur formaður félagsins undan- i farin ár, baðst undan endui'kosn- i . mgu. Stjómina skipa nú: Viðar Þor- bjarnarson, formaður, Þorsteinn Þo'i'st’eins'son, gjaldkeri, Benedikt Þorste'nsson, ritarí, Ragnar Ara- son, varaformaður og Sigurður Hannesson, meðstjórnand'. Nýr ndmsstjóri Aisturl. Menntamáiaráðherra ihefur nú fyrir viku sett Kristján Ingólfsson kennara sem námsstjóra skyldu- fræðslustigsins á Austurlandi um eins árs skeið frá 1. sept sl að telja. Ekki er enn ákveðið, hvar náms- stjórinn hefur aðsetur, en það verð ur í einhverju þéttibýlisbyggðar- lagi í fjórðungnum. Björn Magnússon, fyrrverandi skólastjóri hefur verið námsstjóri að undanförnu. — B. S. Fundarboð Alþýðubandalagið í Neskaupstað heldur félagsfund í félags- heimilinu föstudaginn 19. okt. kl. 20.30. DAGSKRÁ: 1. Umdirbúningur flokksráðsifundar og kosning í flokksráð. 2. Hrimgborðsumræður um bæjarmál. 3. Önnur mál. Stjórnin.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.