Austurland


Austurland - 23.11.1973, Blaðsíða 1

Austurland - 23.11.1973, Blaðsíða 1
MALGAGN ALÞVÐUBANDALAGSINS A AUSTURLANDI 23. áxgangur. Neskaupstað, 23. nóvember 1973. 47. tölublað. fyrsti Mi tojorinn rekinn heim Varðskipið Týr kom að hópi breskra togara á veiðum inni á friðaða svæðinu norður af Kögri sl. mánudag. Varðskipið sigldi að innsta togaranum, gaf honum stöðvunaimerki og gerði staðar- ákvörðun og setti iþar út dufl. Síðan var eftirlitsskipið Miranda kallað á vettvang og staðfesti það staðarákvörðun varðskipsins. Dómsmáiaráðuneyitinu var nú tilkynnt um málið og taldi það upplýst, að togarinn hefði verið að ólöglegum veiðum og gerst brotleg ur við bráðabirgðasamkomulagið, sem gert var 13. nóvemlber sl. Var því ákveðið að fella nafn togarans, sem er Northern Sky GY 25, nið- ur af skrá yfir skip, sem veiði- heimild hafa samkvæmt somkomu laginu. Sigldi togarinn síðan áleiðis he.m til Bretlands og á ekki aftiur- kvæmt inn fyrir 50 mílna mörkin nema sem alger löglbrjótur. Hefur bnesku togurunum, sem veiðar mega stunda innan 50 mílnanna samkvæmt samkomulaginu, því fækkað um einn, aðeins viku eftir að samkomulagið gefck í gildi. Verðiur vonandi fram.hald á þeirri fækfcun. Eins og gangi mála er lýst hér að framan, mun .það ganga til, þegar togari verður staðinn að ó- löglegum veiðum samkvæmt marg nefndu samkomulagi. Að vísu er það auðmýkjandii fyrir íisiensku landhelgisgæsluna að þurfa að ■kveðja til breskt eftirlitsskip að sannreyna staðaráfcvarðanir varð- skipanna, en þó má segja, að það geti flýtt mjög fyrir því, að löigbrjótarnir verði sviptir veiði- heimild. Skipstjórinn á Northern Sky neitaði því efcki, að hann væri inn- an friðaða svæðisins, en þóttist þó ekki vera eins langt inni og stað- arákvörðun varðskipsins gaf til kynna, þ. e. 3 mílur innan mark- anna. Eftirlitsskipin munu vart þora að halda til streitu röngum staðaráfcvörðunum og því er bót að leita til þeirra. Að undanförnu hefur breski togarinn St. Leger legið inni á Isa- firði vegna ketilbilunar. Þessi tog- ari er margfaldur lögbrjótur. 1 mars og apríl var varpan skorin Qftan úr honum, þar sem hann var staðinn að ólöglegum veiðum og í september sigldi hann á varðskip- ið Þór. Sjópróf fóru fram á ísa- firði nú vegna ásiglingarinnar, en engi'i- sömu yfirmenn eru nú á togaranum og voru þá, svo að engin niðurstaða fékkst. Virðist því ekki unnt að koma lögum yfir þennan þrjót. Nokkrir baráttuglaðir ísfirðing- a.r gerðu aðsúg að St. Leger og leystu hann frá bryggju nokkrum sinnum, en lögreglan kom í veg fyrir, að tjón hlytist af. Fleiri breskir togarar hafa kom ið inn til Isafjarðar síðustu daga ýmist með veika menn eða vegna blana. Virðast þeir fá alla fyrir- greiðslu þrátt. fyrir framkomu sína, síðan landhelgin var færð út í 50 mílur. — B. S. Vörudreifing í Fyrir fundi bæjarstjórnar Nes- kaupstaðar sl. föstudag, lá erindi frá 86 húsmæðrum í útbænum. Er þar leitað ásjár bæjarstjórnar til þcss að fá bætt úr þeim vandræð- uim, Siem þessi bæjarhluti á við að búa að því er t.ekur til verslunar. Erindi þessu var vel tekið, en á það bent, að eðlilegra hefði verið að konurnar hefðu fyrst sent það stjórn kaupfélagsins, sem er eini aðilinn, sem virðist hafa aðstöðu lil að bæta úr þessu, og ber raun- ar til þess siðferðileg skylda. Ekki hefði átt að senda það bæjar- stjcrn, nema fyrir lægi að kaup- félagið fengist ekki til að sinna þessu og bæta verslunarþjónust- una þannig að viðunandi væri. Bæjarstjórn óskaði ef.tir því að stjórn kaupfél. og kaupfélagsstj. ræddu við bæjarráð um málið. Raiunar er kaupfél. hvergi nefnt í áskorunarsfcjalinu en af ýmsum á- stæðum þó.tti rét.t að ræða við það áður en athugað verður hvort. aðr- ir eru fáanlegir til að reyna að leysa málið. I grein Sigrúnar Þormóðsdóttur í síðasta blaði kemur raunar fram, að þess hafi verið farið á leit við kaupfélagið að það bætti verslun- arlþjónustuna á þessu svæði. Höfðu konurnar óskað eftir að bílj yrði sendur í hverfið með al- gengust.u neysluvörur og að heim- sendingardögum yrði fjölgað. Það kemur fram, að ka.upfélagið hefur iþegar fjölgað heimsending- ardögum og það hefur keypt versl. Neskjör við Miðstræti og verður hún gerð að útibúi frá kaupfélag- inu í byrjun næsta mánaðar. Tel- ur Sigrún það nokkra bót, en þó ekki endanlega lausn. Takmaikið segir liún vera: Alhliða matvöru- versiun í útbæinn. Og það mega menn vera vissir um, að þegar | svona stcr hópur kvenna setur ‘ sér mark að keppa að, þá gefa ' þær engin grið fyrr en því marki er náð. Annars sýnist sjálfsagt, að farin sé hin félagslega leið í málinu. Kcnurnar gætu lagt málið fyrir aðalfund félagsins og reynt að kcma því þar fram. Þyki of langt að bíða í hálft ár ‘eftir aðalfundi ætti að -vera hægt að skora á fé- lagsstjórnina að halda félagsfund um málið og mun hún þá skyldug til þess. Þó er rétt að taka fram, að efckert bendir til þess að stjórn inni sé á móti skapi að halda fund um málið. Engan þarf að undra þótt fram komi ákveðnar óskir um bætta verslunaiþjónustu í útbænum. Bærinn byggist nú mjög ört út- eftir. Meira að segja er byggð haf- in í Bafckalandi og hefur þar ver- ið útihlutað um 20 lóðum. Sýni- legt er að á næstu árurn byggist langmest á þessu svæði. Það er erfitt að sækja daglegar nauðsynj ar inn í miðfoæ hvernig sem viðrar og hvernig sem á stendur. Þarna 'hlýtur að rísa verslun innan tíðar og engin skynsamleg ástæða er til að fresta því. Ef við lítum á vörudreifinguna í bænum komumst við að þ.eirri nið- urstöðu að hún fer öll, ef kaup- félagsútibú í innfoænum er frátalið fram á taikmörkuðu svæði í mið- bænum. 1 stórum dráttum mark- ast það af Kvíabólslæk að austan, Framh 4 2 aíðu 6/yrirleitni - eða shemmdarverh ? Á fundi bæjarstjórnar Neskaup- staðar fyrir viku kvaddi bæjar- stjóri sér hljóðs utan dagskrár og skýrði frá því að þá um daginn og daginn áður hefði einn af foæjar fulltrúunum, Gylfi G.unnarsson, látið jarðýtur sínar aka eftir olíu- malarlagðri götu og hafði honum þó bréiflega verið tillkynnt að allur slíkur akstur væri bannaður. Á- taldi bæjarstjóri þetta harðlega, kvaðst hafa látið taka lögreglu- skýrslu um atfoui'ðinn og áskilið bæjarsjóði allan rétt til skaðabóta. Gylfi sat gneypur undir þessari ádrepu, en tók þann kostinn, sem skárri var — þagði. Menn, sem umgangast eigur bæjarins eins og innrásarlið væri á ferð, eru bet.ur komnir utan bæjarstjórnar en innan. Svar vlð áskorun E'.ns og sagt var frá í folaðinu áð.ur, sendu 15 smáúitvegsmenn og sjómenn í Neskaupstað áskorun til sjávarútvegsráðfoeirra. þess efn- is, að togveiðar yrðu ekki leyfðar innan 12 mílna á svæðinu frá Norðfjarðarhorni að Seley, en tog- veiðair eru heimilar á þessu svæði upp að 4 mílum frá 1. nóvemíber til áramóta. Sjávarútvegsráðherra, hefur nú svarað þessaii áskorun með bréfi til hvers og eins áskoranda per- sónulega. Fer svar hans hér á eftir: Sjáivarútvegsráðuneyitinu, Reykjavík 7. nóvember 1973. Vegna áskorunar, sem þú ásamt 14 öðrum smáfoátaeigendum í Nes- kaupstað hefur sent sjávarútvegs- íáðuneytinu, vil ég upplýsa um eftirfarandi: Heimildin um togveiðar upp að 4 mílum ú.ti fyrir Austfjörðum frá 1. nóvember, er ákveðin í lög- um og ihefur því sjávarútvegs- ráðuneytið engan rétt til að breyta þeirri heimild. Af þeim ástæðum get ég ekki orðið við beiðnS ykkar. Þau lög, sem nú eru í gildi standa aðeins til næstu áramóta, þá falla þau úr gildi. Nú liggur fyrir Alþingi annað frumvarp sem ætlað er að verði samþykkt fyrir áramót og samkvæmt því verður ekki heimilt að veiða með footn- vörpu innan 12 sjómílna frá grunn línu. Þess er því að vænta að um næstu áramóit breytist áfcvæðin um togveiðar við Austurland eins og þið hafið farið fram á. Lúðvík Jósepsson.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.