Austurland


Austurland - 30.11.1973, Blaðsíða 4

Austurland - 30.11.1973, Blaðsíða 4
4 iUSTUSLAHfi Neskaup&tað, 30. nóvember 1973. „Athofnamaðor" Framh. af 1. sí8u. sýnt þá framsýni og félagslhyggju að beita félagslegu framtaki við uppbyggingu atvinnulífsins. Vitnisburðir. En jafnframt því að 'bölsótast yfir vondu kommúnistaauðvaldi og kommúnistaldíku, gefur Gylfi þess um skelfilegu öflum óafrvitandi hinn besta vitnisburð. Þrjú dæmi skiulu nefnd. „Hér er yfirdrifið nóg atvinna og fclk vill flytjast hingað en það or ekki hægt að taka á móti því, vegna þess að stefnan í stjórn bæjarmálanna 'hefur verið al- röng“. (Hér hefði farið betur á því að dæmi hefði verið nefnt. til sönnunai' siagorðinu um alranga bæjarmálastefnu. Án þess verður að líta á þetta sem markleysu). „Við höfum á skömmum tíma fengið hingað tvo skuttogara og eitt 1000 tn. skip“. (Þessir „við“ eru kommúnistaklíkan og kommún istaauðvaldið). „Vinna er mjög stöðug og góð í fiskvinnslu . . . “. Þessa vitnisburði og fleiri í við- talinu teljum við okkur til tekna. Undarleg þrjóska. Þetta athyglisverða gullkorn er í viðtalinu: „Það er reyndar efcki af neinu öðru etn einhverri undarlegri þi'jósku að menn hafe ékki gefist upp á að fylgja Sjálfstæðisflofckn um að málum hér á þessum stað“. Þótti engum mikið. En 'held.ur finnst mér þatta kaldranaleg kveðja bæjai'fulltrúans til þess fólks, sem hóf hann til bæjarfull- Geymsluhúsnœði óskast Minjasafnsnefnd Neskaupstaðar ósfcar að tafca á leigu húsnæði til geymslu á munum nefndarinnar. Húsnæðið má efcki vera minna en 50 fermetrar að stærð. Tiiboðum sé skilað á bæjarskrifstofuna fyrir 6. desember nk. Minjasafnsneínd. trúatignar. Það kýs Sjálfstæðis- ilokkinn af þrjósku en efcki hug- sjón. Er ekfci mál til komið að þetta fólk láti af þrjósku sinni og láti heilbrigða skynsemi ráða vali sínu ? „Sinnaskipti" Gylfa á einni nóttu fyrir síðustu bæjarstjómar- kosningar áttu efckert skylt við heilbrigð skoðanaskipti. Þau voru kaldrifjað brasic. Hann reiknaði efcki með þeim möguleika að fram undan væri timabil vinsti-i stjórn- ar í landinu. Hann ætlaði að nota póliitísfca aðstöðu sína til að ná í meira fé, og eftir honum var haft á því ári sem leið milli bæjar- stjórnarkosninga og Alþingis- fcosninga, að munur væri á þeim viðtökum, sem hann fengi í bönk- um eftir að hann lét af kommún- istatrú og tók upp íhaldstrú. Von- andi þurfe banikarnir einskis að iðrast. Nú þykist Gylfi trúa á frjálst framtak einstaklingsins og frjálsa samkeppni. Mát.ulegt væri að „kommúnistaklífcan" léti hann finna blessun hennar, ,en fram -að þessu hef.ur hann verið látinn í friði. ,,Kommúnistaklíkan“ hefur líklega verið aðalviðsfciptaaðili Gylfa og með því gert, honum fært að koma fótunum undir sig og verða efnaður maður, ef dæma má eftir stöðugum vélafcaupum hans og annai'ii fjárfestingu. loðnuvertíðin hafa kommarnir enga peninga og þá kjóaa menn þá ekki, líklega tafca þeir þá íhald- ið fram yfir. Hvernig atkvæði faila fer eftir því hver get'ur rétt kjósendum flestar fcrónur — þeii' eru upp til hópa til sölu að mati Gylía. Margur heldur mig sig má um þetta segja. Síöan þetta viðtal átti sér stað haíá fiskifræðingar, ef fylgt er hugsanagangi Gylfa, spáð Alþýðu- bandaJaginu stórsigri. Vonandi reynist það svo, en ekfci viljum við tengja saman loðnuveiði og kjörfylgi þótt okkur finnist hvoru tveggja gott. Og vonandi endist Gylfa þrjósk an og flokksbræðrum hans um- burðarlyndið fram yfir bæjar- stjórnafkosningarnar. En á kreik eru fcomnar sögur um að1 þeir viiji loisna við hann, jafnvel þótt við það glatist þau atkvæði, sem Gylfi lofaði að leggja á borO með sér. En hvað sem þeim heimildum líður mega menn vera vissir um að Gylfi verður í kjöri, annað hvort með einkafyrirtæfci eða á vegum annars flokks, því sfcoðana skipti eru honum jafn auðveld og skyrtuskipti. Hann telur sig líka hafa vissra hagsmuna að gæta í bæjarstjórn og víkur áreiðanlega ekki þaðan með ljúfu geði — en kann að víkja samt. Uoðna og atkvæði. Blaðamaðurinn spurði: „Tel- urðu horfur á, að þetta valdahlut- fall kunni að breytast skjótlega, t. d. við næstn bæjarstjórnarkosning ar að vori?“ Gylfi svarar: „Því er erfitit að spá. Það fer reyndar eftir útkom- unni á loðnuvertíðinni í vetur hvað bæjarstjórnarforystan hefur mik- ið fjáimagn úr að moða“. Aldrei hef ég vitað að kjósend- um væri sýnd önnur eins lítilsvirð- ing. Ef loðnuveiðin verður mikil hafa kommarnir nóga peninga og þá kjósa menn þá. Misiheppnist i Miðað við smæð blaðsins hef ég nú eyt.t meira púðri á Gylfa en ég ætlaði. Ég verð því að sleppa ýmsum atriðum, sem gaman hefði verið að drepa á,, svo sem gor- geirnum og mikilmennsfcunni, sem skín út úr öl'lu viðtalinu, töfra- manninum Lúðvíki Jósepssyni, sem alltaf getur útvegað nóg af peningum hvort sem er við- reisnarstjcrn ,eða vinstri stjórn í landinu, og því hvernig Gylfi reyn ir að sleiikja sig upp við bæjar- stjcrann, sem hann hefur og gert við önnur tæfcifæri, og áreiðanlega ekki út í bláinn. Bjarni Þórðarson. Ný verslun Ný verslun kaupfélagsins verður opnuð mánudaginn 3. des- | ember að Miðstræti 2 (áður NESKJÖR). 1 Kaupfélagið FRAM. Tilkynning um heimsendingar Framvegis verða vörur sendar frá verslunum vorum þrisvar í viku, þriðjudaga, miðvikudaga og föstudaga. Vörurnar ber að greiða um leið og 'pantað er í verslununum eða við afhendingu þeirra. Kaupfélagið FRAM, Norðfiirði. Bœjarbúar Vegna mikilla frosta hefur minnkað verulega í vatnsbólinu og eru bæjarbúar vinsamlegast beðnir að fara sparlega með vatn- ið. Vatnsveitustjóri.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.