Austurland - 11.01.1979, Blaðsíða 1
Félagsvist
á föstudags-
kvöld kl. 9
A. B. N.
Bágborið ástand símans
„Aðeins tímabilsbundið" segir umdœmisstjórinn
Reynir Sigurþórsson
Í annað skipti á stuttum tíma
rofnaði símasamband að mestu
milli Austfjarða og annarra lands-
hfuta nú fyrir síðustu helgi. Frá
miðjum desember hefur verið
venju fremur erfitt að ná suður
í gegnum sjálfvirka símann og
ógerlegt á stundum.
Það segir sig sjálft að siíkt
ástand hefur margvíslega erfið-
leika í för með sér bæði hjá hin-
urn ýmsu símnotendum og ekki
síður hjá afgreiðslufólki sím-
stöðva. Síðustu dagarnir voru hjá
mörgum peirra eins og í verstu
loðnuvertíð og slegist um pær lín-
ur sem í boði voru.
Ástandið í símamálum kjör-
dæmisins hefur verið afar bág-
borið yfirleitt undanfarin ár. 111-
mögulegt getur verið að ná til
Reykjavíkur í gegnum sjálfvirka
símann og ef á annað borð næst
á sambandið til að rofna ýmist
alveg eða um stundarsakir. En
hvimleiðast hlýtur pó að vera peg-
ar símtölum slær saman og fjórir
aðilar eru í hörkusamkeppni um
sömu línuna. Líka vill pað brenna
við að blásaklausir menn verða
hlustendur að einkasamtölum sem
ekki er gert ráð fyrir að fari lengra
en á milli tveggja eyrna.
Þetta og margt annað hafa
símnotendur á Austurlandi mátt
pola og er pað í hróplegu ósam-
ræmi við hið háa verð sem við
greiðum fyrir símapjónustu.
Fjárskorturinn lengir
bilunartímann
Allt petta stendur pó til bóta
samkvæmt eftirfarandi upplýsing-
um frá Reyni Sigurpórssyni urn-
dæmisstjóra:
„Þessir erfiðleikar nú stafa fyrst
og fremst af biiunum sem urðu
vegna veðurs. Það er erfitt að
sinna pessum fjallastöðvum og
tækin eru ný og byrjunartíðni
erfið.
í sambandi við miliiheyrslu pá
er eðlileg skýring á pví. Yfir
Eyjafjörð liggja 2 sæstrengir, á
öðrum er viðtaka á hinum sending,
á sitt hvorum streng til að koma
í veg fyrir milliheyrslu. Ef annar
bilar verður að flytja allt í sama
strengnum. Þegar við svo misst-
um örbylgjukerfið og urðum að
nota einn streng pá myndaðist
hætta á milliheyrslu.
Milliheyrsla í Neskaupstað hef-
Yfir 100
þúsund tonn
Bræðslufiskur fór yfir 100 pús.
tonn á Seyðisfirði síðastliðið ár
í fyrsta skipti síðan á síldarárun-
um. Hér eru 2 loðnubræðslur. Þá
hefur afli togaranna verið mjög
pokkalegur á síðasta ári og vinna
af peim sökum verið jöfn og
góð par til peir hófu siglingar á
Englandsmarkað í desember.
—J. P.
ur verið plága og ég er búinn að
kvarta mikið út af henni og sím-
stöðvarstjórinn par Axel Óskars-
son einnig Þarna var
um tvöfalda bilun að ræða, leki
á streng og leki á fjölsíma. Það
var smíðaður sérstakur útbúnaður
til að pétta fjölsímann og loksins
fannst lekinn. Við petta var gert í
sumar og eftir það á ekki að hafa
verið um milliheyrslu að ræða í
Neskaupstað. En sama vandamálið
er við að eiga á leiðinni Höfn —
og norðurúr og Djúpavogur og
norðurúr. Þar erum við með
gömul tæki sem við erum að
skipta út.
Nýja örbylgjuleiðin
Þessi nýja örbylgjuleið sem er
komin til Egilsstaða og hefur verið
að stríða okkur í desember á að
fara hringinn í kringum landið.
Þ. e. Rvík-Akureyri —• Húsavík-
urfjall-Þistilfjörður (Viðarfjall),
Heilisheiði og síminn paðan niður
á Egilsstaði en sjónvarpið á Gagn-
heiði. Frá Egilsstöðum liggur hún
í streng til Reyðarfjarðar, í lofti
upp á Tröllafjöll og í lofti á Fá-
skrúðsfjörð. Hinum megin kom
hún í álíka áföngum til Hafnar í
haust og þá er eftir að loka hringn-
um sem er Fáskrúðsfjörður —
Höfn. Það er búið að gera áætlun
um þá framkvæmd en fjármagn
hefur ekki leyft hana ennþá og
ekki heldur dugað til að kaupa
nægjanleg tæki og mælitæki og
það háir okkur núna. Bilanatím-
inn hefur orðið helmingi lengri
en ella hefði orðið vegna vöntunar
á þessum tækjum.
Tækin sem sett hafa verið upp
eru vel yfir þann styrkleika sem
við þurfum. Á Norður- og Aust-
urlandi eru mjög góð tæki, bilun-
in á Húsavíkurfjalli varð vegna
eldingar. Þau eiga að vera varin
gegn slíku en petta skeði nú
samt.
Við erum með ágætis samband
að gæðum og styrkleika og enn-
fremur línufjölda. Það eina sem
vantar er að komast inn í Reykja-
vík. Þar eru tvær stöðvar, í Breið-
holti og í miðbænum. Aukningin
þar er svo mikil, að pessar 400
línur í Breiðholti eru orðnar of
fáar. Verið er að stækka þessar
stöðvar um samtals 360 línur, úr
920 í 1280.
Þaí sem kemur í veg fyrir að
samland náist við Reykjavík er
að lang’ínustöðin þar tekur ekki
við, hún er öll upptekin, allar
þessr ' "70 línur eru þá í afgreiðslu
inn í. 'ifuðborgarsvæðið.
Sú breyting sem við erum langt
komin með á að gera það að
verkum, að við getum hringt og
náð sambandi svo til samstundis,
sé númerið ekki á tali.
Það eina sem vantar er að loka
hringnum þannig að við höfum
örugga leið suður fyrir ef við ná-
um ekki norður fyrir“.
Eftir pessu að dæma parf ekki
stórátak til að símasamband verði
í viðunandi horfi hér Austanlands
og cinmitt pess vegna ættum við
ekki að þurfa að bíða mörg ár í
viðbót. En þá er verðlagið eftir.
Það er mál sem við sættum okk-
ur ekki við og Austurland mun
gera skil síðar.
Seyðfirðingar ná langþráðu
takmarki er þeir komast yfir
þúsundið
Samkvæmt upplýsingum bæjar-
stjórans i Seyðisfirði, Jónasar
Hallgrímssonar, hefur í haust ver-
ið haldið áfrani með nýbyggingu
sjúkrahússins þar alveg undir jól
enda tíðarfar gott til byggingar-
vinnu, venjufremur lítill snjór og
annað veifið þíðviðriskaflar, svo
að fært þótti að stunda steypu-
vinnu. Lokið var við uppsteypu
kjallara hússins og helmings
priðju hæðarinnar. í desember á
pessu ári er ráðgert að fram-
kvæmd þessa þáttar verksins ijúki
þannig að byggingin verði fok-
held og fullbúin hið ytra og lóðin
jöfnuð. Það er Brúnás hf. Egils-
stöðum sem er verktaki við fram-
kvæmdina.
Þá er hafin á vegum leiguíbúða-
nefndar Seyðisfjarðarkaupstaðar
bygging 12 íbúða sambýlishúss í
Gilsbakkahverfi. Lokið er upp-
steypu tveggja stigaganga af þrem-
ur og tæplega tveim hæðum hins
þriðja. Nú er hafin vinna við að
innrétta fyrstu af fjórum íbúðum
sem ráðgert er að skila fullbún-
um í mars n. k. Allar íbúðirnar
eiga síðan að vera tilbúnar í
desember á þessu 'ári. Byggingar-
verktaki er Byggingaver sf. frá
Hafnarfirði.
Það má segja að yfirleitt hafa
verið miklar annir í aimennum
húsbyggingum enda ekki færri en
40 íbúðir í byggingu í bænum á
ýmsum byggingarstigum.
í haust var ætlunin að vinna
að hafnarbótum neðan Fisk-
vinnslunnar. Hafin var fylling
með jarðvegi en síðan átti að
ramma niður járnþit á þessu ári
í þeim tilgangi að auka athafna-
rými fyrir skip og báta. Tækni-
legar áætlanir Hafnamálastofnun-
arinnar stóðust hins vegar ekki og
varð að stöðva verkið í bili a.
m. k. Mjög brýn þörf er á úrbót-
um í hafnarmálum á Búðareyr-
inni.
1 lokin má geta þess að Seyð-
firðingar hafa loksins náð pví
langþráða takmarki að fylla pús-
undið samkvæmt upplýsingum
Hagstofunnar frá 1. des. sl. en
þá reyndust fbúarnir vera 1011 að
tölu. — J. P.
Innsigling á Djúpavog
Eftirfarandi vísur eru að sögn heimamanna það eina
sem gert hefur verið fyrir innsiglinguna til Djúpa-
vogs síðastliðin ár.
A Brennikletti logn Ijósin tvenn
ci litinn rauð og eiga að bera saman.
Þti inn er beygt, en baujuljósin prenn
par blikka ykkur. pat) jinnst öllum gaman.
Sú innsta er hvít og á að vera á bak
sú önnur rauð á stjór á hún að vera.
Sú priðja er hvít og yst pví eftir tak,
sem einnig stjórnborð hefur með að gera.
Jón Sigurðsson í Rjóðri
Djúpavogi
Mikil gróska í
leiklistarlífi
Mikil gróska hefur verið í leik-
listarlífi á Austurlandi í vetur. í
desember frumsýndu prjú leikfé-
lög verk sín. Leikfélag Reyðar-
fjarðar sýndi Sólarferð, Leikfélag
Fljótsdalshéraðs sýndi Tobacco
Road og Leikfélag Neskaupstaðar
sýndi Landabrugg og ást. Þá var
Leikfélag Eskifjarðar með kvöld-
vöku í Valhöll.
Sigrún Benediktsdóttir í hlutverki
Ödu í Tobacco Road.
— Ljósm. Þ. P.
Reyðfirðingar luku sýningum á
leikriti sínu fyrir áramót en Leik-
félag Neskaupstaðar sýnir enn
Landabrugg og ást við fádæma
góðar undirtektir og aðsókn hvar
sem sýnt er. Um síðustu helgi
voru sýningar á Reyðarfirði og
Fáskrúðsfirði en síðustu sýningar
verða á Héraði og Borgarfirði um
næstu helgi. —G. B.
Jólavaka á
Leikfélag Seyðisfjarðar og Sam-
kórinn Bjarmi héldu sameiginlega
jólavöku 28. des. í Félagsheimilinu
Herðubreið.
Flutt var efni úr verkum Jónas-
ar Árnasonar.
Kvöldvakan pótti takast mjög
vel í alla staði og var ákaflega vel
tekið af áhorfendum. Dagskráin
var minnst 2ja klukkustunda löng
og var endurtekin tvisvar 2. jan.
Milli 70—80 manns stóðu að
skemmtan pessari á einn eða ann-
an hátt og á þetta fólk miklar
pakkir skildar fyrir þetta fram-
tak sitt.
____________________—J. P.
Ný
snjóbifreið
Einhvern næstu daga munu
Seyðfirðingar taka í notkun nýja
snjóbifreið sem að sögn er tækni-
lega mjög fullkomin. Unnið hefur
verið að yfirbyggingu bifreiðarinn-
ar á Seyðisfrði undanfarnar vikur.
Binda Seyðfirðingar miklar von-
ir við að bifreiðin, sem er þýskrar
gerðar, reynist góð samgöngubót
pegar Önnúr sámgöngutæki kom-
ast ekki um.
—J. P.