Austurland - 25.01.1979, Qupperneq 1
Úr Suðursveit
Yfirlit um fallþunga og
tölu sláturlamba úr
einstökum hreppum
sýslunnar haustið 1978
Hreppur Tala Meðal
sláturl. fallþ.
Lón 4.627 d. 13,55 kg.
Höfn 721 d. 14,16 kg.
Nes 7.493 d. 13,49 kg.
Mýrar 4.248 d. 15,11 kg.
Suðursveit 7.488 d. 15,11 kg.
Öræfi Ur öðrum 4.916 d. 14,65 kg.
héruðum 29 d. 13,55 kg.
Slátrað alls. 29.822 d. M. fallþ. 14,35 kg.
Sé tillit tekið lil þess að áður
var nýrmörinn veginn með föll-
unum, þá er meðal fallþungi dilka
í A-Skaft. meiri í haust en hann
áður hefur verið. Er það þyngdar-
aukningin á dilkunum úr Suður-
sveit, sem þar gerir allan muninn.
P.S. Nú, í dag 7. desember er
hér sami austan strekkingurinn 7.
daginn í röð og alltaf rigning öðru
hvoru með.
Frá því um miðjan nóvember
að féð var tekið á gjöf, hefur ver-
ið farið minnstakosti í 12 daga
út á Breiðamerkursand og að Felli
í leit að 14 ám, sem vantaði af
Breiðamerkursandi, þegar féð var
tekið þaðan. En í dag fundust
loksins 11 af þessum kindum dauð-
ar niður í smá tjörn norðan á
Hrollaugshólum, rétt austan við
þjóðveginn, en vegurinn liggur
norðan á Hrollaugshólum við
austur jaðar Breiðamerkursands.
Hafa þær sennilega farið þarna út
á veikan ís eftir að byrjaði að
snjóa. Ær þessar voru frá 3
bæjum, 6 frá Gerði, 3 frá Hala
og 2 frá Reynivöllum.
— T. S.
FÉLAGSVIST A. B. N.
FÖSTUDAGSKVÖLD
KL. 9—5 KVÖLDA
KEPPNI HEFST.
29. árgangur
Fimmtudagur 25. janúar 1979.
4. tölublað.
Sem kunnugt er hafa Norðfirð-
ingar oftar en einu sinni gerst
brautryðjendur í skipakaupum.
Má þar nefna skuttogarakaup og
kaupin á aflaskipinu Berki til
loðnuveiða sem mörgum þótti
hrein fíflska. Ef vel tekst til nú
halda þcir áfram þessu brautryðj-
endastarfi með kaupum á sérstöku
koimunnaveiðiskipi.
Það er nýtt hlutafélag í Nes-
kaupstað undir forystu Magna
Kristjánssonar skipstjóra sem hef-
ur ákveðið að reyna nýjar leiðir
í sjávarútvegi, með kaupum á
þessu skipi. En að fróðra manna
áliti eiga kolmunnaveiðar mikla
framtíð fyrir sér.
Félagið hefur sótt um leyfi til
kaupa á togskipi til veiðanna og
er nú beðið eftir svari yfirvalda
sem væntanlega ræðst á fundi í
dag.
Rannsóknarstofnun fiskiðnað-
arins og Hafrannsóknastofnunin
hafa báðar lagt málinu lið og
ýmsir fleiri aðilar sem nálægt fisk-
iðnaði koma.
Helstu rök þeirra eru, að skip-
inu er ætlað að veiða að mestu
fisktegundir sem vannýttar eru þ.
e. kolmunna og spærling, en loðnu
aðeins í 3 mánuði í byrjun árs.
Megingalli á þeim tilraunum sem
gerðar hafa verið á kolmunna-
veiðum er hve stutt þær hafa stað-
ið hverju sinni og því ekki fengist
reynsla og þekking sem nauðsyn-
leg er við þessar veiðar sem aðrar.
Skipið sem hér um ræðir yrði
stöðugt við veiðarnar fram eftir
hausti og gæti þannig fengist dýr-
mæt reynsla. Síðast en ekki síst
vísa þessir aðilar til reynslu og
þekkingar Magna Kristjánssonar
sem eins og segir í umsögn Haf-
rannsóknarstofnunarinnar „hefur
hvað mesta reynslu og þekkingu
íslenskra skipstjórnarmanna á
kolmunnaveiðum og þeim veiðar-
færum sem notuð eru og má ætla
að sú reynsla dragi eitthvað".
Blaðið sneri sér til Magna í
upplýsingaleit. Hann vildi ekki
gera mikið úr málinu á þessu
stigi. þar sem óráðið væri hvort
levfi fengist.
Hann sagði að skipið yrði ein-
göngu útbúið fyrir veiðar með
flotvörpu og léttum botnvörpum.
Tilganginn með þessum kaupum
sagði hann vera að veiða bræðslu-
fisk, aðallega kolmunna en einnig
spærling og loðnu og nota til þess
sömu veiðarfærin. En það er meg-
breyting frá því sem nú er.
Algengt er að skip hafi um 2—4
teg. veiðarfæra í notkun yfir árið.
Þetta myndi spara veiðarfæra-
kostnað og gera það að verkum
að áhöfn yrði mjög fámenn.
Svo væri annar megintilgangur,
sem sé sá, að koma hluta aflans
í land í fersku ástandi og með því
skapa grundvöll að vinnslu kol-
munna til manneldis. Skip það
sem valið hefur verið hefur allan
útbúnað til þess að geta það.
Skipið er 290 br.rml. skuttog-
skip frá Esbjerg smíðað í Þýska-
landi.
Magni sagði ennfremur, að
markaður fyrir kolmunnaafurðir
til manneldis væri nú fyrir hendi
og þessi fisktegund vannýtt. Engin
fiskvinrislustöð gæti hins vegar út-
búið sig sem skyldi til vinnslu
nema tryggt sé öruggt og gott hrá-
efni til lengri tíma.
Ef af þessum skipakaupum yrði
opnaðist þessi möguleiki. Þetta
skipti höfuðmáli fyrir þróun kol-
munnavinnslu á næstu árum.
Er blaðamaður spurði Magna
hvort slíkt framtak samrýmdist
Framhald á 3. síðu
Kalt er hjartað í
honum þorra
Þorri karlinn hefur nú hvatt dyra með
klaka í skegginu eins og hans var von og
vísa. En honum tjóar lítið að vopnast
grvlukertum við látum slíkt ekki á okkur
bíta. Við þurfum ekki að híma í feysknum
torfbæjum með svellbunka á gólfi, hálf-
tóma aska og of lítinn heystabba í hlöð-
unni.
Nei, í stað þess að þrengja beltisólina,
víkkum við hana pví að nú höldum við át-
veislur þorra til heiðurs og yljum okkur
bæði að utan og innan í hlýjum húsakynn-
um og góðum félagsskap.
Nei. hann var ekki alltaf betri gamli
tíminn og það fannst honum séra Matthíasi
líklega ekki heldur ]>ví að hann orti einu
sinni:
Mörgum fyr af kulda kól
karli tárið bjarta,
sjaldan bót og iðran ó/
islenskt Þorra-hjarta.