Austurland - 01.02.1979, Page 1
Austurland
29. árgangur
Fimmtudagur 1. febrúar 1979.
5. tölublað.
FÉLAGSyiST A. B. N.
föstudagskvöld kl. 9.
Annað kvöldið í 5
kvölda keppninni.
Gurtnlaugur Haraldsson
— Ljósm. H. G.
Frá Alþýðubandalagi
F1 jótsdalshéraðs:
Þurfa aðhald
og liðsinni
Hinn 23. janúar sl. var haldinn
aðalfundur Alþýðubandalags
Fljótsdalshéraðs í grunnskólanum
á Egilsstöðum. Fráf. formaður fé-
lagsins, Jón Loftsson á Hallorms-
stað, gerði grein fyrir starfseminni
á síðastliðnu ári, en þar hefur
hæst borið kosningabaráttuna í
sumar. Auk venjulegra aðalfund-
arstarfa flutti gestur fundarins,
Helgi Seljan alþingismaður, ítar-
legt erindi um stöðu mála á Al-
þingi fyrir þinghlé og í lands-
málum almennt. Reifaði Helgi
helstu baráttumál Alþýðubanda-
lagsins og gerði grein fyrir fram-
gangi þeirra í einstökum ráðu-
neytum og á þingi. Kom berlega
fram í máli Helga, að við öllu
mætti búast í stjórnarsamstarfinu.
Væri afar þýðingarmikið að ein-
stök Alþýðubandalagsfélög úti um
land ynnu kapþsamlega og veittu
ráðherrum sínum, alþingismönn-
um og flokksforystu á þann hátt
aukið liðsinni og aðhald við að
koma fram baráttumálum, ekki
síst núna þegar um aðild að rík-
isstjórn væri að ræða. — Umræð-
ur urðu talsverðar um einstaka
málaflokka.
Eftirtaldir félagar skipa stjórn
Alþýðubandalags Fljótsdalshéraðs
næsta árið:
Gunnlaugur Haraldsson, for-
maður; Gunnar Halldórsson, vara-
formaður, Dröfn Jónsdóttir, Ófeig-
ur Pálsson. Halldór Sigurðsson,
Arinbjörn Árnason, og til vara
Ásmundur Þórarinsson og Árni
Halldórsson,
Stjórnin hefur ákveðið að koma
saman til fyrsta fundar þriðju-
daginn 30. jan. þar sem starfsem-
in framundan verður skipulögð.
— Verður gerð nánari grein fyrir
vetrarstarfi félagsins hér í blað-
inu innan tíðar.
Lokatakmarkið hlýtur að vera
3öfnun símaverðs
Fyrir atbeina landshlutasamtaka
sveitarfélaga var gerð á síðastliðnu
ári athugun á símamálum hér-
lendis. Að henni vann starfshópur
sem í voru 3 framkvæmdastjórar
landshlutasamtakanna, þeir Guð-
jón Ingvi Stefánsson, Vesturlandi,
Guðmundur Gunnarsson, Suður-
landi (og síðar eftirmaður hans í
starfi, Helgi Bjarnason) og Jóhann
T. Bjarnason, Vestfjörðum. Af
hálfu Póst- og símamálastofnunar-
innar voru í hópnum þeir Jón
Skúlason, póst- og símamálastjóri
og Guðmundur Björnsson við-
skiptafræðingur hjá stofnuninni.
f sambandi við athugun þessa
var gerð könnun á útgjöldum sím-
notenda. Valdar voru símstöðvar
á landsbyggðinni, sem talið var að
gætu gefið sem besta hugmynd
um símanotkun við hinar ýmsu
atvinnu- og þjónustulegu aðstæð-
ur og til samanburðar stærstu sím-
stöðvarnar á höfuðborgarsvæðinu.
Gert var nákvæmt yfirlit yfir síma-
útgjöld á þessum stöðvum fyrir
heilt ár, 1977 og samanburður á
milli þeirra.
Heldur hljótt hefur farið um
athugun þessa en blaðið fékk góð-
fúslega leyfi hjá einum úr starfs-
hópnum til birtingar á efni skýrslu
þeirrar sem hópurinn sendi frá sér.
Skýrslan er afar athyglisverð og
staðfestir svo að ekki verður leng-
ur neitað, að hér er aðgerða þörf.
Því til sönnunar verður hér tæpt
á nokkrum atriðum hennar.
Áberandi er hversu hlutfallslega
færri símnotendur á höfuðborgar-
svæðinu fara yfir afnotagjalds-
markið heldur en úti á landi
(Akureyri er þó þar í sérflokki).
Hitt vekur þó ennþá meiri athygli,
að nieðulfjöldi umframskrefa úti
á landi er allt að fjórum sinnum
hærri en á Reykjavíkursvæðinu.
Á eftirtöldum stöðum árið 1977
voru greiðslur fyrir umframsímtöl
(umframskref pr. síma í notkun)
að meðaltali sem hér segir:
Einkas. Fyrirtækjas.
Höfuðborgarsvæðið 20.360 81.056
Ólafsvík 74.664 177.700
Suðureyri 83.448 219.796
ísafjörður 59.444 193.856
Blönduós 60.988 266.512
Akureyri 27.916 187.224
Egilsstaðir 72.320 295.844
Eskifjörður 74.056 212548
Fáskrúðsfjörður 67.332 227.448
Stokkseyri 33.616 130.828
20% söluskattur bœtist síðan við.
Greint er á milli fyrirtækjasíma
og einkasíma, þar eð talið er að
eðli notkunar og þörfin fyrir síma-
afnot sé ekki sambærileg. Álitið
er að einkasímar séu að mörgu
leyti sambærilegri innbyrðis en
fyrirtækjasímar. Þegar gerður er
samanburður á símagjöldum á
milli fyrirtækja á höfuðborgar-
svæðinu annars vegar og fyrirtækja
úti á landi hins vegar verður að
hafa í huga, að fyrirtæki úti á
landi eru að megin fjölda smá og
óvíða stórfyrirtæki á móts við
mörg þeirra sem finnast á höfuð-
borgarsvæðinu. Verður því að
álykta, að símakostnaður fyrir-
tækja á landsbyggðinni sé í raun
muu tilfinnanlegri en tölurnar gefa
til kynna.
Þegar gjaldskráin er hækkuð
hlutfallslega, án annarra breytinga,
leggst greiðslubyrðin sífeilt þyngra
á notendur á landsbyggðinni.
Þannig hækka símaútgjöld fyrir-
tækja pr. síma í notkun til jafnað-
ar um 56.736 kr. á Reykjavíkur-
svæðinu en allt að 207.092 kr. á
landsbyggðinni á ári.
— Fyrirtæki á Reykjavíkur-
svæðinu greiða tæplega tvöfalt af-
notagjald fyrir umframskref en á
Egilsstöðum 7,23 falt afnotagjald.
— Greiðsla fyrir aukaskref á
einkasímum er að jafnaði 0,77
miðað við afnotagjald á Reykja-
víkursvæðinu en á Egilsstöðum 2,7
eða 3,5 sinnum meira en í Reykja-
vík.
— Sama hlutfall neytenda notar
margfaldan skrefafjölda úti á landi
miðað við höfuðborgarsvæðið og
það gerist þrátt fyrir það aðhald,
sem hinir háu símareikningar ættu
að veita allri ónauðsynlegri notk-
un.
I niðurstöðu könnunarinnar
segir:
„Augljóst er að dreifing síma-
notkunar sýnir margfalda notkun
úti á landi miðað við höfuðborg-
arsvæðið. Ástæðan er m. a. ótíma-
mæld notkun innan einstakra
stöðva en innan höfuðborgarsvæð-
isins býr yfir helmingur þjóðarinn-
ar og þar er öll aðalstjórnsýslan
og þjónustumiðstöð landsins.
Fyrir kr. 15.60 fá íbúar þar hvert
símtal svo langt sem þá lystir inn-
Framh. á 2. síðu
Steypt utiþró
Tveir bátar hafa róið á línu
frá Fáskrúðsfirði og fiskað all-
sæmilega. Þeir eru á vegum Pólar-
síldar. Þar hefur verið allmikil
vinna að undanfömu og gæftir
góðar þar til síðustu daga.
Fyrsti sfldarfarmurinn af haust-
síldinni frá Pólarsíld að þessu
sinni fór á miðvikudaginn 24. jan.
Togararnir hafa fiskað heldur
treglega frá áramótum og þar af
leiðandi minni vinna en venjulega
verið í frystihúsi Kaupfélagsins.
Fyrsta loðnan kom til Fáskrúðs-
fjarðar þriðjudaginn 23. jan., eitt-
hvað um 600—700 tonn og síðan
hefur eitthvað bæst við.
í sumar var steypt útiþró fyrir
bræðsluna og þróarrými hefur þar
með stækkað.
— B. S./lóa
5 keppendur
í toppæfingu
íslandsmótið í frjálsum íþrótt-
um, 14 ára og yngri, innan húss
verður á Selfossi sunnudaginn 4.
febrúar n. k.
Þó að leiðin sé löng hefur frjáls-
íþróttaráð U.Í.A. ákveðið að senda
5 keppendur á mótið. Þessir hafa
verið valdir til fararinnar:
Vigdís Hrafnkelsdóttir Hetti (f.
1967)
Sigfinnur Viggóson Þrótti (f.
1967)
Anna María Arnfinnsdóttir
Hetti (f. 1966)
Ármann Einarsson Hetti (f. 1965)
Magnús Steinþórsson Hetti (f.
1966).
Allt eru þetta krakkar í topp-
æfingu og má vænta góðs árang-
urs. Fararstjóri verður Helga Al-
freðsdóttir. — S. B.
Skiluðu sér
sjálfar heim
Um 20. janúar birtust tvær
lambær sem ekki höfðu sést síðan
í vor með sinn dilkinn hvor. Önn-
ur þeirra var frá Tungu en hin frá
Dölum. Þær komu sjálfar að hús-
um í Tungu ágætlega haldnar og
lömbin líka.
— B. S./lóa
Huröin iokar ekki
lengur hringveginum
Umboðsmaður Austurlands á
Egilsstöðum:
Guðrún Aðalsteinsdóttir
Útgarði 6 — sími 1292.
Nú styttist í það að opnun
Hringvegarins eigi 5 ára afmæli.
En það gjörbreytti samgönguhátt-
um okkar Skaftfellinga eins og all-
ir vita. Þegar svo vegurinn um
Hvalnesskriður var tekinn í notk-
un fyrir tæpum 2 árum má segja
að einangrun okkar hér hvað varð-
ar vetrarumferð á landi sé úr
sögunni.
Að vísu má segja að til að
byrja með hafi opnun hringvegar-
ins verið Iítið meira en nafnið
tómt. T. d. lokaði Kolgríma veg-
inum nokkrum dögum eftir hátíð-
arhöldin ef ég man rétt.
Þá má segja að Hringvegurinn
sé lokaður drjúgan part úr vetrin-
um vegna snjóa einhversstaðar á
hringnum. En þrátt fyrir allt tal
svo margra um slæmt ástand í
vegamálum og of litlar fram-
kvæmdir á því sviði hljóta allir
að greina miklar breytingar frá ári
til árs til hins betra.
Það hefur stundum verið grín-
ast með það hér að þeir aðilar sem
hefðu í hendi sér hvort hringveg-
urinn væri opinn eður ei væru
höfuðskepnurnar með vatnsgangi
og snjó ellegar roki. Og svo í
öðru lagi Benedikt bóndi á Hval-
nesi með hurðinni á bílskúrnum
sínum. En eins og menn muna sem
óku þar um hlað sl. vetur lá þjóð-
vegurinn svo þétt við húsið þar
að hurðin af bílskúrnum stóð út
á miðjan veginn væri hann opn-
aður. Nú hefur þessu verið breytt.
Þjóðvegurinn liggur nú í stórum
sveig fram hjá bænum yfir lónið.
Þessi mjög svo gestrisnu hjón
þau Valgerður og Benedikt á Hval
nesi mega nú horfa á nágranna
sem ókunnuga þeysa hjá í ryk-
mekki á 70 km hraða. Margur
ferðamaðurinn var búinn að þiggja
hressingu á Hvalnesi útá það að
kiða sér (eða bílnum) utan í hús-
vegginn um leið oog hann smeygði
sér framhjá. (Sagan segir að það
hafi verið styttri leið af höfðalagi
Hleinótt og jríð strandlengjan á Hvalnesi. — Ljósm. H. G.
hjónarúmsins út á bílþakið heldur
en tii fóta).
Fari höfuðskepnumar eins vægi-
lega með vald sitt hvað Hringveg-
inn varðar eins og Hvalnesbónd-
Framhald á 3. síðu