Austurland - 08.02.1979, Síða 1
29. árgangur Neskaupstað, 8. febrúar 1979 6. tölublað.
Hitaveita á Egilsstöð-
um, fjarvarmaveita
á Höfn í Hornafirði
Hjörleifur Guttormsson
orku- og iðnaðarmálaráðherra
Lánsfjáráætlun ríkisins fyrir
1979 hefur verið í undirbúningi
hjá ríkisstjórninni undanfarna
mánuði.
Blaðið hringdi í Hjörieif Gutt-
ormssoti orku- og iðnaðarráðherra
til að leita frétta af málinu síðast-
liðinn priðjudag. Hann staðfesti
að ríkisstjórnin hefði nú afgreitt
fjárfestinga- og lánsfjáráætlun fyr-
ir þetta ár og verður hún væntan-
lega lögð fram á Alþingi í næstu
viku, til kynningar og staðfest-
ingar varðandi lántökuheimild.
Hann kvaðst ekki vilja greina
frá efni áætiunarinnar í einstökum
atriðum að svo stöddu en þó mætti
koma fram að gert sé ráð fyrir
nokkru framlagi til Bessastaðaár-
virkjunar til að ljúka áætlanagerð
vegna virkjunarinnar og til annars
undirbúnings. Einnig hafi tekist
að fá samþykkta byrjunarfjárveit-
ingu til Vopnafjarðarlínu þ. e.
raflínu frá Lagarfossi um Hellis-
heiði og Búr til Vopnafjarðar
þannig að sú framkvæmd getur
farið af stað í ár.
Þá eru framlög samkvæmt láns-
fjáráætlun til hitaveitufram-
kvæmda á Egilsstöðum og til fjar-
varniaveitu á Höfn og eru það
nýmæli að skriður komist á slíkt
hér eystra.
Hjörieifur sagði áætlað fram-
kvæmdafé til rafvirkjana og raf-
veitna nema hátt í 18 milljarða
króna og til hita- og vatnsveitna
yfir 9 milljarða af um 60 milljarða
fjárveitingu hins opinbera sam-
kvæmt fjárfestingar og lánsfjár-
áætlun. Þannig sé þessi áætlun
mun afdrifaríkari fyrir málefni er
undir iðnaðarráðuneytið heyra en
sjálf fjárlög ríkisins serft afgreidd
Loðnuafli
Sl. þriðjudag hafði verið landað
rúmlega 100 þús. lestum af loðnu
á Austurlandi. Skiptist aflinn
þannig milli staða.
Vopnafjörður 12.500 tonn
Seyðisfjörður 27.000 tonn
Neskaupstaður 16.000 tonn
Eskifjörður 27.000 tonn
Reyðarfjörður 10.000 tonn
Fáskrúðsfjörður 7.000 tonn
Stöðvarfjörður 2.000 tonn
Breiðdalsvík 1.500 tonn
— G. B.
FÉLAGSVIST A. B. N.
föstudagskvöld kl. 9.
Þriðja kvöldið í 5
kvölda keppninni.
Sessastaðaárvirkjun
Vopnafjarðarlína
á lánsfjáráætlun 1979
og
voru fyrir jól. Auk þessara þátta
koma inn í myndina framlög til
lánasjóða þar á meðal vegna iðn-
aðarverkefna svo sem til skipa-
smíði og skipaviðgerða. Verði nú
nokkru meira fjármagn til ráðstöf-
unar vegna innlendrar skipasmíði
en verið hefur undanfarin ár. Þess-
ar áætlanir sem hér um ræðir eru
með nokkru öðru og fastara sniði
en undanfarin ár þar sem reynt
er að ákveða heildarfjárfestingu í
landinu og er gert ráð fyrir að
hún nemi rösklega 180 milljörð-
um, en það er um 24,5% af þjóð-
arframleiðslu. Var ráð fyrir því
gert af ríkisstjórninni að þetta
fjárfestingarhlutfall yrði á bilinu
24—25%. Miklu hefur skipt í
sambandi við gerð lánsfjáráætl-
unar að unnt hefur verið að færa
til umtalsvert fjármagn frá áætl-
uðum stórframkvæmdum svo sem
Hrauneyjarfossvirkjun, Járn-
blendiverksmiðjunni og nú síðast
Álverinu í Straumsvík, sem á rétt
á stækkun á þessu ári samkvæmt
fyrri samningum.
Frá einstökum þáttum fram-
kvæmda- og lánsfjáráætlunar verð-
ur væntanlega unnt að greina nán-
ar í næstu blöðum. — lóa
FÁSKRÚÐSFIR ÐINGAR:
Telja sig svikna af
fjdrveitingarvaldinu
Er fjárveitingar frá ríkinu lágu
fyrir, nú nýlega, var ljóst að fjár-
vcitingavaldið hafði brugðist okk-
ur, hér á Fáskrúðsfirði, gjörsam-
lega, í sambandi við endurnýjun
og uppb.vggingu hafnarinnar.
Þær tvær bryggjur, sem allt at-
hafnalíf, hefur verið bundið við
eru úr sér gengnar trébryggjur,
byggðar í nokkrum áföngum á
tímabilinu 1952—62 og samkv.
upplýsingum frá Hafna- og vita-
málastofnuninni er endingartími
trébryggja um 15 ár.
Árið 1977 fáum við úthlutað
■fjármagni til að reka niður 60 m
langt stálþil og er þá gerð áætlun
um að skipta því, sem eftir væri
af frágangi, við þá bryggju niður
á tvö næstu ár, en jafnframt að
þegar framkvæmdum við hana
yrði lokið 1979, yrði sama ár
byrjað á framkvæmdum við Fisk-
eyrarbryggju, framan við nýja
frvst'húsið. Um þá bryggju fara
allar afgreiðslur togaranna tveggja
ásamt afskipunum á freðfiski,
frá KFFB, landanir úr loðnuskip-
um og mjölafskipanir.
Upphaflega var gert ráð
að báðar þessar gömlu bryggjur
þyldu 3ja tonna öxulþunga og
geta menn því séð hve gott er
að standa að því að skipa út og
upp um þær.
Samkv. skýrslu Hafnarmála-
stofnunar, sem gerð var af Þor-
birni Eiríkssyni, 1976, telur hann
að mesti hjólþungi á bryggjunum
megi vera 700 kg.
í suðurferð á liðnu hausti, féllst
sendinefnd frá Búðahreppi á að
fresta framkvæmdum við Fiskeyr-
arbryggju til ársins 1980, með því
Hvar md skera niður ?
Egilsstaðir
London
Norðfjörður
Hvað skyldu pessir staðir eiga
sameiginlegt. Jú, það fyrsta sem
kemur upp í hugann er að allt
eru þetta þýðingarmiklar fiughafn-
ir. í kjaradeilum flugmanna hefur
verið beitt skæruhernaði og ekki
flogið til ákveðinna staða tiltek-
inn dag. Sl. fimmtudag voru Egils-
staðir, Neskaupstaður og London
í straffi. Varla hefur það verið
tilviljun að flugmenn völdu þessa
staði saman. Vonandi verða þeir
líka saman í hóp er stjórn Flug-
leiða raðar niður sumaráætlun.
Sem dæmi um hina frábæru þjón-
ustu sem Flugleiðir veita með
beinu flugi milli Reykjavíkur og
Neskaupstaðar má nefna að á
árinu 1979 hefur félagið flogið
þrisvar sinnum hingað. Að sjálf-
sögðu eru Norðfirðingar snortnir
af hinni frábæru þjónustu flug-
félagsins. En nú eru bjartari tím-
ar framundan, því við erum komn-
ir á bás með Egilsstöðum og
London. — G. B.
Lagning olíumalar á Naustahvamm. Sumir vilja meiri olíu-
möl, aörir skóla.
Tillaga að fjárhagsáætlun Nes-
kaupstaðar var lögð fram á þriðju-
daginn mcð um 60 millj. kr. halla
samkvæmt upplýsingum bæjar-
stjórans. Bæjarstjórn er því mikill
vandi á höndum ef takast á að
afgreiða hana hallalausa. Til þess
þarf vafalaust bæði niðurskurð og
nýja tekjuliði, og því meiri niður-
skurð ef engir nýir tekjuliðir fást.
Niðurstöðutölur rekstraráætlun-
ar eru 449 millj. 280 þúsund og
eignabreytingaáætlun 75 millj. 286
þús.
Helstu tekjuliðir eru:
Útsvör og aðstöðugjöld 311 millj
Fasteignaskattur 65.2 millj. kr.
Framlag úr Jöfnunarsj. 44.5 millj.
Stærstu útgjaldaliðjr rekstrar-
áætlunar eru:
Fræðslumál 62.4 millj. kr.
Félagsmál 57.8 millj. kr.
Götur og holræsi 75.5 millj. kr.
Helstu byggingarframkvæmdir
eru samkvæmt áætluninni:
Fjórðungssjúkrahúsið 115 millj.
kr. (hluti ríkis 100 millj.)
Gagnfræðaskóiinn 50 miílj. kr.
(hluti ríkis 30 millj.)
Til leiguíbúðá og hluti bæjárins
er áætlaður 6 milljónir. .
Fróðlegt verður að fylgjast með
því hvernig við þessum vanda
verður brugðist.
skilyrði þó, að lokið yrði við
áðurnefnda hafskipabryggju og að
fyrir lægi hönnun og tillögugerð
að Fiskeyrarbryggju af hálfu Vita-
og hafnarmálastofnunarinnar, sem
allra fyrst.
Þó að þarna hafi verið um að
ræða tilslakanir af hálfu hrepps-
nefndar, á áður gerðum áætlun-
um, hafa yfirvöld algjörlega
hundsað þetta samkomulag með
fjárveitingu í ár upp á 5,6 millj.
en fyrir þann pening er ekki unnt
að gera þessa bryggju, sem byrjað
hefur verið á, hæfa tii umferðar.
Þar vantar að setja festipolla og
steypa kant og þekju ofan á stál-
þilið, tengja vatn og ýmsan frá-
gang annan, sem nauðsynlegur
telst, til að hægt sé að taka bryggj-
una í notkun.
Við hér á Fáskrúðsfirði teljum,
að mjög illa hafi verið að þessu
máli staðið, af fjárveitingavalds-
ins hálfu, þykjumst við vita hvað
olli því að þingmenn okkar og
ráðhcrrar sáu sér ekki fært að
heimsækja okkur hér í jólaleyfi
sínu, eins og þeirra hefur oftast
ver'ð venja, enda hefðu þeir varla
hér komið kinnroðalaust.
Með þökk fyrir birtingu.
Ingólfur Arnarson
Fáskrúðsfirði.
Heldur daufl
menningarlíf
Menningarlíf hefur verið held-
ur fábreytt á Fáskrúðsfirði undan-
farið. Milli hátíða var haldið
hjónaball, nokkurs konar árshátíð
almennings.
Þann 27. jan. var svo þorrablót
Kvenfélagsins Kolfreyju hajdið.
Á þrettándanum kvöddu menn
jólin með leiksýningu Norðfirð-
inga. Hún var mjög vel sótt, eigin-
lega óvenjuvel miðað við leiksýn-
ingar síðari ára. — B.S./lóa