Austurland - 15.03.1979, Qupperneq 1
29. árgangur Neskaupstað, 15. mars 1979 11. tölublað.
Hriktir enn í
stjórnarsamstarfinu:
Kauplœkkunarkrafa 6,6 prós.1. júní
Itrekuðum málamiðlunartillögum Alþýðubandalagsins hafnað
Glíman við svonefnt efnahags-
frumvarp forsætisráðherra hefur
nú staðið í fullan mánuð og má
segja að nú séu orðin þáttaskil
i þeirri viðureign og um leið í
rikisstjórninni.
Kauplækkunaröflin i Alþýðu-
flokknum og Framsóknarflokkn-
um hafa nú náð saman og standa
þessir flokkar að því er best verð-
ur séð sameinaðir um frumvarp
sem felur í sér 6—7% beina kaup-
skerðingu 1. júní næstkomandi.
Áætlað hefur verið að óbreytt
vísitala mæli um 10% vegna verð-
hækkana fram til 1. maí nk. en
af því ætti samkvæmt kauplækk-
unartillögum framsóknar og krata
aðeins að bæta um þriðjung eða
3—4% í kaupi 1. júní nk.
Vinnubrögðin varðandi þennan
þátt frumvarpsins hafa verið með
miklum eindæmum og í stíl við
tilganginn. í stað eðlilegra sam-
ráða við launþegasamtökin eins
og tilskilið er í stjórnarsáttmál-
anum var reynt að knýja þetta mál
fram innan ríkisstjórnar áður en
upplýst var hvað fólst í þeim til-
lögum forsætisráðherra sem eftir
stóðu í vísitölukaflanum. Þegar
þetta gerðist lágu fyrir eindregin
og samhljóða mótmæli miðstjórn-
ar Alþýðusambands íslands og
þá ekki síður krata og framsóknar-
manna innan miðstjórnarinnar en
Alþýðubandalagsmanna. Ráðherr-
ar Alþýðubandalagsins hafa und-
anfarna daga flutt hverja mála-
miðlunartillöguna af annarri inn-
an ríkisstjórnárinnar en án þess að
hafa mætt nokkrum samkomu-
lagsvilja af hálfu hinna flokkanna
í þessu viðkvæma máli.
Kauplækkunaráhugi framsókn-
ar er ekkert nýtt fyrirbæri en þó
hafa framsóknarmenn nú átt fullt
í fangi með að fylgja Alþýðu-
flokksmönnum eftir og fyrir ligg-
ur að úrslitatilraunir til málamiðl-
unar af hálfu ráðherra Alþýðu-
bandalagsins strönduðu á algerum
ósveigjanleika krata innan ríkis-
stjórnarinnar. Með þessu síðasta
áhlaupi er enn reynt að knýja fram
þá miklu kjaraskerðingu sem verið
hefur nánast trúaratriði hjá Al-
þýðuflokknum allt frá kosningum
og birst hefur í hverju áhlaupinu
af öðru innan ríkisstjórnarinnar og
raunar einnig á Alþingi.
Mikið starf liggur að baki við
að koma á samkomulagi um
stefnumörkun í efnahagsmálum
til tveggja ára og þar var orðið
sæmilegt samkomulag um önnur
atriði en kaupgjalds- og vísitölu-
rnálin. Alþýðubandalaginu hafði
tekist að fá fram verulegar bréyt-
ingar á frumvarpsdrögum Ólafs
meðal annars að koma inn nýjum
kafla um nýsköpun og hagræðingu
í atvinnuvegunum og draga veru-
lega úr mörgum ákvæðum sem
stefndu í mikinn samdrátt og sköp-
uðu hættu á atvinnuleysi.
Þessu starfi og ríkisstjórnarsam-
starfinu í heild er nú stefnt í
mikla tvísýnu þegar síst skyldi.
Margir voru farnir að vona að
unnt reyndist að koma þar á
sæmilega heilsteyptu samstarfi og
fá vinnufrið til að ná fram mörg-
um góðum áformum sem eru á
stefnuskrá stjómarinnar og eru
sum þeirra komin á nokkurn rek-
spöl.
Þetta á einnig við um það mark-
mið að ná niður verðbólgunni í
áföngum en á því hefur Alþýðu-
bandalagið ekki minni áhuga en
hinir stjórnarflokkarnir. Hins veg-
ar hefur flokkurinn ekki viljað
gera slíkt einhliða á kostnað laun-
þega, né heldur með því að stofna
atvinnuástandi í tvísýnu með óhóf-
legum samdrætti. Þó liggur þegar
fyrir að allverulegur árangur hef-
ur náðst í baráttunni gegn verð-
bólgunni og frekari ávinninga að
vænta samkvæmt þeim tillögum
sem Alþýðubandalagið hefur borið
fram í ríkisstjórninni.
Það er mikill óvinafagnaður
gerður með síðustu skrefum þeirra
sem rjúfa vilja þann trúnað sem
reynt hefur verið að byggja upp
milli ríkisvaldsins og launþega-
samtaka að undanförnu. Ekki
verður fullyrt á þessari stundu að
dagar ríkisstjórnarinnar séu tald-
ir. Framhaldið fer eflaust eftir úr-
Framh. á 2. síðu
I
I
I
Kaupskerðing í frumvarpi
Olafs Jóhannessonar 1. júní:
Samræming framfærslu- og verðbótavísitölu
(„sett á 100“) ......................... 4- 1.1%
Uppsöfnun frádráttarliða ............... 4- 0.5%
Viðskiptakjaraviðmiðun ................. 4- 3.0%
Frysting verðbótaauka .................. -4 1.5%
Olíufrádráttur ......................... 4- 0.5%
Samtals kaupskerðing 4- 6.6%
NESKAU.PSTAÐUR:
Lausn vatnsmálanna
er í sjónmáli
Á fundi bæjarstjómar Neskaup-
staðar 13. mars síðastliðinn rakti
bæjarstjórinn, Logi Kristjánsson,
gang mála í vatnsmálum bæjarins
undanfarin ár óg gerði grein fyrir
stöðunni nú.
Borholurnar brugðust
í máli hans kom meðal annars
fram, að síðan borholurnar sem
boraðar voru í Ingunnarveitu
brugðust hafi verið horft inn til
Beljanda og Hólalækjar sem lausn-
ar.
Logi Kristjánsson,
bæjarstjóri.
Á árunum 1972—1974 var unn-
ið að mælingum og hönnun lagna
frá Ingunnarveitu inn að þessum
uppsprettum, auk hönnunar vatns-
geymis, sem reistur var á árunum
1975—1976. Síðar kom í ljós, að
vatn frá þessum uppsprettum
dygði ekki í mestu þurrkum og
var þá leitað nýrra leiða. Til þeirra
athugana voru fengnir starfsmenn
Jarðkönnunardeildar Orkustofn-
unar í samvinnu við Verkfræði-
stofu Sigurðar Thoroddsen. Áætl-
un um rannsóknir og tilrauna-
brunna var lögð fram í janúar
1978 og unnið eftir henni á síð-
astliðnu ári.
f október sl. lagði Árni Hjart-
arson fram áfangaskýrslu um
stöðu rannsókna, þar sem m. a.
kemur fram, að liklega megi fá
næganlegt vatn fyrir Neskaupstað
með virkjun Beljanda og Hóla-
lækjar, en auk þess þyrfti að búa
til 4—6 brunna inni á áreyrum
'skammt innan við brúna á Norð-
fjarðará til að brúa rennslislægð-
ir lindanna.
f samræmi við samþykkt bæj-
arráðs hefur áfram verið unnið að
þessum málum.
Nægilegt vatn í
sjónmáli
Bæjarstjóri sagði að á fundi bæj-
arráðs 22. febr. sl. hafi hann gert
grein fyrir stöðu þessara mála
þ. e. a. s., að verið væri að endur-
reikna kostnaðaráætlun vegna
lagnar frá Ingunnarveitu inn að
lindunum og að viðræður stæðu
yfir við Reykjalund um möguleika
á framleiðslu lagnar sem stæðist
nauðsynlegan þrýsting fyrir sjálf-
rennsli til bæjarins frá lindunum.
Ef Reykjalundur gæti framleitt
pípurná'r, sem miklar líkur eru á,
þá lækkar það væntanléga stofn-
kostnað. Ennfremur skýrt frá því
að fljótlega væri von á tveimur
þeirra manna, sem að þessu verki
hafa unnið af hálfu VST og Orku-
stofnunar.
Að lokum hafi hann gert bæjar-
ráði grein fyrir því að hann hafi
í janúar sl. sótt um lán úr Lána-
sjóði sveitarfélaga til vatnsveitu-
framkvæmda en ekki væri svars að
vænta fyrr en seint í apríl eða
byrjun maf.
Framsóknarmenn í
eftirhermuleik
Það er ekki óeðlilegt að þau
vandræði sem skapast hafa í vatns-
málum hér og reyndar í fleiri
bæjarfélögum ýti við bæjarfull-
trúum og, að þeir komi með til-
löeur til úrbóta. Hitt vekur nokkra
furðu að framsóknarmenn í Nes-
kaupstað skuli nú leggja fram
tillögu um vatnsmál, sem ekki fel-
ur í sér neinar breytingar fram
yfir það sem gert hefur verið eða
er þegar í undirbúningi í sam-
ræmi við fyrri samþykktir bæjar-
stjórnar og bæjarstjóri skýrði bæj-
arstjórn og bæjarráði frá á sfðustu
fundum.
Framhald á 3. síðu
Einsöngur í
Á skemmtun afmælisnefndar
Neskaupstaðar á morgun mun
Baldur Karlsson söngvari koma
fram. Baldur er fæddur 21. 5.
1953 í Skálateigi í Norðfjarðar-
sveit. Hann hóf söngnám í Tón-
skóla Neskaupstaðar hjá Dirk
Van der Ehe og var við nám hér
í tvö ár. Einnig nam hann söng
í Tónlistarskóla Akraness hjá
Guðmundu Elíasdóttur og Hauki
Neskaupstað
Guðlaugssyni árin ’73—’74. Síðan
þá hefur Baldur verið við nám í
Söngskólanum í Reykjavík og
lýkur 8. stigs prófi þaðan í vor.
Aðalkennarar hans þar hafa verið
Kristinn Hallsson og Garðar
Cortes.
Við bjóðum Baldur velkominn
og vonum að dvölin verði honum
og okkur til mikillar ánægju.
Afmælisnefnd
Nunnur og eldfjöll dönsuðu
götur bæjarins í allskonar búning-
um og hafði fólk mikið gaman
af .
Börnin tóku þátt í skemmtiatrið-
unum og unnu mikið að undir-
búningnum sjálf og þótti skemmt-
un’n takast hið besta.
í Neskaupstað hélt foreldrafélag
skólanna grímudansleik fyrir nem-
endur barnaskólans. Þar mars-
eruðu saman eldfjöll og endur,
umrenningar í groddaklæðum og
ambáttir í híalíni, forynjur og
nunnur svo að eitthvað sé nefnt.
Hljómsveitin Straff sem skipuð
er nemendum úr grunnskólanum
lék fyrir dansi.
Starfsmannafélag Kaupfélagsins
á Fáskrúðsfirði stóð fyrir barna-
skemmtun á öskudaginn.
Þar voru Ieiknir leikþættir, sung-
ið og ýmislegt fleira gert til
skemmtunar
Áður en skemmtunin hófst
gengu þátttakendur fylktu liði um