Austurland - 24.05.1979, Blaðsíða 1
Iðnþróunaráœtlun
fyrir Austurland
Undirbúningur hafinn á vegum samstarfsnefnda SSA og Iðnaðarráðu-
neytis
Snemma á þessu ári leitaði
stjórn Sambands sveitarfélaga í
Austurlandskjördæmi eftir því við
iðnaðarráðuneytið að það aðstoð-
aði sambandið við undirbúning og
gerð iðnþróunaráætlunar fyrir
Austurland. Áttu stjórnarformað-
ur og framkvæmdastjóri SSA fund
með iðnaðarráðherra og fleiri til-
kvöddum aðilum syðra 12. mars
sl. og var þar rædd málsmeðferð.
Tók iðnaðarráðuneytið jákvætt
undir að veita málinu stuðning.
Var ákveðið að heimamenn
hefðu frumkvæði í málinu með
skipun nefndar frá sveitarfélög-
um og leitaði stjórn SSA eftir til-
nefningu frá 5 sveitarfélögum í
samstarfsnefnd um málið, en iðn-
aðarráðuneytið hefur síðan til-
nefnt 4 menn í samstarfshóp til
aðstoðar af sinni hálfu. í nefnd
heimamanna eru eftirtaldir:
Theodór Blöndal tæknifræðingur,
Seyðisfirði, Þórður Óli Guðmunds-
son tæknifræðingur, Neskaupstað,
Aðalsteinn Valdimarsson, skip-
stjóri, Eskifirði, Jón Guðmunds-
son, iðnaðarmaður, Reyðarfirði,
og Magnús Einarsson, banka-
stjóri, Egilsstöðum. Tveir stjórn-
armenn SSA, Egill Jónsson, ráðu-
nautur, Seljavöllum, Austur-Skaft.
og Ásgeir Sigurðsson, bankastjóri,
Vopnafirði, munu starfa með
nefndinni sem tengiliðir fyrir suð-
ur- og norðursvæðið. í nefndinni
af hálfu iðnaðarráðuneytisins eru
eftirtaldir menn: Bjarni Einars-
son, framkvæmdastjóri byggða-
deildar Framkvæmdastofnunar
ríkisins, Hörður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri í Iðntæknistofnun
íslands, dr. Vilhjálmur Lúðvíks-
son, formaður samstarfsnefndar
um iðnþróun, Gunnar Guttorms-
son, deildarstjóri í iðnaðarráðu-
neytinu. Hefur hinum síðasttalda
verið falið að annast nauðsynleg
tengsl milli þessa samstarfshóps
ráðuneytisins og samstarfsnefndar
heimamanna.
Bjarni Einarsson hefur nú þeg-
ar komið á fund með nefnd heima-
manna og er undirbúningsvinna
nú að hefjast á vegum aðila. Er
stefnt að því að, byrjunaráfanga
í mótun iðnþróunaráætlunar fyrir
Austurland verði náð fyrir aðal-
fund SSA síðsumars og verði iðn-
þróun á Austurlandi aðalmál á
dagskrá hans.
í erindi SSA til iðnaðarráðu-
neytisins segir meðal annars um
þessa fyrirhuguðu áætlanagerð:
„í Austurlandsáætlun I og II
er að finna mjög mikið af grund-
vallarupplýsingum sem eru nauð-
synleg forsenda þess starfs sem
hér er haft í duga og þarf því
ekki að eyða tíma og fyrirhöfn
í að safna þeim.
Tilgangurinn með þeirri áætlun
sem hér er stefnt að er einmitt sá
að færa sig frá hinu almenna upp-
lýsinga- og rammaáætlunarstigi
sem er nauðsynlegt upphafsverk
og niður á jörðina ef svo mætti
að orði komast.
í því felst meðal annars það að
Framh. á 2. síðu
NESKAUPSTAÐUR:
Nemendatónleikar
Laugardaginn 12. maí hélt Tón-
skóli Neskaupstaðar sína árvissu
nemendatónleika að loknu 11.
starfsári skólans. Nemendur í skól-
anum voru 63 og er það mesta að-
sókn að skólanum frá byrjun og
er það vel. Orsakir þessarar aukn-
irigar tel ég að stafi af því að á
síðastliðnu starfsári flutti skólinn
í eigið húsnæði og skapaðist þá
allt önnur og betri starfsaðstaða.
Það er ánægjulegt að fylgjast
með þróun skólans hvernig hann
bætir við sig frá ári til árs, en
vitað er að tónlistarnám krefst
mikillar vinnu og sjálfsögunar af
nemendum sem kennurum og
árangur næst því aðeins að starfs-
semi skólans standi traustum fót-
um og samvinna kennara og nem-
enda sem nánust og best,
Á nemendatónleikunum komu
fram 31 nemandi, að sjálfsögðu
mislangt komnir, sumir byrjendur
en aðrir lengra komnir. Tónleik-
arnir voru að mínu mati mjög vel
heppnaðir og mátti heyra og sjá
mikið af efnilegu tónlistarfólki
sem skilaði sínu með ágætum.
Leikið var á hin ýmsu hljóðfæri s.
s. píanó, blásturs- og strengja-
hljóðfæri, það gladdi mig persónu-
lega mjög að heyra að nýju leikið
á fiðlur, en mér finnst oft eins
og fólk sé tregt að fást við fiðl-
una og ástæðan vafalaust sú hve
fyrstu skrefin eru erfið, það tekur
t. d. 1—2 ár að fá úr henni sæmi-
lega hreinan tón, en nú virðist
sem betur fer ísinn brotinn og von-
andi að fleiri fylgi á eftir. Já,
þarna mátti sjá mikið af upp-
rennandi tónlistarfólki, en ég get
ekki stillt mig um að nefna nokk-
ur nöfn. Þeir Daníel Þorsteinsson
og Óskar Bjarnason þótti mér bera
af píanóleikurunum og skiluðu
sínum verkum með glæsibrag, það
Stutt svar viö stórri forystugrein:
Í forystugrein Austurlands 24.
april sl. eru harðorðar fullyrðing-
ar um flug Flugfélags íslands.
Flugleiða, til Norðfjarðar. Þrátt
fyrir að ætla megi að greinarhöf-
undur sé málum kunnugur verður
ekki komist hjá að gera athuga-
semdir við ýmislegt af pví sem
þarna er prcntað og sem lesið var
upp í útvarpi landsmanna kl. 8.30
hinn 7. maí sL
Allar götur síðan Flugfélag ís-
lands síðar Flugleiðir hófu Norð-
fjarðarflug hefur auglýst áætlun
verið fiogin, svo fremi að veður
eða aðrar óviðráðanlegar orsakir
ekki hindri. Hins vegar eru strang-
ar reglur um Norðfjarðarflugvöll,
sem f vissum áttum er erfiður.
Eftir þeim reglum er flugmönnum
félagsins uppálagt að fara. Oft hef-
ur komið fyrir að flugvélar hafa
orðið að lenda á Egilsstaðaflug-
velli, eftir að hafa reynt árangurs-
laust aðflug að Norðfjarðarflug-
velli. Um það hvort tap eða gróði
verði af Norðfjarðarflugi er ekki
spurt þegar áætlunarflug á annað
borð er á flugáætlun dagsins. Tap
á innanlandsflugi nokkur sl. ár er
hins vegar vandamál, sem verður
að leysa og sem gæti verið leyst nú
þegar ef skilningur og vilji stjórn-
valda væri fyrir henndi.
Veðrabrigði hér á landi eru bæði
tíð og snögg. Það hefur því stund-
um komið í ljós, að enda þótt
lendingarfært veður sé t. d. á
Norðfirði þegar lagt er af stað
frá Reykjavík, er ófært þegar aust-
ur er komið. í Ijósi þessa hefur
verið lagt allt kapp á að þjóna
flugi til Norðfjarðar frá Egils-
staðaflugvelli og í sumar, svo
dæmi sé tekið, eru áætlaðar fimm
ferðir milli Norðfjarðar og Egils-
staða og tvær ferðir í viku milli
Norðfjarðar og Reykjavíkur.
Þannig hafa Norðfirðingar völ á
daglegum flugferðum til og frá
sínum heimabæ. Til Reykjavíkur"
komast þeir daglega en að auki til
margra annarra staða á landinu,
svo er hagræðingu og tengingu
sumaráætlana Flugleiða, Flugfé-
lags Austurlands og Flugfélags
Norðurlands fyrir að þakka.
Að endingu þetta:
Ef flug bregst til Norðfjarðar
eða annars staðar er það vegna
veðurs eða fyrir aðrar óviðráðan-
legar orsakir. Starfsfólk félagsins
og stjórnendur gera sitt besta til
að halda auglýsta áætlun til allra
þeirra staða sem flogið er til. Að
halda öðru fram er fjarstæða.
Sveinn Sæmundsson
/
„Arar ekki vel"
til flutníngs"
Fyrir skömmu svaraði landbún-
aðarráðherra fyrirspum frá Helga
Seljan um flutning höfuðstöðva
Skógræktar ríkisins austur á Hall-
ormsstað.
Landbúnaðarráðherra taldi í
svari sínu, að eftir álitsgerð nefnd-
ar, sem um þetta tiltekna verkefni
fjallaði í fyrra, hefði fyrrverandi
ríkisstjórn í raun afskrifað þann
möguleika að flytja Skógræktina.
Hann sagðist gjarnan vilja skoða
rnálið betur, en nú áraði ekki vel
til slíks flutnings, sem kostaði all-
mikið fé í upphafi. Svo illa væru
hinar ýmsu stofnanir landbúnað-
arins staddar nú að hann treysti
sér ekki til neinna jákvæðra að-
gerða í málinu og mundi ekki nú
á þessu ári beita sér þar fyrir.
Hann teldi réttast að stefna að
útibúa- og deildastofnunum sem
mest úti á landi, en vafasamara
um flutning heilla stofnana. Ráð-
herra vildi því ekki á þessu stigi
mæla með flutningi höfuðstöðva
Skógræktar ríkisins.
Helgi ítrekaði fyrri skoðun á
þessu máli. Óhjákvæmilegur auka-
kostnaður og vissir annmarkar
hlytu að fylgja stofnanaflutningi,
en ef átak ætti þar að gera, ef
menn vildu og þyrðu, þá væri hér
um aukaatriði að ræða, ef litið
væri til byggðalegrar og þjóðhags-
legrar hagkvæmni til lengri tíma.
Óumdeildasta stofnun til flutn-
ings í vitund manna hvar sem er
á landi hér væri Skógræktin, því
væri hér um sjálfsagða byrjunar-
aðgerð að ræða.
Helgi vitnaði til reynslu annarra
Þjóða af stofnanaflutningi, sem í
hvívetna hefði reynst hin farsæl-
asta stjórnarfarsaðgerð. Skoraði
hann á landbúnaðarráðherra að
taka hér af skarið.
Ráðherra kvað sig engin loforð
vilja gefa nú, en sjálfur væri hann
jákvæður varðandi þetta sérstaka
verkefni.
gerði og Sigurður Þorbergsson,
básúna, sem virðist vera sama
hvaða hljóðfæri er látið í hendurn-
ar á, allt Ieikur í höndunum á
honum, þær Guðrún Steingríms-
dóttir gítar og Elín Jónsdóttir
fiðla skiluðu líka sínum verkum
mjög vel, marga fleiri mætti nefna
en ég læt þetta nægja. Kennarar
við skólann í vetur voru þau
Haraldur Guömundsson skólastj.
og Olga Guðrún Árnadóttir og
tel ég að þau megi mjög vel við
una og árarjgur nemenda þeirra
sýndi að vel hefur verið unnið og
stefnir skólinn ótrauður á bratt-
ann til meiri árangurs og ánægju
fyrir kennara., nemendur og alla
þá sem unna öflugu tónlistarstarfi.
Að lokum vil ég skora á hlut-
aðeigandi og alla velunnara skól-
ans að standa vel við bakið á
skólanum svo hann megi vaxa og
dafna um ókomna framtíð.
Ágúst Árm. Þorláksson.
ESKIFJÖRDUR:
*
Tré fellt í Guttormslundi,
Leikfélagiö fór
myndarlega af staÖ
Þrátt fyrir mikla vinnu hefur
hún ekki drepið í dróma allt fé-
lagslíf á Eskifirði, t .d. var Leik-
félag Eskifjarðar vakið af Þyrni-
rósarsvefni á sl. hausti og hefur
það farið myndarlega af stað.
Það kom f Ijós þegar eftir var
gengið að bæjarbúar sýndu félag-
inu mikinn áhuga og velvild.
Þá hefur Eskjukórinn starfað
áfram undir stjórn nýs stjórnanda
Stuarts.
Eskjukórinn undirbýr nú kon-
sert.
Bridgemenn hafa lifnað við og
hafa komið reglulega saman f
vetur. — H. J.