Austurland - 24.05.1979, Síða 4
Adsturland
Neskaupstað, 24. maí 1979.
Auglýsið í Austurlandi
Símar 7571 og 7454
Gerist áskrifendur
Lánið leikur við pig í sparisjóðnum.
SPARISJÓÐUR NORÐFJARÐAR
Frumsýning Þjóðleikhússins í Neskaupstað
Gamaldags
Eftir: Aleksei Arbuzov
Leikstjóri: Benedikt Árnason
komedia
Leikendur og leikstjóri.
Þjóðleikhússtjóri afhendir viðurkenninguna.
Eggert Brekkan:
Þakkarvert íramtak
I fyrsta sinn í sögu okkar bæjar
gerist pað, að Þjóðleikhúsið heiðr-
ar okkur með frumsýningu og mun
þetta vera í annað sinn í sögu
Þjóðleikhússins, að frumsýnt er
utan Reykjavíkur. Svo sannarlega
var þetta ánægjulegur atburður og
vonandi á þcssi vaxtarbroddur í
starfsemi Þjóðleikhússins cftir að
dafna.
Gamaldags komedia gerist í
nágrenni borgarinnar Rigu árið
1968. í rauninni gæti hún gerst
hvar sem er, jafnt á íslandi sem
Rússlandi, jafnt í Rvík. sem Rigu.
Verkið fjallar um tvær einmana
manneskjur, sem komnar eru á
efri árin. Ástvinir dánir eða horfn-
ir á annan hátt úr lífi þeirra.
Líkamsþrekið á undanhaldi og
enginn til þess að deila með sorg
og gleði. Einmana, með minn-
ingamar einar um það, sem var.
Að sjálfsögðu er þetta tragidia
allra tíma og allstaðar. En þrátt
fyrir að svo sé, þá hefur höfundur
þessa verks skapað úr þessum efni-
viði hina hugljúfustu komediu.
Persónurnar eru aðeins tvær.
Virðulegur yfirlæknir á heilsuhæli
og „sjúklingur" hans, uppgjafa og
marggift leikkona. Rodion Nikola-
evits og Lidiva Vasilevna heita
þau og eins og segir í leikskrá:
„hafa þau þótt hinn skemmti-
legasti félagsskapur hvarvetna, sem
þau hafa skotið upp kollinum,
ófullkomin og sjálfum sér ósam-
kvæm, tilfinningasöm og upp-
stökk, breysk og sjálfhverf, ertin
og óstöðuglynd, það sem við köll-
um venjulega einu virðulegu orði:
mannleg, og afsökum allt af því,
að þannig erum við flest sjálf.
Bestu manneskjur, er það ekki?“
Hinn voðalegi hildarleikur,
heimsstyrjöldin 1939—’45 hefur
skilið eftir djúp sár í sálarlífi
beggja.
Þau hafa bæði brynjað sig gagn-
vart umhverfi sínu. Hann með
ströngum virðuleik, hún með
gáska og hispursleysi.
í fyrstu virðast þetta vera ólík-
ar manngerðir, sem muni eiga fátt
sameiginlegt, en þegar hreinskiln-
ingsleg orðaskipti hafa flett um-
búðunum utan af sálarkvikunni
kemur í ljós þrá beggja til að njóta
glaðværðar og fegurðar lífsins, en
þó umfram allt þráin eftir ástríki
og stuðningi góðs félaga.
Leikritið er að mínum dómi
bæði skemmtilegt og hugljúft og
á mig virkaði það svo að allt, sem
fram fór á sviðinu væri svo satt,
eðlilegt og sjálfsagt, að það hlyti
að hafa gerst svona og mér fannst,
sem allt verkið lofaði meistara
sína jafnt höfund, leikstjóra, leik-
endur og leikmyndasmið.
Ég he'd að það, sem þannig
virkar á venjulegan áhorfenda sé
góð list. Það má og með sanni
segja að aðstandendur þessarar
sýningar eru engir viðvaningar.
Allt einstaklingar úr hópi bestu
listamanna Þjóðleikhússins.
Ég held ég megi fullyrða, að
allir leikhússgestir hafi verið sér-
staklega hamingjusamir og þakk-
látir fyrir þessa skemmtilegu og
hugljúfu sýningu. Enda fögnuðu
þeir leikendum og leikstjóra inni-
lega í leikslok með löngu lófa-
klappi.
Eftir að leikendum og leikstjóra
höfðu verið færðir blómvendir
ávarpaði bæjarstjórinn, Logi
Kristjánsson, listafólkið og þjóð-
leikhússtjóra, sem var viðstaddur
þessa sýningu. Þakkaði hann
þjóðleikhússtjóra og listafólkinu
Framhald á 3. síðu
Svo gagngerar breytingar hafa
orðið á heilbrigðisþjónustu hér-
lendis á undanförnum tveimur
áratugum, að við höfum stokkið
úr hópi vanþróaðra þjóða á þessu
sviði, í hóp þeirra, sem best eru
búnar og stöndum nú jafnfætis
þeim, nema á sérsviðum, þar sem
fólksfæð hefur hamlað þróun. Á
þessum árum hefur líka tækni við
lækningar gjörbreyst, útbúnaður,
sem þá var aðeins til á örfáum
stöðum, er nú ómissandi á hverju
því sjúkrahúsi, sem ekki vill kafna
undir nafni. Framfarir hér má
þakka áhuga almennings og skiln-
ingi ráðamanna og hagstæðu efna-
hagsástandi undanfarinna áratuga,
þrátt fyrir allan barlóminn. Mikl-
ar hafa verið fjárveitingar hins
opinbera til heilbrigðismála al-
mennt og sjúkrahúsa sérstaklega,
en ríkið hefur í mörg horn að
líta og mikil samkeppni er um
þetta fé. Alltaf verður því nokkur
dráttur á, að hið opinbera geti
sinnt öllum sanngjörnum óskum,
þrátt fyrir góðan vilja. Hér hefur
almenningur hlaupið í skarðið.
Mörg eru þau sjúkrahús hérlendis,
sem vegna örlætis og skilnings
almennings hafa eignast tæki og
búnað, sem annars hefði orðið að
bíða lengi eftir. Frumkvæði og
framtak frjálsra félaga og sam-
taka hafa einnig knúið ríkisvaldið
tii framkvæmda, sem annars hefðu
dregist.
Fjórðungssjúkrahúsið I Nes-
kaupstað er ein þeirra stofnana,
sem átt hefur hauka í horni. Ófátt
er það, sem einstaklingar og sam-
tök þeirra hafa fært sjúkrahúsinu
þau rúm tuttugu ár, sem það hef-
ur starfað.
Nú hefur Krabbameinsfélag
Austurlands ákveðið að hjálpa
okkur til þess að eignast maga-
spegil og hefur þegar safnað
nokkru fé. Þessi útbúnaður er
nauðsynlegur til þess að hægt sé
á nútímavísu að rannsaka sjúk-
dóma í efri meltingarfærum og þá
ekki síst uppgötva krabbamein í
pessum líffærum á byrjunarstigi.
Krabbameinsfélagið efnir nú til
happdrættis til þess að safna þeim
peningum, sem enn vantar.
Okkur, starfsfólki þessa sjúkra-
húss, er það gleðiefni að sjá nú
hylla undir betri greiningar- og
meðferðarmöguieika. Margir sjúk-
lingar eru árlega sendir burt til
rannsókna af þessu tagi og er það
hagsmunamál Austfirðinga, að
slíkur útbúnaður sé til í fjórðungn-
um og eykur notagildi sjúkrahúss-
ins fyrir þá. Því er það mín von,
að menn bregðist vel við og styrki
Krabbameinsfélag Austurlands í
því góða starfi, sem það vinnur og
kaupi happdrættismiða þess.
Neskaupstað 20. maí 1979,
Eggert Brekkan
yfirlæknlr.
Sumarið
kemur
8. júní
kl. 3
Oli erum við orðin lang-
þreytt á þessari eindæma hörku
í vorveðráttunni.
Nú flýgur sú fiskisaga, að
spámaður mikill á Héraði hafi
séð það fyrir, að veðrið batni
ekki fyrr en 8. júní kl. 3 að
degi til nákvæmlega.
Sagt er að spámaður þessi
vilji ekki að hátt verði haft um
nafn hans, ekki heldur þegar
spáin hefur komið fram, því
að það sé mannkyninu ekki til
góðs að trúa á spámenn.
F jór ðung ssjúkra-
húsið
Neskaupstað:
Fram-
kvæmdir
hef jast á ný
Þá eru á ný hafnar fram-
kvæmdir við nýbyggingu F. S.
N. eftir a.l h::fa aS mestu leg-
ið niðri í rúmt ár.
í mars sl. var auglýst eftir
tilboðum í innanhússfrágang
á húsinu.
Þrjú tilboð bárust: Frá
Valma hf. Neskaupstað, að
upphæð kr. 229.546.920, Tré-
smiðju Austurbæjar, Reykja-
vík kr. 272.097.318 og Dráttar-
brautinni hf. Neskaupstað kr.
273.217.035. Kostnaðaráætlun
hönnuða var kr. 251.914.000.
Tilboði Valma hf. var tekið
og hefur félagið hafið fram-
kvæmdir. Verkinu skal skila í
áföngum.
Fyrsti áfangi verður heilsu-
gæslustöð, röntgendeild, rann-
sóknarstofur o. fl. og á að
skila þessum hluta hússins til-
búnum til starfrækslu um
næstu áramót.
Annar áfangi er sjúkradeild
þ. e. efsta hæð hússins, en þar
er gert ráð fyrir 31 sjúkrarúmi
svo og ýmsum vinnuherbergj-
um, geymslum o. fl.
Þessum áfanga á að skila um
áramótin 1980—’81.
Þriðji áfangi verður svo
neðsta hæð hússins, en þar f
er endurhæfingarstöð, þvotta-
hús o. fl.
Einnig er f þessum áfanga
kjallari, sem f eru aðal geymsl-
ur hússins og verkstæði.
Þessum áfanga á að skila
seint á árinu 1981 og verða það
verklok þessara framkvæmda.
Einnig verður f ár unnið við
frágang á lóð sjúkrahússins, en
þvf verki stjómar Gunnar
ólafsson, Neskaupstað.
NESKAUPSTAÐUR
Stefnt er að því að nota næstu helgi til hreinsunar bæj-
arins. — Þá tökum við öll höndum saman og hreins-
um lóðir, götur, gil og læki.
í síðasta tbl. Austurlands er listi yfir hverfisstjóra og
eru menn vinsamlega beðnir um að snúa sér til þeirra
varðandi tilhögun verksins eða til garðyrkjumanns bæj-
arins Guðbjamar Odds í síma 7521 eða 7518.
Aðalfundur
Flugfélags Austurlands hf. verður haldinn í Barna-
skólanum Egilsstöðum miðvikudaginn 30. maí 1979
og hefst kl. 20.30.
Dagskrá samkvæmt skriflegu fundarboði.
STJÓRNIN