Austurland - 21.06.1979, Síða 1
ÆJSTPRLAND
29. árgangur Néskaupstað, 21. júní 1979. 26. tölublað
Lausn verkbanns og framhaldsdeilu:
Bráðabirgðalög
um kjaradóm
Leikfangasýningin
til Egilsstaöa
Síðastliðinn þriðjudag greip rík-
isstjórnin inn í farmannadeiluna,
sem staðið hcfur í nær tvo mánuði
og valdið miklum og vaxandi
vandræðum víða um land. Ofan á
verkfallsaðgerðir bætist hótun
vinnuvcitcndasambandsins um við-
tækt verkbann frá næstu helgi
að telja en það hefði valdið
atvinnuleysi hjá fjtílda fólks.
að standa að lausn með lagasetn-
ingu. Hjá Alþýðuflokknum voru
skoðanir hins vegar talsvert skipt-
ar um þessa aðgerð en drjúgur
meirihluti þingflokksins reyndist
henni þó fylgjandi, þannig að
öruggur meirihluti alþingismanna
stendur að baki þessari lausn í
þessu viðkvæma og umdeilda
verkfalli og um leið varðandi hina
ósvífnu verkbannshótun atvinnu-
rekenda.
Nú um helgina verður athyglis-
vérð sýning í Barnaskólanum á
Egilsstöðum. Fóstrufélag íslands
mun sýna barnaleikföng sem fé-
lagið hefur valið og getur mælt
með sem góðum leikföngum.
Leikföngunum er skipt niður
eftir aldri bama, sem þau þykja
við hæfi, og jafnframt eru settar
upp leiðbeiningar um hvað barni
á hverjum aldri, upp að 7 ára,
þykir gaman að gera og hvað það
getur gert
Sýning þessi var í Hagaskólan-
um í Reykjavík dagana 4.—10.
júní og var geysilega vel sótt og
vakti mikla hrifningu. Þetta er
heilmikil sýning að sögn þeirra
sem fyrir henni standa eða hálf-
fullur vöruflutningabíll enda bæði
úti og innileikföng og mikil vinna
liggur þarna að baki.
Þetta er upplagt tækifæri fyrir
fóstrur og innkaupastjóra hér
Austanlands til að sjá á einum
stað það úrval sem til er af góð-
um bamaleikföngum og einnig
fyrir foreldra sem alltof oft þurfa
að standa frammi fyrir því að böm
þeirra hafa engan áhuga á leik-
föngum sínum enda yfirþyrmandi
mikið framleitt af drasli sem kall-
að er leikföng.
Og ekki má gleyma þeirri ánægju
sem börnin sjálf hafa vafalaust
af því að sjá slíka leikfangadýrð.
Sýningin verður opin föstudag
til sunnudags frá kl. 15-—21 og
aðgangur er ókeypis, en happ-
drættismiðar. verða seldir og vinn-
ingar eru vönduð Ieikföng.
Batnandi
afkoma
Heiísugæsluaðstaða á Fáskrúðsfirði:
Sáttatillögur í deilunni leiddu
ekki til samkomulags, þótt nokkuð
þokaðist um vissa þætti, sem leið-
beinandi verða fyrir þann kjara-
dóm er lögin gera ráð fyrir að
ljúki störfum fyrir 1. ágúst nk.
Samstaða var í ríkisstjóminni um
að leysa yrði deiluna á þennan hátt
eins og mál hefðu þróast, þótt
lagasetning í vinnudeilum sé mik-
ið neyðarúrræði.
Að mati Alþýðubandalagsins
reiddu vissir ráðherrar of snemma
á loft lagavöndinn, löngu áður en
deilan var komin á það stig, að
eðlilegt væri eða líklegt til árang-
urs að grípa inn í hana af ríkis-
valdsins hálfu. Nú var hins vegar
svo komið að önnur leið var ekki
fær og fengu ráðherrar Alþýðu-
bandalagsins óskorað umboð þing-
flokks og framkvæmdastjómar til
Nýlega var samþykkt í sam-
starfsnefnd um opinberar fram-
kvæmdir að bjóða út heilsugæslu-
stöð á Búðum og við það verði
miðað, að húsið verði fokhelt á
næsta ári .
Þingmenn Austurlands hafa
skuldbundið sig til a .m. k. nægrar
fjárveitingar til þessa verkefnis á
næsta ári.
Hér er um að ræða áralangt
baráttumál þeirra Fáskrúðsfirð-
inga og Alþýðubandalagið þar hef-
ur sérstaklega haft þetta mál á
oddi.
Þessi niðurstaða er því vissu-
lega fagnaðarefni nú þegar Al-
þýðubandalagið er i stjómarað-
stöðu. Það munu nefnilega vera
Meiri bolfiskafli
Alls hafa borist 3.650 lestir af
bolfiski til Neskaupstaðar fyrstu
fimm mánuði þessa árs. Er það
nokkru meiri afli en borist hafði
á land á sama tíma í fyrra.
Aflaverðmæti fisksins er um 495
milljónir króna. Af þessum afla
hafa Norðfjarðartogararnir Birt-
ingur, Bjartur og Barði lagt á
land um 3.330 lestir.
Mjög tregur afli hefur verið
það sem af er hjá smærri bátum,
og er sá guli greinilega ekki enn
genginn á grunnslóðir. Grásleppu-
vertíðin brást að vemlegu leyti í
vor mestmegnis vegna hafíss sem
lá yfir miðum grásleppubáta.
Mikil afkastaaukning hefur orð-
ið hjá frystihúsinu nú í vor og
þegar unnið er 10 tíma er jafnað-
arvinnsla 25—35 tonn. Sökum
farmannaverkfallsins eru allar
frystigeymslur Síldarvinnslunnar
að fyllast og hljótast mikil vand-
ræði af ef þ'að leysist ekki fljótt.
Aligóð afkoma hjó
Kaupfélaginu Fram
Aðalfundur Kaupfélagsins Fram
var haldinn í Egilsbúð 2. júnl sl.
og var fundurinn óvenju fjölsótlur
en fundinn sóttu um 80 félags-
menn.
Formaður félagsins, Eyþór
Þórðarson og framkvæmdastjóri
Gísli Haraldsson, fluttu skýrslu
um starf og afkomu félagsins á
árinu 1978 og kom fram í máli
þeirra að afkoma félagsins var
allgóð þrátt fyrir þá erfiðleika sem
verslunin á í um þessar mundir
en stærsti liðurinn í rekstri félags-
ins er verslun, en auk hennar rek-
ur félagið mjólkurbú, sláturhús,
brauðgerð, skipaafgreiðslu og
frystihús.
Heildarvelta félagsins var 51,6%
meiri á árinu 1978 en á árinu 1977
en á sl. ári var veltan 1.006.068
þús.
Framh. á 2. slðu
Minningarathöfn
Minningarathöfn um sjómennina, sem fórust með
v/b Hrönn SH 149 hinn 30. apríl, verður í Eskifjarðar-
kirkju laugardaginn 23. júní og hefst kl. 2.
iaugsyn
4—5 ár síðan heiibrigðisráðherra
íhaldsstjórnarinnar lofaði heilsu-
gæslustöð á Fáskrúðsfirði á næsta
ári og því var þá óspart hampað
af hans mönnum á staðnum.
Síðasta stjórn fór hins vegar frá
án minnstu aðgerða í þessum mál-
um, en þó var mikil hreyfing víða
í heilbrigðismálum og mörgu
Framh. á 3. slðu
Leikféjag Neskaupstaðar:
Frumflytur leikrit
á afmœlishdtíöinni
Leikfélag Neskaupstaðar mun
frumsýna nýtt leikrit eftir Kjartan
Heiðberg á afmælishátíð bæjarins.
Frumsýningin er ákveðin 5. júlí.
Leikstjóri verður Haukur Gunn-
arsson og leikendur eru 4: Ósk
Ársælsdóttir, Guðmundur Bjama-
son, Hólmfríður Guðjónsdóttir og
Trausti Steinsson.
Að sögn höfundar fjallar leik-
ritið sem heitir „Vaxlíf" um við-
horf fólks til sambúðar og sjálf-
stæði einstaklingsins. í því er
brugðið upp mynd af „gegnum
sætt og súrt“ hjónum og pari, sem
ekki hefur hafið búskap. Þróun
sambands þeirra ógiftu er síðan
rakin uns að því kemur að þau
þurfa að velja milli festa og frelsis.
Leikhópur'.nn. Frci vinsíri: Bergþóra Aradóttir, GuSmundur
Bjarnason, Trausti Steinsson, Ósk Ásœlsdóttir, Haukur Gunn-
arsson, Anna M. Jónsdóttir og Hólmjríöur Guöjónsdóttir.
Höjundur var ekki viölátinn því aö hann var að smíða leiktjöld.
Vinabœirnir efna tii
kvikmyndasamkeppni
JyvSskylá, vinabær Neskaup-
staðar í Finnlandi, efnir til nor-
rænriar samkeppni um kvikmynd
í tilefni barnaárs. Er þetta liður
í samvinnu vinabæjanna og var
ákveðið á fundi þeirra í fyrra.
Samkeppnin er ætluð áhuga-
kvikmyndatökumönnum í norræn-
um vinabæjum Jyváskylá og ná-
grenni þeirra, þar með talið í
Neskaupstað og nágrenni (Norð-
fjarðarsveit).
Efni kvikmyndarinnar er ætlað
að fjalla um böm eða vera fyrir
börn.
Hámarkslengd myndarinnar má
vera ca. 15 mín. lengst (mjófilma,
8 mm eða 16 mm) og myndin má
ekki hafa verið sýnd opinberlega.
Frestur til að skila myndum í
samkeppnina rennur út 31. okt.
1979.
Þrenn verðlaun verða í boði:
1. verðl. 2.000 F. mörk
2. verðl. 1.250 F. mörk
3. verðl. 750 F. mörk.
Skrifstofa bæjarstjórans í Nes-
kaupstað mun veita nánari upp-
lýsingar um samkeppnina.
Á aðalfundi Prjónastofunnar
Dyngju Egilsstöðum, kom fram
að afkoma fyrirtækisins fór mjög .
batnandi á síðastliðnu ári og urðu
heildartekjumar um 214,2 millj.
kr. Reksturshagnaður varð 19,3
milij. kr.
Dyngja er eins og kunnugt er
eign Iðnaðardeildar SÍS, sem á
% hlutafjár og Kaupfélags , Hér-
aðsbúa, sem á
Reksturshagnaður varð 19,3
millj. kr. Það sem skipti sköpum
um þessa bættu afkomu var betri
hráefnisnýting, aukin framleiðsla.
og minni launakostnaður miðað
við framleiðslumagn. Gerð- hefur
verið rekstraráætlun fyrir árið
1979 og eru horfur góðar, ef ekki
verða óvæntar breytingar í mark-
aðsmálum og verðlagsþróun.
Fundurinn ákvað að leita sam-
þykkis hluthafa um aukningu á
hlutafé Dyngju upp í 24 milljónir
króna. Kaupfélag Héraðsbúa hef-
ur nú samþykkt hlutafjáraukn-
inguna fyrir sitt leyti.
Þrengsli há nú starfseminni, en
nokkuð mun úr rætast, því að um
þessar mundir er verið að taka í
notkun um 100 fermetra viðbótar-
húsnæði, sem prjónastofan fær í
framhaldi af því húsnæði sem hún
hefur nú. Á fundinum var ákveðið
að bæta vélakostinn, en geta má
þess að Dyngja hefur verkefni við
prjónaskap fyrir saumastofur í
nágrenninu, og eru prjónavélamar
fullnýttar og hefst ekki undan.
Auk þeirrar starfsemi, sem hér
er getið, er prjónað úr gerviefn-
um, og er sú starfsemi að Útgarði
á Egilsstöðum og sér Ólafur Sig-
urðsson um þann hluta starfsem-
innar. Nú er verið að vinna peysur
fyrir Rússlandsmarkað í Dyngju,
og er það nægilegt verkefni fram á
mitt ár, en nægileg verkefni eru
framundan þegar því lýkur. Hjá
Dyngju vinna nú um 40 manns.
Stjóm Dyngju skipa nú: Hjört-
ur Eiríksson, formaður, Þorsteinn
Sveinsson, varaformaðúr og Ás-
grímur Stefánsson.
Frá blaðinu
Enn hafa margir ekki greitt
áskriftargjald blaðsins fyrir þetta
ár og jafnvel lengur.
Áskriftin er kr. 4.000, og er það
von okkar hjá blaðinu að áskrif-
endur bregði skjótt við og sendi
þessa greiðslu hið suarasta.