Austurland - 12.07.1979, Síða 1
Áfangi aö nýrri
Landsvirkjun
Síðan í mars sl. hafa nefndir frá
Akureyrarbæ, Reykjavíkurborg og
iðnaðarráðuneytinu fyrir hönd rík-
isins unnið að gerð sameignar-
samnings vegna útvíkkunar á
starfssviði og eignaraðild Lands-
virkjunar. Hafa þær nú náð fullu
samkomulagi, sem undirritað var
6. júlí sl. og fylgja pví drög að
frumvarpi til nýrra laga um Lands-
virkjun. Mæla nefndirnar með því
við umbjóðendur sína að sameign-
arsamningurinn verði staðfestur,
enda setji Alþingi ný lög um
Landsvirkjun.
Með samkomulagi þessu er
mikilsverðum áfanga náð í undir-
búningi að framkvæmd á því
stefnumarki ríkisstjórnarinnar að
stofnað verði eitt meginfyrirtæki
er annist raforkuöflun og flutn-
ing orku um aðalstofnlínur og
verði hún seld á sama verði á af-
hendingarstöðum í öllum lands-
hlutum.
Aðilar munu væntanlega taka
afstöðu til tillagna nefndanna þeg-
ar að loknum sumarhléum.
NESRAUPSTAÐUR 50 ÁRA
vatnsDoroio i
hœrra lagi
Meðalrennsli Lagarfijóts er ná-
lægt 160 m3 á sekúndu, og er hæð
fljótsins þá nálægt 20,36 m yfir
sjó. ísa leysti af fljótinu 6.—7.
júní og er einsdæmi að það gerist
svo seint, en þá höfðu Jökulsá í
Fljótsdai og Keldá ekki rutt sig.
Á þessum tíma var hæð vatnsborðs
Lagarfljóts um 21,25 metrar yfir
sjó og er rennsli við Fossinn þá
nálægt 410 m3 á sekúndu, þá er
Lagarfossvirkjun keyrð með mestri
nýtingu. Nú er vatnið heldur í
rénun og nesin við Egilsstaði smá
stækka, og hólmarnir við Lagar-
fljótsbrú að koma í ljós. — A.E.
Rúmlega 90 hafa
sótt um skólavist
Rúmlega 90 nemendur hafa sótt
um skólavist við Menntaskólann
á Egilsstöðum. Umsóknir um
skólavist berast ört og er augljóst
að þessum nýja skóla er vel tekið.
Heimavist Menntaskólans tekur
nálægt 50 nemendur, en mötu-
neytisaðstaða er fyrir alla nem-
endur skólans. Ljóst er að þessi
hluti skólahússins sem kláraður
verður í haust verður gjörnýttur,
og verður væntanlega að hraða
byggingarframkvæmdum við skól-
ann svo hann fái starfað við eðli-
leg skilyrði. Margir kennarar hafa
spurt um stöður við skólann og
hafa 15 kennarar sótt formlega um
starf, og margir þeirra hafa að
baki reynslu við kennslu á mennta-
skólastigi, svo ljóst er að þrótt-
mikið starf verður við skólann.
— A. E.
Stiórn Rarik:
Suöaust-
urlínu
verði
Hátíðarhöldin fjölsótt
Nýr togari
Miklar líkur eru nú á því að
Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað
fái nýjan togara í stað Barða. Ef
til kemur að Barðinn verði seldur
úr landi þá verður keypt í staðinn
fyrir hann skip sem er eins og
Birtingur.
Ráðgert er að Barðinn hætti
veiðum um 20. júlí en gera þarf
nokkrar lagfæringar á skipinu áð-
ur en það verður selt. — Ef ekk-
ert óvænt kemur upp á má reikna
með að hinn nýi Barði verði til-
búinn til veiða í byrjun október.
— G. B.
Neskaupstaður hélt upp á
bálfrar aldar afmæli sitt um
síðustu helgi.
Veðurguðirnir stríddu Norðfirð-
ingum dálítið en ekki alvarlega
og hátíðin fór hið besta fram..
Á fimmtudagskvöldið frumsýndi
Leikfélag Neskaupstaðar leikritið
Vaxlíf, eftir Kjartan Heiðberg,
fyrir fullu húsi og við góðar und-
irtektir. Að sýningu lokinni af-
henti bæjarstjóri höfundi og Leik-
féiaginu viðurkenningu fyrir þetta
ágæta framlag.
Á föstudag tóku gestir að tínast
til bæjarins og voru nokkrir þeirra
viðstaddir opnun mjög athyglis-
verðrar sögusýningar í Barnaskól-
anum, þar sem sýnd er þróun
byggðar og mannlífs í Neskaup-
stað í 100 ár. Margir eiga vafa-
laust eftir að staldra þar við, því
að þar er mikinn fróðleik að finna
og sýningin er líka haganlega upp
sett. Lögðust þar margir á eitt.
Samtímis sögusýningunni voru
opnaðar 3 myndlistarsýningar, og
verða þessar sýningar opnar til
21. júlí n. k.
Eitthvað fyrir alla
Á föstudagskvöld voru haldnir
dansleikir fyrir börn og unglinga
en á milli þeirra fór fram knatt-
spyrnuleikur milli Þróttar og
Austra á íþróttavellinum. Fyrir
leikinn og í hálfleik lék Skóla-
hljómsveit Stavangurs nokkur lög,
en hljómsveitin var afar ánægju-
legt framlag Stavangurs til hátíðar-
haldanna, eins konar afmælisgjöf.
Laugardagurinn, aðal hátíðis-
dagurinn á afmælisárinu, heilsaði
með þoku og kalda og um tíma
leit út fyrir, að hætta yrði við
fyrirhugaða siglingu með gesti um
Norðfjarðarflóa, en hún var farin
og þó að þokan lægi niður í miðj-
ar hlíðar, fengu gestimir nokkra
hugmynd um næsta nágrenni Nes-
kaupstaðar.
Eftir hádegi hófst útisamkoma
í skrúðgarðinum, þar voru fluttar
ræður og ávörp. Aðalræðuna fiutti
Bjarni Þórðarson, fyrrverandi bæj-
arstjóri og ýmiss konar skemmtun
fór þar fram. Skólahljómsveitir
Neskaupstaðar og Stavangurs léku,
bæði saman og hvor fyrir sig,
þjóðdansarar frá Esbjerg dönsuðu
og tvær frægar persónur, Emil í
Kattholti og Lína langsokkur,
brugðu á leik með félögum sín-
um.
Á íþróttavellinum myndaðist
fljótt biðröð, þar sem börnin biðu
eftir að fá að komast á hestbak
Þau kynntu norðfirsk skáld og hagyrðinga á kvöldskemmtuninni: F. v. Guðríður Kristjáns-
dóttir, Smári Geirsson og Ólöf Þorvaldsdóttir.
Bjarni Þórðarson flutti hátíðarrœðuna á útisamkomunni á
laugardaginn.
hraðað
SJÁ AÐRA SÍÐU.
Framh. á 3. síöu