Austurland


Austurland - 06.09.1979, Síða 1

Austurland - 06.09.1979, Síða 1
29. árgangur Neskaupstað, 6. september 1979. 31. tölublað. Listamenn frá Kazakhstan sýna í nœstu viku AÐALFUNDUR NAUST 1979: Þörf á efldu starfi Náttúruverndarsamtök Austur- lands — NAUST — héldu aðal- fund sinn við Snæfell í skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs dag- ana 18. og 19. ágúst og sóttu hann 75 manns, féiagar í samtökunum og gestir þeirra frá flestum byggð- arlögum á Austurlandi. Var ekið að Snæfelli um Ftrafnkelsdal og fræðst í leiðinni um byggðasögu dalsins af Sveinbirni Rafnssyni, Sigurði Þórarinssyni og Stefáni Aðalsteinssyni, er voru þar staddir við fornleifarannsóknir. Við Snæ- fell var dvalið í tvo daga í hag- stæðu veðri og farið í gönguferðir á fjallið og um Eyjabakkasvæðið og greindi Oddur Sigurðsson jarð- fræðingur frá mótun svæðisins og jarðsögu. Á kvöldvöku greindi Skarphéðinn Þórisson líffræðingur frá umfangsmiklum rannsóknum, sem hófust í sumar á hreindýra- stofninum, en mest er um hreindýr í sumarhögum í grennd Snæfells. Hafa norskir sérfræðingar lagt á ráðin um þessar rannsóknir, sem kostaðar eru af Orkustofnun og eru þær liður í umhverfisathugun- um í tengslum við virkjunaráætl- anir á þessum slóðum. í NAUST eru nú um 230 einstaklingar sem féiagar og 38 fyrirtæki og stofnanir sem styrkt- araðilar. Á fundinum urðu veru- legar breytingar á forystu í félag- inu. Hjörleifur Guttormsson, sem verið hefur formaður þeirra í 9 ár, allt frá stofnfundi 1970, gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var í hans stað kjörinn formaður Einar Þórarinsson jarðfræðingur í Neskaupstað. Auk hans skipa stjórnina: Anna Þorsteinsdóttir. Eydölum, varaformaður; Sigríður K.ristinsdóttir, Eskifirði, gjaldkeri: Anna Kjartansdóttir, Höfn, ritari; Magnús Hjálmarsson, Egilsstöð- urn, meðstjórnandi. Varamenn: Jón Einarsson, Neskaupstað; Ó1 Björgvinsson, Djúpavogi; Guðrún Á. Jónsdóttir, Hlöðum. Á fundinum voru fráfarandi formanni færðar þakkir fyrir brautryðjandastörf í þágu félags- ins. Aðalfundur NAUST við Snæ- fell 1979 samþykkti eftirfarand ályktanir: 1, Um verkefni á náttúruverndar Aðalfundur NAUST 1979 minn- ír á, að þrátt fyrir ýmsa ávinninga og aukinn skilning á umhverfis- málum á síðustu árum, er þörí á verulega efldu starfi opinberra aðila og áhugafólks um náttúru- vernd. Auk þess sem marka þarf stefnu um hóflega nýtingu auð' linda lands og sjávar og hverfa frá rányrkju ,minnir fundurinn á eftirtalin verkefni er varða Aust- urland og aðra landshluta: 1. Að skipuleggja þarf landnotk- un með fjölþætta nýtingu og verndun í huga, ekki síst í grennd þéttbýlisstaða. Eru sveitarstjórnir eindregið hvatt- Framh. á 2. síðu Hópur áhugalistamanna frá sovéska lýðveldinu Kazakhstan kemur hingað til lands í dag og tekur þátt í „sovéskum dögum“ sem félagið MÍR efnir til árlega. Hópurinn kemur fram á Kjar- valsstöðum á föstudag og í Þjóð- leikhúsinu á laugardag en heim- sækir síðan Akureyri, Húsavík, Neskaupstað og Egilsstaði. Þetta eru allt áhugalistamenn sem þó hafa náð langt á lista- brautinni, því að flokkurinn sem kallar sig Úlítá hefur hlotið verð- laun á hátíð sovéskra áhugalista- manna. í hópnum sem hingað kemur eru 4 einsöngvarar, 7 hljóðfæraleik- arar og 10 dansarar og á efnis- skránni eru um 20 atriði. Hópurinn verður í Neskaupstað 12. sept og á Egilsstöðum 14. sept. Fundarmenn á aðalfundi NAUST fyrir framan skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs við Snœfell. — Ljósm. H.G. Opinber gjöld í Neskaupstað og á Eskifirði Skattskrá Austurlands kom út fyrir júlílok og er það óvenju snemma sumars. Eins og vitað var hækka allir skattar mikið í krónu- tölu, enda hafa tekjur manna hækkað í samræmi við verðbólg- Nú líður senn að lokum knatt- spyrnuvertíðar. Keppni í yngri flokkunum er lokið svo og í þriðju deild. í 5. flokki bar Sindri sigur úr býtum. Þurfti aukaleik við Þrótt til að fá fram úrslit í þeim flokki og sigraði Sindri eftir vítaspyrnu- keppni. í fjórða flokki sigraði Sindri en Þróttur í þriðja flokki. Sigurveg- ararnir tóku svo þátt í úrslita- keppni íslandsmótsins og stóðu sig með ágætum. Einherji frá Vopnafirði sigraði í Austurlandsriðli þriðju deildar. Hrafnkell varð í öðru sæti og Hug- inn í þriðja. í úrslitakeppni þriðju- deildar fór Einherji og lenti í riðli með Völsungi og Skallagrími. Tap- aði Einherji fyrir Völsungi 3 : 2 en sigrað i Skallagrím 3 : 0. Völsung- ur sigraði í riðlinum og vann sig upp í aðra deild ásamt Ármanni sem sigraði í hinum úrslitariðlin- um. Nú er aðeins einni umferð una. Vitað er, að í tveim kaupstöðum á Austurlandi, Eskifirði og Nes- kaupstað, hafa skattskrárnar verið ljósritaðar og seldar almenningi. Aðrar skattskrár hef ég ekki kom- ólokið í 2. deild og er staðan þann- Breiðabhk 27 stig F. H. 24 stig Fylkir 20 stig Þróttur 17 stig Selfoss 17 stig í. B. í. 15 stig Þór 15 stig Austri 14 stig Reynir 13 stig Magni 9 stig Breiðablik og F.H. hafa þegar tryggt sér þátttökurétt í 1. deild á næsta keppnistímabili. Á botni deildarinnar er ógnarspennandi keppni um það hvaða lið halda sér í deildinni. Magni er þegar fall- inn en Í.B.Í., Þór, Austri og Reyn- ir geta fallið svo að síðasta um- ferðin verður þrungin spennu. Ekki minnkar spenna okkar Aust- firðinga við það að síðasti leikur Austra og Þróttar er innbyrðis- uppgjör þessara liða á Eskifirði klukkan tvö nk. laugardag - G.B. ist yfir og verður því umfjöllun mín einskorðuð við þá staði tvo. Neskaupstaður Þegar kunnugur maður rennir augum yfir skattskrána, verður honum ljóst, að sumt í henni fær ekki staðist. Er þar um að ræða annarsvegar áætlanir skattstofu í þeim tilfellum að ekki hafi verið talið fram og eins og sjálfsagt er leitast skattstofan við að áætla svo ríflega, að menn geti ekki hagnast á vanrækslunni. Hinsvegar er svo um að ræða mistök í úrvinnslu skattstofu eða við mötun tölvu. Þetta verður í einstaka tilfellum til þess, að gjaldendur, sem eiga að bera háa skatta, eru í skránni með lága eða enga skatta. Og til er það, að maður, sem að réttu lagi á að greiða lága eða enga skatta, eiga eftir skattskránni að bera milljónir. Öll svona mistök verða að sjálfsögðu leiðrétt, ef þau koma í ljós. Svona mistök hafa vissulega komið fyrir áður, en mest var það sláandi, er sá maður, sem greiða átti hæstan tekjuskatt og hæsta útsvar í Neskaupstað átti samkvæmt skattskrá ekkert að greiða. Skattar í Néskaupstað Heildarskattar einstaklinga í Neskaupstað eru kr. 746.868.063.- og félaga og stofnana kr. 344.111.844.-, samt. 1.090.979.907. Líklegt má telja, að þeir lækki nokkuð þegar kærur hafa verið afgreiddar. Hæstu skattar einstaklinga eru: Tekjuskattur kr. 380.681.578, út- svör kr. 285.455.100, sjúkratrygg- ingagjöld kr. 44.730.700, aðstöðu- gjöld kr. 7.889.000, launaskattur kr. 7.151.352 og eignarskattur kr, 5.691.171. Hæstu skattar félaga og stofn- ana eru: Tekjuskattur kr. 161.026.446, aðstöðugjöld kr. 64.191.700, lífeyristryggingagjald kr.46.855.000, eignarskattur kr. 24.001.879 og launaskattur kr. 23.711.630. Útsvör eru lögð á 717 einstak- linga, tekjuskattur á 556 einstak- linga og 37 félög, sjúkratrygginga- gjald á 700 einstaklinga, aðstöðu- gjöld á 90 einstaklinga og 38 félög og eignarskattur á 72 einstaklinga og 39 félög. Síldarvinnslan hf. er langhæsti skattgreiðandinn og jafnframt sá hæsti í Austurlandskjördæmi. Álagning bæjarskatta og áætlun Á fjárhagsáætlun bæjarins þetta ár eru útsvarstekjur án vanhalda áætlaðar kr. 265.696.000, en reyn- ast, eins og áður er sagt kr. 285.455.100 og fara kr. 19.859.100 fram úr áætlun eða um 7,5%. Aðstöðugjöld eru á fjárhags- áætlun áætluð kr. 58.913.000, en reynast álögð kr. 72.080.700 og fara kr. 13.167.700 fram úr áætl- un, eða 22,3%. Samtals voru út- svör og aðstöðugjöld áætluð kr. 324.609.000 en reynast kr. 357.535.000 og er það 10,1% hækkun frá áætlun. Munurinn kann þó að minnka þegar kærur hafa verið afgreiddar. Álögð útsvör í Neskaupstað hækka um 79,9% miðað við árið á undan, en aðstöðugjöld um 97%. Eskifjörður Samanlagðir skattar einstaklinga á Eskifirði eru kr. 410.852.077 og félaga 142.920.718, samtals kr. 553.772.795. Hæstu skattar einstaklinga eru: Tekjuskattur kr. 204.770.836, út- svör kr. 163.003.300, sjúkratrygg- ingagjöld kr. 24.846.200, launa- skattur kr. 3.872.484, aðstöðugjöld kr. 3.532.900 og eignarskattur kr. 2.711.858. Hæstu skattar félaga og stofn- Framh á 2. SÍðu Knattspyrna

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.