Austurland - 06.09.1979, Side 4
Auglýsið 1 Austurlandl
Sfmar 7571 og 7454
Neskaupstað, 6. september 1979. GerÍSt áskriíendUr
Lánið leikur við pig í aparisjóðmiiQ,
SPARISJÓÐUR NORÐFJARÐAR
Söltunarvélar í stað
stúlkna
Stemma hf. Hornafirði hefur söltun að nýju
Menn voru að vonum jorvitnir að sjá hvernig nýja „söltunar-
stúlkan“ stendur sig. — Ljósm. Ó. Þ.
Sem kunnugt er brann allt sem
brunnið gat í söltunarstöð Stemmu
hf. á Höfn í Hornafirði sl. vetur
nánar tiltekið 12. nóv.
Útlitið var svart, ekkert stóð
eftir nema skemmdur grunnurinn
en uppbygging hófst í mars sl.
og hefur verið haldið áfram síðan.
Gert var við grunninn og nú er
par risið 1800 m2 myndarlegt hús
úr steyptum einingum og sá ístak
hf. um byggingu pess.
Þegar blaðamaður Austurlands
rakst þar inn á laugardaginn 1.
september var söltun að hefjast að
nýju. Létt var yfir mannskapnum
sem þarna var en óneitanlega leit
salurinn dálítið öðruvísi út en
síldarplön þau sem við höfum van-
ist. Þarna voru ýmsar ókennilegar
og forvitnilegar vélar sem komu
í stað mannshandarinnar.
Einn Eigendanna og stjórnar-
formaður í Stemmu hf., Unnsteinn
Guðmundsson var ásamt öðrum
önnum kafinn við vélarnar en varð
góðfúslega við beiðni Austurlands
um smá viðtal og bauð blaða-
manni upp í vistlega kaffistofu
með útsýni yfir vinnusalinn og
notaði tækifærið til að kveikja sér
( pípu.
— Við erum að prufukeyra
síldarsöltunarkerfið. Þetta er nýtt
kerfi, sem við erum að reyna og
okkur líst vel á það en byrjunar-
örðugleikar eru margir. Þetta
kerfi hefur aðeins verið prófað í
Vestmannaeyjum. Við erum með
sænskar vélar sem hausskera og
slógdraga en annar söltunarbún-
aður er smíðaður af vélsmiðju
Héðins f Kópavogi og hannaður
þar og af Lofti Loftssyni.
— Eru söltunarstúlkur úr sög-
unni?
— Já, nú raða þær í vélar í
stað þess að salta í tunnur. En síld-
arstemmingin verður eftir sem áð-
ur, það gerir silfrið og lyktin en
merkið í stígvélið vantar.
Við erum bjartsýnir, síldin er
óvenjugóð á þessum árstíma og
þessir byrjunarörðugleikar ganga
yfir. £n við erum ánægöastir yfir
aö framleiösian skuíi vera hatin
aftur, því að et víö hefóum ekki
verið svo ákveönrr í að skapa
þessum stað teKjur og umsvtf, þá
nefði okkur eigendum verið í lófa
lagt að hirða tryggingarbæturnar,
stmga þeim í vasann og pakka
niður. Það var strax eínróma
ákvörðun allra hiuthafa að leggja
ekki árar í bát heldur berjast
áfram, sagði Unnstein num leið og
hann stakk pípunni í vasann og
hélt aftur niður í vinnusalinn.
Kristján Gústafsson fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins út-
skýrði síðan vinnu vélanna:
— Það þarf að raða síldinni á
færiband fyrir véiarnar sem haus-
skera síðan og slógdraga. Það er
hægt að fá vélar sem raða síldinni
en of dýrt fyrir svo stuttan tíma.
Síðan fer sildin inn á færiband
sem flytur hana í flokkunarvél
sem skilar henni inn á tvískipt
band þar sem búið er að flokka
hana í stóra og smáa síld. Það
færiband flytur hana á vigt sem
vigtar hana, önnur smásíld hin
stórsíld og úr vigtunum er síldinni
hleypt inn í sjálfvirkar söltunar-
vélar sem setja hana í tunnumar.
Þetta er mikið hraðvirkara og
þegar þetta er komið í það form
sem það á að vera, það á eftir að
stilla saman aukinn hraða og halla
þá á vöðlarinn að skila tunnu á
1K mínútu.
— Fæst góð vara með þessu
móti?
— Þetta er mjög góð vinna á
síldinni.
— Hvert fer síldin?
— Hún fer á alla markaði sem
íslensk saltsíld fer á. Við fáum að
vita fyrir hvern dag hvert hún á
að fara.
— Hvernig er kaupið reiknað?
— Það á eftir að semja um það.
Þetta er mikið léttari vinna en
ástæðulaust að fólk fái ver greitt
fyrir þessa síldarsöltun en aðra.
— lóa
TIL SÖLU
Fíat 125 P. 1974 á hagstæðu
verði, dálítið af varahlutum fylgir.
Upplýsingar í síma 7480 eftir kl.
7 á kvöldin.
TIL SÖLU
Til sölu Bronco árg. 1974 6 cyl.
Upplýsingar í síma 7614, Nesk.
Atvinna
Óskum eftir að ráða starfsfólk á saumastofu.
Prjónastofan Dyngja hf.
Egilsstöðum, sími 1332.
Frá Iðnskóla Austurlands
Nemendur 1. og 2. áfanga mæti þriðjudaginn 11.
september kl. 14.
SKÓLASTJÓRI
íbúðir til sölu
Leiguíbúðanefnd Neskaupstaðar auglýsir hér með til
sölu 4 íbúðir 100 m2, 2 íbúðir 75 m2 og 2 íbúðir 50 m2
í 11 íbúða fjölbýlishúsi við Nesbakka 19—20, sem haf-
in er bygging á og áætlaður afhendingartími íbúðanna
er í lok ársins 1980.
Úthlutun íbúðanna og Iána- og greiðslukjör fer eftir
reglugerð um úthlutun lána og byggingu leigu- og sölu,-
íbúða sveitarfélaga nr. 403/1976.
Umsóknarfrestur er til 25. september nk. og ber að
skila umsóknum til formanns nefndarinnar, sem gefur
nánari upplýsingar ásamt öðrum nefndarmönnum.
Neskaupstað, 4. september 1979
/ stjórn leiguíbúðanefndar Neskaupstaðar,
Árni Þormóðsson, formaður, Ragnar
Sigurðsson og Gísli Sighvatsson.
Til gjaldenda
Athygli gjaldenda Neskaupstaðar er vakin á því að
65% þeirra voru í vanskilum 31. ágúst sl. og höfðu
gengið mjög nærri greiðslugetu bæjarsjóðs.
Bregðist gjaldendur ekki skjótt við verður óhjákvæmi-
legt að grípa til harðari innheimtuaðgerða sbr. auglýs-
ingu um lögtök hér í blaðinu.
Gjaldendur eru minntir á að 2. gjalddagi útsvars og
aðstöðugjalda var 1. september og J?ann 15. sept. verða
4,5% dráttarvextir á mánuði reiknaðir á öll vanskil.
Þeir sem enn eiga ógreidd fasteignagjöld mega búast við
lögtaksinnheimtu næstu daga.
FORÐIST HÁA DRÁTTARVEXTI OG INN-
HEIMTUKOSTNAÐ.
BÆTIÐ GREIÐSLUSTÖÐU BÆJARSJÓÐS OG
GERIÐ SKIL STRAX.
TILKYNNIN0
FRÁ STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS
Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1980
skulu hafa borist Stofnlánadeild landbúnaðarins fyrir
15. september næstkomandi.
Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm lýsing á fram-
kvæmdinni, par sem meðal annars er tilgreind stærð og
byggingarefni.
Ennfremur skal fylgja umsögn héraðsráðunautar,
skýrsla um búrekstur og framkvæmdaþörf, svo og
veðbókarvottorð.
Æskilegt væri að fram kæmi í umsókn væntanlegir
fjármögnunarmöguleikar umsækjanda.
Eldri umsóknir falla úr gildi 15. september næstkom-
andi, hafi deildinni eigi borist skrifleg beiðni um endur-
nýjun.
Reykjavík, 22. ágúst 1979.
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
Stofnlánadeild landbúnaðarins
Verkamenn óskast
Verkamenn óskast í byggingavinnu við Fjölbrauta-
skólann í Neskaupstað.
Upplýsingar á staðnum eða í síma 97-7609 á kaffitímum.
Úlítá flokkurinn
frá Kazakhstan heldur tónleika og danssýningu í Egils-
búð, Neskaupstað miðvikudaginn 12. sept. kl. 21.
M. í. R.
Laust starf
Póstafgreiðslumann vantar á póstafgreiðsluna í Nes-
kaupstað.
Upplýsingar gefur stöðvarstjóri í síma 7101.
BÆJARGJALDKERI