Austurland - 20.09.1979, Blaðsíða 2
___________Æusturland________________________
Málgagn Alþýðubandalagsins á Austurlandi
Ritnefnd: Ágúst Jónsson, Ámi Þormóðsson, Bjami Þórðarson,
Guðmundur Bjaraason og Kristinn V. Jóhannsson.
Ritstjóri: Ólöf Þorvaldsdóttír s. 7571 — h. s. 7374.
Angjýsingar og dreifing: Biraa Geirsdóttir s. 7571 og 7454.
Pósthóif 31 — 74« Neskanpstað.
Ritstjórn, afgrelðsla, angiýsingar: Egflsbrant 11, Neskaupstað
siml 7571.
Prentnn: Nesprent
Útgefandi kjördæmisráð Alþýðubandalagsins
Nú reynir á um efndir
í jjeim átökum sem nýlega er lokið innan ríkisstjómarinnar
um aukna skattheimtu ríkisins, lagði Alþýðubandalagið höfuð-
áherslu á pað á lokastigi, að sem tryggilegast væri frá því
gengið, að þeir fjármunir, sem þannig fengjust til viðbótar,
gengju til brýnna samfélagsverkefna sem samstarfsflokkar okk-
ar vilja gjaman heldur draga úr.
Nokkur ávinningur náðist óneitanlega, ]>ó þar reyni að vísu
á orðheldni manna. Það er að sönnu einnig hryggileg stað-
reynd, að ekki tókst í neinu að knýja samstarfsaðilana til nýrra
tekjuöflunarleiða, ekki einu sinni til raunhæfs átaks í skatta-
eftirliti og aðgerðum gegn skattsvikum, sem fært hefðu ríkinu
drjúgan hiuta þess fjár sem afla þurfti og sem hefði pá frá þeim
verið tekið, sem sannanlega hefðu pá verið verðugir greiðendur.
Það hlýtur að vera ærið umhugsunarefni öllum vinstri
mönnum á íslandi hve gömul íhaldsúrræði em allsráðandi
hjá okkar samstarfsaðilum í ríkisstjóm, hve viðkvæmir þeir
eru fyrir því að hreyfa í nokkru við óþörfum og margföldum
milliliðakostnaði, hve ákafi þeirra til hækkana á hverju einu
í vöm og þjónustu að ógleymdum vöxtum er mikill, en kaup-
liður vinnandi fólks það eina sem horft er á til lækkunar og
skerðingar. Þó þar hafi Alþýðubandalaginu tekist að verjast
öllum verstu áföllum hefur viðleitni hinna verið söm við sig.
Það hlýtur líka að vera umhugsunarefni til framtíðar, að
Alþýðubandalagið þurfi að berjast fyrir framlögum til sam-
félagsverkefna við fjárlagagerð í fyrra og ekki síður nú gegn
beinni og opinskárri andstöðu Alþýðuflokksins og mikilli
tregðu Framsóknarflokksins. Þannig var nú í þessari lotu.
í orkukreppunni nú standa tveir málaflokkar upp úr í fram-
kvæmdum ríkisins sem þjóðhagsleg nauðsyn knýr á um, að
vel verði að unnið; orkumálin og samgöngumálin. Þetta ættu
allir að geta verið sammála um og eru það eflaust, þó það
komi eðlilega í hlut Alþýðubandalagsins að berjast í báðum
málaflokkum sem allra best. Ráðherrar þess fara með báða
málaflokka og vissulega eru þar stór átök framundan, sem
óneitanlega eru betur tryggð eftir síðustu lotu innan ríkis-
stjómarinnar en áður hafði verið.
Fyrir okkur landsbyggðarfólk hafa þessi mál þó forgang
alveg sérstaklega og krafa okkar hlýtur að vera sú, að öllu
mögulegu afli sé beitt til að gera þar veruleg átök.
Með síðustu vegaáætlun, í vor sem leið, er brotið blað í
framkvæmdum í vegamálum.
Árin 1980—’82 verður dæminu snúið við og aukning fram-
kvæmda loks veruleiki eftir margra ára hnignun. Þessa vilja-
yfirlýsingu Alþingis ber að standa við og helst að gera betur
í Ijósi ástandsins í orkumálum því auk hinnar bættu þjónustu
er orkusparnaðurinn ótvíræður af betra vegakerfi. Nú mun í
vetur á reyna hver vilji er til að gera þessa áætlun að vem-
leika. Landsbyggðarfólk þarf að fylgjast vel með, knýja á
með afli sínu og atfylgi að áform vegaáætlunar um stórauknar
framkvæmdir í vegamálum verði áþreifanleg staðreynd.
Eins og harða baráttu samgöngumálaráðheiTa þurfti til að
fá fram þær niðurstöðutölur sem fengust, þá verður áreiðan-
lega að heyja viðbótarbaráttu fyrir því, að við þessi fyrirheit
ÍÞRÓTTIR
36. ársþing
UiA
var haldið á Reyðarfirði dagana
7. og 8. sept. sl.
Þingið sóttu rúmlega 40 fulltrú-
ar frá 13 félögum.
Gestir þingsins voru Hermann
Guðmundsson framkvæmdastjóri
ÍSÍ, Bjöm Ágústsson gjaldkeri
UMFÍ, Gunnar Kristjánsson rit-
stjóri Skinfaxa, Guðmundur
Magnússon fræðslustjóri, Vil-
hjálmur Einarsson skólameistari
og Hörður Þórhallsson formaður
SSA og sveitarstjóri Reyðarfjarð-
arhrepps, en hreppurinn bauð
þingheimi til kaffidrykkju að
kvöldi föstudags.
Mörg athyglisverð mál vom
rædd á þinginu s. s. Landsmót
UMFÍ á Austurlandi 1990 og
fræðslhmál. Auk þess íþróttir og
fjárhagur sambandsins, sem er
mjög slæmur um þessar mundir.
Emil Bjömsson kynnti íþrótta-
og félagsmálabraut Menntaskólans
á Egilsstöðum.
Tilkynnt var val íþróttamanns
ársins 1978—1979 og hafði Skúli
Óskarsson orðið fyrir valinu. í til-
efni af því var Vilhjálmi Einars-
syni falið að afhenda Skúla bikar
allmikinn við upphaf Norður-
landameistaramóts í kraftlyftingu,
sem verður haldið í Reykjavík um
næstu helgi.
Er þetta í fyrsta skipti sem
íþróttamaður U.Í.A. er kjörinn,
og gaf Bergur Hallgrímsson á
Fáskrúðsfirði bikarinn, sem verður
farandgripur og varðveitist af
íþróttamanni ársins, sem kjörinn
skal á síðasta stjómarfundi U.Í.A.
fyrir þing ár hvert.
Þá voni í fyrsta sinn afhent
starfsmerki U.Í.A. Hlutu það 4
menn, sem allir hafa starfað lengi
og ötullega að íþróttamálum Aust-
urlands.
Starfsmerki hlutu:
Þorvaldur Jóhannsson Seyðisfirði
Stefán Þorleifsson Neskaupstað
Aðalsteinn I. Eiríksson Reyðarf.
og Sigurður Ó. Pálsson Eiöum.
Mun betri fundarsókn var en
undanfarin ár, enda áríðandi að
allir þeir aðilar sem að íþrótta- og
ungmennáfélagsmálum starfa aust-
anlands komi saman, ræði þessi
hugðarefni sín og marki stefnuna
fyrir næsta ár.
í stjóm U.Í.A. vom kosin:
Formaður: Hermann Níelsson
Eiðum. Aðrir í stjóm: Dóra Gunn
arsdóttir Fáskrúðsfirði, Bjöm
Björgvinsson Breiðdalsvík, Helgi
Halldórsson Egilsstöðum og
Jóhann P. Hansson Seyðisfirði.
Til vara: Helgi Arngrímsson Borg-
arfirði, Þórhailur Jónasson Nes-
kaupstað og Pétur Eiðsson Borg-
arfirði.
Af íþróttum
í Suðursveit
Ekki hefur íþróttalíf blómstrað
í Suðursveit það, sem af er árinu.
Þó eru um þessar mundir að kom-
ast í gang æfingar í frjálsum
íþróttum tvisvar í viku. Er það
Ungmennasambandið Úlfljótur,
sem fyrir þeim æfingum stendur.
En Hulda Laxdal Hauksdóttir af
Höfn er þjálfarinn.
Þá starfrækti Úlfljótur sumar-
búðir fyrir börn í vikutíma í
Hrollaugsstaðaskóla seint í júnf-
mánuði. Munu þar hafa dvalið 13
börn. En ekkert þeirra var úr Suð-
ursveit. Börnin dvöldu þarna undir
leiðsögn frú Ágústínu Halldórs-
dóttur íþróttakennara á Höfn og
virtust mjög ánægð með dvölina.
Ekki létu Suðursveitungar sinn
hlut eftir liggja við að koma boð-
hlaupskeflinu yfir sína sveit og
gerðu reyndar nokkm betur og
hlupu nokkra kflómetra innan
Öræfasveitar líka. Alls hlupu 59
úr Suðursveit og hafa sennilega
hlaupið nærri einn km hver hlaup-
ari til jafnaðar. Yngstu hlaupar-
arnir voru 4 ára, en sá elsti var
55 ára.
Mörgum fannst eins og drægi
ský fyrir sólu, er þeir nærri á
síðustu stundu heyrðu að þeir
ættu að skeiða með Moggaaug-
lýsinguna bæði í bak og fyrir. En
málið leystist svona þegjandi og
hljóðalaust, þegar á hólminn var
komið með þvf, að flestir rannu
skeiðið Moggalausir.
Torfi Steinþórsson
Breiðdœla
Framhald af 1. ifðu.
við og róti strax í fylgsnum hugar
og rísli í skúffum og skrínum og
dragi fram í dagsljósið kærkomið
efni. Það er ótrúlegt hvað ein lítil
mynd eða stutt frásögn getur lífg-
að upp og gefið riti sem þessu
gildi, bæði f gamni og alvöra.
AFMMJ
Bjarni Guðmundsson, fiskimats-
maður, Strandgötu 10 Neskaupstað
varð 70 ára 11. sept. — Hann
fæddist á Sveinsstöðum, Hellisfirði
en hefur búið í Neskaupstað allan
sinn búskap.
Margrét Halldórsdóttir, hús-
móðir, Nesgötu 39, Neskaupstað
varð 80 ára 12. sept. — Hún
fæddist í Bakkagerði, Nesjahreppi,
A.-Skaft. en fluttist til Neskaup-
staðar 1925.
Matthildur Jónsdóttir, húsmóð-
ir, Þiljuvöllum 11, Neskaupstað
varð 75 ára 16. sept. •— Hún fædd-
ist á Sæbakka, Mjóafirði, en flutt-
ist til Neskaupstaðar 1926.
Nikólína Karlsdóttir, húsmóðir,
Blómsturvöllum 39, Neskaupstað
er 50 ára í dag, 20. sept. — Hún
fæddist f Hafnarfirði.
Ríkisstjórnarsamstarfið
og endurskoðun
málefnasamnings
verður til umræðu á fundum sem Alþýðubandalagið
efnir til á ýmsum stöðum á Austurlandi á næstunni.
Á fundina mæta þeir Helgi Seljan og Baldur Óskarsson.
Eftirtaldir fundir eru þegar ákveðnir:
FÁSKRÚÐSFIRÐI í Félagsheimilinu |>riðjudaginn 25.
sept. kl. 20.30. Félagsfundur.
BREIÐDALSVÍK í matsal frystihússins miðvikud. 26.
sept. kl. 20.30.
Opinn og almennur fundur.
DJÚPAVOGUR í Bamaskólanum fimmtudaginn 27.
sept. kl. 20.30.
Opinn og almennur fundur.
Fundir eru fyrirhugaðir á Reyðarfirði og Egilsstöðum
og verða auglýstir síðar.
að vera sú að enn betur verði gert, að raunveruleg aukning
verði sem allra mest. Það ætti að vera óþarft að brýna fólk
þannig, en þegar tregðuöflin fara að láta til sín taka, í kringum
fjárlagagerð og lánsfjáráætlun, er full ástæða til að fólk knýi
á fulltrúa sína um að standa hér vel að verki, svo sem áform
eru uppi um.
Við Austfirðingar }>urfum samhliða átak í því að gera aðal-
vegi okkar sem besta, breyta sveitavegleysunum okkar í vegi
og hefja lagningu bundins slitlags út frá þéttbýliskjömunum.
Engir eiga meiri hagsmuna að gæta, að við vegaáætlun
verði staðið að fullu og í ljósi skattheimtu ríkisins af bensín-
verðinu ætti að vera unnt að gera enn betur. En par þarf
þrýsting sem um munar, ef að á að standa svo sem á er þörf.
verði staðið. Þar mega engin íhalds- og úrtölusjónarmið ráða,
svo sem við fáum svo vel að kynnast sem best megum fylgjast
með.
Krafa landsbyggðarfólks, og pá ekki síst Austfirðinga hlýtur
Því er þessi brýning nauðsyn, með tilliti til }?ess að úrslit-
in ráðast á næstu mánuðum og fjármálaráðherra, fulltrúi Aust-
firðinga, hlýtur par að koma meir við sögu um efndir en
aðrir. — H. S.
EFNALAUGIN
Neskaupstað
verður opin 24.—28. september.