Austurland - 11.10.1979, Qupperneq 1
Austurland isrr, ~
29. árgangur.
Neskaupstað, 11. október 1979.
36. tölublað. Menntaskólinn á Egilsstöðum
Alþýðuflokkurinn sprengir
ríkisstjórnina
Þinglið hans sundrað og uppgefið
og treystir ekki róðherrum flokksins
Ymsir Atþýðuflokksmenn
í verkalýðshreyfingunni
andvígir ákvörðun
þingflokksins
Austurland sneri sér til Hjör-
leifs Guttormssonar iðnaðarráð-
herra síðastliðinn priðjudag og
leitaði álits hans á síðustu við-
burðum og loftfimleikum þing-
manna Alþýðuflokksins.
Hann hafði þetta um málið að
segja:
„Ákvörðun þingliðs Alþýðu-
flokksins síðastliðinn föstudag um
55.000 tonn
hafa borist
til hafna
Austanlands
Mjög góð ioðnuveiði hefur ver-
ið unaanlarið á ioðnumiðunum
norður ar Koibeinsey. Ahs er
veiðin orðm rúmar 200 þúsund
lestir. — Fiskrfræðingar hafa lagt
til að ekki verði veitt meira af
ísienska loðnustofninum á sumar-
og vetrarvertíð en 600 þúsund
tonn en þegar er búið að veiða
meir en heiming þess magns þegar
afli Norðmanna er talinn með.
Ekki er enn ljóst hversu lengi
veiðarnar verða látnar halda á-
fram nú í haust - en eitt er víst að
þær verður að takmarka. —
Skynsamlegra er að leyfa veiðar
áfram fram eftir hausti en tak-
marka þess í stað veiðar á vetrar-
vertíð þar sem loðnan gefur af
sér miklu meiri afurðir nú en
þá.
Fitumagn loðnunnar er þessa
dagana um 15% og þurrefnismagn
mjög svipað. — Á vetrarvertíð er
fitumagnið 12-—14% í byrjun ver-
tíðar en lækkar svo um c. a. 1%
á viku. Þess ber þó að geta að
hrognin eru mjög dýrmæt á vetr-
arvertíðinni.
Á þessari vertíð hafa alls borist
um 55.000 tonn af loðnu til Aust-
fjarðahafna og skiptist aflinn
þannig milli staða:
S. R. Seyðisfirði 19.000 tonn
Isbjöminn Seyðisfirði 9.000 tonn
Neskaupstaður 15.000 tonn
Eskifjörður 11.000 tonn
Reyðarfjörður 8.000 tonn
Fáskrúðsfjörður 3.000 tonn
Rúmlega 20 tíma sigling er af
miðunum og hingað austur.
— G. B.
að sprengja ríkisstjómina og krefj-
ast skammdegiskosninga hefur
eðlilega mælst afar illa fyrir í
röðum vinstri manna og þykir
bera vott um ótrúlegt ábyrgðar-
leysi. Hafi þinglið Alþýðuflokks-
ins þó sýnt af sér marga ótrúlega
tilburði á Alþingi síðastliðinn vet-
ur og vitað var að drjúgur hluti
þess var andvígur stjórnarsam-
starfinu allt frá upphafi og vildi
taka saman við Sjálfstæðisflokk-
inn.
Sérstaka athygli vekur, að Al-
þýðuflokksforystan skuli undir-
búa stjórnarslit og stökkva fyrir
borð nú rétt fyrir þingbyrjun á
sama tíma og innan ríkisstjórnar-
innar vom í gangi viðræður um
efnahagsstefnuna og ekki hafði
skorist neitt teljandi í odda nýlega
milli stjómarflokkanna. Þetta
staðfesti raunar Magnús Magnús-
son ráðherra frammi fyrir alþjóð
um daginn og Benedikt Gröndal
fullyrti aðspurður, að engin sér-
stök ágreiningsmál hefði ráðið
samþykkt þingflokksins nú.
Fiokksforystan ber einkum við
óánægju meðal stuðningsmanna
Alþýðuflokksins með málafylgju
hans í ríkisstjóminni þannig að
samþykkt þingflokksins felur í
sér sérstakt vantraust á ráðherra
flokksins og uppgjöf af hálfu
þingflokksins.
Annars er mér efst í huga það
ábyrgðarleysi og svik við vinstra
fólk í landinu sem felst í þessari
ákvörðun Alþýðuflokksins. Stjórn-
arslit af hans hálfu nú þjónar
fyrst og fremst hagsmunum Sjálf-
stæðisflokksins og þeirra afla sem
á bak við hann standa. Flokkur-
inn ber við sérstökum áhuga sln-
um á baráttunni gegn verðbólgu
en stjórnarslitt nú og kosninga-
barátta I vetur á sama tíma og
flestir kjarasamningar eru lausir
em einmitt líkleg til að valda
ringulreið og óvissu og verulegri
mögnun verðbólgunnar, landið
verði stjórnlaust að kalla og af-
greiðsla fjárlaga dragist úr hömlu.
Þá vil ég minna á fjölmörg
Framh. á 3. *íðu
Myndin sýnir leikteppi sem nemendur Gagnfrceðaskólans í Neskaupstað gerðu undir stjórn
þáverandi kennara síns Messíönu Tómasdóttur. Leikteppið gáfu þau Dagheimilinu á staðnum
þar sem börnin hafa það ekki einungis til augnayndis heldur leika sér með það. Hlutirnir
eru fœranlegir, hœgt að hengja upp þvott, taka upp kartöflur o. s. frv. Með myndinni viljum
við minna á „Opið hús“ í Dagheimilinu á laugardag. Sjá frétt á 4. s. — Ljósm. E. Þ.
„Blóðugt að geta ekki
fullnýtt möguleikana"
Árið 1963 var byggð upp á
Djúpavogi aðstaða til síldarsölt-
unar sem síðan hefur verið árviss
þáttur í atvinnulífinu þar.
Á vertíðinni í fyrra var saltað
I 9 þúsund tunnur af síld hjá Bú-
landstindi hf. Fyrsta síldin á þess-
ari vertíð barst 27. september sl.
og er nú búið að salta í um 3
þúsund tunnur á rúmri viku.
Útflutningsverðmæti þessa magns
mun vera 125—130 milljónir
króna.
40 stúlkur vinna í ákvæðisvinnu
við söltunina og auk þess vinna
8 manns í tímavinnu að staðaldri
hjá stöðinni.
Síldin sem komið hefur á land
er fengin á Lónsbugtinni sem er
um tveggja klukkustunda stím frá
Djúpavogi.
í þessari aflahrotu fékk mótor-
báturinn Jón Guðmundsson 11
hundruð tunnur af síld í einni
drift, sem mun vera metveiði hjá
reknetabát.
Mönnum hefur fundist það
heldur blóðugt, að geta ekki full-
nýtt þá möguleika sem hægt væri
við verkun síldarinnar, sem best á
land ekki síst þar sem síldin er
bæði stór og feit og mjög góð til
frystingar, bæði til útflutnings svo
og til beitu.
Frystihúsið á Djúpavogi er
þannig í stakk búið þessa stund-
ina, að það getur ekki tekið á
móti neinu hráefni til vinnslu þar
sem unnið er við að fullljúka
byggingunni. Vonir standa þó til
að hægt verði að taka nýja frysti-
húsið að fullu í notkun við upp-
haf vetrarvertíðar. Nú er verið að
vinna að því að steypa upp 360
ferm. frystiklefa og eru frystivél-
ar væntanlegar í byrjun desember.
Mikið er I húfi að allar áætlanir
standist svo að atvinnumálin lendi
ekki í kaldakol um hábjargræðis-
tímann. —Már.
verður vígður næstkomandi
sunnudag.
Athöfnin hefst kl. 14 í Egils-
staðakirkju.
Að lokinni athöfninni í kirkj-
unni verður gengið til skólans þar
sem flutt verður ávarp, gestum
boðið að þiggja kaffiveitingar og
skoða skólann og eru allir vel-
komnir.
Skólastarfið er hafið. Nemend-
ur eru 99, flestir eða u. þ. b. %
eru af Austurlandi.
Skólinn starfar eftir samræmdu
eininga- og áfangakerfi fjölbrauta-
skólanna. Stefnt er að útskrift
fyrstu stúdenta vorið 1981, á við-
skiptamála-, uppeldis- og náttúru-
fræðibraut. Auk þess stunda nám
í skólanum nemendur, sem stefna
að öðru en stúdentsprófi. Má þar
nefna bóklegan kjama iðnnáms,
leiðbeinendanám í íþróttum o. fl.
Skólahúsið er afar vandað (nem-
endaherbergi búin snyrtiherbergj-
um með steypibaði). Mötuneyti
er rekið I skólanum, bæði fyrir
heimavistamemendur og einnig þá
sem búa úti í bæ.
LEIKFELAG
NESKAUPSTAÐAR:
Setur upp
Andorra
Leikfélag Neskaupstaðar hefur
hafið vetrarstarf sitt.
Félagið frumflutti í sumar í til-
efni 50 ára afmælis Neskaupstað-
ar nýtt leikverk „Vaxlíf“ eftir
Kjartan Heiðberg kennara í Nes-
kaupstað.
Gert hafði verið ráð fyrir að
taka Vaxlíf til sýninga aftur í
haust og fara I leikför hér Austan-
lands en af því getur ekki orðið,
,vegna fjarveru tveggja leikenda
æn of viðamikið yrði að æfa aðra
í stað þeirra.
Þess í stað hefur Leikfélagið
hug á að setja upp leikritið
Andorra eftir Max Frisch. Leik-
stjóri hefur þegar verið ráðinn,
Magnús Guðmundsson og er verið
að ráða í hlutverkin.
Félagið hefur fengið aðstöðu í
Tónabæ, þar er orðið hið vist-
legasta húsnæði til æfinga og
geymslu leikmuna.
Formaður Leikfélags Neskaup-
staðar er Anna M. Jónsdóttir.
— Ó. Þ.
Sláturtíðin
Sláturtíð stendur nú yfir á
Djúpavogi sem annars staðar og
er áætlað að slátra um 17 þúsund
fjár en það er um 15 hundruð
fleira en í fyrra.
Dilkar eru mun rýrari en í
fyrra og gæti því heildarkjöt-
þungi orðið svipaður og þá var.
Um 50 manns vinna við slátrun-
ina eins og jafnan áður.
Slátrun hófst 13. sept. hjá Kaup-
félagi Héraðsbúa á Reyðarfirði.
Dilkar eru heldur í lélegra lagi.
Reiknað er með að slátmn
standi út október og að slátrað
verði um 25 þúsund f jár.
— Á.M./Ó.Þ.