Austurland


Austurland - 18.10.1979, Qupperneq 1

Austurland - 18.10.1979, Qupperneq 1
Austurland 29. árgangur. Neskaupstað, 18. október 1979. 37. tölublað. Hlupu frd þýðingarmiklum hagsmunamálum alþýðu til að mynda dúkkustjórn fyrir íhaldið að leika með Nú hefur J>að gerst að ný stjóm hefur tekið við á landi Hi«>s Vegar er stefna Alþýðu- hér á ábyrgð og með fullum stuðningi Sjálfstæðisflokksins. bandalagsins með I Eitt síðustu verka Hjörleifs sem iðnaðarráðherra: Ákveðið að virkjaj Bessastaðaá sem ) 1. hluta virkjunar í Fijótsdal Þann 11. október sl. sendi Iðnaðarráðuneytið erindi til Rafmagnsveitna ríkisins þar sem tilkynnt er sú ákvörðun ráðuneytisins að ráðast skuli í Bessastaðaár- virkjun sem fyrsta áfanga Fljótsdalsvirkjunar og að Rafmagnsveitunum sé falið að reisa og reka virkjunina. Aljjýðuflokkurinn kaus að opinbera enn betur en áður þá staðreynd, sem raunar hefur legið ljós fyrir j>eim sem gerst hafa fylgst með, að meirihlutinn í f>eim flokki vill ekki eiga samleið með vinstri öflum í landinu. Hann vill stjóma með Sjálfstæðisflokknum af þeirri eðhlegu ástæðu að meginstefnu- mið þeirra fara saman. Þessi dúkkustjóm á að leggja grunn að J>essu samstarfi og sjálfstæðismenn hafa }>ar tögl og halgdir, ráða í raun og bera alla ábyrgð á hugsanlegum stjórnarathöfnum og beirri J>róun sem nú er að gerasL Vinstra fólki í landinu er þetta holl lexía. Fyrrverandi ríkisstjórn tók sannarlega vel á mörgum mál- um. Alþýðuflokkurinn hljóp frá mörgum þýðingarmiklum hags- munamálum íslenskrar alþýðu, ekki síst landsbyggðarfólks, mál- um sem í höfn hefðu komist nú í vetur ef af heilindum hefði verið starfað. Deilurnar í ríkisstjóminni stóðu um afar einföld atriði í raun. Samstarfsflokkar Alþýðubanda- lagsins höfðu þar um margt sam- eiginlega afstöðu þó að Alþýðu- flokkurinn gengi þar ætíð lengra. Deilan stóð um samneysluna í þjóðfélaginu, atvinnuöryggið og í beinu samhengi þar við en ofar öllu: Lífskjör hins vinnandi manns við sjó og í sveit. Alþýðubandalagið neitaði ævin- lega að leysa vandann einhliða með því að lækka kaup láglauna- fólks með því að stofna atvinnu- öryggi í hættu á þann samdráttar- veg sem Alþýðuflokkurinn setti í öndvegi. Illu heilli snérust Framsóknar- menn á sl. vetri til liðs við kröfur Alþýðuflokksmanna um skerðingu kaups, um samdrátt, og um há- vaxtastefnu sem einhliða aðgerðir sem nú eru að verða eitt alvar- legasta vandamál margra alpýðu- heimila. Alþýðubandalagið mat líf ríkis- stjórnarinnar og störf hennar það mikils fyrir alla vinstri menn í landinu, að það lét í sumu undan; sætti sig við málamiðlun eftir að ýmiss fráleitustu atriðin í tillög- um samstarfsflokkanna höfðu verið felld út eða lagfærð. Nú þegar ný íhaldsstjórn blasir við, ef vinstra fólk í landinu verð- ur ekki á verði, er mörgum ef til vill ljósara hvers vegna Alþýðu- bandalagið lagði svo mikla áherslu á það þrátt fyrir allt að halda fyrri stjórn saman. Skilin eru nú skörp: Annars vegar er stjórn íhalds með — samdrátt nauðsynlegra fram- kvæmda — skerðingu kaupmáttar — óheftan gróða einkaframtaks- ins — erlenda stóriðju og — ómengaða aronsku. Fáskrúðsf jörður: Sólborg seldi ytra Sólborg hefur veitt í net í sum- ar og haust, en afli hefur verið tregur í heild og auk þess voru miklar frátafir frá veiðum vegna þorskveiðibannsins. Sólborg er nú nýlega komin úr söluferð til Þýskalands, þar sem hún seldi 63 tonn fyrir gott verð. Guðmundur Kristinn er byrj- aður línuveiðar og minni bátar stunda einnig með línu. Afli togaranna hefur verið með minna móti að undanfömu, en þó hefur vinna verið næg í fisk- vinnslunni. Haffell landaði 50 tonnum á mánudag og Ljósafell er fyrir skömmu byrjað veiðar að nýju eftir að hafa verið í slipp um skeið. Hingað hafa borist 3.300 lestir af loðnu til bræðslu og hefur bræðsla gengið vel. — B. S. Neskaupstaður: Skuttogaramálið komið í höfn Lán fengið hjá enskum banka til kaupanna. — áframhaldandi sókn til auk- innar samneyslu og félagslegra framfara og uppskurðar á efnahagslífinu — atvinnuöryggi á grunni ís- lenskrar atvlnnustefnu — aukinn launajöfnuð og bættan kaupmátt hinna lægst launuðu og þá stefnu í þjóðfélagsmál- um okkar sem jafnt lýtur að andlegu sem efnahagslegu sjálfstæði okkar. Kosningabaráttan verður hörð og óvægin en megin sannindin Iiggja fyrir: Valið er milli Alþýðubanda- lagsins og íhaldsins. í engu má sundra kröftum einlægra vinstri manna, það sannar saga síðustu stjórnar það sanna atburðir lið- inna daga. Helgi Seljan Nú hefur endanlega verið geng- ið frá sölu á skuttogaranum Barða NK 120 úr landi. — Sala þessi hefur valdið talsverðu fjaðrafoki og setti Kjartan Jóhannsson reglu- gerð þess efnis að ekki fengist lán úr Fiskveiðisjóði til kaupa á skipi í stað Barða. Síldarvinnslan hf. fór þá aðrar leiðir og tókst að fá lán hjá enskum banka til skipakaupanna. — Barðinn er seldur til Frakk- lands og þaðan kemur einnig hið nýja skip sem keypt er í stað Barða. Það skip er systurskip Birtings NK. Kaupverð nýja skipsins er 10,5 milljónir franka en söluverð Barðans 4,5 milljónir franka. Barðinn er nú á veiðum og mun hann sigla með aflann og selja hann í Frakklandi, en að því loknu munu hinir frönsku kaup- endur taka við skipinu. Hið nýja skip sem bera mun nafnið Barði fer til Englands til breytinga og vænta má að skipið komi til íslands síðari hluta desember- mánaðar. — G. B. Djúpavogur: Aœtlað aö framkvœmdir við höfn og frystihús fylgdust aö Fjórir bátar 70 til 120 tonn hefja Unu strax eftir áramótin, auk þess munu nokkrir minni bátar verða gerðir þaðan út í vetur. Á vegum Búlandstinds hf. er nú unnið að endurskipulagningu á rekstri fyrirtækisins jafnframt því að verið er að kanna, hvemig hráefnisöflun fyrir nýja frystihús- ið verður best tryggð heima fyrir til frambúðar. Á fjárlögum yfirstandandi árs var áætlað að leggja 35 milljónir króna til hafnarmála á Djúpa- vogi. Fyrirhugað var að þessi upphæð færi til þess að kaupa 50 metra stálþil sem koma á framan við nýja frystihúsið. Það hefur verið stefnt að því frá upphafi í öllum áætlunum, vegna uppbyggingar fiskiðjunnar, að þessar tvær framkvæmdir þ. e. frystihúsið og hafnarframkvæmd- in fylgdust að svo tengdar sem þær eru hvor annarri. Hart er, að það geti orðið svo slæmt sem það nú er. Verið er að ljúka lagfæringu á síldarverksmiðjunni þannig að hægt verður að taka á móti loðnu til bæðslu í næstu viku. — Már

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.