Austurland


Austurland - 25.10.1979, Page 1

Austurland - 25.10.1979, Page 1
TItntttpt AMnsiá,,virkur s,mí AmL yit LliMviJLIá alla sveitabœl 29. árgangur. Neskaupstað, 25. október 1979. 38. tölublað. Gjörræði iðnaðarráðherra kratanna innan fjögurra ára Ragnar Arnalds lagði fram á Alþingi í haust frumvarp um símamál Ákvörðun um virkjun Bessastaðaár afturkölluð Eins og Austurland greindi frá í síðustu viku, tók Hjörleifur Guttormsson, þáverandi iðnaðar- ráðherra, um pað ákvörðun 11. október sl., að ráðist skuli í Bessa- staðaárvirkjun á grundvelli gild- andi heimildarlaga, en fram- kvæmdum verði hagað þannig, að virkjunin geti myndað hluta af stærri heild. Þetta gerðist áður en stjórn Ólafs Jóhannessonar baðst lausnar og sendi iðnaðarráðuneyt- ið Rafmagnsveitum ríkisins erindi par að lútandi. Ekki hafði Alpýðuflokkurinn fyrr myndað ríkisstjóm á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins en nýr iðn- aðarráðherra, Bragi Sigurjónsson ákvað að afturkalla fyrirmæli Hjörleifs og fylgdu m. a. stað- hæfingar um, að ekki væri „þörf á að taka ákvörðun um fram- kvæmdir að svo stöddu . . . “ Þessi einstæða gjörð iðnaðar- ráðherra Alþýðuflokksins hefur eðlilega vakið undrun og réttláta reiði og verið fordæmd víðar en hér eystra. Menn minnast þess, að hér eru á ferðinni sömu aðilar og komið hafa í veg fyrir allar tilraunir til frekari gufuöflunar fyrir Kröfluvirkjun og felldu einn- ig sl. sumar tillögu iðnaðarráð- herra um að verja jafnhárri upp- hæð í styrkingu dreifikerfa fyrir rafmagn í þéttbýli, sem flýtt hefði fyrir raforku til húshitunar. Þá bera Alþýðuflokkur og Sjálf- stæðisfiokkur einnig á því ábyrgð, að samdægurs og ákvörðun um Bessastaðaárvirkjun var afturköll- uð, var sameignarsamningur um nýja Landsvirkjun felldur í borg- arstjórn Reykjavíkur, en tilkoma þess fyrirtækis hefði m. a. þýtt stórt spor til jöfnunar raforku- verðs. Um þessi ótíðindi er nánar fjall- að í leiðara Austurlands í dag. Brýnasta verkefnið í símamál- um okkar landsbyggðarfólks jafn- hliða auknum jöfnuði, hvað kostn- að snertir, er tvímælalaust að koma sveitum landsins í viðun- andi símasamband. Þjónustu- og öryggisleysið er þar. víða svo mikið að fæstir mundu í raun trúa því. Tvens konar áætlanir um að- gerðir í símamálum lágu nú fyrir í ráðuneytinu. Ragnar Arnalds hafði þar kappsamlega unnið að hvoru tveggja, þó ekki yrði starfs- tími hans langur. Annars vegar snerti þetta jöfn- un símakostnaðar, markvissar að- gerðir til viðbótar við þau áður teknu skref, sem skiluðu okkur þó alltof skammt á veg. Þó skyldi því ekki gleymt hér eystra, að á sl. vetri var hæsti 130 þús. tonn af loðnu komin til Austfjarðahafna Vopnafjörður Ný heilsu- gœslustöð Fyrir nokkru var tekin í notkun ný heilsugæslustöð á Vopnafirði. Mun hún þjóna Vopnafirði og Skeggjastaðahreppi. Heilsugæslustöðin kostaði um 100 milljónir króna og þar eru 2 sjúkrastofur og lyfjageymsla. Tæki stöðvarinnar eru gömul en vonir stóðu til að fjárveiting til tækjakaupa yrðu á næstu fjárlög- um. Læknir stöðvarinnar er Þengill Oddsson og einnig starfar þar hjúkrunarkona og ljósmóðir. Seyðisfjörður Prests- kosning Sunnudaginn 14. október fór fram prestskosning ( Seyðisfjarð- arprestakaUi. Einn umsækjandi var í kjöri séra Magnús Bjöm Björnsson, settur prestur á Seyðisfirði. Á kjörskrá voru 552. Atkvæði greiddu 338. Magnús hlaút 337 atkvæði og þar með lög- mæta kosningu. Einn seðill var auður. MikU og góð loðnuveiði hefur verið að undanförnu, er sú afla- hrota sem undan er gengin sú mesta sem hér hefur komið síðan veiðar hófust á loðnu að hausti tU. Á annaðhundrað þúsund lestir hafa borist tíl Austfjarða og skipt- ist aflinn þannig sl. þriðjudag. Vopnafjörður 6.000 t. S.R. Seyðisfirði 37.000 t. ísbjörninn Seyðisfirði 15.000 t. Neskaupstaður 26.000 t. Eskifjörður 21.000 t. Reyðarfjörður 16.000 t. Fáskrúðsfjörður 5.000 t. Samtals 130.000 t. Ekkert er vitað hvort framhald verður á loðnuveiðum, en mörg- um þykir nú tími til kominn að stöðva veiðarnar, þannig að eitt- hvað magn megi veiða á vetrar- vertíð. — G. B. Myndin að ofan er frá loðnu- löndun á Eskifirði — Lm. ó. Þ. Neskaupstaður í tilefni barnaárs Barnið og skipulagið í upphafi barnaárs var stofnuð barnaársnefnd í Neskaupstað að frumkvæði barnaverndarnefndar. Voru fulltrúar úr ýmsum nefnd- um á vegum bæjarins kvaddir í nefndina og var hennar fyrsta verk að standa fyrir kynningar- og um- ræðufundi um barnabókmenntir þar sem Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur flutti erindi. Á vordögum var haldið 2ja daga foreldranámskeið undir leið- sögn Sigrúnar Júlíusdóttur fé- lagsráðgjafa. Nú hyggst nefndin taka fyrir umhverfis- og skipulagsmál með tilliti til barna. Laugardaginn 27. október n. k. kl. 15.00 verður fjallað um þau mál á fundi í fund- arsal Egilsbúðar. Þar mun Logi Kristjánsson bæjarstjóri ræða um skipulag þéttbýlis með tilliti til barna og taka þá sérstaklega mið af Neskaupstað og Stefán Thors skipulagsarkitekt sem nýlega var ráðinn til skipulagsskrifstofu S.S.A. á Egilsstöðum mun ræða um það umhverfi sem foreldrar geta skapað börnum sínum sjálfir t. d. á lóðum sínum. Þessi verkefni barnaársnefndar hafa öll verið fyrir foreldra, næst verður eitthvað gert fyrir bömin, meira um það síðar. gjaldflokkur felldur niður og sárasti broddurinn þar með. Allir sveitabæir í sjálfvirkt samband Hins vegár er svo áætlun, sem iögð var nú fram um algeran for- gang þess verkefnis að koma öli- um sveitabæjum á landinu í sjálf- virkt símasamband. Þessi áætlun er í aðalatriðum fóigin í pví að stefnt er að því, að öll heimili eigi kost á sjáKvirkum síma inn- an fjögurra ára. Til þess að auðvelda þetta skulu tæki og búnaður til þessa verk- efnis undanþegin aðflutnings- gjöldum og söluskatti við inn- fiutning og heimiluð er lántaka aUt að 600 millj. kr. árlega til fjármögnunar framkvæmdanna. Frumvarp Ragnars var staðfest og samþykkt til framiagningar af fyrri ríkisstjórn og lagt fram á Alþingi í samræmi við það. Því skal ekki að óreyndu trúað á neina ríkisstjóm, að hún fylgi þessu ekki eftir. Þó skyldi hér vamagli sleginn. Þeir sem boða sífellt niðurskurð opinberra framkvæmda hljóta að verða að taka þar á ákveðnum þáttum og hver veit nema ráðist yrði á garðinn þar sem hann er lægstur, misréttið verst og einmitt í þessu yrði hnífnum beitt. Sveita- fólk verður að vera hér vel á verði og knýja á um það, að í engu verði á slakað. Hér er mn að ræða jafnréttismál, sem sveitafólk á sjálfsagða kröfi til. — H. S. Vopnfirðingar Vona að úr rœtist Vopnfirðingar hafa fest kaup á tannlæknatækjum sem setja á upp í gamla læknisbústaðnum þar. Tannlæknir er enginn á Vopna- firði en vonir standa til að úr þeim málum rætist með tilkomu tækjanna. Logi Kristjánsson, bæjarstjóri Stefán Thors skipulagsarkitekt Á meðan á fundinum stendur veröur bamagæsla í DaghelmUlnu.

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.