Austurland - 25.10.1979, Page 2
• • •
__________Æusturmnd__________________________
Málgagn Alþýðubandalagsins á Austurlandi
Ritncfnd: Ágúst Jónsson, Árni Þormóðsson, Bjarni Þórðarson,
Guðmundur Bjarnason og Kristinn V. Jóhannsson.
Ritstjóri: Ólfif Þorvaldsdóttir s. 7571 — h. s. 7374.
Augiýslngar og dreifing: Bima Geirsdóttir s. 7571 og 7454.
Pósthólf 31 — 740 Neskaupstað.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: EgBsbraut 11, Neskaupstað
siml 7571.
Prentun: Nesprent
Útgefandi kjördæmisráð Alþýðubandalagsins
Gjörræði í garð Austfirðinga
Síðustu vikur hafa reynst afdrifaríkar í stjómmálabarátt-
unni og fyrir þróun landsmála á mörgum sviðum. Alpýðu-
flokkurinn hefur ekki aðeins sprengt ríkisstjóm og myndað
dúkkustjóm í skjóli Sjálfstæðisflokksins, heldur vinnur þessi
nýi meirihluti nú að j?ví leynt og ljóst að brjóta niður ákvarð-
anir og stefnumál fyrri ríkisstjómar.
Skýrasta dæmið um þetta, og f>að alvarlegasta sem snýr
að Austfirðingum, er pað gjörræði Braga Sigurjónssonar ráð-
herra að afturkalla ákvörðun Hjörleifs Guttormssonar fyrr-
verandi iðnaðarráðherra, um að ráðist skuli í Bessastaðaár-
virkjun, sem fyrsta áfanga virkjunar í Fljótsdal. Ákvörðun
Hjörleifs var reist á gildandi lögum um Bessastaðaárvirkjun
og f>eim heimildum fyri’verandi ríkisstjómar og Aljúngis sem
veittar voru með lánsfjáráætlun yfirstandandi árs. Þar er tekið
fram að ljúka megi í ár undirbúningi Bessastaðaárvirkjunar og
ráðast í framkvæmdir, pcgar virkjunin teljist hagkvæm í
heildarskipulagi orkumála landsins, að öryggissjónarmiðum
meðtöldum. Þrátt fyrir hatramma andstöðu við virkjun á
Austurlandi frá ýmsum aðilum og f>ingliði og ráðherrum
Alpýðuflokksins sérstaklega, fékk Hjörleifur gild rök, studd
áliti sérfræðinga, fyrir ákvörðun sinni um framkvæmdir við
Bessastaðaárvirkjun, sem fella mætti að stærri heild á síðari
stigum.
í fjárlagafrumvarpi }>ví, er lagt var fram á Alfingi í
fingbyrjun, er samkvæmt tillögu iðnaðarráðuneytisins gert
ráð fyrir 1550 milljónum króna fjárveitingu til virkjunarinnar
á næsta ári en hinn nýi iðnaðarráðherra Alfýðuflokksins hefur
einnig lýst þessa tillögu um fjárveitingu ómerka og úr gildi
fallna.
Með riftun Braga Sigurjónssonar á ákvörðxmum fyrirrenn-
ara síns hafa gerst hin alvarlegustu tíðindi, ekki aðeins fyrir
Austfirðinga heldur framvindu orkumála í landinu á næstu
árum. Vegna breyttra aðstæðna í orkumálum að imdanfömu
og óvenjulegs árferðis er }>að nú mat sérfræðinga, að næsta
virkjun fyrir landskerfið til að leysa almenna eftirspum, J>urfi
að komast í gagnið á árinu 1985, og ekki síðar en 1983 þurfi
Austfirðingar á viðbótarorku að halda, svo ekki sé minnst á
ófullnægjandi öryggi er við nú búum við.
Auk virkjunar í fjórðungi er lagning stofnlínu um Austiu--
Skaftafellssýslu og samtenging sunnan jökla nauðsynjamál er
hrinda verður í framkvæmd á næstu árum.
Iðnaðarráðherra gerði um J>að tillögu sl. sumar, að til
lagningar stofnlínu frá Skriðdal til Hafnar í Homafirði verði
veittar 2000 milljónir króna á næsta ári, )>annig að samtenging
komist á við Höfn haustið 1981. Undir }>essa tillögu Hjörleifs
hefur enn ekki verið tekið, og lítil ástæða sýnist til bjartsýni í
þessu efni sem öðrum eins og nú horfir um landsstjórnina.
Það eru pví dökkar horfur í orkumálum Austurlands
eftir stjórnarskiptin og gjörræði nýrra valdhafa, )>ótt tekist
hafi að koma mörgum hagsmunamálum áleiðis í orkumálum
fjórðungsins undir forystu Hjörleifs Guttormssonar sem iðnað-
arráðherra.
Brugðið fæti fyrir nýja
Landsvirkjun
Alpýðuflokkur og Sjálfstæðisflokkur láta nú skammt
stórra högga í milli gegn framförum og brýnustu endurbótum
Megi gœfa fylgja
Framhald af 4. síðu.
pví sviði vonum við að vel megi
til takast allt frá byrjun og óskum
starfsliði skólans og nemendum
hans giftu frá upphafi.
Það er afar ánægjulegt, ekki síst
fyrir okkur sem stefndum að því
frá byrjun að Menntaskólinn á
Egilsstöðum yrði fjölbrautaskóli,
að á sama ári og hann tekur til
starfa skuli austfirskir skólamenn
á öllum þeim stöðum í fjórðungn-
um, þar sem eitthvert framhalds-
nám er eftir grunnskóla, hafa
tekið höndum saman að eigin
frumkvæði og lagt hér grunn að
samstarfi milli skólastofnana, sam-
ræmdu framhaldsnámi, hvað sem
líður tregðu löggjafans að binda
slíka stefnu í lög. Menntaskólinn
á Egilsstöðum hlýtur eðlilega að
verða forystustofnun í þeim fjöl-
brautaskóla Austurlands, sem
framsýnir skólamenn ályktuðu um
á síðasta vori og menntamálaráðu-
neytið hefur síðan veitt nokkurn
stuðning við í verki.
Nýsköpun í skólastarfi á öllum
skólastigum er eitt af mörgum
brýnum verkefnum í íslensku
þjóðfélagi. Við þurfum á fram-
haldsskóla að halda sem í senn
varðveitir hið besta úr skólahefð
okkar og tryggir staðgóða al-
menna menntun, en sem einnig
tekur mið af breytingum í þjóð-
félagsgerðinni og atvinnulífi til
sjávar og sveita. Við eigum ekki
að beina æsku lands okkar í of
ríkum mæli inn á langskólabrautir
á þröngum sérsviðum og enn síð-
ur á skólaganga að verða til þess
að deila fólki upp í stríðandi fylk-
ingar um kaup og kjör, þar sem
Hjörleifur Guttormsson
fyrrv. iðnaðarráðherra
prófgráður ráða mestu um hluta-
skipti. Hér sem á öðrum sviðum,
þurfum við að stefna að jöfnuði
og þá einnig að jöfnuði í aðstöðu
til náms og þjálfunar hugar og
handa. Um leið og skólastofnun
sem þessi, er hér er vígð í dag,
á að auðvelda austfirskum æsku-
lýð og fullorðnum að bergja á
brunni mennta og fræða, má hún
ekki verða til þess að beina blóm-
anum af nýjum kynslóðum burt
frá heimabyggðum. Þess vegna
skiptir það miklu að þessi stofnun
verði frá byrjun opin fleirum en
þeim er stefna að svokölluðu
stúdentsprófi og hyggi á háskóla-
nám. Tengsl við atvinnulíf og við-
fangsefni hins daglega lífs skiptir
hér miklu máli og að kostur gefist
á stuttum námsbrautum og endur-
menntun fyrir þá er fullorðnir
teljast.
Megi gift a fylgja því starfi sem
hér er hafið í þessari ungu og ört
stækkandi byggð hér á Egilsstöð-
um .
Menntaskólinn
Framh. af 4. síðu.
Guttormsson, iðnaðarráðherra,
Helga Seljan, alþingismann, Orm-
ar Þór arkitekt, Þorstein Gústafs-
son framkvæmdastjóra Brúnáss,
Þorvald Jóhannsson skólastjóra á
Seyðisfirði, og Magnús Einarsson
oddvita.
Skólameistari þakkaði fyrir
hönd skólans gjafir og góðar ósk-
ir, og er Ijóst að Austfirðingar
styðja af heilum hug skólann og
það starf sem honum er ætlað að
vinna. Er það öllum starfsmönn-
um skólans mikil hvatning.
— A. E.
KDRKJA
Bamastarfið í Norðfjarðarkirkju
hefst í kirkjunni n. k. laugardag,
27. okt. kl. 10.30 f. h.
Allir velkomnir.
Kjördæmisráð
Aukafundur Kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í
Austurlandskjördæmi verður haldinn í Félagslundi á
Reyðarfirði sunnudaginn 28. okt. og hefst kl. 14.
DAGSKRÁ:
1. Tillögur uppstillingamefndar.
2. Kosningastarfið.
3. Önnur mál.
STJÓRNIN
Kosningamiðstöð
Alþýðubandalagsins í Austurlandskjördæmi verður í
Neskaupstað, Egilsbraut 11, sími 7571.
Skrifstofan }>ar verður opin frá og með fimmtudegin-
um 25. október kJ. 17—19 daglega.
Fáið upplýsingar varðandi alþingiskosningamar.
Veitið upplýsingar um stuðningsmenn er verða fjar-
staddir á kjördag 2.—3. desember.
Kosningastjóri G-listans
Neskaupstaður
Félagsfundur verður í fundarsal Egilsbúðar fimmtu-
daginn 25. október kl. 20.30.
DAGSKRÁ:
Stjórnmálin og undirbúningur kosninga.
Lúðvík Jósepsson kemur á fundinn.
STJÓRNIN
í raforkumálum. Sama daginn og ráðherra Al)>ýðufloldcsins
afturkallaði kvörðun um Bessastaðaárvirkjun felldi Sjálfstæð-
isflokkurinn með stuðningi annars fulltrúa Alþýðuflokksins í
borgarstjóm Reykjavíkur sameignarsamning um nýja Lands-
virkjun er sjá skyldi um framkvæmdir til raforkuöflunar og
tryggja átti raforku á sama verði í heildsölu til allra landshluta.
Með þessu er brugðið fæti fyrir löngu tímabæra skipulags-
breytingu og um leið hagsmunamál allra }>eirra er búa við
ósanngjamt raforkuverð.
Undir forystu Alþýðubandalagsins tókst iðnaðarráðherra
)>ess að draga úr verðmismun á heimilistaxta raforku í Reykja-
vík og á Austurlandi úr 88% í 53%, m. a. með hækkun verð-
jöfnunargjalds, en }>etta var aðeins áfangi í miklu réttlætismáli.
Að sama marki var unnið varðandi upphitimarkostnað.
Það em því ótíðindi sem ekki mega gleymast er íhaldinu
hefur tekist með fulltingi Alþýðuflokksins að tefja l'ramgang
áformanna um nýja Landsvirkjun.
Messa í Norðfjarðarkirkju á
sunnudag, 28. okt. kl. 2 e. h.
Sóknarprestur
AFM/KLÍ
Birgir Sigurðsson, skipstjóri,
Blómsturvöllum 17, Neskaupstað
varð 50 ára 21. október. Hann
fæddist í Neskaupstað og hefur
jafnan átt þar heima.
Bíll til sölu
Volvo 144 árgerð 1972. Ekinn
85.000 km. Mjög góður bíll.
Uppl. í síma 7505 eða 7397.
EFNALAUGIN
Neskaupstað
verður opin 29. okt.—2. nóv.