Austurland


Austurland - 15.11.1979, Side 2

Austurland - 15.11.1979, Side 2
__________Æusturmnd_________________________ Málgagn Alþýðubandalagsins á Austurlandi Rítnefnd: Ágúst Jónsson, Árni Þormóösson, Bjarni Þórðarson, Guðmundur Bjamason og Kristinn V. Jóhannsson. Ritstjóri: Ólttf Þorvnldsdóttir (. 7371 — h. s. 7374. Angiýsincar og drniflng: Biraa Gcirsdóttir «. 7571 og 7454. Pósthólf 31 — 74« Neskanpstað. Ritstjórn, afgrelðsln, anglýsingar: Efflsbraut 11, Neikanpstað sánsi 7571. Prentnn: Nasprent. Útgefandi kjördæmisráð Alþýðubandalagsins Þjófstart Sverris Fyrir mánuði síðan skrifaði Sverrir Hermannsson ritstjóm- argrein í Þingmúla. blað Sjálfstæðismanna á Fljótsdalshéraði, undir fyrirsögninni „Til vopna“ og vakti hún nokkra athygli fyrir opinskátt tal um stórfelldan niðurskurð og skert lífskjör alira. Með orðum þessa fyrrverandi júngmanns Sjálfstæðis- flokksins var áformunum m. a. lýst pannig: „Augljóslega verð- ur nú um hríð að strengja klóna til hins ítrasta. Það verður því aðeins gert, að pað komi mikið við alla. Óþarfa eyðslu þarf að uppræta. Beinskera verður niður alla fjárfestingu svo að braki í hverju tré . . .“ Mörgum þótti Sverrir taka hér djúpt í árinni og flytja óvenju ómengaðan íhaldsboðskap. Nú er hins vegar komið í ljós að hann endurómaði hér aðeins pá stefnu, sem verið var að sjóða saman í júngflokksherbergi Sjálfstæðisflokksins og birt var alþjóð með risaletri í Morgunblaðinu fyrir viku síðan undir fyrirsögninni „Leiftursókn gegn verðbólgu". Þar er jafn- vel enn sterkara að orði kveðið um niðurskurð og samdrátt en í vopnabraki Sverris og bætt við afnámi verðtrygginga á laun, þannig að launamenn standi berskjaldaðir gagnvart verðbólgunni og verði að bera verðhækkanir og frjálsa versl- unarálagningu bótalaust. Raforkuverðið Eitt af niðurskurðaráformum í kosningastefnuskrá Sjálf- stæðisfiokksins er að afnema með öllu framlag úr rílcissjóði til Rafmagnsveitna nkisins og fylgir með að Rafmagnsveit- umar „ . . . verði relcnar án halla“. Hvað skyldi nú þessi boð- skapur )>ýða fyrir okkur Austfirðinga sem nær einvörðungu kaupum okkar raforku af Rafmagnsveitunum? Svar Sjálfstæð- isflokksins er einfalt: Raforkuverð til ykkar verður HÆKK- AÐ STÓRLEGA langt umfram verðbólgu og aukinn að sama skapi mismunurinn á raforkuverði frá Rarik og til annarra landsmanna. Á p\í rúma ári sem vinstri stjómin sat, tókst að knýja fram nokkra verðjöfnun á raforku J>annig að mismunur á raforkuverði fór úr um 90% í 53,5% miðað við heimilistaxta. Jafnframt féllst ríkisstjómin á, að framvegis skyldi ríkissjóður fjármagna allar félagslegar og óarðbærar framkvæmdir sem Rafmagnsveitunum er falið að standa fyrir en það er um 60% af framkvæmdum Rarik á næsta ári, að mati stjómar fyrir- tækisins. Með Jæssu móti hefði fjárhagsstaða Rafmagns- veitnanna og aðstaða til verðjöfnunar í kjölfarið gjörbreyst og enn frekar ef jöfnun heildsöluverðs á raforku hefði náð fram að ganga með stofnun nýrrar landsvirkjunar. Það var hins vegar Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkur- inn í borgarstjóm Reykjavíkur sem bmgðu fæti fyrir j>etta réttlætismál. í kosningunum í byrjun desember gefst kjósendum færi á að endursenda þessum flokkum ójafnaðarreikninginn og kvitta fyrir samdráttar- og niðurskurðaráformum sem fyrst af öllum mun bitna á landsbyggðinni og j>eim sem minnst hafa til skiptanna. — H. G. Neytendahorn Fró Norðfjarðardeild NS Ailmargir hafa lýst ánægju sinní með síðustu verðlagskönnun og er það vel. En aðrir hafa lítinn áhuga á þessu og er það miður því verðkannanir hafa tvímæla- laust sannað gildi sitt, þar sem þær hafa verið gerðar nokkuð reglu- lega. Það var ekki biíist við að neyt- endur hlypu á milli verslana, allt Cheerios Coco Puffs Paxo rasp Bl. ávextir niðurs. heil ds. Epli rauð 1 kg. Appelsínur 1 kg Egg 1 kg Melroses te 20 stk. Kavíar 95 gr. Ferskjur niðursoðnar Perur niðursoðnar Colgate tannkrem 140 gr. Wim ræstiduft 297,9 gr. Ajax hreingerningalögur 820 ml. Lux sápa lítil Suðusúkkulaði 200 gr. Kókosmjöl 100 gr. Sírop Hrísmjöl Pama eftir því hvar hver vara væri ódýr- ust. Þetta var gert til þess að neytendur gætu séð hvar hag- kvæmast væri að versla í heildina, en það kemur fyrst í ljós þegar sem flestar vörutegundir hafa ver- ið bornar saman. Til þessa hafa verðkannanirnar eingöngu náð til matvara og hreingerningavara og mun sjálf- Óskar Bj. Bj. 425 595 225 165 1058 660 650 525 740 1500 245 285 286 300 875 996 934 1065 550 510 gr. 297 450 186 135 990 1055 150 195 250 sagt verða þar framhald á þar sem nánast er ómögulegt að bera sam- an verð á öðrum vörum, þar sem oftast er um aðeins eina verslun að ræða sem hefur viðkomandi vörutegund og vörumerki. Annar þáttur í verðkönnunum og ekki síður mikilvægur er verð- gæslan sem slíkar kannanir hljóta að leiða af sér. Lína Kf. Fram 605 225 232 1020 1140 600 900 600 650 1570 1500 320 335 300 312 830 934 940 994 635 627 120 260 640 195 198 990 1054 245 200 gr. 438 520 862 325 276 Nýjung hjá Námsflokkunum Námsflokkar Neskaupstaðar eru nú að hefja vetrarstarf sitt. í dreifibréfi sem borið hefur verið út í bænum er gerð grein fyrir starfinu. Þar kemur m. a. fram að í vetur verður boðið upp á fram- haldsnám í fjórum greinum, í samvinnu við Gagnfræðaskólann, þ. e. ensku, dönsku, íslensku og stærðfræði. Námið er skipulagt sem byrjun á framhaldsnámi, en hentar engu síður þeim, sem ein- göngu hafa áhuga á að hressa upp á gamla kunnáttu eða afla sér auk- innar þekkingar. Hér er um nýjung að ræða sem sérstök ástæða er til að vekja athygli á. Auk framhaldsnáms er boðið upp á ýmis styttri námskeið s. s. í bókbandi hnýtingum, blaða- mennsku o. fl. 6 þús. fjór slátrað á Fáskrúðsfirdi Slátrun hófst í sláturhúsi Kaup- félags Fáskrúðsfirðinga 24. sept. í fyrstu fór fram slátrun nautgripa, en síðan tók sauðfjárslátrunin við. Áætlað er, að f haust verði slátr- að hér um 6.000 fjár. Reiknað er með, að fallþungi dilka verði minni en í fyrra. Úrtak sem gert var fyrstu daga sauðfjárslátrun- arinnar, bendir til, að fallþungi verði um 1 kg minni á dilk, en í fyrra, en líkur eru þó á, að þessi munur verði minni — B. S. Tóbakið hœkkar Enn einu sinni dundi ein hækk- unin á tóbaki yfir og nú hækkaði það um 18% og fór einn pakki af vindlingum í 800 kr. pakkinn. Það hefur sjálfsagl ekki farið fram hjá neinum að til þessa hefur ekki verið eðlilegt hvað verslanir hafa átt lítinn tóbakslager eftir hverja hækkun og nú er bara að sjá hvað verður í þetta sinn. f þessu sambandj má minna á að f fyrra þegar ekkert tóbak var afgreitt frá Á.T.V.R. vegna verk- falls, dugðu tóbaksbirgðir verslana bara hel . . . lengi. Norðfjarðardeild Neytendasam- takanna. vjmr mr aot w onr Litla dóttir okkar Sigríður María verður jarðsungin frá Norð- fjarðarkirkju föstudaginn 16. nóv. kl. 14.00. Þyri Sigfúsdóttir Ágúst Guðmundsson Austfirðingar Sparið fé og fyrirhöfn og búið í hjarta borgarinnar, j>ar sem leikhús, verslanir og önnur Jtjónustufyrirtæki eru í seilingarfjarlægð. Njótið jtægilegs umhverfis, góðra veitinga og 1. flokks j>jónustu á Hótel Borg. — Verið velkomin. Munið helgarferðimar og hagstæð kjör á hópferðum. Hóiel Borg í fararbroddi í hálfa öld. Frá Iðnskóla Austurlands 3. áfangi. verður starfræktur á vorönn 1980 og hefst um miðjan janúar. Þeir nemendur sem hug hafa á námi við skólann hafi vinsamlegast samband við skólastjóra sem fyrst í síma 7620 eða 7136, Neskaupstað. SKÓLASTJÓRl

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.