Austurland - 15.11.1979, Qupperneq 2
__________Æusturmnd_________________________
Málgagn Alþýðubandalagsins á Austurlandi
Rítnefnd: Ágúst Jónsson, Árni Þormóösson, Bjarni Þórðarson,
Guðmundur Bjamason og Kristinn V. Jóhannsson.
Ritstjóri: Ólttf Þorvnldsdóttir (. 7371 — h. s. 7374.
Angiýsincar og drniflng: Biraa Gcirsdóttir «. 7571 og 7454.
Pósthólf 31 — 74« Neskanpstað.
Ritstjórn, afgrelðsln, anglýsingar: Efflsbraut 11, Neikanpstað
sánsi 7571.
Prentnn: Nasprent.
Útgefandi kjördæmisráð Alþýðubandalagsins
Þjófstart Sverris
Fyrir mánuði síðan skrifaði Sverrir Hermannsson ritstjóm-
argrein í Þingmúla. blað Sjálfstæðismanna á Fljótsdalshéraði,
undir fyrirsögninni „Til vopna“ og vakti hún nokkra athygli
fyrir opinskátt tal um stórfelldan niðurskurð og skert lífskjör
alira. Með orðum þessa fyrrverandi júngmanns Sjálfstæðis-
flokksins var áformunum m. a. lýst pannig: „Augljóslega verð-
ur nú um hríð að strengja klóna til hins ítrasta. Það verður
því aðeins gert, að pað komi mikið við alla. Óþarfa eyðslu
þarf að uppræta. Beinskera verður niður alla fjárfestingu svo
að braki í hverju tré . . .“
Mörgum þótti Sverrir taka hér djúpt í árinni og flytja
óvenju ómengaðan íhaldsboðskap. Nú er hins vegar komið
í ljós að hann endurómaði hér aðeins pá stefnu, sem verið var
að sjóða saman í júngflokksherbergi Sjálfstæðisflokksins og
birt var alþjóð með risaletri í Morgunblaðinu fyrir viku síðan
undir fyrirsögninni „Leiftursókn gegn verðbólgu". Þar er jafn-
vel enn sterkara að orði kveðið um niðurskurð og samdrátt
en í vopnabraki Sverris og bætt við afnámi verðtrygginga
á laun, þannig að launamenn standi berskjaldaðir gagnvart
verðbólgunni og verði að bera verðhækkanir og frjálsa versl-
unarálagningu bótalaust.
Raforkuverðið
Eitt af niðurskurðaráformum í kosningastefnuskrá Sjálf-
stæðisfiokksins er að afnema með öllu framlag úr rílcissjóði
til Rafmagnsveitna nkisins og fylgir með að Rafmagnsveit-
umar „ . . . verði relcnar án halla“. Hvað skyldi nú þessi boð-
skapur )>ýða fyrir okkur Austfirðinga sem nær einvörðungu
kaupum okkar raforku af Rafmagnsveitunum? Svar Sjálfstæð-
isflokksins er einfalt: Raforkuverð til ykkar verður HÆKK-
AÐ STÓRLEGA langt umfram verðbólgu og aukinn að sama
skapi mismunurinn á raforkuverði frá Rarik og til annarra
landsmanna.
Á p\í rúma ári sem vinstri stjómin sat, tókst að knýja
fram nokkra verðjöfnun á raforku J>annig að mismunur á
raforkuverði fór úr um 90% í 53,5% miðað við heimilistaxta.
Jafnframt féllst ríkisstjómin á, að framvegis skyldi ríkissjóður
fjármagna allar félagslegar og óarðbærar framkvæmdir sem
Rafmagnsveitunum er falið að standa fyrir en það er um 60%
af framkvæmdum Rarik á næsta ári, að mati stjómar fyrir-
tækisins. Með Jæssu móti hefði fjárhagsstaða Rafmagns-
veitnanna og aðstaða til verðjöfnunar í kjölfarið
gjörbreyst og enn frekar ef jöfnun heildsöluverðs á raforku
hefði náð fram að ganga með stofnun nýrrar landsvirkjunar.
Það var hins vegar Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkur-
inn í borgarstjóm Reykjavíkur sem bmgðu fæti fyrir j>etta
réttlætismál.
í kosningunum í byrjun desember gefst kjósendum færi
á að endursenda þessum flokkum ójafnaðarreikninginn og
kvitta fyrir samdráttar- og niðurskurðaráformum sem fyrst
af öllum mun bitna á landsbyggðinni og j>eim sem minnst
hafa til skiptanna. — H. G.
Neytendahorn
Fró Norðfjarðardeild NS
Ailmargir hafa lýst ánægju sinní
með síðustu verðlagskönnun og
er það vel. En aðrir hafa lítinn
áhuga á þessu og er það miður
því verðkannanir hafa tvímæla-
laust sannað gildi sitt, þar sem þær
hafa verið gerðar nokkuð reglu-
lega.
Það var ekki biíist við að neyt-
endur hlypu á milli verslana, allt
Cheerios
Coco Puffs
Paxo rasp
Bl. ávextir niðurs. heil ds.
Epli rauð 1 kg.
Appelsínur 1 kg
Egg 1 kg
Melroses te 20 stk.
Kavíar 95 gr.
Ferskjur niðursoðnar
Perur niðursoðnar
Colgate tannkrem 140 gr.
Wim ræstiduft 297,9 gr.
Ajax hreingerningalögur 820 ml.
Lux sápa lítil
Suðusúkkulaði 200 gr.
Kókosmjöl 100 gr.
Sírop
Hrísmjöl Pama
eftir því hvar hver vara væri ódýr-
ust. Þetta var gert til þess að
neytendur gætu séð hvar hag-
kvæmast væri að versla í heildina,
en það kemur fyrst í ljós þegar
sem flestar vörutegundir hafa ver-
ið bornar saman.
Til þessa hafa verðkannanirnar
eingöngu náð til matvara og
hreingerningavara og mun sjálf-
Óskar Bj. Bj.
425
595
225 165
1058
660 650
525 740
1500
245 285
286 300
875 996
934 1065
550
510 gr. 297 450
186 135
990 1055
150
195 250
sagt verða þar framhald á þar sem
nánast er ómögulegt að bera sam-
an verð á öðrum vörum, þar sem
oftast er um aðeins eina verslun
að ræða sem hefur viðkomandi
vörutegund og vörumerki.
Annar þáttur í verðkönnunum
og ekki síður mikilvægur er verð-
gæslan sem slíkar kannanir hljóta
að leiða af sér.
Lína Kf. Fram
605
225 232
1020 1140
600 900
600 650
1570 1500
320 335
300 312
830 934
940 994
635 627
120 260
640
195 198
990 1054
245 200 gr. 438
520 862
325 276
Nýjung hjá Námsflokkunum
Námsflokkar Neskaupstaðar eru
nú að hefja vetrarstarf sitt. í
dreifibréfi sem borið hefur verið
út í bænum er gerð grein fyrir
starfinu. Þar kemur m. a. fram að
í vetur verður boðið upp á fram-
haldsnám í fjórum greinum, í
samvinnu við Gagnfræðaskólann,
þ. e. ensku, dönsku, íslensku og
stærðfræði. Námið er skipulagt
sem byrjun á framhaldsnámi, en
hentar engu síður þeim, sem ein-
göngu hafa áhuga á að hressa upp
á gamla kunnáttu eða afla sér auk-
innar þekkingar. Hér er um
nýjung að ræða sem sérstök ástæða
er til að vekja athygli á.
Auk framhaldsnáms er boðið
upp á ýmis styttri námskeið s. s.
í bókbandi hnýtingum, blaða-
mennsku o. fl.
6 þús. fjór
slátrað á
Fáskrúðsfirdi
Slátrun hófst í sláturhúsi Kaup-
félags Fáskrúðsfirðinga 24. sept. í
fyrstu fór fram slátrun nautgripa,
en síðan tók sauðfjárslátrunin við.
Áætlað er, að f haust verði slátr-
að hér um 6.000 fjár. Reiknað er
með, að fallþungi dilka verði
minni en í fyrra. Úrtak sem gert
var fyrstu daga sauðfjárslátrun-
arinnar, bendir til, að fallþungi
verði um 1 kg minni á dilk, en
í fyrra, en líkur eru þó á, að
þessi munur verði minni — B. S.
Tóbakið
hœkkar
Enn einu sinni dundi ein hækk-
unin á tóbaki yfir og nú hækkaði
það um 18% og fór einn pakki af
vindlingum í 800 kr. pakkinn. Það
hefur sjálfsagl ekki farið fram hjá
neinum að til þessa hefur ekki
verið eðlilegt hvað verslanir hafa
átt lítinn tóbakslager eftir hverja
hækkun og nú er bara að sjá hvað
verður í þetta sinn.
f þessu sambandj má minna á
að f fyrra þegar ekkert tóbak var
afgreitt frá Á.T.V.R. vegna verk-
falls, dugðu tóbaksbirgðir verslana
bara hel . . . lengi.
Norðfjarðardeild Neytendasam-
takanna.
vjmr mr aot w onr
Litla dóttir okkar Sigríður
María verður jarðsungin frá Norð-
fjarðarkirkju föstudaginn 16. nóv.
kl. 14.00.
Þyri Sigfúsdóttir
Ágúst Guðmundsson
Austfirðingar
Sparið fé og fyrirhöfn og búið í hjarta borgarinnar,
j>ar sem leikhús, verslanir og önnur Jtjónustufyrirtæki
eru í seilingarfjarlægð.
Njótið jtægilegs umhverfis, góðra veitinga og 1. flokks
j>jónustu á Hótel Borg. — Verið velkomin.
Munið helgarferðimar og hagstæð kjör á hópferðum.
Hóiel
Borg
í fararbroddi í hálfa öld.
Frá Iðnskóla
Austurlands
3. áfangi. verður starfræktur á vorönn 1980 og hefst
um miðjan janúar.
Þeir nemendur sem hug hafa á námi við skólann hafi
vinsamlegast samband við skólastjóra sem fyrst í
síma 7620 eða 7136, Neskaupstað.
SKÓLASTJÓRl