Svart á hvítu - 01.10.1978, Page 7
tík að það sé æskilegt, og eftirsóknarvert. En því er
bara ekki til að dreifa hér. Víða erlendis eru hreinar
fjárveitingar ætlaðar til þess að leikhópar komi á
staði svo sem barnaheimili, skóla o. s. frv. En þar
eru aðstæður svolítið öðruvísi en hér, og kannski
ekki ástæða til þess að við gleypum svona hug-
myndir hráar. Á íslandi er leikhúsið ekki eins stétt-
bundið og víða erlendis. Þar er ýtt undir það að
reynt sé að fara með leikhúsið út til fólksins, vegna
þess að þar er þaö sums staðar bara einhver yfir-
stétt eða efri millistétt sem kaupir sig inn í leikhús á
Úr Skollaleik:
Þorleifur Kortsson: Hálfur heimurinn og meira til er þegar á
valdi djöfulsins. Viö veröum aö berjast gegn yfirráðum
hans meö öllum tiltækum ráöum.
almennum markaði. Þar hefur það verið vandamál
að ná til áhorfenda. En hérna fer fólk mikið í leik-
hús, alls konar fólk.
Hvað er a' dagskránni hjá ykkur í vetur?
Arnar: Það er verið að æfa barnaleikrit sem
verður sýnt í skólum. Það heitir Vatnsberarnir og er
eftir Herdísi Egilsdóttur. Svo verður sýndur gam-
anleikur eftir Dario Fo sem heitir Við neitum að
borga. Sýningarnar verða í Lindarbæ sem við erum
búin að taka á leigu frá 1. nóvember.
Þórhildur: Um það leyti fara í gang æfingar á
öðru barnaleikriti. Vió ætlum að reyna að hafa
barnasýningar í gangi í allan vetur. Svo er í bígerð
sérstök sýning fyrir unglinga, sem erfitt er að segja
nokkuð til um á þessu stigi málsins. Það má nátt-
úrulega nefna það, að meiningin er að reyna aö
hafa vikulega, það sem við höfum kallað pólitískan
kabarett. Það verða svona styttri prógrömm sem
kannski verður síðan skipt um með vissu millibili.
Arnar: Þá er miðað viö það að fólk geti komið og
setið við borð í rólegheitum. Borgað kannski helm-
ing miðaverðs inn og keypt svo kaffi eða öl.
Eruð þið bjartsýn á starfsemina?
Arnar: Já, að sjálfsögðu.
Þórhildur: Ég er nú alltaf svartsýn og hef hugsað
mér að halda því áfram.
Guðbrandur Siglaugsson
Vonbrigðasútra
Ég hélt ég væri regnboginn
sem lagðist á gólfið
Helga óf ángurværum stundum
í brúnt band
Gísli teymdi úr Ijóðum
laungu stirðnuð andartök
skrælnuð —
dufti blés hann út á Miklubraut
Og ég
sem hélt ég væri regnbogi.
SVART Á HVÍTU
Þúsund billjón ár
Þúsund ár
er ekki neitt
ekki nokkur
helvítis viðburður
aftur á móti þetta
... æ
ég missti víst af því.