Svart á hvítu - 01.10.1978, Page 11

Svart á hvítu - 01.10.1978, Page 11
söguna af brúðkaupinu í Kanaan þar sem Jesú breytti vatni í vín. Einn þorpsbúanna, sem er nokk- uð við skál, truflar sífellt frásögn erkiengilsins og þykist þekkja söguna betur. Um síðir gefst erki- engillinn upp og sá fulli fær að segja sína útgáfu af sögunni, þar sem vín var á þrotum og einn drykkjuglaður brúðkaupsgestur, Jesú að nafni, reddaði frekari drykkjarföngum. Hann var nefni- lega þeirrar skoðunar að maður ætti að njóta há- tíða og lífsins yfirlitt og ekki leggja trúnað á það sem valdhafar og auðmenn segja: að lífið byrjaði ekki fyrr en eftir dauðann. Verkamaður missir tvo fingur við vinnu sína. Læknar eru ráðalausir og skrifa upp á heilsubótar- för til Lourdes. Ferðasjóður páfa fær svo sinn hluta af sjúkrasamlagsgjöldum verkamannsins, því hver veit nema fingurnir vaxi aftur á hann í Lourdes . . . Og svona heldur Fo áfram að segja sögur, frum- samdar, úr biblíunni, af prestum, páfum og öðrum valdsmönnum, gamlar og nýjar í þrjár klukku- stundir. Án nokkurs sviðsbúnaðar, aðeins með lít- inn hljóónema um hálsinn. Grundvöllurinn að leik hans er eins náiö samband við áhorfendur og unnt er — svo náið að það er engu líkara en hann sé að tala við hvern og einn. Þetta nána samband leikara og áhorfenda, áhugi þeirra hvor á öðrum, er al- þýðuleiklist í upphaflegri mynd sinni. Fo á auðvitað vinsældir sínar líka að þakka frábæru skopskyni og fullkomnu valdi sínu á leikrænni tjáningu þegar hann tekur á sig tugi gerva í þrjár klukkustundir. Síðari hluti þessa mikla verks er svo umræður við áhorfendur. Verkum sínum ætlar Fo ekki að vera afþreying laus við beint samband viö veruleikann utan sviös. La Commune álítur starfsemi sína grundvöll fyrir pólitískar umræður, ekki bara um leikritið sjálft og túlkun á því, heldur líka um almenn efni sem snerta áhorfendur. „Leikrit á að ögra til mótmæla, þvinga til samþykkis — fagurfræðilegt hlutleysi á þar eng- an sess." Byltingin mun sigra Eftir að slitnaði upp úr samstarfinu við PCI og ARCI varð Fo enn róttækari. Fyrsta verkiö sem Collectivo teatrale la Commune setti sjálfstætt á svið fjallaði um andspyrnuhreyfinguna gegn fas- ismanum á Ítalíu á stríðsárunum. f verkinu er henni líkt við frelsishreyfingu palestínuaraba. í kjölfarið fylgdu Vorrei moriare stasera, se douvessi pen- sare, che non e servito a niente (Vildir þú deyja í kvöld ef þú vissir að það væri til einskis) og Tuttu uniti — tuttu insiema! Ma scusa, quello non e il padrone? (Allir með okkur — allir saman, en af- sakið hver er eiginlega yfirmaöurinn hér?) um stéttabaráttuna á ítalíu frá 1911 — 22, fram að valdatöku fasista. La Commune einskorðar sig þó ekki við söguleg viðfangsefni heldur lítur á sjálft sig sem möguleika til andsvars við pólitískri atburðarás hversdagsins. „Byltingin mun sigra“ heitir einn af söngvum La Commune og Fo bætir við: „ekki af sjálfu sér, heldur aðeins ef hún nær að fikra sig áfram skref fyrir skref í huga og hjarta hinna kúg- uðu. Það er ekki nóg að upplýsa um hinar dularfullu aðferðir stjórnvalda til að halda almenningi og rót- tækum öflum í skefjum, það verður líka að sýna fram á möguleika til að sigrast á þessum aðferðum. Það er skylda okkar sem leikhúsfólks að varpa Ijósi á og taka pólitíska afstöðu til þess sem er að gerast í þjóðfélaginu. Sú fræðsla á ekki að vera eins og í skóla heldur eins og í leikhúsi. Þess vegna notum við farsaformið þar sem hláturinn situr í öndvegi." í lok ársins 1969 sprungu sprengjur á Piazza Fontana og í banka nokkrum í Mílano. Enda þótt Ijóst væri þegar frá upphafi málsins að sökina báru fasistar, svifust lögregla, og ríkisstjórnin að baki henni, einskis í viðleitni sinni til að skella skuldinni á vinstrimenn og kommúnista. Lögreglan beitti m. a. fyrir sig Ijúgvitnum, fölskum sönnunargögnum og jafnvel moröum, enda reið nú á aö fullkomna hægri sveifluna í ítölskum stjórnmálum, sem og tókst. Daginn eftir að stjórnin hafði látið verðuga minn- ingarathöfn fara fram um þá 17 sem bana biðu í tilræðunum og að sama skapi vítt harðlega öll öfgaöfl undirrituðu verkalýðsfélögin alla samninga. 14000 kærur, handtöku- og húsleitunartilskipanir voru gefnar út á hendur verkafólki, verkalýðsleið- togum og stúdentum sem tekið höfðu þátt í óeirðum undanfarna mánuði. Ríkið, sem lítur svo á að það sé sprottiö upp úr andspyrnunni við fasismann er sjálft farið að beita fasískum aðferðum. Þessir við- burðir eru uppistaðan í leikritinu Morte accidentale di un anarchio (Stjórnleysingi deyr af slysförum) sem sýnt var einmitt meðan klækir lögreglunnar voru að koma upp á yfirborðið. Auðvitað var einskis látið ófreistað til að hindra sýningar á verkinu. Sýningar urðu 280 og enduðu flestar hjá lögregl- unni. Árið 1972 endursamdi hópurinn svo verkið í Ijósi nýrra upplýsinga um aðferðir lögreglunnar í bar- áttu hennar við vinstriöflin. í því verki, Pum, Pum chi e la? La polizia!, er pólitísk atburðarás áranna SVART Á HViTU 9

x

Svart á hvítu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Svart á hvítu
https://timarit.is/publication/821

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.