Svart á hvítu - 01.10.1978, Side 25
Gallerí tímaritsins
Umsjón
Eggert Pétursson
Ingólfur Arnarsson
Endre Tót (bis.25-27)
Fæddur 0000, Sumeg/Ungverjalandi,
búsettur í Búdapest.
Tót hefur vélritað rigningu, unnið með núll og ,,l am
glad if . . síðan 1971. Hann er barnakennari að
atvinnu, en í ár hlaut hann DAAD styrkinn sem
gefur honum kost á að dvelja í Vestur Berlín í eitt ár.
Eftir nokkurt þref við yfirvöld í Ungverjalandi tókst
honum að fá vegabréfsáritun. Tót hefur haldið
fjölda sýninga í Austur og Vestur Evrópu og telst án
efa einn helsti málsvari óopinberrar listastefnu
Austantjalds. Sýning á regnspurningum Endre Tót
stendur yfir í Gallerí Suðurgata 7 frá 18.11. til 3.12.
1978.
Endre Tót
H-1035 Budapest
Kerék u. 10
Gabor Attalai (bis.28-29)
Fæddur í Ungverjalandi 1934,
búsettur í Búdapest, starfar sem hönnuöur.
Gabor Attalai er einnig einn af forvígismönnum
austur-evrópskrar neðanjarðarlistar. Verkin sem
hér birtast eru unnin á fyrri hluta þessa áratugs.
Attalai vann á þeim tíma mest með líkamlega tján-
ingu, samspilinu: maður/maöur, maður/umhverfi
og eigin snerting. Nokkur síðast liðin ár hefur
Attalai nær eingöngu unnið að gríðarstóru sam-
hangandi verki ,,Red-y mades" (Rauðgervingar).
Hluta af því verki mátti sjá á sýningunni ,,Red-y and
post Red-y mades“ í Gallerí Suðurgata 7,
26.8,—10.10. 1978.
SVART Á HVÍTU
23