Svart á hvítu - 01.10.1978, Qupperneq 36

Svart á hvítu - 01.10.1978, Qupperneq 36
Austri greyið upp andann fjórum mánuðum fyrir þann atburð sem á sér stað hér og nú og því þarft þú Krissi minn, ekki að leggja út fé til að láta dýra- lækni svæfa hann. En ég man alltaf hvaó ég hló þegar þú smámæltur mæltir: „Ég elska kiskis“.‘‘ Andlit gömlu konunnar Ijómaði sem snöggvast. Krissi brosti einnig og móóir hans hélt áfram: „Ekki höfum viö búiö hér alla okkar ævi. Það er mikilvægt fyrir lesendurna að hafa það hugfast, Krissi minn, ef þeir eiga að skilja hvernig landið liggur. Ekki það að mér sé sérstaklega umhugað um að þeir séu með á nótunum, en mér finnst all- tént að þú eigir að ráða hvort þeir skilji eður ei. Nei, — annars staóar bjuggum við, heillin góð. Þegar þú varst á aldrinum sex til níu ára, bjuggum vió í útjaðri smáborgar nokkurrar, í húsi með garði og járnbrautina við garöshorniö. Tvær lestar gengu þar um á dag, — í raun voru þær sama lestin, að skakast til sultuverksmiðjunnar og til baka, meðan ég stóð við aö raka . . . en nú er ég komin út í stuðla . . .“ Gamla konan var óhress yfir þeirri yfirsjón og sló léttilega á handarbak sér áður en hún tók aftur uþþ þráðinn: „Þú lærðir fljótt að leggja skildinga á teinana og rannsaka hvernig sneisafullar lestir flöttu þá ræki- legar en þær sem til baka komu. Öjá, þá áttum viö aurana . . . Svo höfðum við aögang aö gati á girð- ingu kringum járnbrautargeymslurnar. Þá var nú gaman. Þaö leiö ekki á löngu uns þú varst farinn að gera tilraunir með glerbrot á teinunum og þróaðir upp úr því ódýra framleiðsluaðferð á glerdufti. Ég var yfir mig hreykin af þér, — hve hugvitsamlega þú kunnir að fara meö ýmiss konar eitur og litaðar glerflöskur til að búa til þúður í hinum fegurstu blæbrigöum". Gamla konan var nú annars hugar um stund og fornar minningar virtust glóa í huga hennar eins og skrúðblóm á vörmum sumardegi. Síöan féll skuggi á andlit hennar er henni varð hugsað til þess sem þær minningar leiddu af sér og um þann hluta frá- sagnarinnar sagðist henni: „Síðan var það óheilladaginn sem vagnstjórinn stöðvaði lest sína og fleygði í þig ýmsu rusli af þrautinni, saklaust þarnið . . . Hvern skal undra þótt sá atburður hafi haft úrslitaáhrif á afstöðu þína til allra yfirboöara síöar meir? Áfall af þessu tagi hlýtur að setja sitt mark á hegðunarmynstur barnsins. Þetta er einnig gott dæmi um það hve mikilvæg landafræðin hlýtur að vera lesendum, því vart er hægt að hugsa sér þennan atburð án þess að gera sér grein fyrir því aö viö þjuggum nálægt járnþrautateinum". Gamla konan þagnaði nú, eins og til að leggja áherslu á alvöru málsins, alvara málsins varð öllum Ijós og hélt hún þá áfram: „Það var ég sem fyrst sagöi þér brandarann um Guð, mundu það, — sem hæstvirtur lesandi á ef- laust eftir að heyra í tíma og ótíma". Enn gerði móðir Krissa hlé á ræðu sinni. Hætta skal leik er hæst hann stendur, hugsaði hún og hóf svo aftur upþ raust sína: „Vér hugsum með tilhlökkun til dómsdags, þegar bundinn verður endi á allan vorn órétt, — þegar við munum sannreyna að gjörðir vorar voru réttar og Ijós réttlætingar vorrar mun skína yfir jarðkringl- unni. En af þessu verður nú ekki. Munum þara að dómsdagur mun aldrei renna upp, nema fyrir ein- hverja slysni. Nóg er um óhöppin og getur því hvert okkar átt sér eigin dómsdag. Við munum geispa golunni þegar viö síst þúumst við, — með allt í steik, óklárað, vanhugsað, — ímynd ringulreiðar. Og þótt við skiljum að allt sé óskaþnaður, án hald- festu, þá er sá skilningur um leið andsvar gegn ringulreiðinni og hlýtur því að vera hjóm eitt“. Að þessari ókræsilegu rökræðu lokinni, geröi móðir Krissa nú hlé á máli sínu í síðasta sinn. Lauk hún orðum sínum á þennan veg: „Hér er ég eigi lengur aufúsugestur. Ég hefi lifað eins mikið af lífi mínu og ég kæri mig um. „öll munum við burtkallast" segir ritningin. Varla get ég sagt að ég sé hamingjusöm, — en hver getur í raun sagt það um sjálfan sig? En ég er sátt viö tilveruna. Og þú þarft ekki að nota aukabirgðirnar af lagmeti, því nægur matur er til í kotinu, ef svo skyldi fara að þú misstir matarlystina vió dauöa minn. Húsið skalt þú eiga. Á þankabók á ég þeninga fyrir sómasam- legri útför, hafir þú yfirleitt áhuga á slíkum sóma. Afganginn eftirlæt ég þér í sama ástandi og ég tók viö því, þ.e. ringulreiö." Móöir Krissa dó. Fjórði kafli — í hverjum hungraðri geit er rétt hjálparhönd „Hvers vegna er útför nauðsynleg?" spuröi Krissi. „Hún er venja" svaraði útfararstjórinn. „Veit ég það“ kvað Krissi, „en af hverju er hún nauðsyn?" „Svona hefur þetta alltaf verið“ sagöi útfarar- stjórinn, „og svona verður þetta um alla framtíð". Ég vildi að ég hefði þína trú, hugsaði Krissi. Og hann verður að fara í mál viö mig til að fá greiðslu. Og neiti ég aö borga, hvaö getur hann sosum gert? Það á að brenna móður mína og því getur hann varla hótað að láta grafa hana upp aftur. Hann verður að láta sér lynda aö gera eitthvað við ösk- una. Krissi var eini syrgjandinn, þar sem sþarsemi í persónusköþun (eins og mörgu öðru) er einn af höfuðkostum þessarar skáldsögu. Prestur sá sem fenginn hafði verið til að stjórna athöfninni, söng af ástríðu og sannri innlifun, einn og sér, án þess aö kippa sér upp við augnagotur Krissa. Kistan skoppaði gegnum lágar eikardyr, niður í hreinsunareldinn. Þegar Krissi gekk til dyra sá hann að presturinn haföi hlaupið eftir einhverjum leynistigum til að geta veriö við útganginn og hug- 34 SVART Á HVÍTU
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Svart á hvítu

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Svart á hvítu
https://timarit.is/publication/821

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.