Birtingur - 24.12.1953, Blaðsíða 9

Birtingur - 24.12.1953, Blaðsíða 9
TÓNLIST fyrír ungt fólk í október-mánuði 1940 var liafin í Briissel í Belgíu starfsemi, sem síðan hefur breiðzt út um önnur lönd með ótrúlegum hraða og hvarvetna unnið sér vinsældir. Upphafsmaður þessarar hreyfingar var Marcel Cuvelier, forstjóri Phil- harmoniska félagsins eða Tónlistarfélagsins þar í borg. Tilgangur hans var margþættur. Fyrst og fremst vildi hann skapa tónlistaráhuga með- al unglinga, hafa holl áhrif á tónlistarsmekk æskunnar og gefa efnalitlum æskumönnum kost á að sækja vandaða tónleika án þess að ganga of nærri pyngju þeirra. Loks vildi hann á þenn- an hátt hamla upp á móti áróðri nazista, sem þá þegar glumdi hátt í eyruin æskulýðsins í Belgíu. Það má vera, að síðastnefnda ástæðan hafi verið sú sem réð úrslitum um það, að hafizt var handa um þessa hreyfingu einmitt á þessum tírna. En Marcel Cuvelier hafði lengi velt hug- myndinni fyrir sér, og það fylgi sem hún hefur fengið, í Belgíu og annars staðar, eftir stríðið, hefur sannað ótvírætt, að hreyfingin á fullan til- verurétt einnig á friðartímum og meðal frjálsra þjóða. — En hernaðarástandið í Belgíu 1940 olli því, að allar framkvæmdir urðu erfiðar; hernámsliðið hafði auga á hverjum fingri og var hvorttveggja í senn forvitið og tortryggið, svo að fyrstu tónleika samtakanna, sem voru haldnir veturinn 1940—41, var ekki hægt að auglýsa opinberlega, heldur varð að láta orð um þá berast frá manni til manns, en þó urðu tónleikarnir þennan vetur fimm talsins, og að jafnaði sóttir af meira en 2000 áheyrendum. llefur þessi starfsemi síðan aukizt jafnt og þétt, og á árunum eftir stríðið hefur hún breiðzt ört út frá Belgíu til annarra landa, en aðalsetur al- þjóðasamtakanna er þó í Briissel. Hreyfing ^ólaleilziii £ eilzj^élatjs Re\jlziaOíkui Leikfélag Reykjavíkur sýnir á 2. í jólum gamanleikinn Skóli fyrir ska.Ugreiðendur, sem hlotið hefur feikilegar vinsældir. Á milli jóla og nýárs verður frumsýning á leikritinu Mýs og menn, gert eftir samnefndri skáldsögu Jolin Steinheck í þýðingu Ólafs Jóh. Sigurðssonar. Brynjólfur Jóliannesson og I'orst. O. Stephen- sen leika aðalhlutverkin, kumþánana Georg og Lenna, Gísli Halldórsson Slim og Steindór Hjörleifsson Candy. Einar Ingi Sigurðsson fer ineð hlutverk Curleys og Erna Sigurleifsdóttir konu hans — eina kvenpersónan í leiknum. BIRTINGUR Elín Ingvarsdóttir og Arni Tryggvason í Shóli fyrir skatt- greiðendur. Síðast en ekki sízt ber að nefna svertingjann Crooks, leikinn af Alfreð Andréssyni. Leikstjóri verður Lárus Pálsson. 9

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/822

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.