Alþýðublaðið - 06.11.1923, Síða 4
'ALÞYÐUBLAÐIÖ
4
flutt út vörur fyrir 930 þús. sterl-
ingspund, en flutt inn vörur fyrir
170 þús. sterlingspund. A mark-
aðinum í Nisjneij Novgorod seldi
sambacdið vörur fyrir 15 mill-
jónir gullrúblna.
Amerísk friðarverðlaun.
Edward W. Bok í Philadel-
phiu í Bandaríkjunum hefir látið
það boð út ganga, að hann
leggi fram 100 þús. doilara til
verðlauna handa þeim þegni
Brndaríkjanna, sem komi fram
með bezta fyrirhugun um for-
göngu Ameríkumanna ti! sam-
vinnu með öðrum þjóðum að
því að tryggja heimsfriðinn.
Verðiaunin eiga að heita >Ame-
rísku friðarverðlaunin«.
Um dapm og veginn.
Hjúskapur. Á laugardiginn var
voru gefin saman í hjónaband
Kristín Guðmundsdóttir og Guðjón
Benediktsson skáld frá Einholti
Enn fremur gaf séra Bjarni Jónsson
saman í hjónaband Jófríði Bórðar-
dóttur og Ólaf B. Erlingsson
prentaia sama dag.
Iíirkjaliljómleika heldur Páll
ísófsson organleikari í kvöld kl.
7 lj2 í dómkirkjunni með söng-
sveit karla og kvenna og aðstoð
Sigfúsar Einarssonar og Emst
Schachts.
Gleðskap halda Jafnaðarmanna-
félagið og Fólag ungra kommúnista
í sameiningu í Bárunni miðviku-
daginn 7. b. m. kl. 8 \jt e. h.
í tilefni af deginum. Gleðskapnum
lýkur með dansi. longangur (þar
með talið kaffi) 2 kr. fyrir hvern
mann. Inngöngumiðar fást í dag
og til kl. 6 á morgun hjá Jórti
Brynjóifssyni á afgreiðslu Alþýðu-
blaðsins.
Kosningaúrsllt. í Eyjafjarðar-
sýslu eru kosnir EÍDar Árnason
bóndi á Eyrarlandi með 1093 at-
kveeðum og Bernharð Stefánsson
bónii á Bverá með 900 atkvæðum,
Stefáu Stefanssou bóndi í Fagra-
skógi fékk 895 atkvæði, Sigurður
E. Hlíðar dýralæknir 682 og Stefán
Jóíiann Stefánsion lögfræðingur
304 atkvæði. Eru nú ókomin úr-
slit. úr að eins tveim kjördæmum
með þrem þingmönnum, Norður-
Múlasýslu, þar sem talið verður
upp hinn 15. þ. m., og úr Baiða-
strandasýalu, þar sem talið verður
upp hinn 20.
■Næturlæknlr i nótt M. Júl.
Magnús, Hverfisgötu 30. — Simi
410
Látin er í morgun úr heila-
himnubólgu húsfrú Ragnheiður
Brandsdóttir Bókhlöðustíg 6 B,
kona Guömundar Helgasouar sjó-
manns, en systir Eggerts Brands-
sonar fisksala.
Hjúskapur. 27. f. m. voru
gefin saman í hjónaband Kristín
Einarsdóttir og bakarameistari
Gísli Ólafsson.
Skrítlur.
>Nú, nú, Auna litla! Hvað
veizt þú um Móse?<
>Hann var sonur pripzessunn-
ar í Egyptaiandi.t
>Ónei; ekki var hann það.
Dóttir Faraós fánn hann dag
einn liggjandi í körfu úr sefi,
sem var á floti á ánni Níi.<
>Já; það ságði hún nú.<
* *
>Þið konur iifið ekki fyrir
annað en skraut og falleg föt.
Munið eftir Evu! Ekki var hún
svo.<
>J4; hún! En þá var ekki til
nema einn karlmaður, og hún
átti hann <
* *
*
>Hringdu til konunnar minnar
og segðu henni, að ég komi
ekki heim fyrr en seint.<
>Já, en á ég ekki að segja
neitt meira?<
>Þér gefst ekki færi á að
segja neitt meira.<
Merk ummælL
Það er ekki satt, að þjóð, sem
öllum þötfum hennar hefir verið
fullnægt og eigi þarf lengur að
berjast fyiir tilveru sinni, missi
smátt og smátt lífsþrótt sinn og
falli í dvala. ímyndunaraflinu
munu aidrei veiða nokkur tak-
mörk sett. Aft af mun vera margt
óþekt að öðlast. Fyrir hverja upp-
fylta þörf mun löngunin kalla
fram aðra nýja, og fullnæging
henpar mun hvetja mennina og
gera þá að hetjum vísinda og
fegurðar,
Emile Zola.
„Skjðldur“
Þunt mér >SkjaIdar< þykir stái;
þetta er Ijóta verjan.
Illa I zt mér á hann Pál,.
ef einhver viidi berja’ hann.
F.
Gyðingdómurinn í heiminum,
Árbók Gyðinga fyrir árið 1923
— 24 er nýkomin út. Af henni
má sjá, að í heiminum eru
15500000 Gyðingar, og eru þar
af tveir þriðju hiutar búsettir í
Norðuráifu, en einn þriðjl í Suð-
ur- og Norður-Ameriku. í Banda-
ríkjunum eru 3600350. Mesta
Gyðingaborg í heimi er New
York, og voru Gyðingar þar
árið 1920 1643012 eða því nær
þriðjungur áf íbúum borgarinnar,
og er reiknað, að þeim hnfi á tveim
árum fjölgað um 140000. í Chi-
cago eru 225000, í Phiiadelphiu
200000 og í Boston 77500 Gyð-
ingar.
Framlelðslutækin efga að
vera þjóðareign.
Rltstjóri og ábyrgðarmaðnr: Halibjörn Haddórsson,
Prentsmiðja Hallgríms Benediktssonar, Bergstaðastraeti 19,