Austurland - 05.01.1984, Síða 1
M &
Austurland
34. árgangur.
Neskaupstað, 5. janúar 1984.
1. tölublað.
Engar áætlunarferðir á landi
til og frá
Neskaupstað
Samgöngur Norðfirðinga eru nú komnar
í algjort óefni. Sérleyfishafarnir „Benni og
Svenni“ sem hafa séð um áœtlunarferðir
milli Neskaupstaðar og Egilsstaða hafa
hœtt ferðum þar eð þeir sögðu sérleyfinu
lausu í haust frá og með 1. janúar sl.
Ferðir í flug til Egilsstaða
hafa verið leystar frá degi til
dags með því að leigja hópferða-
bifreið til þeirra og óvíst með
framhald á því. Sama er að segja
um póstflutninga þar hefur
einnig verið leigð bifreið frá
degi til dags og engin lausn í
sjónmáli.
AUSTURLAND hafði sam-
bandi við Svein Sigurbjarnarson
einn af eigendum „Benna og
Svenna". Hann sagði að þeir
væru hættir, rekstrarhalli sl. ár
hafi verið 40% og eru þá póst-
tekjurnar inni í myndinni en
ekki rekstur snjóbílsins sem
væri sérkapítuli út af fyrir sig.
Hann sagði að svona væri hrein-
lega ekki hægt að halda lengur
áfram. Um möguleika til úrbóta
sagði hann að þeir hefðu lagt
áherslu á, að leiðin Neskaup-
staður - Egilsstaðir - Neskaup-
staður verði auglýst sem eitt sér-
leyfi og þá væri væntanlega hægt
að gera út eins og hjá mönnum.
Peir hafi hins vegar orðið að
bjóða upp á gamla bíla og lág-
markskostnað en það engan
veginn nægt til. Reyndar væri
spurningin hvort yfirleitt væri
hægt að reka sérleyfi á þessari
leið mað hagnaði en allavega
útilokað á þann hátt sem nú er.
Spurningu AUSTUR-
LANDS um það hvort útlit sé á
Ljósm. Jóhann G. Kristinsson.
m
að þessi aðgerð beri árangur í
sameiningarátt svaraði Sveinn:
„Ég trúi ekki öðru fyrr en ég tek
á því. Ég ætla þeim mönnum
sem þessu ráða ekki það litla
dómgreind og lítið þor að þeir
taki ekki á málinu á þann eina
hátt sem dugir.
Sérleyfið
auglýst laust
til umsóknar
Bæjarstjórnirnar báðu ráðuneytið
um viðræður við sérleyfishafa
Ráðuneytið hefur ekkert aðhafst
Bæjarstjórnir Eskifjarðar
og Neskaupstaðar hafa báðar
ályktað um sérleyfismálið og
skrifað samgönguráðuneytinu
og skorað á það að taka málið
upp og beita sér fyrir því að
sérleyfi fólks-, vöru- og póst-
flutninga á leiðinni Neskaup-
staður - Eskifjörður - Reyð-
arfjörður - Egilsstaðir verði
sameinuð í eitt. Bæjarstjórn
Neskaupstaðar óskaði eftir
því að ráðuneytið hæfi strax
viðræður við sérleyfishafa.
Ráðuneytið hefur hins vegar
ekkert aðhafst í málinu.
AUSTURLAND náði
símasambandi við Ólaf Steinar
Valdimarsson skrifstofustjóra
í samgönguráðuneytinu og
spurði hann hvað ráðuneytið
ætlaði að gera. Hann sagði að
ráðuneytið hefði engin ráð.
Það hefði ákveðið að bíða
átekta fram yfir áramót og sjá
hvort sérleyfishafarnir leystu
ekki málið sjálfir sín á milli.
Nú væri hins vegar ljóst að eitt-
hvað þyrfti að gera.
Um sameiningu leyfanna
sagði hann að hann hefði aldr-
ei séð neitt bréf frá Neskaup-
stað og að ráðuneytið hefði
ekki heimild til að sameina
leyfin. Er AUSTURLAND
benti honum á að umrædd leið
hafi verið eitt sérleyfi en sér-
leyfishafinn hætt ferðum á
óarðbærasta kaflanaum en
haldið öðrum hluta leyfisins
„fleytt rjómann ofan af“ vildi
hann lítið um þau mistök
segja. Sagðist hins vegar
myndi ræða við skipulags-
nefnd fólksflutninga um
málið.
Ákvörðunarboltinn frægi sem
mönnum er svo gjarnt á að kasta
á milli sín eða að minnsta kosti
frá sér, hefur farið á milli
nefnda, stjórna og ráða í sér-
leyfismálinu.
AUSTURLÁNDI sýnist sem
svo að nú sé hann í höndum
„Umferðamáladeildar eða
Skipulagsnefndar fólksflutn-
inga“ sem sé umsagnaraðili til
ráðuneytis.
AUSTURLAND náði tali af
Einari Ögmundssyni forstöðu-
manni Umferðamáladeildar,
sem auglýst hefur sérleyfið laust
til umsóknar og spurði hann
hvort sú ákvörðun að auglýsa
sérleyfið ætti að sýna að ekki
ætti að sameina leyfin og að búið
væri að taka ákvörðun um það.
Einar sagði að það væri rétt,
búið væri að auglýsa sérleyfið
eins og það er nú þ. e. tvö sér-
leyfi á leiðinni Neskaupstaður -
Egilsstaðir - Neskaupstaður og
það er annað þeirra laust.
Hann sagði aðalatriðið vera
að koma á ferðum á ný. Þeir
hafi ekki vitað af rekstrarerfið-
leikum á leiðinni fyrr en í haust
að uppsagnarbréf „Benna og
Svenna“ barst þeim, og ekki
væri nema ár liðið frá því að þeir
sóttu um umrætt leyfi án þess
að nefna sameiningu eða rekstr-
arörðugleika. Trúlega hafi
ástandið versnað að mun á þess-
um tíma.
Einar sagði að þeir hjá Um-
ferðamáladeild fólksflutninga
hefðu ekki heimild til að sam-
eina sérleyfin.
Spurningu AUSTUR-
LANDS um það hver hefði slíka
heimild svaraði hann að ráð-
herra og ráðuneyti hefði hana
en skipulagsnefnd fólksflutn-
inga (sem Einar á sæti í) væri
umsagnaraðili.
Einar sagði að menn hefðu
hringt og spurst fyrir um sérleyf-
ið en treysti sér ekki til að segja
til um það hvað yrði gert í mál-
inu ef enginn sækti um leyfið
fyrir 20. jan. nk.
Og nú er spurningin hvort
einhver fyrirfinnst sem reiðubú-
inn er til að taka að sér umrætt
sérleyfi við þessar aðstæður.