Austurland - 09.02.1984, Blaðsíða 1
Austurland
Alþýðubandalagið
Neskaupstað:
Félagsvist
í Egilsbúð kl. 845 í kvöld
34. árgangur.
Neskaupstað, 9. febrúar 1984.
6. tölublað.
Frá Vopnafirði:
Eyvindur Vopni
kominn
Tíðarfar hefur verið hér um-
hleypingasamt að undanförnu,
snjólétt en óvenju mikil svella-
lög.
Fremur dauft hefur verið yfir
atvinnulífinu, m. a. vegna þess
að vélarbilun varð í Eyvindi
Vopna, fyrst í desember og
komst hann ekki á veiðar fyrr
i lag
en um miðjan janúar. Eftir þá
veiðiferð varð bilun í spildælu
sem nú er búið að gera við og
er Eyvindur nú í sinni annarri
veiðiferð á árinu. Brettingur
landaði 100 tonnum sl. mán-
udag og vonast menn nú að úr
fari að rætast með atvinnuna.
G. S. I P. J.
Hvað veldur
seinaganginum?
Pótt undarlegt megi virðast
bólar ekkert á ákvörðun ráð-
herra í veitingu sérleyfisins Nes-
kaupstaður - Egilsstaðir. Um-
sögn skipulagsnefndar hefur nú
legið hjá ráðherra í viku og
finnst flestum óþarft um mál
sem sveitarstjórnir í þeim sveit-
arfélögum sem málið kemur
helst við hafa sýnt einróma
ákveðna afstöðu um.
Víst er að samgöngumálin
verður að leysa strax og sýnist
mönnum það í sjálfu sér undar-
legur hlutur að aðilar suður í
Reykjavík eigi að ákveða hvar
við hér fyrir austan kaupum
okkar þjónustu sem verður
raunin ef einhver önnur
ákvörðun verður tekin en sú
sem vilji manna hér fyrir austan
sýnir.
Mokveiði
Eftir hörmulegan janúarmán-
uð, lifnaði heldur betur yfir
loðnuveiðunum í síðustu viku.
Þá fór hún að birtast við suð-
austurströndina og þá loks í
veiðanlegum torfum. Er það
mjög í samræmi við reynslu
manna í gegnum tíðina. Loðnan
veiddist mest í síðustu viku á
svæðinu milli Hrollaugseyja og
Tvískers, en síðustu daga hefur
hún verið að fást út af Ingólfs-
höfða. Er hún því á vesturleið
og er ekki ósennilegt að hún
hrygni í Faxaflóanum, a. m. k.
þessi ganga, hvað sem síðari
göngum líður.
Mestu hefur nú á þessari ver-
tíð verið landað í Vestmannaeyj-
um, en þar voru allar þrær orðn-
ar fullar á mánudaginn var.
Mesta þróarrýmið er á Aust-
fjörðum, einkum á Eskifirði og
Seyðisfirði. Nú í byrjun vikunn-
ar var búið að landa eftirtöldu
magni hér á Austfjörðum:
Lestir
Seyðisfjörður S.R......................... 1.000
Seyðisfjörður ísbjörninn ................. 2.000
Eskifjörður ............................. 10.000
Neskaupstaður ............................ 7.000
Reyðarfjörður............................. 4.000
Stöðvarfjörður ........................... 1.000
Þessar tölur eru ekki ná- vert breyttar í lok vikunnar.
kvæmar og verða orðnar tölu- P. J.
Neyðarástand
hjá fólki á lægstu töxtum
..Þið settuð þessi lög sem eru
að troða fólk undir“, sagði
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir
við forsætisráðherra í umræðu-
þætti um kjaramálin í sjónvarpi
sl. þriðjudagskvöld er rætt var
um niðurstöðu kannana, sem
sýndu að stór hluti fólks sér
ekki lengur nokkra möguleika
á að komast af á eigin tekjum.
Það taka eflaust margir undir
þessi orð Aðalheiðar og einnig
að það sé ríkisstjórnarinnar að
sjá svo um að þessu neyðar-
ástandi verði aflétt og séð svo
um að allir hafi mannsæmandi
laun að lifa af.
Ásmundur Stefánsson, for-
seti ASÍ benti í sama þætti á,
að fólk á lægstu töxtunum
byggi við beint neyðarástand
og Guðmundur J. kvað
ástandið ætti eftir að versna ef
ekkert væri að gert bæði vegna
hótana um áframhaldandi
kjaraskerðingu og einnig
myndi verða minna um eftir-
vinnu.
Forsætisráðherra og fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambandsins sátu líkt og
sneyptir rakkar undir þessum
staðreyndum og vitnisburði
fólks sem fram kom í þættinum
og sýndi frarn á að laun þess
dygðu engan veginn fyrir
nauðþurftum. Og þegar spyrj-
andi þáttarins bað þá um að
svara því hvort þeir treystu sér
til þess að lifa af þeim tekjum
sem verið væri að fara fram á
sem lágmarkslaun 15 þúsund
á mánuði varð þeim svarafátt
og létu spurningunni ósvarað
enda forsætisráðherra nýbúinn
að lýsa því yfir að kaupið dygði
fyrir vellingi, sem væri ágætis-
matur.
Er þetta ástandið sem
stjórnarflokkarnir núverandi
lofuðu launafólki í vor?
Alþjóðlegt skákmót
í Neskaupstað
Ákveðið hefur verið að halda
alþjóðlegt skákmót í Neskaup-
stað um miðjan mars. Mótið er
haldið að frumkvæði Tímarits-
ins Skákar í samvinnu við Tafl-
félag Norðfjarðar og Skáksam-
band Austurlands. Þátttakend-
ur verða 12, þar af 4 erlendir
stórmeistarar og sterkustu skák-
menn íslendinga auk eins
heimamanns. Erlendur stór-
meistari skýrir skákir á
mótsstað.
Mótið mun standast kröfur
FIDE, Alþjóðasambandsins í
skák og þar verður hægt að
vinna áfanga til titils stórmeist-
ara, alþjóðameistar og FIDE-
meistara.
Samskonar mót mun verða
haldið í Grindavík fyrri hluta
mars.
Fjallað verður nánar um mót-
ið í næstu blöðum.
Hvað er að gerast í
málum kísilmálm-
verksmiðjunnar?
Sjá 2. síðu.