Austurland - 08.03.1984, Síða 1
Austurland
Alþýðubandalagið
Neskaupstað:
Félagsvist
í Egilsbúð kl. 846 í kvöld
34. árgangw. Neskaupstað, 8. mars 1984. 10. tölublað
Niðurstaða sérfrœðinga:
Svipuð aðstaða til jarðgangagerðar
á Austfjörðum og í Færeyjum
Yélarbilanir
Norðfjarðar-
togara
Um fyrri helgi kom skuttogar-
inn Birtingur í togi til Neskaup-
staðar vélarvana af miðunum
fyrir austan land. Við nánari at-
hugun á vélinni hefur komið í
ljós að hún er svo illa farin að
setja verður nýja vél í skipið.
Verður skipið Hklega ekki til-
búið til veiða á ný fyrr en ein-
hverntíma í sumar. Eins og kom
hér fram í blaðinu í haust þá
varð Bjartur NK vélarvana úti
í Englandi í haust og varð að
skipta um vél í honum þar og
er hann nú nýkominn úr fyrstu
veiðiferðinni.
G. B.
Jón
Kjartansson
tók niðri
Sl. sunnudag er Jón Kjartans-
son SU var að koma frá því að
landa í Fuglafirði í Færeyjum
vildi það óhapp til að skipið tók
niðri á skeri rétt utan við höfn-
ina í Fuglafirði. Náði skipið sér
á flot afeigin vélarafli. Talsverð-
ar skemmdir urðu á skrokk
skipsins og verður gert við það
í Þórshöfn í Færeyjum. Tekur
viðgerðin u. þ. b. 2 vikur.
.lón Kjartansson var búinn að
fá í kvóta þann er honum hafði
verið úthlutaður og var að fara
að veiða upp í 60 þúsund tonna
kvótann sem öll skip mega veiða
úr.
G. B.
Þann 29. febrúar sl. gekkst
Vatnsorkudeild Orkustofnun-
ar, Mannvirkjajarðfræðifélag-
ið og Jarðgangafélag Íslands
fyrir fjölmennum fundi í
Reykjavík. Niðurstaða þessa
fundar var stórmerkileg fyrir
Austfirðinga, en hún var sú að
basalt í Færeyjum og á þeim
stöðum á íslandi, þar sem mest
þörf er á veggöngum, sé rnjög
svipað að gerð. Þetta á við um
Austfirði, Vestfirði og
ákveðna staði á Norðurlandi.
Frá sjónarmiði jarðfræðinga er
því óhætt að gera ráð fyrir jarð-
göngum á þessum svæðum á
íslandi.
Jarðgangagerð
í Færeyjum
Á fundinum fjölluðu jarð-
fræðingarnir Björn A. Harðar-
son og Ágúst Guðmundsson
um jarðfræðilegar aðstæður
við jarðgangagerð í Færeyjum
og báru þær saman við aðstæð-
ur hérlendis.
Jarðgangagerð Færeyinga
hefur gengið mjög vel og hafa
þeir gerst stórtækir í þeim
efnum. Á eyjunum eru í notk-
un 10 jarðgöng, samtals 13 km
að lengd. Til samanburðar má
nefna að jarðgöng hérlendis
eru samtals 1.2 km. Nú eru á
lokastigi 2.2 km löng jarðgöng
við Leirvík í Færeyjum og enn
stærra átak á þessu sviði er í
undirbúningi hjá frændum
okkar.
Göngin við Leirvík verða
með tveimur akgreinum og er
unnið að gerð þeirra 5 daga
vikunnar á tveimur vöktum. Á
hvorri vakt er sprengt einu
sinni. 4.5 m í senn, eða 45 m
á viku. Heildarkostnaður er
innan við 50 milljónir ísl. kr. á
km.
Við vinnuna er notaður sér-
búinn borvagn sem kostar uni
17 milljónir ísl. kr.. en auk
hans er notuð ámokstursskófla
og vörubílar. Sömu menn
vinna við borun. sprengingar,
ámokstur og akstur á grjótinu.
í máli jarðfræðinganna kom
fram að á íslandi hefði verið
valið að fara efst í gegnum
fjöllin til að stytta göngin sem
mest. Færeyingar fara hinsveg-
ar lengstu leiðina, neðst í fjöll-
unum. Á milli allra þéttbýlis-
staða á Austurlandi má finna,
að mati jarðfræðinganna, vel
viðráðanleg stæði fyrir jarð-
göng og ef farið væri neðarlega
í fjöllin væru aðstæður svipað-
ar og f Færeyjum.
Ekkert mælir gegn
jarðgangagerð
Nokkrar umræður urðu að
loknum erindum jarðfræðing-
anna. Bjarni Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Byggðadeildar
benti á að stórbæta mætti skil-
yrði til hagstæðrar byggðar-
þróunar og atvinnustarfsemi á
Vestfjörðum og Austfjörðum
með t. d. 12 km jarðgöngum í
hvorum fjórðungi. Hann varp-
aði fram þeirri spurningu hvort
þeir sem fást við áætlanagerð
varðandi atvinnu- og byggðar-
þróun hér á landi mættu gera
ráð fyrir mögulegri jarðganga-
gerð á þessutn svæðum.
Björn A. Harðarson sagði
að út frá jarðfræðilegum sjónar-
miðum væri ekkert sem mælti
gegn því og mætti þar óhikað
benda á reynslu Færeyinga.
Helgi Hallgrímsson verk-
Framh. á 4. síðu.
VISA-kort hjá okkur til innlendra og erlendra
viðskipta
Takið VISA-kort með í sólarlandaferðina
Sparisjóður Norðfjarðar
Alþjóðlega skákmótið í Neskaupstað:
Stórmeistarar og stormsveit
tefla 18. mars til 1. apríl
Undirbúningur fyrir fyrsta al-
þjóðlega skákmótið í Neskaup-
stað er í fullum gangi.
Ljóst er að styrkleiki mótsins
verður svipaður og í Búnaðar-
banka- og Grindavíkurmótinu
og mun því gefa möguleika á
áföngum til alþjóðlegs og stór-
meistaratitils.
Væntanlegir til Neskaupstað-
ar eru stórmeistarar okkar
Friðrik Ólafsson og Guðmund-
ur Sigurjónsson og íslensku
Fmmh. á 3. síðti.
Helgi Óhifsson teflir fjöltefli t Neskaupstað.