Austurland


Austurland - 15.03.1984, Side 1

Austurland - 15.03.1984, Side 1
Austurland Alþýðubandalagið Neskaupstað: Félagsvist í Egilsbúð kl. 845 í kvöld 34. árgangur. Neskaupstað, 15. mars 1984. 11. tölublað. Bœjarstjórn Neskaupstaðar: Mótmælir ákvörðun samgönguráðherra Stangast veitingin á við lög? Vegna veitingar sérleyfisins Neskaupstaður - Eskifjörður - Reyðarfjörður - Egilsstaðir ályktar bæjarstjórn Neskaup- staðar eftirfarandi: „Bæjarstjórn mótmælir harðlega þeirri ákvörðun samgöngu- ráðherra að endurveita ekki Benna og Svenna hf. sérleyfi til fólksflutninga á leiðinni Neskaupstaður - Egilsstaðir. Benni og Svenni hafa sinnt þessu sérleyfi á þann veg í heilan áratug að þeir njóta óskoraðs trausts viðskiptavina sinna og alls al- mennings. í fundargerð Skipulagsnefndar fólksflutninga frá 11.01.84 segir, að „veitingarvaldið væri bundið af lögunum að veita fyrri sérleyfishöfunt leiðina ef þeim þóknaðist að sækja . . og í fundargerð sömu nefndar frá 01.02.84 er bókað að „menn (voru) sammála um að svo virtist, sem Benni og Svenni nytu trausts sem duglegir og traustir ferðamenn.“ Pað er svo í hæsta máta aðfinnsluvert að meiri hluti nefndarinnar mistúlk- ar beinlínis yfirlýsta stefnu heimamanna um að sameina sér- leyfin tvö í eitt sérleyfi og notar hana sem rök til að komast að niðurstöðu sem gengur þvert á fyrri yfirlýsingar. Því telur bæjarstjórn að afgreiðsla Skipulagsnefndarinnar og ákvörðun samgönguráðherra stangist á við ákvæði um endurveitingu í 6. gr. laga nr. 29/1983 og 2. gr. reglugerðar nr. 641/1983. Bæjarstjórn Neskaupstaðar lýsir furðu sinni á því að meiri- hluti Skipulagsnefndar og samgönguráðherra skuli virða svo lítils vilja heimamanna með því að hafa að engu eindregna áskorun bæjarstjórnarinnar. Bæjarstjórn beinir því til þing- manna Austurlandskjördæmis að þeir beiti sér fyrir breytingum á lögum nr. 29/1983 um sérleyfisakstur, þannig að áhrif heima- manna verði tryggð í þessu stóra hagsmunamáli, t. d. með því að landshlutasamtök sveita'rfélaganna fái aðild að nefndinni." Flutningsmenn voru allir bæjarfulltrúar Alþýðubandalags og Sjálfstæðisflokks en tillagan var samþykkt samhljóða með atvkæðum allra bæjarfulltrúa. Launakönnun hjá Verslunarmannafélagi Austurlands: Launataxtar óhagstæðari fyrir landsbyggðarfólk Konur flestar í Iægstu flokkunum / kjölfar þeirra launakannana, sem fram hafa farið á höfuðborgarsvœðinu og birtar hafa verið, gekkst Verslunarmannafélag Austurlands fyrir launkönnun meðal félagsmanna. Niðurstaða kannana hjá V. F. A. eru birtar hér á eftir og er miðað við janúarlaun sl. Upplýsingar bárust frá 11 þéttbýliskjörnum á félagssvæð- inu. Fram kom, að 88 félags- menn höfðu laun innan við 13.000,- á mán., í þeim hópi voru konur 94.32%. Þá höfðu 76 félagsmenn laun á bilinu 13 - 15 þúsund á mán., en úr þeim hópi voru 75% konur. 35 félags- menn voru á bilinu 15 - 17 þúsund, en þar af voru konur 48.37%. 24 félagsmenn voru á bilinu 17 - 19 þúsund, þar af voru konur 33.33%. Mikils mis- ræmis virðist gæta meðal birtra kannana. I ljósi þess, má sjá, að launataxtar eru okkur lands- byggðarfólki mjög óhagstæðir og má túlka launa- og kjarataxta óraunhæfa. Þyrftu þeir trúlega endurskoðunar og lagfæringar við, til þess að gera taxtana not- hæfa. Misjafna aðstöðu til launa og kjara þarf að uppræta. s A öskudag í blíðviðrinu á öskudaginn safnaðist hópur grímuklæddra barna og unglinga og jafnvel foreldra saman í skrúðgarðinum í Neskaupstað og sló köttinn úr tunnunni við mikla kátínu. Á eftir hélt hópurinn niður í Egils- búð þar sem dansað var af miklu fjöri fram undir kvöld. Myndina hér til hliðar tók Logi Kristjánsson og einnig myndasyrpuna á bls. 3. Fyrsta alþjóðlega skákmótið í Neskaupstað sett á sunnudag Þrír stórmeistarar og fímm alþjóðlegir meistarar tefla Ljóst er nú hverjir verða þátt- takendur í alþjóðlega skákmót- inu í Neskaupstað dagana 19. mars - 1. apríl nk. Þeir verða: Stig William Lombardy USA. SM 2505 Jón L. Árnason ÍSL, AM . 2500 Guðm. Sigurjónss. ÍSL, SM . 2470 Vincent McCambr. USA. AM 2465 Margeir Péturss. ÍSL, AM . 2465 Milorad Knezevic JUG, SM 2450 Helgi Ólafsson ÍSL, AM . . 2445 H. Schussler SVI, AM ... 2445 Jóhann Hjartarson ÍSL . . . 2415 Benóný Benediktsson ÍSL . 2355 Elvar Guðmundsson ÍSL . . 2330 Dan Hansson SVI ......... 2320 Allir tefla við alla og umferðir verða því ellefu. Samtals stiga- tala keppenda er 29.265 og mót- ið er því í áttunda styrkleika- flokki FIDE og geta keppendur því náð áfanga til stórmeistara- titils með 8 vinningum og til titils alþjóðameistara með 6 vinning- um. Meðaltal stiga er 2430.42 stig. Teflt verður í fundarsal Egils- búðar en skýringar verða í aðalsal. Skákskýrendur verða fleiri en einn m. a. Ingvar Ás- mundsson. Mótsstjóri verður Jóhann Þórir Jónsson, yfirdóm- arar: Guðmundur Arnlaugsson og Jóhann Þórir Jónsson. Skákstjórar verða: Einar Már Sigurðarson og Eiríkur Karlsson. Mótsstjórn skipa: Jóhann Þórir Jónsson, Eiríkur Karlsson, Einar Már Sigurðar- son, Logi Kristjánsson, Elma Guðmudnsdóttir. Páll Baldurs- son og Björn Magnússon. Dagskrá mótsins verður sem hér segir: Mánudagur 19. mars kl. 17 . Þriðjudagur 20. mars kl. 17 Miövikudagur 21. mars kl. 17 Fimmtudagur 22. mars . . . Föstudagur 23. mars kl. 17 . Laugardagur 24. mars kl. 13'" Sunnudagur 25. mars kl. 14 Mánudagur 26. niars kl. 1(1 . Mánudagur 26. mars kl. 17 . Þriðjudagur 27. mars kl. 17 Miövikudagur 28. mars kl. 17 Fimmtudagur 29. mars kl. 14 Föstudagur 30. mars kl. 17 . Laugardagur 31. nrars kl. 14 Sunnudagur 1. apríl kl. 10 . Sunnudagur 1. apríl kl. 16 Sunnudagur 1. apríl kl. 19 1. umferö 2. umferö 3. umferð Kvnning bæjarins og biðskákir 4. umferð 5. umferö 6. umferö Biðskákir 7. umferð 8. umferð 9. umferð Biðskákir 10. umferð Biðskákir 11. umferð Biðskákir Lokahóf og mótsslit

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.