Austurland - 22.03.1984, Síða 1
Austurland
34. árgangur. Neskaupstað, 22. mars 1984.
B I N G O
10 27 37 56 63
28 39 57 64
41
12. tölublað.
Undirskriftum safnað
í gangi er nú undirskriftasöfnun í Neskaupstað þar sem
mótmælt er veitingu sérleyfisins Neskaupstaður-Egilsstaðír.
í undirskriftaskjalinu segir:
„Við undirritaðir íbúar í Neskaupstað 16 ára og eldri mót-
mælum eindregið því ranglæti sem felst í nýlegri veitingu sér-
leyfis til fólksflutninga á leiðinni Neskaupstaður - Egilsstaðir.
Við mótmælum því að frábær þjónusta og einstakur dugn-
aður Benna og Svenna á þessari leið í heilan áratug skuli
einskis metinn af ráðherra.
Við mótmællum því einnig að vilji íbúa Neskaupstaðar skuli
lítilsvirtur eins og ráðherra gerir með því að hafa að engu
einróma samþykkt bæjarstjórnar Neskaupstaðar."
Síðast þegar AUSTURLAND frétti af söfnuninni höfðu
566 manns skrifað undir.
Skjalið verður síðan sent samgönguráðherra.
Tanni og Svenni. Ljósm. Jóh. G. K.
Þjóðhagsleg og félagslegt
gildi veggangagerðar á
Austfjörðum verði kannað
Sveinn Jónsson sem situr nú á þingi
í fjarveru Helga Seljan hefur flutt
eftirfarandi tillögu til þingsályktunar:
Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að láta fara fram
könnun á þjóðhagslegu gildi
veggangagerðar á Austurlandi.
Sérstaklega skal metið félags-
Iegt og hagrænt gildi þess að
vegalengdir milli byggðarlaga
styttist og leiði til aukinna sam-
skipta. Tekið skal tillit til þess
sparnaðar sem þetta mundi
leiða til í snjómokstri og við-
haldi vega auk minni eldsneytis-
eyðslu og slits á farartækjum. I
könnun þessari skal lagt mat á
einstakar hugmyndir að jarð-
göngum og þeim raðað í for-
gangsröð, jafnframt því að gildi
þeirra í heild sé metið.
í greinargerð með tillögunni
segir:
Á undanförnum árum hefur
gætt vaxandi áhuga hérlendis á
veggangagerð til lausnar á sam-
gönguvandamálum einangraðra
byggðarlaga. Hefur í því sam-
bandi einkum verið litið til ná-
granna okkar, Færeyinga, sem
á síðastliðnum 20 árum hafa
gert sem svarar ein-
Framh. á 2. síðu.
Alþjóðlega skákmótið í Neskaupstað:
Teflt af kappi
í Egilsbúð
„Þótt við Islendingar höfum
áður fyrr getið okkur góðan
orðstír fyrir að höggva mann og
annan, ber að óska þess að okk-
ur baráttuorðstír einskorðist í
framtíðinni við friðsamlega bar-
áttu á við þá, sem fram fer á
milli tveggja skákmanna, þó að
á skákborðinu falli menn um-
vörpum. . . Vona ég að mót
þetta verði Norðfirðingum og
öðrum Austfirðingum hvatning
til aukinnar baráttu innan sem
utan hinna 64 reita skákborðs-
ins“, sagði Logi Kristjánsson,
bæjarstjóri m. a. er hann setti
alþjóðlega skákmótið í Nes-
kaupstað sl. mánudag. Síðan
lék hann fyrsta leikinn fyrir
Benóný Benediktsson, sem er
aldursforseti mótsins.
Fjöldi manns var viðstaddur
setninguna í fundarsal Egils-
búðar en þar verður teflt alla
daga nema fimmtudaga fram til
1. apríl. Á fimmtudögum verða
tefldar biðskákir ef einhverjar
eru. í aðalsal eru skákskýringar
og hægt að fylgjast með skákun-
um þar og í kaffisal í sjónvarpi.
Vegleg mótsskrá var gefin út
með ýmsu fróðlegu efni, bæði
frá Neskaupstað og um skák.
Einnig kemur daglega út
mótsblað, þar sem skákir gær-
dagsins eru raktar ásamt úrslit-
um.
Neskaupstaður tók á móti
skákmönnunum með blíðviðri
og Egilsbúð skartaði blómum og
fánum frá heimalöndum kepp-
enda enda hafa margir litið inn
á skákina, hvort sem þeir telja
sig hafa vit á skák eða ekki, og
fengið sér kaffisopa, sem alltaf
er á könnunni, ásamt ýmsu góð-
gæti.
Nú eru búnar 3 umferðir og
staðan í mótinu er sýnd á með-
fylgjandi töflu.
í dag verða svo tefldar bið-
skákir en kl. 1700 á morgun hefst
4. umferð. En þá og um helgina
verður Ingvar Ásmundsson með
skákskýringar í aðalsal.
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 Vinn. S.B. Röð
l. Guðmundur Sigurjónsson y2 Vi y2 iy2 6-10
2. Helgi Ólafsson V2 I 1 1 2V2 1
3. Milorad Knezevic Vi V2 V2 IV2 6-10
4. Benóný Benediktsson 0 0 0 11-12
5. Margeir Pétursson 1 y2 Bið l’/2+bið 4-5
6. Jóhann Hjartarson i y2 Vi 2 2-3
7. DanHansson 0 0 0 0 11-12
8. Vincent McCambridge 0 y2 í 1V2 6rl0
9. Harry Schússler 1 y2 y2 2 2-3
10. Tom Wedberg Vi 1 Bið iy2+bið 4-5
11. Róbert Harðarson 0 y2 1 iy2 6-10
12. William Lombardy V2 0 i 1V2 6-10