Austurland - 05.04.1984, Page 1
Austurland
34. árgangur. Neskaupstað, 5. apríl 1984.
B I N G O
9 26 43 59 73
14 34 51 61
38
14. tölublað.
Nemendafélag Menntaskólans á Egilsstöðum:
Skorum á ungt fólk
Mánudaginn 19. mars var haldinn nemendafundur á vegum
Nemendafélags Menntaskólans á Egilsstöðum. M. a. var á
fundi þessum samþykkt einróma, ályktun nemendafélagsins
um friðarmál, svohljóðandi:
Fundur á vegum Nemendafélags Menntaskólans á Egils-
stöðum, Menntaskólanum á Egilsstöðum 19. mars 1984ályktar:
Við nemendur Menntaskólans á Egilsstöðum skorum á allt
ungt fólk til að velta því fyrir sér, hvort það kjósi sér ekki
þennan heim öðruvísi á mörgum sviðum en hann er.
Við fordæmum þá hugmynd að ekki sé hægt að lifa á
jörðinni án eilífrar hræðslu og ótta við tortímingu.
Við frábiðjum okkur allt hernaðarbrölt á íslandi.
Við neitum að viðurkenna þá þversögn að börn skuli þurfa
að deyja úr hungri, meðan milljörðum króna er varið til fram-
leiðslu vopna.
Við lýsum furðu okkar á þeirri þögn sem nú ríkir á Alþingi
íslendinga um friðarmál og vonum að hin mikla umræða síð-
asta árs, um þau mál, hafi ekki verið pólitískt tískufyrirbrigði.
Við skorum á alla til að taka afstöðu vitandi það, að valdið
er að lokum alltaf í höndum fjöldans, ef hann kærir sig um.
Afstaða þín getur ráðið úrslitum.
Loðnuvertíð
Loðnuvertíð er nú að mestu
lokið. Ekki hefur enn verið hægt
að fá nákvæmar upplýsingar yfir
heildarveiðina en þær munu
liggja fyrir fljótlega. Heildar-
veiðin mátti vera 640 þúsund
lestir en ljóst er að því marki
var ekki náð.
Bræðslu hér Austanlands er
nú alls staðar lokið nema á Eski-
firði en þar lýkur henni nú um
þessa helgi. Bræðslurnar hér
eystra tóku við loðnu sem hér
segir á vertíðinni:
Bræðslur
S.R. Seyðisf.
Isbj. Seyðisf.
Neskaupst.
Eskifjörður
Reyðarfj.
Fáskrúðsfj.
Stöðvarfj.
Höfn
Haust Vetur Alls
tonn tonn tonn
12.000 23.600 35.600
11.000 16.000 27.000
15.400 29.500 44.900
10.600 39.500 50.100
3.200 17.600 20.800
6.000 6.000
6.500 6.500
16.200 16.200
lokið
Lítil
hrognataka
Hrognataka var ekki mikil
hér eystra. Einungis í Neskaup-
stað náðist eitthvað að marki af
hrognum eða um 200 lestir, en
um 1.900 lestir af hrognum voru
frystar á landinu öllu.
G. B.
Svavar, Vilborg, Margrét, Helgi, Hjörleifur og Sveinn:
Á ferð um Austurland
Alþýðubandalagið:
Unga fólkið fundar líka
Það eru fleiri en forystumenn
Alþýðubandalagsins á ferðinni
um Austurland þessa dagana.
Fulltrúar stjórnar Æskulýðsfylk-
ingar Alþýðubandalagsins þau
Lára J. Þorsteinsdóttir og Ólafur
Magni Jóhannsson halda fundi
víðsvegar um kjördæmið. ÆFAB
er opið öllum sósíalistum á aldr-
inum 15 - 30 ára, sem ekki eru
bundnir í öðrum pólitískum sam-
tökum en Alþýðubandalaginu,
þó er aðild að því ekki skilyrði.
Markmið Æskulýðsfylkingar
Alþýðubandalagsins eru:
a) að fræða ungt fólk um sósíal-
ismann og einstaka þætti
þjóðmála og um starf og
stefnu Alþýðubandalagsins,
b) að taka þátt í baráttu fyrir
sósíalisma, þjóðfrelsi og al-
mennri kjarabaráttu verka-
lýðsins og styðja slíka bar-
áttu í öðrum löndum,
c) að efla baráttu fyrir friði og
afvopnun í heiminum,
d) að vinna að hvers konar
hagsmuna- og menningar-
málum æskulýðsins,
e) að vera vettvangur um al-
menna stefnumótun Al-
þýðubandalagsins.
Fundirnir hér fyrir austan eru
hafnir, í gær var fundað á Egils-
stöðum, í kvöld á Seyðisfirði, á
morgun á Fáskrúðsfirði. Á laug-
ardaginn verður fundað í Nes-
kaupstað kl. 1700 og á Reyðar-
firði sunnudag kl. 1700. Ekki er
enn ákveðið hvort fundurinn á
Eskifirði verður á laugardag eða
sunnudag en vísast til götuaug-
lýsinga.
Ungt vinstra fólk á Austur-
landi er hvatt til að fjölmenna á
fundina og stofna deildir eða
tengihópa á öllum stöðunum.
Formaður og stjórnarmenn
Alþýðubandalagsins kynna sér
málin hér eystra og halda al-
menna fundi þessa dagana í
fylgd með þingmönnum og
varaþingmanni AB á Austur-
landi.
í kvöld verður fundur í Egils-
búð kl. 2030. Á morgun á Fá-
skrúðsfirði og Stöðvarfirði kl.
2030. Á laugardag í Breiðdal og
á Eskifirði kl. 14 og á sunnudag
á Reyðarfirði og Borgarfirði.
Ein framsöguræða verður á
hverjum fundi og síðan almenn-
ar umræður og fundarboðendur
sitja fyrir svörum. Fundirnir eru
öllum opnir.
Helgi
Síðasta umferðin var tefld á
sunnudag og þurfti Helgi að ná
jafntefli við Svíann Wedberg til
að ná stórmeistaraáfanga og
sigra í mótinu en Lombardy átti
líka möguleika á sigri með því
Svavar.
Helgi.
Vilborg.
Hjörleifur.
Margrét.
Sveinn.
sigraði
að sigra Jóhann. Úrslitin má sjá
á töflunni hér að neðan.
Mótsslit fóru fram í Egilsbúð
á sunnudagskvöld, þar sem for-
seti bæjarstjórnar, Kristinn V.
Jóhannsson, stjórnaði lokahófi
í boði bæjarstjórnar. Logi Krist-
jánsson, bæjarstjóri, afhenti
verðlaun mótsins en þau hlutu
sex efstu mennirnir auk þess
sem veitt voru fegurðarverðlaun
fyrir skák Guðmundar og
Helga. Ágúst Ármann Þorláks-
son og Hlöðver Smári Haralds-
son léku lj úfa tónlist undir borð-
um og Hlöðver Smári og Hildur
Þórðardóttir léku samleik á
flautur við undirleik Ágústs
Ármanns. Auk þess flutti Þor-
lákur Friðriksson á Skorrastað
gamanvísur.
Voru menn á einu máli um
jákvætt gildi þessa móts bæði
fyrir skáklistina og ekki síður
William Lombardy.
Neskaupstað og landsbyggðina
yfirleitt, þar sem sýnt hefur ver-
ið fram á að mótshald þarf ekki
að vera bundið ,við höfuðborg-
arsvæðið, ekki einu sinni að
vetri til.