Austurland - 26.04.1984, Side 1
Austurland
Stórvirki á Bakkafirði:
Fyrsti áfangi nýrrar hafnar
kominn vel á veg
Frá gömlu höfninni á Bakkafirði með krana, sem hífði trilllurnar á land. Liósm. Grétar.
34. árgangur.
2 nýir
smábátar
Nýlega bættust í
smáskipaflota Seyðfirðinga
tveir bátar, annar 9 tonn að
stærð og hinn 6-7 tonn,
hvort tveggja hin fríðustu
fley. Annars hafa ógæftir
hamlað veiði smábáta nú
um langan tíma,
J. ,/. / S. G.
Norræna félagið
á Egilsstöðum:
Hópferð á
vinabæja-
mót
Stjórn Norræna félagsins á
Egilsstöðum hefur ákveðið að
efna til hópferðar á vinabæja-
mót sem haldið verður í Soro í
Danmörku 6., 7. og 8. júlí í
sumar.
Brottför verður frá Seyðis-
firði 28. júní með Norröna kl.
12. Komið til Hanstholm kl. 18
laugardaginn 30. júní. Ekið til
Álaborgar. Gist þar í 2 nætur.
Skoðunarferð um Álaborg og
nágrenni. Ekið til Kaupmanna-
hafnar. Gist á hótel Hebron í 4
nætur. Skoðunarferðir í Kaup-
mannahöfn tvisvar sinnum.
Ekið til Sor0. Dvalið á einka-
heimilum meðan á vinabæja-
mótinu stendur.
Verð á hvern þátttakanda
miðað við ofangreinda dagskrá
verður um 21 þús. kr.
Þá eiga þátttakendur þess
kost að dvelja áfram um viku-
skeið hjá gestgjöfum sínum í
Sor0 eftir að vinabæjamóti lýk-
ur eða taka á leigu sumarhús
einhvers staðar í Danmörku og
hverfa heim seinna.
Þátttaka er takmörkuð - en
hana þarf að tilkynna til for-
manns að Laufási 8, simi 1217,
fyrir 5. maí næstk. og greiða
staðfestingargjald kr. 3.000,-.
Aðalfundur Norræna félags-
ins á Egilsstöðum verður hald-
inn í Egilsstaðaskóla föstudag-
inn 25. maí kl. 21.
Félagssvæði Norræna félags-
ins á Egilsstöðum nær yfir
Fljótsdalshérað allt og Borgar-
fjörð Eystri og eru félagar þess
nú 80 talsins.
Frá því í haust hafa staðið yfir
framkvæmdir við 1. áfanga nýrr-
ar hafnar á Bakkafirði og er hún
staðsett nokkru innan við þorp-
ið skammt frá flugvellinum. Er
hér um að ræða skjólhöfn fyrir
minni báta, og gert ráð fyrir að
Neskaupstað, 26. apríl 1984.
þrír 25 rúmlesta bátar geti rúm-
ast á legu samtímis. Byggður
hefur verið um 200 metra langur
brimvarnargarður og er efni í
hann sprengt úr hömrum við
ströndina þar rétt hjá og fæst
athafnasvæði við grjótnámið.
Verkið var boðið út sl. sumar
og fékk það Ellert Skúlason
verktaki úrNjarðvík, sem unnið
hefur sleitulítið að gerð garðsins
í vetur. Erfiðleikar komu upp
vegna grjótnámsins, sem reynd-
ist lakara en talið var í fyrstu.
Alþýðubandalagið
Neskaupstað:
Félagsvist
í Egilsbúð kl. 845 í kvöld
17. tölublað.
Hafa verktakar nýlega verið
dæmdar 5 milljónir króna til við-
bótar við 13 milljónir, sem sam-
ið hafði verið um, og tekur það
aðeins til þess hluta sem búinn
var um síðustu áramót. Er því
horfur á að þessi áfangi kosti yfir
20 milljónir króna.
Ráðgert er að koma sem fyrst
upp smávegis löndunaraðstöðu
í skjóli garðsins, en auk þess
verða sett niður bólfæri.
Bakkfirðingar binda miklar
vonir við þessa framkvæmd, en
hingað til hafa þeir orðið að tak-
marka sig við trillur, sem hífðar
hafa verið á land með krana
þegar eitthvað hefur verið að
veðri. Nú eru gerðir út um 14
smábátar frá Bakkafirði, en
sóknartími þeirra er varla nenta
hálft árið. í landi er fyrst og
fremst verkaður saltfiskur hjá
Útveri h/t.
1 öðrum áfanga hafnargerðar-
innar er gert ráð fyrir lengingu
brimvarnargarðsins um 120
metra og síðan að byggja 200
metra langan innri garð ásamt
viðlegubryggju og á höfnin
þannig að geta tekið allt að 200
rúmlesta báta. Ekkert liggur
fyrir um fjármagn í framhald
verksins, sem er stórt á aust-
firskan mælikvarða. Til allra
hafna á Austurlandi var í ár veitt
um 14 milljónum króna og er
stærsta framkvæmdin auk
Bakkafjarðar á Stöðvarfirði.
Þorskafli
18% minni
Fyrstu þrjá mánuði ársins
varð þorskafli sem landað var á
Austurlandi samtals 11.949 lest-
ir en á sama tíma í fyrra 14.144
lestir samkvæmt yfirliti Fiskifé-
lags íslands.
Annar botnfiskafli hefur orð-
ið 400 lestum meiri í ár, alls
6.819 lestir á móti 6.418 lestum
í janúar- mars 1983. Mestu um-
skiptin hafa orðið í loðnuaflan-
um, sem varð í ár 155 þús. lestir
landað hér á Austfjörðum en
óheimilt var eins og kunnugt er
að veiða loðnuna í fyrra.
1. maí í Yalaskjálf
Fimm verkalýðsfélög ætla að sameinast um
hátíðardagskrá í Yalaskjálf 1. maí nk., eða
eins og segir í fréttatilkynningu þar um:
„Á undanförnum árum hefur lítið farið fyrir
útafbeytni á Héraði í tilefni af frídegi verka-
manna 1. maí.
Hefur það orsakast jöfnum höndum af dug-
leysi verkalýðsforystunnar í byggðarlaginu og
því að stéttarvitund okkar er yfir höfuð í lág-
marki.
Nú verður gerð heiðarleg tilraun til að bæta
úr þessu og munu stéttarfélög á Fljótsdalshér-
aði sjá um hátíðardagskrá í Valaskjálf 1. maí
nk.
Á dagskrá verður söngur, ávörp, gamanmál
o. fl.
Samkoman hefst kl. 2 e. h. í Gula sal.
Veitingar verða jafnframt seldar og sérstakt
meðlæti með kaffinu, fyrir þá sem það vilja, í
tilefni dagsins.
Á meðan á dagskránni stendur verður sýnd
frábær barnamynd í stóra sal, að sjálfsögðu.
AÐGANGUR ÓKEYPIS.
Sem sagt eitthvað fyrir alla í Valaskjálf á
frídegi verkalýðsins. Notum nú frídag okkar
til að hittast og ræða málin í Valaskjálf yfir
kaffibolla á þriðjudaginn kemur.
Verkalýðsfélag Fljótsdalshéraðs,
Iðnsveinafélag Fljótsdalshéraðs,
Verzlunarmannafélag Austurlands,
B. S. R. B.
Vörubílstjórafélagið Snæfell."