Austurland - 07.06.1984, Qupperneq 1
Austurland
34. árgangur. Neskaupstað, 7. júní 1984. 23. tölu'blað.
Auglýsið
r
1
Austurlandi
Forráðamenn sjávarútvegsfyrirtœkja á Austurlandi:
Sjávarútvegurinn kominn í þrot
Skipin hætta veiðum 24. júní og fiskvinnslan stöðvast, ábyrgðin er hjá
stjórnvöldum
Skipin hætta veiðum 24.
júní nk. og öll fískvinnsla á
Austfjörðnm mun stöðvast
nokkrum dögum seinna. Hætt
er við að einhverjir verði
stopp fyrr vegna fjárskorts og
raunar ættu allir að vera hættir
fyrir mörgum vikum eða mán-
uðum. Stjómvöld virðast lít-
inn skilning hafa á mikilvægi
sjávarútvegsins og þau fást
ekki til að taka á málum hans
af skynsemi. Því er lýst fullri
ábyrgð stjórnvalda á þeim erf-
iðleikum sem nú er við að
stríða og væntanlegum rekstr-
arstöðvunum fyrirtækja af
þeim sökum.
Þetta eru aðalniðurstöður
fundar sem forráðamenn allra
helstu sjávarútvegsfyrirtækja
frá Vopnafirði til Djúpavogs
héldu sl. þriðjudag á Egils-
stöðum. Þeir kynntu einnig á
þessum fundi sjónarmið sín fyrir
fulltrúum Alþýðusambands
Austurlands og Sambands sveit-
arfélaga í Austurlandskjör-
dæmi.
Fullkomin eining ríkti á fund-
inum og menn lögðu áherslu á
að þetta væri óhjákvæmileg að-
gerð þó vissulega gæti hún orðið
sársaukafull.
Töldu menn nauðsynlegt að
skýra málin sem best og haga
aðgerðum þannig að þær bitn-
uðu ekki á þeim sem síst skyldi,
þ. e. starfsfólki fyrirtækjanna til
lands og sjávar.
Hér til hliðar fylgir orðrétt
ályktun sú sem samþykkt var
einróma á fundinum.
Verður flotinn bundinn 24. júní?
Ljósm. Guðni K. Agústsson.
•4? *
v
„Forráðamenn eftirtalinna
sjávarútvegsfyrirtækja mót-
mæla hér með harðlega sjávar-
útvegsstefnu stjórnvalda, sem
stefnir fjárhagslegu sjálfstæði
fyrirtækja í sjávarútvegi í
hættu, með stöðugum tap-
rekstri, sífellt hækkandi raun-
vöxtum og samdrætti í endur-
kaupalánum Seðlabanka
íslands.
Stjórnvöld hafa náð miklum
árangri í baráttunni við verð-
bólguna, sem var að sliga alla
atvinnustarfsemi í landinu.
Átök þau sem þessu eru sam-
fara, mega þó ekki verða til
þess að sjávarútvegurinn einn
atvinnuvega, búi við gjörsam-
lega óviðunandi rekstrarskil-
yrði.
Nú er 15 - 25% tap á útgerð
og um 5% tap á saltfiskverkun.
Tap á skreiðarbirgðum eru 200
- 300 millj. og táknrænt fyrir
afstöðu stjórnvalda, að ætlunin
er að taka „gengishagnað" af
skreiðarbirgðum þrátt fyrir
tapið. Tap er nú einnig á rekstri
frystihúsa og hefur afkoman
versnað mjög vegna birgða-
söfnunar og óhagkvæmri sam-
setningu framleiðslunnar, en
gert var ráð fyrir.
Síðasta ríkisstjórn bjó sjáv-
arútveginum verri starfsskil-
yrði, en nokkur önnur í langan
tíma, þrátt fyrir mesta afla sem
um getur og hagstæð markaðs-
verð sjávarafurða.
Þrátt fyrir að nú séu ytri skil-
yrði á margan hátt erfiðari, er
ófært að halda áfram á þeirri
óheillabraut sem þá var farin.
Fjármagnskostnaður eykst sí-
fellt vegna taprekstrar og hárra
raunvaxta. Sjávarútvegurinn
greiðir nú í verulegum mæli 10
- 15% raunvexti og afurðalán
sem ávallt hafa verið með mun
lægri fjármagnskostnað en
önnur lán, eru nú með 4 - 5%
raunvexti. Samkeppnisaðstaða
sjávarútvegsfyrirtækja versnar
stöðugt. Bæði gagnvart öðrum
atvinnuvegum hér innalands
og ekki síður gagnvart sjávar-
vöruframleiðslu annarra þjóða
á erlendum mörkuðum. Það er
ekki tekist á við vandann, held-
ur er hann lagður á herðar
komandi kynslóða.
Það er ljóst að fyrirtæki í
sjávarútvegi hafa haldið áfram
rekstri, mun lengur en
skynsamlegt virðist. Þetta hef-
ur verið gert í von um að
stjórnvöld tækju á málum sjáv-
arútvegsins af skynsemi og í
þeirri vissu að allsherjar stöðv-
un í sjávarútvegi valdi þjóðfé-
laginu stórtjóni.
Við lýsum því hér með yfir
vonbrigðum okkar með, að
þessi ábyrga afstaða hefur ekki
orðið til annars, en að sífellt er
aukið á erfiðleika sjávarút-
vegsfyrirtækja. Því er ekki hjá
því komsist að lýsa yfir fullri
ábyrgð stjórnvalda á þeim erf-
iðleikum, sem sjávarútvegur-
inn á nú við að stríða og vænt-
anlegum rekstrastöðvunum
fyrirtækja af þeim sökum.
Nauðsynlegt er að eftirfar-
andi ráðstafanir verði gerðar
nú þegar, til að koma í veg fyrir
stöðvun fyrirtækja í sjávarút-
vegi.
1. Endurkaupalán Seðla-
banka íslands hækki í 60%
af afurðaverðmæti. Við-
skiptabankarnir láni síðan
24% til viðbótar, þannig að
heildarlán nemi 84% af
afurðaverðmæti.
2. Útvegað verði innlent lán
og ef það tekst ekki, þá er-
lent lán að upphæð 1000
milljónir króna, til greiðslu
á hluta vanskila útgerðar og
fiskvinnslu. Þannig verði
greiðslubyrði vegna van-
skiladreiftá8-10ár. Ríkis-
ábyrgðasjóður ábyrgist lán
þetta. Til þess að sýna fram
á nauðsyn þessa, er nóg að
fram komi að aðeins tap út-
gerðar 1982 og 1983 nam
um 2.4 milljörðum króna.
3. Fiskverð verði hvorki nú
né síðar ákveðið þannig, að
tap sé á meðalútgerðar- eða
fiskvinnslufyrirtæki.
4. Vextir á afurðalánum verði
lækkaðir.
Undirritaðir aðilar sjá enga
leið til þess að halda áfram
rekstri við núverandi aðstæður
og ákveða því hér með að
hætta veiðum 24. júní 1984.
Það blasir því við, að svo til öll
fiskvinnsla á Austfjörðum
stöðvast nokkrum dögum
seinna. Þrátt fyrir þessa tíma-
setningu getur vel svo farið, að
einhverjum takist ekki að
greiða laun til þess tíma, eða
stöðvist af öðrum ástæðum.
Fyrirtæki:
f. h. Síldarvinnslunnar hf., Neskaupst.
f. h. Hraðfrystihúss Fáskrúðsfjarðar hf.
f. h. Hraðfrystihúss Eskifjarðar hf.
f. h. Skipakletts hf. ogGSR, Reyðarf.
f. h. Pólarsíldarhf., Fáskrúðsfirði
f. h. Fiskvinnslunnar hf., Seyðisfirði
f. h. Hraðfrystihúss Breiðdælinga hf.
f. h. Gullbergs hf., Seyðisfirði
f. h. Hraðfrystihúss Stöðvarfjarðar hf.
f. h. Búlandstindshf., Djúpavogi
f. h.Tangahf., Vopnafirði
Ólafur Gunnarsson
Gísli Jónatansson
Aðalsteinn Jónsson
Hallgrímur Jónasson
Bergur Hallgrímsson
Þorbergur Þórarinsson
Pétur Sigurðsson
Adolf Guðmundsson
Guðjón Smári Agnarsson
Gunniaugur Ingvarsson
PéturOlgeirsson"
Stöðvist sjávarútvegurinn þá stöðvast allt
Vandi sjávarútvegsins er
vandi allra landsmanna. Við
finnum það fyrst í sjávarpláss-
unum úti um land en um síðir
verður hans vart alls staðar í
þjóðlífinu því það er nú einu
sinni sjávarútvegurinn sem
heldur öllu hinu uppi. Sveitars-
tjórnar.menn fylgjast nú grannt
með framvindu mála og Sam-
band sveitarfélaga hefur sent
frá sér eftirfarandi ályktun af
þessu tilefni:
„SSA vekur athygli stjórn-
valda á þeim gífurlega vanda
sem við er að glíma í sjávarút-
vegi á Austurlandi.
Nú er svo komið að rekstrar-
stöðvun blasir við í flestum
fyrirtækjum í sjávarútvegi með
ógnvænlegum afleiðingum fyr-
ir landshlutann.
Sveitarfélögin eru hvert af
öðru að komast í greiðsluþrot
því burðarásar atvinnulífs
þeirra, útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtækin, geta ekki
greitt til sveitarsjóðanna.
Verði ekki brugðist hart við
og þessum undirstöðuatvinnu-
greinum sköpuð lífvænleg
rekstrarskilyrði vofir yfir hrun
á landsbyggðinni.
Ábyrgð stjórnvalda er því
mikil og SSA hvetur þau ein-
dregið til að kynna sér þær ráð-
stafanir sem fundur forráða-
manna fyrirtækja í sjávarút-
vegi á Austurlandi 4. júní
bendir á.
SSA hefur áður bent á að
hafinn er fólksflótti af lands-
byggðinni til höfuðborgar-
svæðisins. Takist ekki að bægja
frá aðsteðjandi vá mun sá flótti
magnast, en það er von SSA
að það sé stefna ríkisstjórnar
íslands að viðhalda búsetu á
landsbyggðinni."