Austurland - 14.06.1984, Page 1
Austurland
34. árgangur. Neskaupstað, 14. júní 1984.
Aukablað
á laugardag
16. júní
24. tölublað.
Engin
lausn
í sj ónmáli
Stendur fólkið uppi atvinnulaust í júnílok?
Ljósm. Jóhann G. Kristinsson.
„Ef flotinn stöðvast er það uppgjöf okkar að
búa í þessu landi“, segir sjávarútvegsráðherra,
en álítur það samt ekki mál ríkisstjórnarinnar
„Við höfum ekki fengið neitt
fram sam gæti breytt þeirri
staðreynd að við verðum að
stöðva flotann. Petta er engin
tiktúra í okkur, ekkert sem við
höfum búið til sem pressu á
stjórnvöld, heldur fyrst og
fremst það að tapreksturinn er
búinn að vera svo gríðarlegur
svo lengi að við komumst ekki
lengra. Við höfum margsinnis
vakið athygli á þessu í bæði
blöðum og útvarpi og annars
staðar en það hefur ekki haft
nein áhrif. Pessi ríkisstjórn hef-
ur haft tíma til að fást við þessi
verkefni núna í heilt ár en það
hefur ekki sést neinn árangur
af því sem máli skiptir,“ sagði
Ólafur Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunn-
ar í Neskaupstað í viðtali við
AUSTURLAND á þriðju-
dagskvöld að loknum fundi
fulltrúa sjávarútvegsfyrirtækj-
anna hér fyrir austan með for-
sætisráðherra og sjávarútvegs-
ráðherra. Fundinn sátu einnig
3 aðilar frá verðlagsráði og
fleiri samtökum innan sjávar-
útvegsins.
Sjávarútvegsráðherra var
falið að sjá um áframhald við-
ræðna og nefnd var sett í málið
en í henni eru þeir Kristján
Ragnarsson, Eyjólfur Isfeld,
Árni Benediktsson og Ólafur
Gunnarsson.
A USTURLAND spurði
Ólafhvort Austfirðingar mœttu
eiga von á stuðningi annars
staðar frá.
- Við gerum frekar ráð fyrir
því, að það komi aðstoð frá
útgerðarmönnum annars stað-
ar frá. Hversu mikil hún verður
vitum við ekki fyrr en eftir
þessa viku. En þeir sem við
höfum rætt við hér hafa svipaða
skoðun á þessum málum og
við. Það er skoðun manna að
ástandið sé ekkert sérstakt fyrir
Austfirðina þó svo að sumir
hafi vilj að telj a svo. Það er víða
annars staðar ósköp líkt.
Sjávarútvegsráðherra lét í veðri
vaka í útvarpinu að þið hefðuð
getað stjórnað fyrirtœkjunum
betur t. d. verið með minni
sóknarkostnað.
- Mér þykir það afar ein-
kennileg skoðun. Hann hefur
vísað ti! Bæjarútgerðar
Reykjavíkur. Það mætti jafna
því saman ef við stöðvuðuðum
helminginn af flotanum hjá
okkur við það að annarri hverri
búð í Reykjavík væri lokað og
annarri hverri opinberri skrif-
stofu og öðru hverju iðnfyrir-
tæki. Það er auðvitað ekki sam-
an að jafna. Við höfum afskap-
lega takmarkaða möguleika til
að draga úr sókn. Mér finnst
það heldur of einfalt að segja
að menn hafi getað stjórnað
þessu betur. Það er auðvitað
alltaf hægt í öllum fyrirtækjum
að stjórna hlutunum eitthvað
betur en staðreyndin er nú sú,
að fiskiðnaður yfirleitt er mjög
vel rekinn. Ég er viss um, að
ef erlendir hagfræðingar kæmu
hér gætu þeir ekki fundið mikið
sem bætti úr. En aftur á móti
hafa þeir getað bent á 50 eða
jafnvel 100% framleiðniaukn-
ingu í iðnfyrirtækjum og þetta
er sjálfsagt eitthvað víðar í
þjóðfélaginu.
Bæjarútgerð Reykjavíkur
ráðgerir tap upp á 180 milljónir
á þessu ári. Þetta er álíka stórt
fyrirtæki og Síldarvinnslan. Ef
Norðfirðingar ættu að leggja
það sama til Síldarvinnslunnar
og gert er til Bæjarútgerðarinn-
ar þýðir það að hver fjölskylda
í Neskaupstað þyrfti að leggja
til 450 þúsund krónur eða þá
að þeir sem vinna hjá Síldar-
vinnslunni ættu að gera það
ókeypis. Þannig væri komið
fyrir Síldarvinnslunni ef henni
væri stjórnað á sama hátt og
Bæjarútgerð Reykjavikur.
Trúirðu því að stjórnvöld
breyti um stefnu varðandi sjáv-
arútveginn?
- Miðað við fyrri tíma
reynslu við þetta, þá trúi ég því
ekki að það gerist svo auðveld-
lega. Ennþá eru þeir ekki til-
búnir með nein svör sem breyta
neinu.
Ekki boðaðir
Stjórn skipstjóra- og stýrimannafélagsins
Sindra á Austurlandi hefur sent frá sér ályktun
þar sem lýst er furðu á því að fulltrúar þeirra
skyldu ekki vera boðaðir á fund útvegsmanna
þegar tekin var ákvörðun um aðgerðir sem munu
skerða hlut sjómanna frá því sem orðið er og
áskilur sér allan rétt til aðgerða ef þörf krefur.
Algert ráðaleysi ráðherrans
Það var aumt að hlusta á sjáv-
arútvegsráðherrann okkar í um-
ræðuþætti um sjávarútvegsmál
í sjónvarpi í gærkvöldi. Hann
vísaði allri ábyrgð frá sér, virtist
aldeilis hissa á því að menn væru
að blanda ríkisstjórninni í þetta
og vildi helst vísa málinu heim
í hérað til lausnar. Eftir mál-
flutningi hans að dæma er alls
ekki ætlun ríkisstjórnarinnar að
gera neitt og ráðherra hefur gef-
ist upp fyrir þeim Reykjavíkur-
sjónarmiðum sem endurspegl-
uðust í aulafyndni stjórnandans
um grátkór.
Getur það verið að sjávarút-
vegsráðherra telji það ekki hlut-
verk ríkisstjórnarinnar að skapa
aðalatvinnuvegi þjóðarinnar
rekstursskilyrði? Til hvers er
maðurinn þá eiginlega kosinn?
Hingað til hefur það verið tal-
ið grundvallarhlutverk hverrar
ríkisstjórnar að skapa atvinnu-
vegunum rekstrarskilyrði, en
nú fer ráðherra bara í fýlu og
allt hans tal er tóm eymd og vol-
æði.
Er þetta svona slæmt spurði
líka stjórnandinn og virtist
hissa. Nú liggur fyrir að hækkun
Framh. á 2. síðu.