Austurland - 16.06.1984, Page 1
Austurland
34. árgangur. Neskaupstað, 16. júní 1984.
Vegna sumarleyfa
kemur næsta blað
út 26. júlí
25. tölublað.
Lúðvík
sjötugur
Paö er ótrúlegt en satt, Lúðvík Jósefsson er sjötugur í dag og
í tilefni þeirra tímamóta er þetta blað gefið út.
Austurland og Lúðvík hafa átt samleið frá því blaðið hóf göngu
sína og samstarfið alltaf verið náið og gott.
Austurland færir afmælisbarninu innilegar hamingjuóskir með
daginn og væntir þess að fá áfram að berjast fyrir göfugum hug-
sjónum með því.
Sjötuga hetja!
Það fylgir því mikill vandi að
ávarpa þig á þessum merku
tímamótum í lífi þínu!
En þegar litið er til fortíðar
þinnar og unninna afreka hljóta
ungir sósíalistar að fyllast þakk-
læti og aðdáun í þinn garð um
leið og þeir öðlast aukna trú á
ágæti þeirrar stefnu sem þú hef-
ur fylgt í gegn um árin.
Starf þitt á vettvangi stjórn-
málanna er þannig að þar finnst
enginn meðalmennskubragur á.
Það hefði ekki hver sem er
lýst tvívegis yfir einhliða stækk-
un íslenskrar fiskveiðilögsögu
gegn vilja ýmissa voldugra ná-
grannaþjóða.
Það er hætt við að ýmsir hefðu
kinokað sér við að standa að
endurbyggingu hins íslenska
fiskveiðiflota á þann hátt sem
gert var á árunum upp úr 1971.
Samt eru þetta athafnir sem
síðari tímar hafa leitt í ljós að
voru tímabærar og bráðnauð-
synlegar ef íslensk þjóð átti að
halda sjálfstæði sínu til fram-
búðar, og er nú svo komið að
margir hefðu þessa „Lilju viljað
kveðið hafa“.
Ekki hefur síður verið vand-
lifað í orrustum kosningabarátt-
unnar hér á Austurlandi, þar
sem oftvarbeitt hinum lævísleg-
ustu brögðum til að hnekkja
áliti þínu í augum alþýðu.
Kosningasigurinn 1978 sýndi
svo að ekki varð um villst að þú
ert óþreytandi, og er þeim sem
á eftir koma ekki lítill vandi á
höndum, ef lyfta á merki Al-
þýðubandalagsins jafn hátt og
þá var gert undir þinni forystu.
Menn koma og fara, það er
lífsins gangur. Nýir menn koma
til starfa þegar aðrir hverfa af
vettvangi. Því er ekki hægt að
segja að kynni okkar hafi orðið
ríkuleg eða náin, en oft hefi ég
notið þess að sitja undir ræðum
þínum, sem ýmist voru lofsöng-
ur til hinnar vinnandi stéttar eða
skammadembur í garð hinna
sem hirða arðinn af striti verka-
fólks, en þau myrkraöfl hafa nú
þegar þetta er ritað öll ráð þess
og þar með sjálfsforræði þjóðar-
innar í hendi sér.
Hygg ég að þó seinna verði
þyki mörgum sem að réttara
hefði verið að taka meira mark
á orðum þínum, en þau voru af
mörgum fyrirfram dauðadæmd
sem „þjóðhættulegt kommún-
istakjaftæði".
En þó að orð og áminningar
hafi oft verið í tíma töluð, eru
það þó verkin sem fyrst og
fremst lofa meistarann.
Við í stjórn kjördæmisráðs
samgleðjumst þér á þessum
Heillaósk
Alþýðubandalagið í Neskaupstað þakkar Lúðvíki Jósefs-
syni langt og giftudrjúgt starf í þágu sósíalískrar hreyfingar
um hálfrar aldar skeið.
Félagið ámar þeim hjónum allra heilla á þessum tíma-
mótum og óskar þeim gæfu og gengis í framtíðinni.
Alþýðubandalagið í Neskaupstað.
merkisdegi. Við vitum að það
er mikill hamingjumaður sem á
slíkan feril sem þú.
Skilaðu kveðju til eiginkonu
og í vinahóp.
Megi ykkur öllum vel farnast.
Lifið heil.
F. h. stjórnar kjördæmisráðs
Alþýðubandalagsins í
Austurlandskj ördæmi.
Sigurjón Bjarnason.
í dag berast margar hlýjar
óskir austur í Neskaupstað,
ótaldir aðilar úr hinum ýmsu
þjóðfélagshópum hvarvetna um
land senda afmælisbarninu
heillakveðjur, yljaðar þeirri
þökk, sem svo margir flytja
Lúðvíki Jósefssyni.
Og austur þar er í dag hátíð
í hugum manna, þegar hylltur
er Ieiðtogi og forsvarsmaður
fólksins um áraraðir.
íslenskir sósíalistar hafa
margan snjallan liðsmann átt,
trúa hugsjón sinni, baráttuglaða
rökfima ræðusnillinga, fulla eld-
móðs og áhuga.
Um áratuga skeið var Lúðvík
Jósefsson þar í fremstu fylking-
arröð, en fáir hafa, sem hann,
fært orð sín og boðskap beint til
athafna og aðgerða, svo verk
hans tala til okkar vítt um þjóð-
lífið um land allt.
Rauði bærinn hans er ein
samfelld saga þessa, þar sem
fjöldinn fylkti sér að baki foryst-
unni, þar sem Lúðvík var frem-
stur meðal jafningja.
Sjávarútvegur okkar hefur
sannarlega fengið að njóta óbil-
andi trúar hans á auðsæld fiski-
miðanna og framtíð þjóðar á
þeirri auðsæld byggð, sjómenn
og útvegsmenn telja sig réttilega
hafa átt í honum tryggastan og
um leið athafnasamastan tals-
mann og leiðtoga. Sama er að
segja um fólkið í fiskvinnslunni,
til aðgerða hans í uppbyggingu
og bættum aðbúnaði rekur
verkafólkið veigamikinn þátt
þessarar atvinnugreinar.
Verkafólk um land allt veit,
hvern liðsmann það átti á Al-
þingi sem annars staðar í Lúð-
víki Jósefssyni, sem óþreytandi
sótti og varði rétt hins vinnandi
manns til verðugra verkalauna.
Vinnandi fólk til sjávar og
sveita fann í þessum sanna syni
alþýðunnar samhljóm við óskir
sínar og skoðanir og fylgd þess
gerði honum fært að tala máli
alþýðunnar af þeirri djörfung og
reisn, sem fáum er lagið.
Og enn er ótalinn sá þáttur,
sem þjóðinni er dýrstur og kær-
astur.
Hún þekkir og veit um þann
stórfenglega þátt sem Lúðvík á
í sigursögu landhelgismálsins,
þessu þýðingarmikla sjálfstæð-
is- og lífshagsmunamáli okkar.
Þar bregður á ljóma og lit langt
á veginn fram.
Lúðvík er einn þeirra fáu,
sem auðnast það að marka óaf-
máanleg spor í samtíð og
framtíð, heillaspor í atvinnu-
sögu þessa lands, hamingjuspor
í sjálfstæðissögu þessarar
þjóðar. Slík var gifta hans í
þjóðmálasögu okkar, þar sem
hann hefur nú að mestu dregið
sig í hlé, en sem áður er hann
hinn ráðsnjalli og rökvísi leið-
togi, sem leitað er ráða hjá.
Baráttusaga hans er samofin
baráttusögu íslenskrar alþýðu,
gæfa hans og um leið gæfa al-
þýðunnar sú, hve hann átti rík-
an þátt í að gera marga hennar
dýrustu drauma að virkileika.
Og ýmsar leifturmyndir líða
um hugann.
Lúðvík á bryggjunni eða í
beitningarskúrnum, í frystihús-
inu eða verkstæðinu, það voru
hinir sönnu vinnustaðafundir,
þar sem hann hlýddi á mál
manna, erindi voru upp við
hann borin og þannig nam hann
rödd fólksins og fann hug þess,
gjörþekkti kjör þess og vissi því
gjörla hvar skórinn kreppti.
Lúðvík á kosningafundi, rök-
vís og raunsær, málefnalegur
Vinir og samherjar Lúðvíks Jósef ssonar halda
honum afmælissamsæti í Egilsbúð milli kl. 4°°
og 7°° á afmælisdaginn (í dag 16. júní)
Þess er vænst að sem allra flestir gefi sér tíma
til að heilsa upp á afmælisbarnið og þiggja
kaffibolla