Austurland - 16.08.1984, Page 1
Austurland
34. árgangur.
Neskaupstað, 16. ágúst 1984.
29. tölublað.
Skíðaskálinn við Oddsskarð risinn
í fyrradag, þriðjudaginn 14.
ágúst blöktu fánar við hún á ný-
reistum skíðaskála Skíðamið-
stöðvarinnar við Oddsskarð.
Þar var saman kominn nokkur
hóður manna: byggingarnefnd
skálans, framkvæmdastjórn
skíðamiðstöðvarinnar, bygg-
ingarmenn skálans, forsvars-
menn sveitarfélaganna, sem
eiga hann og nokkrir fleiri til að
fagna þessum áfanga. í þann
mund, er menn gengu í skálann,
gerði eina af snarpari regn-
dembum sumarsins, þó að hún
stæði stutt, og var reyndar ekki
laust við, að hún væri
haglkennd.
Gunnar Ólafsson, formaður
stjórnar skíðamiðstöðvarinnar
og jafnframt byggingarnefndar-
innar bauð gesti velkomna og
lýsti aðdraganda byggingarinri-
ar og framkvæmdum.
Það er alllangt síðan sú hug-
mynd vaknaði að byggja skíða-
miðstöð sunnan við Oddsskarð.
Það tók hins vegar nokkur ár
að koma á samstarfi sveitarfé-
laganna þriggja, sem að skíða-
miðstöðinni standa, og hefja
framkvæmdir á svæðinu. Þessi
sveitarfélög eru Reyðarfjörður,
Eskifjörður og Neskaupstaður,
og skipar hvert þeirra einn
mann í framkvæmdastjórn og
einn í byggingarnefnd skálans.
Stór skíðalyfta var tekin í
notkun í janúar 1980, og fram-
kvæmdir við skálabygginguna
hófust í fyrra, en þá voru steypt-
ir sökklar. Framkvæmdir í sum-
ar hófust svo 2. júlí og hefir
verkið gengið mjög vel. Búið er
að reisa húsið, klæða veggi og
stafna og ganga frá festingum.
Áætlað er, að húsið verði fok-
helt fyrir haustið.
Húsið er á tveimur hæðum,
timburhús á steyptum grunni.
Á neðri hæðinni, sem er um 100
m2, er stór salur, eldhús, snyrt-
ingar og rúmgott anddyri og stór
verönd fyrir utan. Stigi verður
svo upp á loftið, sem er um 70
m2 og er ætlað sem svefnloft.
Arkitekt hússins er Magnús
Skíðaskálinn við Oddsskarð.
Ljósm. B. S.
Talið frá vinstri: Gunnar Ólafsson, Hjördís Káradóttir, Guðjón
Björnsson og Bogi Nílsson.
Gunnaj;sson, en burðarþolsút-
reikningar voru gerðir af Verk-
fræðistofu Sigurðar Thor-
oddsen. Byggingameistari er
Róbert Jörgensen, rafvirkja-
meistari Tómas R. Zoéga og
pípulagningameistari Sigurþór
Valdimarsson, allir í Neskaup-
stað.
Matráðskona vinnuflokksins
er Marin Sigurgeirsdóttir á
Eskifirði. Yfirumsjón með
framkvæmdum hefir Gunnar
Ólafsson haft.
Að máli Gunnars loknu
gæddu viðstaddir sér á góm-
sætum veitingum, sem Marin
hafði komið með og borið á
borð í skálanum.
Hörður Þórhallsson, sveitar-
stjóri á Reyðarfirði þakkaði fyr-
ir hönd eigenda skálans öllum
þeim. sem unnið hafa að fram-
kvæmdunum og Gunnari Ólafs-
syni alveg sérstaklega fyrir hans
Ljósm. B. S.
mikla og óeigingjarna starf í
þágu skíðamiðstöðvarinnar.
Undir þau orð tók Logi Krist-
jánsson, bæjarstjóri í Neskaup-
stað.
Framkvæmdastjórn skíða-
miðstöðvarinnar við Oddsskarð
skipa: Gunnar Ólafsson, Nes-
kaupstað, Bogi Nílsson, Eski-
firði og Borgþór Guðjónsson,
Reyðarfirði.
Byggingarnefnd skíðaskálans
skipa: Gunnar Ólafsson, Nes-
kaupstað, Guðjón Björnsson,
Eskifirði og Hjördís Káradóttir,
Reyðarfirði.
Áður en athöfninni í skíða-
skálanum lauk, hafði stytt upp
og sól skein í heiði á ný og fán-
arnir blöktu fyrir hægum vindi
í sólskininu.
B. S.
Djúpivogur:
Hafin bygging fímm íbúða í sumar
Talsverðar framkvæmdir á vegum Búlandshrepps
Tíðindamaður AUSTUR-
LANDS hafði fyrir skömmu
samband við Óla Björgvinsson
sveitarsjtóra Búlandshrepps og
spurðist fyrir um helstu fram-
kvæmdir á vegum sveitarfélags-
ins að undanförnu.
Óli sagði að nú í haust yrði
tekið í notkun nýtt 250 fermetra
hús sem hreppurinn hefði rcist.
I húsinu er slökkviliðinu ætluð
aðstaða, en auk þess erætlunin
að nota hluta þess sem félagsað-
stöðu til bráðabirgða. Spaug-
samir nefna húsið gjarnan
„slökkviheimilið".
Fyrirhugað er að hefja fram-
kvæmdir í haust við byggingu
skólahúsnæðis með íþróttasal,
sem jafnframt yrði framtíðarfé-
lagsaðstaða í hreppnum. í þessu
húsi er gert ráð fyrir fullkomnu
eldhúsi, sem myndi í framtíð-
inni verða mötuneyti aðkomu-
nemcnda í grunnskólanum á
Djúpavogi.
í sumar hefur gatnagerð
nokkuð veriö sinnt á Djúpa-
vogi, en þar þurfti að ganga frá
götum og lögnum vegna ný-
bygginga. Hafin hefur verið
bygging fimm íbúða í sumar.
íþróttavöllurinn á Djúpavogi
var tekinn í notkun í vor, en
ungmennafélagið Neisti tekur
nú í fyrsta sinn þátt í íslands-
mótinu í knattspyrnu. Enn vant-
ar harpað yfirlag á íþróttavöll-
inn.
í lokin er rétt að geta um
framkvæmd sem er þó ekki á
vegum sveitarfélagsins, en flug-
völlurinn á Djúpavogi var
lengdur í 800 metra úr 600 nú í
sumar. Þessi lenging hefur í för
með sér meira öryggi auk þess
sem hún gerir áætlunarflug með
minni vélunt mögulegt. 5. G.
Djúpivogur:
Ný heimavistarbygging
Haustið 1983 hófust fram-
kvæmdir við byggingu heima-
vistar við grunnskólann á
Djúpavogi, en skólanum er
ætlað að taka við nentendum
úr Beruneshreppi og Geit-
hellnahreppi.
Nú er lokið við að steypa
kjallara hússins og er fyrir-
hugað að vinna hefjist við
uppslátt hæðarinnar á næstu
dögum.
Heimavistin á að rúma 16
nemendur fulbúin, en auk
þess verður íbúð fyrir gæslu-
fólk í húsinu.
Ingimar Sveinsson skólastjóri
á Djúpavogi tjáði AUSTUR-
LANDI að það væri ótvírætt
mikil bót að fá þetta nýja
heimavistarhúsnæði, en til
þessa hefur íbúðarhúsnæði
veriö leigt fyrir aðkomunem-
endur.
Óli Björgvinsson sveitar-
stjóri sagði tíðindamanni
blaðsins að vonir stæðu til að
hægt yrði að taka hcimavist-
ina í notkun haustið 1985.
.V. G.