Austurland - 30.08.1984, Qupperneq 1
Austurland
34. árgangur.
Neskaupstað, 30. ágúst 1984.
31. tölublað.
Aðalfundur SSA á Höfn:
Atvinnu- skóla-
göngumál efst á
Tímamótandi samþykkt í
Á aðalfundi SSA, sem hald-
inn var á Höfn í Hornafirði um
síðastliðna helgi voru ofan-
greindir málaflokkar efst á
baugi. Atvinnumálin fengu
mesta umræðu enda liggja þau
þyngst á sveitarstjórnar-
mönnum þessa dagana vegna
hins slæma ástands í sjávarút-
vegi. Framsögumenn um at-
vinnumálin voru Ólafur Gunn-
arsson framkvæmdastjóri Síld-
arvinnslunnar hf. í Neskaupstað
og Gunnlaugur Ingvarsson
kaupfélagsstjóri á Djúpavogi og
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra. Fram kom í máli
allra framsögumanna að útlitið
í sjávarútvegsmálum er dökkt
þessa stundina og mikið þarf að
breytast þannig að birti til í þess-
ari atvinnugrein. Miklar um-
ræður urðu um atvinnumálin og
í þeirri umræðu var mjög áber-
andi hversu vaxtastefna ríkis-
stjórnarinnar var mjög gagn-
rýnd af öllum þeim sem til máls
tóku (utan ráðherra).
Smári Geirsson skólameistari
í Neskaupstað og Einar Már
Sigurðarson skólafulltrúi í Nes-
kaupstað höfðu framsögu um
stöðu verk- og tæknimenntunar
á Austurlandi, en þessir tveir
menn ásamt fulltrúum frá SSA
hafa ferðast um öll þjónustu-
svæði SSA í sumar og kynnt
þessi mál.
í máli þeirra Smára og Einars
kom fram að mjög brýnt er að
Austfirðingar sameinist um
rekstur höfuðskóla verk- og
tæknimenntunar - Framhalds-
skólans í Neskaupstað. Pað
kom líka í ljós að fundarmenn
voru sammála því að það bæri
að gera en að sjálfsögðu hafa
menn mismunandi áherslur á
því hvernig að því skuli staðið.
Ólafur Steinar Valdimarsson
ráðuneytisstjóri í samgöngu-
ráðuneytinu gerði grein fyrir
skýrslu nefndar sem skipuð var
til að gera úttekt og tillögur um
samgöngukerfi, skipulag sam-
gangna og flutningaþjónustu á
Austurlandi. Sýndist mönnum
sitthvað um þessa skýrslu en
hún er upp á 111 síður. Verður
fjallað nánar um hana hér í
blaðinu síðar.
Á fundinum var kosin ný
stjórn fyrir SSA og hana skipa:
Reynir Gunnarsson, Bú-
Framhaldsnám
áHöfn
berst í bökkum
Nú nýverið veitti mennta-
málaráðuneytið loks heimild
fyrir framhaldsnámi á fyrsta ári
við gagnfræðaskólann á Höfn í
Hornafirði, en hafnaði beiðni
heimamanna um annað ár.
Þessi afgreiðsla ráðuneytisins
hefur valdið miklum vonbrigð-
um og erfiðleikum. Góðar líkur
voru á sl. vor, að um 50 nemend-
ur yrðu í framhaldsnámi á Höfn
næsta vetur, en nemendur hafa
að sjálfsögðu leitað annað eftir
skólavist vegna ríkjandi óvissu.
Þó eru líkur á, að um 25 nem-
endur stundi nám á 1. ári næsta
vetur og að auki er fyrirhugað
nám fyrir vélstjóra eftir áramót.
Óvissan um stöðu framhalds-
námsins á Höfn er óþolandi fyrir
alla hlutaðeigandi. Þykir
mönnum að vonum hlutur
menntamálaráðuneytisins með
endemum í þessu máli, en því
miður er afgreiðsla þess ekki
einsdæmi. Þar við bætist, að
þrengt er að kennslukvóta skól-
anna, þannig að þeim er gert ill-
mögulegt að starfa.
H. G.
og sam-
baugi
skólamálum
landshreppi, Tryggvi Árnason,
Nesjahreppi, Sigurður Gunn-
arsson, Fáskrúðsfirði, Kristinn
V. Jóhannsson, Neskaupstað,
Þorvaldur Jóhannsson, Seyðis-
firði, Helgi Halldórsson, Egils-
stöðum, Svala Eggertsdóttir,
Fellahreppi, Alexander Árna-
son, Vopnafirði, Sigfús Guð-
laugsson, Reyðarfirði.
Nýkjörin stjórn kom saman
til fundar strax að loknum aðal-
fundinum og var Þorvaldur Jó-
hannsson einróma kjörinn
formaður sambandsins.
Hér á eftir fara ályktanir, sem
samþykktar voru í atvinnu- og
skólamálum á fundinum. Ann-
arra ályktana verður getið síðar,
eftir því sem ástæður þykja til.
G. B.
Aðalfundur SSA:
Ályktun um atvinnumál
Aðalfundur SSA haldinn á Höfn í Hornafirði 24. - 25.
ágúst 1984 vekur athygli stjórnvalda og landsmanna allra á
þeim vanda sem við er að glíma í sjávarútvegi á Austurlandi.
Nú er svo komið að rekstrarstöðvun blasir við í mörgum
fyrirtækjum í sjávarútvegi með ógnvænlegum afleiðingum fyr-
ir landshlutann.
Sveitarfélögin eru í miklum greiðsluerfiðleikum því burðar-
ásar atvinnulífs þeirra, útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækin geta
ekki greitt til sveitarsjóðanna.
Verði ekki brugðist hart við og þessum undirstöðuatvinnu-
greinum sköpuð lífvænleg rekstrarskilyrði er stutt í frekari
samdrátt á landsbyggðinni.
í sjávarbyggðum Austurlands búa 9.000 manns eða um 70%
íbúa landshlutans.
SSA hefur áður bent á að hafin er fólksflótti af landsbyggð-
inni til höfuðborgarsvæðisins. Takist ekki að bægja frá að-
steðjandi vá mun sá flótti magnast.
Aðalfundurinn vill minna á mikilvægi síldveiða og vinnslu
fyrir fjórðunginn.
Undanfarin ár hafa milii 40% og 50% síldaraflans komið
á land og verið unnin í austfirskum sjávarplássum, og um
60% -70% síldarsöltunarinnar hafa farið fram á Austurlandi.
Þessi atvinnurekstur er hins vegar í mikilli hættu vegna mikils
framboðs síldar frá öðrum þjóðum og verulegrar verð-
samkeppni.
Fundurinn vill því leggja áherslu á mikilvægi sovéska mark-
aðarins fyrir saltsíld og skorar á stjórnvöld að vinna ötullega
að því með hagsmunaaðilum að auka og treysta þessi viðskipti.
Aðalfundur SSA:
Samstarf um kjarnaskóla iðn- og
tæknimenntunar á Austurlandi
A aðalfundi Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördœmi, sem haldinn var á Höfn í Hornafirði
24. og 25. ágúst sl., var samhljóða samþykkt tillaga þar sem lýst er yfir stuðningi við þœr hugmyndir,
sem kynntar hafa verið að undanförnu, um samstarf sveitarfélaga ífjórðungnum um rekstur og uppbygg-
ingu Framhaldsskólans í Neskaupstað, sem er kjarnaskóli iðn- og tœknimenntunar á Austurlandi.
Samstarf sveitarfélaga um skóla af þessu tagi hefur þegar tekist á Suðurnesjum, Suðurlandi og
Norðurlandi vestra og nú er unnið að samstarfssamningi á Vesturlandi.
Ljóst eraðá fundi SSA náðist með samþykkt þessarar tillögu merkur áfangi í uppbyggingu framhalds-
náms áAusturlandi, en stjórn SSA varfalið aðskipa nefnd til að vinna aðfrekari framgangiþessa máls.
Tillagan, sem samþykkt var á aðalfundinum, hljóðar svo í heild:
Aðalfundur SSA haldinn á
Höfn í Hornafirði 24.-25. ág-
úst 1984 lýsir yfir stuðningi við
þær hugmyndir sem kynntar
hafa verið að undanförnu um
samstarf sveitarfélaga í fjórð-
ungnum um rekstur og upp-
byggingu kjarnaskóla iðn- og
tæknimenntunar á Austur-
landi, Framhaldsskólans í
Neskaupstað.
í ljósi þeirrar jákvæðu um-
fjöllunar, sem málið hefur
hlotið á kynningarfundum á
þjónustusvæðum SSA felur
fundurinn stjórn SSA í sam-
ráði við sveitarstjórnir að
skipa nefnd, sem í eigi sæti
einn fulltrúi frá hverju þjón-
ustusvæði. Einnig tilnefni
stjórnin einn mann úr sínum
hópi, sem jafnframt verði for-
maður nefndarinnar. Skóla-
fulltrúi Neskaupstaðar og
skólameistari Framhaldsskól-
ans í Neskausptað starfi með
nefndinni.
Viðfangsefni nefndarinnar
verði:
1. Undirbúningur samstarfs
sveitarfélaga á Austurlandi
um kjarnaskóla iðn- og
tæknimenntunar í fjórð-
ungnum.
2. Frágangur samnings í sam-
ráði við menntamálaráðu-
neytið.
3. Umsjón með þeirri um-
fjöllun sem samningurinn
fær hér eystra í sveitar-
stjórnum.
4. Ákvörðun um gildistöku
samningsins.
5. Ákvörðun um heiti
skólans.
6. Umfjöllun um framkvæmd
einstakra greina samnings-
ins (fjármálastjórn, inn-
heimtufyrirkomulag, kjör
skólanefndarmanna).
7. Undirbúningur starfs vænt-
anlegrar skólanefndar, sér-
staklega varðandi fram-
kvæmdir við skólann s. s.
byggingu heimavistar og
verknámshúss.
Nefndin ljúki störfum eigi
síðar en fyrir aðalfund SSA
1985.